Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1983, Síða 16
16
DV. LAUGARDAGUR 22. JANUAR1983.
Leifur Guðmundsson ihlutverki svertingjans Sonny's.
Emelia Baidursdóttir, Jónsteinn Aðaisteinsson og Anna Ringsted i
hlutverkum sinum.
DV-myndir GS/Akureyri.
,, I Hitabylgju I
duga engttt ;
V -; '. ' * ’ • 1
farsalætV9
segir Leifur Guðmundsson9 bóndiáKlauf9
sem leihur eitt aðalhlutverhið í frum-
sýningu <t Hitabylgju í Freyvangi í hvöld
„Ég hef óskaplega
gaman af leiklistinni;
hún gefur mér mikið.
Hún er aö vísu tíma-
frek og tíminn er tek-
inn frá heimilinu. En
mitt fólk stendur með
mér, annars væri
þetta ekki hægt.
Launin eru ánægjan
af samstarfi meö
góðu fólki. Það kalla
ég vel borgað.”
Þaö er Leifur Guömundsson,
leikari og bóndi á Klauf í Öngulsstaöa-
hreppi, sem hefur oröiö í samtali viö
DV. Leifur leikur eitt aöalhlutverkið
í „Hitabylgju”, sem Leíkféiag önguls-
staöahrepps og Ungmennafélagiö
Arroöinn frumsýna í Freyvangi í
kvöld, en aðrir leikendur eru Jón-
steinn Aðalsteinsson, Emelía
Baldursdóttir, Birgir Þórðarson,
Vilberg Jónsson, Anna Ringsted og
Hulda Kristjánsdóttir.
Kýrnar skilningsríkar
Leifur býr félagsbúi á Klauf meö
fööur sínum. Búa þeir feðgar meö
um 40 kýr og auk þess nokkrar kind-
ur og hesta, „svona rétt til aö vera
með,” eins og Leifur orðaöi þaö.
Hann var spuröur hvemig sam-
komulag væri milli bóndans og
leikarans?
„Þaö er bara nokkuö gott,”
svaraöi Leifur. ,,Á þessum árstíma
er ekki mikiö annríki hjá bændum,
en þrátt fyrir þaö væri þetta
leikstúss ekki mögulegt fyrir mig, ef
ég nyti ekki dyggrar aðstoöar hjá
fjölskyldunni. Eg fæ hjálp og hvatn-
ingu frá mínu fólki, sem er mér
ómetanlegt.”
Leifur hefur verið meö í verkefn-
um Leikfélags Öngulsstaöahrepps
undanfama fjóra vetur. Fyrr hefur
hann leikiö í gamansömum ærsla-
leikjum, en nú tekst hann á við
svertingjann Sonny í „Hitabylgju”,
hádramatisku verki.
— Hver er munurinn?
„Eg finn mikinn mun á þessu.
Ærslaleikirnir byggjast mikið á lát-
um og hamagangi en í Hitabylgju
duga engin farsalæti. Nú skiptir text-
inn meira máli og þetta hlutverk tek-
ur meira af sjálfum mér en þau hlut-
verk sem ég hef áöur fengist viö.
Svertinginn hefur verið meö mér
flestum stundum síöan æfingar hóf-
ust — ég hef meira aö segja tekið
hann meö mér í fjós og þulið rulluna
yfirkúnum.”
— Hvernig hafa kýmar brugðist
viö?
„Bara vel, enda eru kýmar
skilningsríkar skepnur. Þaö hefur
aö minnsta kosti ekki minnkað í þeirr
nytin. Ætli hún hafi ekki aukistef
eitthvað er,” sagöi Leifur og hló dátt
Enginn asni
— Þú leikur svertingja; hvemig
vinnur þú hlutverkið?
„Já, þaö er ýmislegt til; meira aö
segja bóndi norður viö heimskauts-
baug, sem reynir aö leika negra frá
Jamaica,” svarar Leifur kíminnn.
„Ég hef haft gaman af því að glíma
við Sonny, en hvort min túlkun er sú
eina rétta veröa aörir aö dæma um.
Eg reyni aö setja mig í hans spor,
reyni að túlka þaö hugarástand, sem
hann hlýtur aö komast í, þegar hann
finnur svertingjahatriö. Eg held aö
þetta sé greindur strákur, sem finn-
ur andúðina, jafnvel þótt hún sé ekki
látin í ljós meö berum oröum. Hann
er enginn asni.”
— Nú er þaö algengast hjá áhuga-
leikfélögum sem ykkar aö taka fyrir
létta gamanleiki. Hvers vegna ráö-
ist þiö í þaö stórverkefni aö setja upp
Hitabylgju?
„Verkefnisvaliö var erfitt. Viö vor-
um búin aö lesa mörg leikrit, en á
endanum varö Hitabylgja fyrir val-
inu. Undanfarna vetur höfum viö
verið meö ærslaleiki, en núna ákváö-
um viö að leggja metnað okkar aö
veöi og ráöast í átakameira verk. Viö
vil jum sanna þaö fyrir s jálfum okkur
og öörum, aö við ráöum við þaö.
Hvort það tekst á eftir aö koma í
Ijós,” sagöi Leifur Guðmundsson í
lok samtalsins.
Leikurinn um
Palmer-hjónin
Hitabylgja er eftir Bretann Ted
Willis og hún var sýnd hjá Leikfélagi
Reykjavíkur fyrir 13 árum eöa svo.
Einnig hefur hún veriö sýnd í
íslenska sjónvarpinu. Hitabylgja er
það verk höfundar, sem mestum vin-
sældum hefur náð. Þaö hefur veriö
sýnt í flestum stórborgum heims —
og nú í Freyvangi. I sjónvarpi hefur
verkiö náö til milljóna áhorfenda og
Hitabylgja hefur einnig veriö kvik-
mynduð. Þá lék John Mills aöalhlut-
verkið. Hitabylgja var líka sýnd í
Jóhannesarborg — borg Vorsters —
en þar eru svertingjar í miklum
meirihluta sem kunnugt er. Þrátt
fyrir það var fenginn hvítur maður
til aö leika svertingjann. Ef til vill
segir þaö sína sögu um þá fordóma
sem leikritið f jallar um.
í Hitabylgju er sagt frá Palmer
hjónunum, Jacko og Nell. Hann er
sjálfumglaöur verkalýösforingi, sem
gerir ekki ráö fyrir aö eiginkonan
Leikarar i uppfœrstu Árroðans og Leikfólags öngulsstaðahrepps á Hitabylgju. F.v.: Emelía Baldursdóttir,
Anna Ringsted, Leifur Guðmundsson, Birgir Þórðarson, Hulda Kristjánsdóttir, Vilberg Jónsson og Jón-
steinn Aðalsteinsson.