Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Síða 23
DV. LAUGARDAGUR 5. MARS1983.
Popp
Popp
23
Popp
náö þeim áfanga aö vera taliö eitt
besta live-band í gangi. Og Live Bull-
ett er talin ein allra besta live-platan.
Síöar á árinu 1976 kom stúdíóplatan
Night Moves sem náöi miklum
vinsældum og mun nú hafa selst í
tæplega4 milljónumeintaka.
IX.
Fyrir þá sem lítiö þekkja til Bob
I.
Maður er nefndur Bob Seger. Hann
á síðuna í dag. Þó ekki væri nema
fyrir nýju plötuna hans, The
Distance, sem aö vísu er skráö árs-
gömul en er samt sem áður nýkomin
út. Annars er Bob, sem hvorki er
blóðtengdur Pete Seeger né Bobba á
South-Fork, gott dæmi um merkileg-
an músíkant sem átti afskaplega erf-
itt meö aö afla sér og sínum út-
breiddra vinsælda. Bob Seger lét sér
í rúman áratug nægja aö spila fyrir
aðdáendur sína í iðnaöarborginni
skítugu, Detroit, og þeir voru þar
ekki svo fáir. Flest lög Segers fóru á
topp tíu í Detroit. En hvaö var
Detroit miöað viö allan heiminn?
II.
Bob Seger fæddist áriö 1947. Hvar?
Hvernig spyröu? Fer ekki frekari
sögum af honum fyrr en um miöjan
sjötta áratuginn. Seger, sem alla
sína tíö hefur auk þess aö syngja lag-
lega leikiö aðallega á gítar en einnig
stöku sinnum á hljómborö, stofnaöi
fyrstu hljómsveitina sína árið 1964.
Hún var nefnd The Last Heard.
Tveimur árum síðar lék Seger inn á
sína fyrstu smáskífu en ekki lofaöi
byrjunin góöu. Á sama tíma og lagið
Heavy Music klifraði inn á lista fór
plötukompaníiö á hausinn. Eftir þaö
tók Bob Seger upp samstarf viö
Capitol. Næstu tvö ár komu tvær
smáskífur enn undir heitunum 2 + 2
= ? og Ramblin’ Gamblin’ Man.
Um þetta leyti tók Seger upp á
svipuðum leik og Lónlí Blú Bojs og
Stuömenn geröu um áratug síöar.
Hann og félagar tóku sér dulnefnið
The Beach Bums og gáfu út lagið
Ballad Of The Yellow Berets.
Tileinkaö grænhúfusveitum fööur-
landsins í Víetnam. Eiginlega átti
þetta aö vera grínlag. Árangurinn
varö sá aö Seger sneri sér aftur aö
rokkinu.
VII.
Stranger In Town hét breiðskífa
sem kcm 1978 og haföi Seger þá
safnað um sig hópi frægra kappa,
meðal annars Eagleskappann Glen
Frey og Don Felder. Þaö var þessi
plata sem festi Bob Seger og Silver
Bullet Band endanlega í sessi fyrir
vestan. En Evrópubúar tóku ekki viö
sér fyrr en platan ljúfa Against The
Wind kom út 1980. Þar voru enn
Eaglesmeölimir á feröinni auk
sessionhópsins Muscle Shoals Rythm
Section sem einnig kom mikiö viö
sögu á Night Moves og Stranger In
Town. Oggerirenn.
VIII.
I fyrra sendi Seger og kompaní frá
sér aöra tvöfalda hljómleikaplötu
undir nafninu Nine Tonight. Fyrir-
taksgripur mun hún vera þótt hún
færi hér yfir ofan garö og neöan. Og
erum viö þá komin aö nýju plötunni
The Distance. Sú plata var unnin aö
mestu í Los Angeles og naut Seger
aöstoöar frægra manna. Fyrstan
skal nefna pródúsentinn Jimmi
Iovine sem gert hefur góöa hluti meö
stórstimum á borö viö Bruce Spring-
steen, Tom Petty og Dire Straits. Og
á plötunni bregður fyrir vestur-
strandargenginu Russ Kunkel,
Waddy Waditel og Danny Kortch-
mar. Auk hljómborösleikarans nafn-
kunna úr E-strætinu hans Spring-
steen, Roy Bittan. Er þá ótalinn fyrr-
nefndur vöðvagrynningahópur.
