Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1983, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1983, Blaðsíða 18
18 DV.FÖSTUDAGUR15. APR1L1983. DV. FÖSTUDAGUR15. APRlL 1983. 27 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir fþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Borðtennismenn fara til Japans Fjórlr bnrötennismenn eru nú á leiðinni til Japans, þar sem þeir taka þátt í heimsmeistara- keppninni í borðtennis. Þetta er karlalandsliðið sem er skipað þeim Tðmasi Sölvasyni, KR, Hiimari Konráðssyni, Víkingi, Kristjáni Jónassyni, Víkingi og Gunnari Finnbjörnssyni, Erninum. ísiands- meistarinn Tómas Guðjónsson gat ekki farið þar sem hann er í námi við Háskólann. Leiknir verða níu Iandsleikir í Japan. Tómas Guöjónsson varö sigurvegari í punkta- móti Víkings á miðvikudagskvöldiö og hefur hann hlotið fiest stig í punktakeppninni í borðtennis i vetur. Tómas vann Tómas Sölvason 21—18 og 21—13 þannig að Tómas Sölvason þurfti að leika um annað sætið við Gunnar Finnbjörnsson sem vann 21—23, 21—14 og 21—14. •SOS. DómararíHöllinni Dómarar í úrsiitakeppninni í handknattleik í Laugardalshöll um helgina hafa verið ákveðnir. Þeir Björn Kristjánsson og Úlafur Haraldsson dæmdu leik Stjörnunnar og FH kl. 20 í kvöld en Gunnlaugur Hjálmarsson og Öll Olsen leik Vikings og KR. Á laugardag dæma Rögnvald Erlings og Stefán Arnaldsson leik Víkings og FH kl. 14 en Björn og ölafur leik KR og Stjörnunnar. A sunnudag dæma Stefán og Rögnvald leik Stjömunnar og Víkings en ÖIi og Gunnlaugur leik FH og KR. -bsim. Stórbætti árangur sinn í kúluvarpi Eggert Bogason i FH stórbætti árangur sinn í kúluvarpi á miðvikudag: varpaði 16,18 metra en átti best áður 15,29 metra. f keppninni varpaði Egg- ert einnig 15,85 m og 15,88 m. Helgi Þ. Helgason varpaði 15,80 m. Eggert æfir nú talsvert sleggjukast og hefur á æfingum að undanfömu kastað sleggjunni um og yfir 50 metra. -hsím. Dai Davies settur úr landsliði Wales Daí Davies, Swansea, sem um langt árabil hefur verið aðalmarkvörður Wales í knattspyraunni, var ekki einu sinni í landsliðshóp Mike England þegar hann valdi lið Wales í Evrópuleikinn gegn Búlgariu í Wrexham 27. apríl. Markverðir liðsins verða Neville Southall, Everton, og David Felgate, Lincoln City, sem leikur í 3. deild. Felgate kemur í stað Davies en Swansea-mark- vörðurinn hefur lcikiö 52 landsleiki fyrir Wales. Einn nýliði er í landsliði Wales, Steve Lowndes, Newport County, sem er efsta lið 3. deildar. Aðrir í landsliðshópnum em Joey Jones, Paul Price, Jeremy Charles, Noel Ratcliffe, Kenny Jackett, Bryan Flynn, Peter Nicholas, Mickey Thomas, Nigel Vaughan, Ian Rush, Gordon Davies, Robbie James og Leighton James. -hsím. Lést ef tir knatt- spyrnuleik Enski landslfðsmaðurinn hér á ámm með Aston VUIa, Gerry Hitchen, lést á sjúkrahúsi í Wales í gær eftir að hafa veikst í knattspyrauleik í Mold í Wales. Hitchen var 48 ára, var landsliðsmaður hjá Villa fyrir 1960 en var seldur frá Villa til Inter Milano á ítalíu fyrir 95 þúsund sterlingspund sem var geysimikU upphæð á þeim ámm. Hitchen lék 7 landsleiki, meðal annars í heimsmeistarakeppninni í ChUe 1962. Skoraði þá mark Englands í 1—3 tapinu gegn BrasUIu i undanúrsUtum. -hsím. Góð af rek í frjálsum íþróttum A frjálsíþróttamótinu í KnoxvUle Tennesee um síðustu helgi sem nokkrir íslendlngar kepptu á náðist mjög góöur árangur. Jerome Carter stökk 2,26 m í hástökki. Mel