Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1983, Page 15
DV. LAUGARDAGUR 22. JANUAR1983.
15
Neytandi ársins hefur verið
valinn af DV. Af skiljanlegum
ástæðum verður nafn hans ekki
gefið upp hér. Við fengum þó
góðfúslegt leyfi til að líta inn á
heimili hans í vikunni og taka
mynd af honum í munaðinum.
Þessi mikli neytandi hefur svo
sannarlega ekki slegið slöku við í
lífsgæðakapphlaupinu. Oefað er
hann þar meðal fremstu manna. Og
að eigin sögn sá mesti í hverfinu eftir
áreiðanlegum skoðunum í gegnum
stórisana. I seilingarfjarlægð úr
hvíturo leðurhægindastólnum hefur
hann svo til allt er hugurinn girnist.
Beinið til dæmis augunum í efsta
hom myndarinnar til vinstri. Er þar
ekki sódastream-vélin vinsæla, sem
er fjárfesting upp á sjötíu goskassa
og er það ekki svo lítill sparnaður
(þú setur jú vatnið í flöskuna, færð
gosið úr vélinni og getur svo valiö
milli fjölda bragöefnategunda til að
bæta drykkinn.. .)
Heill skápur á hjólum af japönsk-
um hljómflutningstækjum á fjórum
hæðum er við hliöina á sódastream-
vélinni. Þar er að finna (auk fjög-
urra hátalara sem náðust ekki inn á
myndina) plötuspilara, segulbands-
tæki, útvarp og tónjafnara, svo að
sitthvaö sé nefnt, og skápurinn býð-
ur svo upp á sérstakan geymslustað
fyrir allar plöturnar. Við skulum
ekki gleyma hausfóninum, sem á
sínar innstungur í samstæðunni og
leiðir beint og einangrað í eyru
neytandans.
Til aö skapa andstæðu við tækni-
undrin hefur neytandinn tyllt blómi
smekklega við hlið hljómtækjanna,
en þau eru að sjálfsögöu úr plasti til
aö komist verði hjá óþarfa tilfærsl-
um við vökvun.
Skammt frá þessari blómadýrð'
rekum við augun í sjálft myndbandið
— gnægtabrunn hvers heimilis og
auðvitað fylgir því fjarstýring.
Myndbandinu — eða videoinu eins og
þessi hlutur er almennt kallaður —
er komið fyrir í litlum en sérlega
snotrum skáp úr palisander.
Fyrir ofan það er litasjónvarps-
stereotækið og því fylgir einnig fjar-
stýring (ef hin skyldi bila). Skjárinn
er vissulega tuttugu og sex tomma,
sá breiðastisem völer á. Og akkúrat
þegar við helgarblaðsmenn rákum
nefið inn á þetta heimili, sat neytand-
inn spenntur yfir filmueintaki sem
hann hafði nælt sér í á einni -leig-
unni. Og í miðjum æsingnum gat
hann stunið upp úr sér að hann væri
að bíða eftir raunverulegu morði
sem ætti að vera þáttur í þessu kvik-
myndaverki. Hann klykkti út með
því að segja að hann væri orðinn
leiður á leiknum morðum.
Við hlið sjónvarpsins hafði hann
náttúrlega tölvuspilið fullkomna.
Þessi vinalegi maður sagði okkur
þaö bjóða upp á mikla og hagnýta
möguleika: þjálfun hugaroghandar.
Það væri að vísu hægt að reikna
heimilisbókhaldiö með tækinu, en
skemmtilegast fyndist honum þó að
iðka stríðsleikina en óteljandi slíka
æsileiki væri hægt aö prógrammera
á spiliö.
NEITANDI ÍRSIAS
„Videoið gefur ofboðslega möguleika", segir neytandi ársins okkur
meðal annars. „Það er bókstaflega hægt að taka allt upp sem gerist og
skoða það siðan svo oft sem hugurinn girnist. Ég tek til dæmis upp
Eitthvað verða menn nú að éta í
skarkala rafvæðingarinnar. Fyrir
því hefur þessi neytandi gert ráð
með geislaofni sem getur að líta und-
ir tölvuspilinu. Inn í hann er auðvelt
að skutla margvíslegum örbylgjurétt-
um sem geymdir eru í frystiboxinu
handan hægindastólsins.
Þaö stóð svo illa á hjá neytandan-
um að hann var einmitt í fótanudd-
baöi þegar við litum inn til hans og
var hann því ekki búinn að snyrta í
kringum sig. Hann brosti bara að
því, sagði að þetta væri hvort eð er
oftast svona hjá sér, hann hefði svo
lítinn tíma til að taka til vegna allra
tækjanna. Hvað sem því leiö, benti
hann okkur á meö stolti að þetta fóta-
nuddtæki, sem hann hvíldi lappir
sínar í, væri alveg sérdeilis frábært.
Þaö hefði ekki aðeins tekið alla lýju
úr fótunum, heldur taldi hann sig
aldrei hafa hugsað skýrar en eftir að
hann fór að stunda tækið daglega. Og
flesta auglýsingaþætti sjónvarpsins á kerfið mitt. Maður verður jú að
fylgjastmeð. . ."
DV-mynd Gunnar V. Andrésson.
undraöist hann ekki að tækið væri
vinsælt.
Síma verður að hafa við höndina
svo að hann trufli ekki víbrasjón
fótanuddsins, stereo hljómtækjanna,
spennu vi ieosins og ilm plastblóms-
ins. Því J.efur neytandinn vafið um
lær sér nettum tölvusíma.
„Mér finnst ég ósköp hversdags-
legur maður,” sagði þessi ágæti
maður undir lok heimsóknarinnar.
,,Ég helli til dæmis enn upp á könn-
una eins og mamma geröi áöur fyrr.
Mér finnst svo eðlilegt að fólk reyni
aðhaldaígamlaoggóðasiði.. .”
Aöspurður hvað allur þessi
munaður heföi kostað hann, sagði
neytandinn að það væri eitthvaö um
þrjú hundruð þúsund. „Það finnst
mér alls ekki mikið,” bætti hann
við.. . ,,Ef litiö er til þess hvað þessi
munaður veitir manni mikla ánægju,
þá er þetta ódýrt. . . Svo styttir þetta
líka skammdegið.”
SÓLARFERÐIR IVIEÐ NÝJUM MÖGULEIKUM:
KANARÍEYJAR OG LONDON
BROTTFÖR ALLA ÞRIÐJUDAGA,
SAMDÆGURS í SÓLINA
Nú er hægt að skreppa ódýrt í vetrarsólina á Kanaríeyjum og dvelja þar 10 — 17 — 24 — eða 31
dag, eða fá tvo og hálfan dag í ferðalok í heimsborginni London á heimleiðinni,
án þess að ferðin kosti nokkuð meira.
Sem sagt, sjórinn, sólskinið og skemmtanalif í sólskinsparadís og leikhús og viðskipti á heimleið-
inni í London. — Eða samdægurs heim úr sólskinsparadísinni, ef Lundúnaviðkomu er sleppt.
Og athugið að svona ferð í vetrarsólarparadís kostar ekkert meira með þessum nýju ferðamöguleik-
um.
//ÆrXOMl (Flugferðir)
Aðalstræti 9, Miðbæjarmarkaðnum 2h. Símar 10661 og 15331.
Verð frá kr. 14.380,-
Takmarkað sætamagn.