Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Page 17
DV. LAUGARDAGUR5.MARS1983. Bflar Bflar Bflar Bflar Bflar Audi 100: Fyrirrennari nýs tíina? Þegar hinn nýi Audi 100 kom fram á sjónarsviðið vakti hann gífurlega athygli. Þar kom fram ný og mjúk lína, sem spáð hefur veriö aö koma muni meira og minna fram í öllum bílum af svipaðri stærð á næstunni. Þessi sérstaka hönnun Audi gefur honum lægstu loftmótstööu sem enn hefur komið fram á fjöldafram- leiddum bíl eða stuöulinn Cw-0,30. Þessi stuöull er síðan notaður til að reikna út raunverulega loftmótstööu bílsins og þá fæst út hve mörg hestöfl þarf raunverulega til að koma bílnum áfram á ákveðnum hraða. Hvað Audi 100 viðkemur þá næst þessi lága loftmótstaða með því að t.d. rúður liggja slétt við yfirbygging- hingað koma bílamir með fimm strokka vél, 1,9 lítra sem gefur 100 hestöfl. Síöan er hægt að fá stærri vél 136 hestöfl og eins 2,0 lítra dísilvél. Audi 100 hefur fengið mjög góða dóma erlendis fyrir góða aksturshæfni og hve lítiö heyrist inn í bílinn í akstri. Aö sjálfsögðu þarf aö reynsluaka bíln- um við aðstæður hér hjá okkur til að bera saman erlenda dóma um bílinn við kröfur íslenskra kaupenda. I umfjöllun um bílinn í erlendum blöðum hefur honum verið hælt fyrir hve rými innan í bílnum hefur verið bætt, framhjóladrifið gefi góða aksturseiginleika og hve vel bíllinn sé útbúinn og sé sem slíkur ja&ifætis BMWogBenzásumumsviðum. -JR A bílasýnmgunni hjá Heklu vakti hinn nýi Audi 100 mikla og verðskuldaða athygli enda valinn bíll ársins af mörg- um bilablöðum. Loftmótstaðan er sú minnsta er mælst hefur hjá f jöldaframleiddum bil, aðeins 0,30. AUDI100 — NOKKRAR TÖLUR: Lengd: 4793 mm Breidd: 1814 mm Hæð: 1422 mm Minnsta hæð frá jörðu: 126 mm Snúningsradíus: 11,4 metrar. Vökvastýri. Hjól: 165SR14. Þyngd: 1145 kg. Vél: 5 strokka, 1921 rúmsm, 100 hestöfl bhp (74 kW) við 5600 sn. á mínútu. Gírkassi: 4 gíra meö yfirgír. Verö: pr. 1.3. ’83: Audi 100 435.000. Audi 100CC 466.000. (Verö er án ryövarnar og skráningar). Aukabúnaður: Sjálfskipting kr. 39.000; 136 hestafla vél kr. 23.000. 5 strokka dísilvél kr. 36.000. Allt er gert til að minnka loftmótstöð- una. Að aftan er komið fyrir „spoiler” eða vindkljúfi undir afturstuðaranum til að gera bílinn stöðugri. Utispeglamir eru gerðir þannig að þeir kljúfi loftið sem léttast. una, framendinn er lágur og að aftan er komiö fyrir sérstökum vindkljúfi. Utispeglar eru sérhannaðir til að kljúfa loftið með sem minnstri mótstöðu. Bíllinn hefur verið gerður mun létt- ari en eldri gerðin var, þó að hann sé stærri. Ryðvöm hefur verið bætt veru- lega, um 30% bílsins em galvaniseruö og innri bretti era til dæmis úr plasti og fest með boltum úr ryðfríu stáli. Á bílasýningu hjá Heklu hf. var Audi 100 sýndur fyrir skömmu. Tvær gerðir verða á markaði hér, Audi 100 og 100 CC. Þar fyrir utan em tvær gerðir til viðbótar CS og CD sem eru mun íburðarmeiri. Bæði er Audi 100 með fjögurra og fimm strokka vél, en Alhliða f|öl- skyldubfll med miklu plássi I kjölfar sýningarinnar á þýsku bílunum hélt Hekla hf. sýningu á þeim bílum sem þeir selja frá Mitsu- bishi í Japan. Þar var um f jölbreytta línu aö ræða, allt frá hinum vinsæla Colt til Pajerojeppans og nýs fjór- hjóladrifins „minibus”. A þessari sýningu var kynntur nýr Lancer F, sem er framhjóladrifinn fjölskyldubíll af millistærð. Hér á landi hefur framhjóladrifið þegar sýnt ágæti sitt og með þverstæðri vélinni fæst mun meira fótarými frammi í. Farangursrými er mjög mikið, 286 lítrar, og það má síðan auka með því að fella fram aftursætisbak.annað- hvort að fullu eða að hálfu og þannig fá rými fyrir stóra hluti, sem ella kæmust ekki fyrir. Varadekkið er fellt niður í gólf farangursrýmis og þar er einnig aukarými fyrir verk- færi eða aðra smáhluti. Fjöðran er sjálfstæð á öllum hjól- um og tannstangarstýrið ásamt framhjóladrifinu gefur góða aksturs- eiginleika. Ein nýjung, sem fram hefur komið hjá Mitsubishi, er hið svokallaða „super shift” eða tvískipting á gír- kassa. Þetta hefur í för með sér aö með einfaldri skiptingu er drifhlut- falli alls gírkassans breytt þannig að lægra hlutfall er notað í bæjarakstri en hærra í léttari akstri og úti á vegum. Þetta hefur verulega spar- neytniíför með sér. Mitsublshi Lancer F: Lancer F, alhliða f jölskyldubill af millistærð. Að innan er bíllinn vel útbúinn, sætin góð og klædd með ofnu áklæði. Mælaboröið er þægilegt og meðal annars búiö snúningshraðamæli, sem í æ ríkari mæli ryður sér til rúms sem „standard” búnaður í bíl- um, enda ef hann er notaður rétt þá sparar hann bæði bensín og slit á vél. Sem alhliða fjölskyldubíll nýtist Lancer F vel, sérstaklega vegna mikillar f lutningsgetu. -JR Hægt er að leggja niður aHt bak aftursætlsins eða hluta sem gcfur aukna flutningsgetu. LANCER F — NOKKAR TÖLUR: Lengd: 4135 mm Breidd: 1590 mm Hæð: 1345 mm Minnsta hæðfrá jörðu: 170 mm Snúningsradíus 5,0 m. Hjól: 155SR13. Þyngd: 865 kg. Vél: 4 strokka, 1410 rúmsm, 70 hestöfl DIN (51kW) viö 5000 sn. á mín. Gírkassi 4 gíra (X2). Verð: pr. 16.2. ’83: Lancer F 1400 GLX 192.000, Lancer F GLX sjálfskiptur 237.800. (Verð er án ryövamar ogi skráningar.)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.