Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1983, Blaðsíða 13
DV. LAUGARDAGUR 22. JANUAR1983.
13
Menning Menning Menning
BL — -. m ‘
hún sé á markaði. Hætt er viö að þær
týnist meö öllu sem afskiptar veröa og
útundan í fjölmiölunum og þar meö
umræðunni.
Fréttnæmi bóka viröist annars eink-
um ráöast af tilætluðu sölugildi þeirra,
eins og best sést á bóksöluiistunum
sem blööin birta fyrir jól. Fyrir utan
lista bókaútgefenda komu samskonar
sölulistar, sem blööin létu sjálf taka
saman, þrisvar sinnum í DV og fjórum
sinnum í Tímanum, allir byggöir á
upplýsingum úr bókabúöum á víö og
dreif um landiö og þar á meðal öllum
stærstu bókaverslunum aö sögn. Hvaö
skyldu þessir listar segja sem mark er
á takandi um bókamarkaö og bóksölu?
Mikiö, meira, mest
Á öllum listunum sameiginlega var
alls getiö um 32 rit, þar af átta bama-
bækur. Nokkrar bækur eru sameigin-
legar á öllum listunum og varanlegar á
þeim, koma fyrir í hvert skipti sem
listi var birtur í einhverju blaöinu eöa
þeim öllum. Þetta sýnir í öUu falli al-
mennan áhuga á bókum sem snemma
voru út komnar. Ennfremur má ætla
aö síðustu listamir, eftir aö skriöur er
kominn á bóksölu, og þá einkum síöasti
Usti bókaútgefenda, sýni mjög
verulega sölu þeirra bóka sem þar er
getið og síðar komu út.
Ég forvitnaöist hjá nokkrum helstu
útgefendum sem bækur áttu á listun-
um um upplag og sölu þeirra. Nú liggja
engar endanlegar sölutölur fyrir enn-
þá, en í öllu falli er vitað um útgefiö
upplag og dreifingu bókanna. Og ætla
má aö einmitt þessar bækur, sem svo
mikla athygli vöktu á jólamarkaöi,
eigi ennþá verulegar söluvonir eftir að
kauptíð er lokið. Raunar töldu útgef-
endur ýmsa vankanta á sölulistunum
og nefndu ýmis dæmi bóka sem álíka
seldust og aðrar sem þar er getið. Eitt
dæmi kom f ram um bók sem selst hafði
á viö þaö sem mest gerist án þess aö
koma fram á neinum sölulista, en
annars staöfestu upplýsingar útgef-
enda í aðalatriðum þaö sem fram kom
á listunum um fáeinar söluhæstu bæk-
urnar.
Eftir þessum heimildum, bóksölu-
listunum og upplýsingum útgefenda,
er sem sé unnt að hætta á ágiskun um
nokkrar „vinsælustu bækur” á jóla-
markaðnum í vetur, eins og gert er á
meöfylgjandi lista. Þar eru taldar 22
bækur alls sem viröast hafa selst í
upplagi sem nemur frá 3000 og upp í
9—10.000 eintök.
Engin þeirra bóka sem hér er getið
kom út í minna upplagi en 3000
eintökum. Þrjár voru gefnar út í 10—
11.000 eintökum, fjórar í 6—8000, sjö í
5—6000, en átta í 3—5000 eintökum. Um
fáeinar bækur var þess getiö aö þær
væru meö öllu þrotnar hjá forlaginu,
aörar aö afgangur upplags ætti vísa
söluvon á næstunni, nokkrar aö forlag
kysi aö eiga þær í stóru upplagi vegna
langtíma-sölu.
Þaö má ímynda sér aö á listanum
komi fram nokkrar, þetta 5—10, bækur
sem allra best seldust áriö sem leið. En
listi sem þessi veröur auövitaö aldrei
tæmandi um allar bækur sem viðlíka
sölu ná og ýmsar aörar bækur á listan-
um, eöa svosem 3—5000 eintökum. Þaö
má til gamans gera ráö fyrir aö helm-
ingi fleiri bækur en hér er getið nái
„mestu sölu” árlega, gangi út á út-
gáfuári eöa í einni sölulotu út í 3000 ein-
tökum eöa þaðan af stærra upplagi.
Þaö væri þá um þaö bil tíundi hluti allr-
ar útgáfunnar á almennan markaö. Og
þær bækur eiga að vísu aö bera
kostnaö af hinum sem ganga meö tapi.