Ágætur hópur. Bob Seger lætur ekki
staðar numiö og aö sögn hefur hann
sjaldan eöa aldrei verið betri.
III.
Fyrsta breiöskífa Bob Segers kom
út árið 1969 og hún hét The Bob Seger
System. Þar voru honum til
aðstoðar Dan Honaker (bassi), Pep
Perrine (trommur) og Dan Watson
(hljómborö). Sama ár fylgdi platan
Noah. Árið 1970 kom Mongrel og 1971
Brand New Morning. Fjórar plötur á
þremur árum sem ekki seldust nema
á heimaslóöum. Bob Seger var ekki
ánægöur með þá útkomu og tók þá
ákvöröun aö hætta afskiptum af
rokktónlist og innritaðist í
framhaldsskóla.
IV.
Námsáhuginn dvínaði fljótt og lag-
línur ásóttu Seger stööugt. Hann
sneri aftur og ferðaöist um með
dúettnum Teegarden and Van Winke
sem ég veit engin deili á. Eitthvaö
mun þaö samstarf þó hafa sett svip á
fimmtu breiðskífuna, Smokin ’O.P.’s
sem út kom 1972. Á þeirri breiðskífu
eru lög úr ýmsum áttum (meðal
þeirra sem þar eiga lög eru Chuck
Berry og Stephen Stills) og aðeins
eitt eftir Seger sjálfan. Þótt ekki
fyndist frægðin eftirsótta var Bob
staöráöinn í aö leggja ekki upp
laupana fyrr en leitin bæri árangur.
1973 sendi hann frá sér enn eina
breiðskífu sem hét Back In ’72 og frá
og með þeim tíma tók frægum
nöfnum aö bregöa fyrir kringum
Seger. A plötunni þeirri er til aö
mynda enginn annar en J.J. Cale. En
sjöunda platan, Seven, og sú átt-
unda, Beautiful Loser, náðu heldur
ekki að slá í gegn. Þær geröu þó sitt
til aö þess var ekki langt að bíöa.
V.
Sama ár og bróðir minn varö ellefu
ára, 1974, tók Bob Seger sig til og
stofnaði nýja hljómsveit — The
Silver Bullet Band. Uppstillingin var
þannig: Drew Ábbott (gitar), Alto
Reed (blástur og ásláttur), Ric,
Manasa (hljómborð), Chris Campell
(bassi) og Charlie Martin
(trommur). 1975 tók Robyn Robbins
stöðu Manasa og 1978 leysti David
Teegarden Martin af hólmi.
Silfurkúlubandiö kom ekki viö
sögu á plötum Segers fyrr en hið
tvöfalda live-albúm Live Bullet leit
dagsins ljós 1976. Og þar meö björn-
innunninn.
VI.
Bob Seger og félagar slógu loks í
gegn í Bandaríkjunum. Stuttu áöur
en platan kom út fóru þeir meö
Bachman-Tumer-Overdrive í kon-
sert út um föðurlandiö og vöktu
mikla athygli. Kannski ekki að
ósekju því að silfurkúlubandið hefur
Seger má nefna aö hann er rokkari
af fyrstu gráöu — alvöru rokkari
meö hása en aölaðandi rödd og
ballööumar hans eru meö þeim
fegurri sem heyrst hafa.
Sérfræöingar segja músik hans hafa
oröið fyrir áhrifum frá Bob Dylan,
Rolling Stones, John Fogerty, Bruce
Springsteen og fleirum sem ég kann
vart aö nefna. Og textahöfundur er
hann ágætur — vitnar gjarnan til
eigin reynslu og lífshlaups auk þess
sem hann stingur á ýmsum kýlum
samfélagsins. Nýja platan er til aö
mynda tileinkuð f jarlægöinni — ekki
síst milli einstaklinganna hér á jörð.
En að ööru leyti: bless. -tt.