Einn útgefandi sem ég ræddi viö taldi
aö af útgefnum bókum skilaði aö
minnsta kosti helmingur þeirra aldrei
til fulls öllum tilkostnaöi.
Lifað loknu þessu?
Hvað segir listinn um bókmennta-
smekk og bókmenntanot? Kannski
best aö spá sem fæstu um þaö. Aö vísu
vekur athygli hve fátt er um skáldskap
þrátt fyrir þaö (nema þaö sé vegna
þess) hve margt kemur út af skáldrit-
um: aðeins fjórar skáldsögur, tvær
eftir unga íslenska höfunda, en tvær
þýddar eftir velmetna afþreyingarhöf-
unda. Fjórar eru safnrit, handbækur
og uppsláttarrit, þar af ein samprents-
bók. En sex eru ævisögur, endur-
minningar og samtalsþættir. Þar af er
raunar aðeins ein „frumsamin” í þeim
skilningi aö höfundur hennar sé einn
um sína hitu. I öllum hinum færa
höfundar í letur frásagnir annarra
manna. Og þrjár þessar bækur voru
upphaflega samdar og aö meginefni
birtar í blööumeöa útvarpi.
Af barnabókum eru þrjár sam-
prentsbækur, ein innlend myndabók,
en þrjár eru erlend safnrit um gátur,
leiki og þrautir, þýddar og staöfæröar
og með aöfengnu myndefni. Aöeins ein
frumsamin barnasaga á meðal
söluhæstu bamabóka.
Hvað þá um smekkinn? Það veröur
víst hver aö meta fyrir sig. Fyrir mína
parta er þaö frekar óskiljanlegt aö
blaöaviötöl eftir Árna Johnsen skuli
veröa meö eftirsóttustu bókum á
markaöi. Og þó síst skiljanlegra aö svo
dauðans simpill reyfari sem Dauða-
fljótiö eftir Alistair MacLean sé sú
skáldsaga sem flestir landsmenn þrá
að eignast og lesa á jólunum. Hitt er
gaman aö tvö þjóöskáld, hvort úr sinni
kynslóð, skuli hér komin á met-
sölulista: þaö efast ég um aö hafi hent
þá Einar Benediktsson eöa Þórberg
Þórðarson á meöan þeir voru sjálfir á
dögunumaösemja og yrkja.
Að bókakauptíð liöinni tekur lestr-
artími við. Þarflaust aö spá neinu um
þaö hvaö af þessum bókum á lífiö
framundan aö honum liðnum, á meðal
nýrra lesenda. Og samastaö um síðir á
meöal varanlegra bókmennta. Þaö er
mörg bókar ævin. Og óhófs ævi einatt
skömm.
SNYRTIFRÆÐINGAR ATHUGIÐ
EIIMSTAKT TÆKIFÆRI
Til sölu snyrtistofa og verslun í fullum rekstri í
leiguhúsnæöi á besta stað í Keflavík. Hentugt
fyrir eina til tvær konur. Hagstæöir greiösluskil-
málar. Nánari upplýsingar gefnar í síma 92-3676.
SKILTI
Falleg, útskorin skilti á húsid,
sumarbústadinn eda bátinn. Úrval trjá-
tegunda. Sendid „nafnid” og vid gerum
tilboö
Siðumúla 33, sími 82201, Box 117,101 Reykjavik.
BMW 520i 1982 BMW 316 1981
BMW520 1980 BMW 316 1979
BMW 518 1982 BMW 316 1978
BMW 518 1980 BMW 315 1982
BMW 323i 1981
BMW 323í 1979 RENAULT 9 GTS 1982
BMW 320 1982 RENAULT 20 TS 1979
BMW 320 1981 RENAULT 20 TL 1978
BMW 320 1980 RENAULT 12 TL 1978
BMW 320 auto 1977 RENAULT 12 TL 1977
BMW 320 1977 RENAULT 12 TL 1975
BMW 318í 1982 RENAULT5TL 1980
BMW 318i 1981 RENAULT 4 TL 1980
BMW 318 1978 RENAULT 4 van F6 1980
BMW 316 1982 RENAULT 4 van F6 1979
OPIÐ LAUGARARDAG FRÁ KL. 1-6.
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 86633
SÝNUM OG SELJUM
GOTT ÚRVAL
AF NÝJUM
OG NOTUÐUM BÍLUM
í DAG FRÁ KL. 10-4.