Lattany hljóp 100 m á 10,24 sek., Sunder Nix 400 m á 45,17 sek. J. Grímes stökk, 8,26 m i langstökki, Stanley Blalock hljóp 200 m á 20,40 sek. og MUse Lehman varpaði kúlu 20,08 m eða einum sentímetra lengra en Öskar Jakobsson varpaði á móti í Texas á sama tíma. -hsím. Strákarair í Þór í Vestmannaeyjum urðu efstir í fallkeppninni í 2. deUd í handknattleiknum. Halda því sæti sínu i deUdinni og næsta keppnistímabU gæti orðið sögulegt hjá þeim. FyrirUði landsUðsins, Þorbergur Aðalsteinsson, mun þjálfa og leika með Þór. Myndin að ofan var tekin þegar Þórarar voru í Reykjavík á dögunum í keppninni i 2. deild. DV-mynd Loftur. Það var ekki farið eftir leikreglum — þegar Breiðabliki var tilkynnt um leikbann Péturs Jóhannessonar í leiknum gegn Gróttu „Pétursmálið” hefur vakið mikla athygli og likist það óneitanlega mikið „Traustamálinu”, sem kom upp í knattspyrnunni 1980 þegar Framarar iétu Trausta Haraldsson, lands- liðsmann í knattspyrau, leika undanúr- sUtaleik í bikarkeppninni gegn FH þar sem þeim hafði ekki boristúrskuröur aganefndar KSÍ á tilsettum tíma. Framarar unnu það mál eins og kunnugt er. Mál Péturs Jóhannessonar, þjálfara og leikmanns Breiðabliks, er keimlíkt máU Trausta, þar sem Pétur fékk ekki að vita með hefðbundnum hætti að hann hefði verið dæmdur í leikbann — fyrir leik Breiöabliks og Gróttu í 2. deildarkeppninni í handknattleik. Það stendur skýrum störfum í dóms- og refsiákvæðum ISI, sem HSI vinnur eftir, aö tilkynna eigi aðilum dóm eða úrskurð í ábyrgðarbréfi. I 15. lið 7. greinar stendur eftirfarandi: — „Birta skal aöilum dóm eða úr- skurð í ábyrgðarbréfi ef þeir eru ekki viöstaddir dómsuppsögn og skal þá jafnframt greint frá heimild aðila til á- frýjunar, áfrýjunarfresti og hvert á- frýja megi.” Þá segirm.a. í 16. lið: — „Tilkynna skal alla dóma um óhlutgengi félagi hins dómfellda, ef um einstakling er aðræða.” Það er ljóst að dómstóll HSI, sem vitnar hvað eftir annað í reglur ISI í dómsúrskurði sínum, hefur ekki unniö eftir þessum reglum. Samkvæmt reglum HSI ber dómstóli HSI að fara með öll mál sam- kvæmt dóms- og refsiákvæðum ISI, þar sem reglur HSI vísa til dóms- og refsiákvæða ISI. Blikarnir ætla að áfrýja Það er ljóst að Breiðablik ætlar að áfryja dómi dómstóls HSI til dómstóls ISI og er það afar eðlilegt en um áfrýj- un til íþróttadómstóls má sjá eftirfar- andi í 5. grein — öðrum lið í dóms- og refsiákvæðum ÍSI: — „Skjóta má úrskuröi sérdómstóls til sérsambandsdómstóls og héraðs- dómstóls, til hlutaðeigandi sér- sambandsdómstóls og einnig skal heimilt að áfrýja úrskurði sérráðs- dómstóls og héraðsdómsstóls beint til íþróttadómstóls ISI, ef eitthvaö hefur komið upp í meöferö málsins á fyrsta stigi eða eftir uppkvaðningu úr- skurðar, fyrir lok áfrýjunarfrests, sem gert hefurmálið almennara eðlis.” Breiöabliksmenn voru ekki ánægðir með að Ingvar Bjömsson, formaður dómstóls HSI, sem er félagsmaður í Haukum, hafi starfað í dómstóli HSI i sambandi við „Pétursmálið”. Þeir telja að hann hafi átt að víkja úr dómi og benda þeir á 7. grein —13. lið dóms- og refsiákvæða ISI en þar segir: — „Enginn, sem sjálfur kann að hafa hag eða óhag af málalokum, eöa hefur verið við rekstur málsins riðinn á lægra stigi, má eiga sæti í dómi, er hann fjallar um það mál. Skuli dómendur víkja sæti, ef þeir geta ekki talist óhlutdrægir samkvæmt framan- sögðu og varamenn þeirra taki sæti. ” ____________________-SOS. StrákarniríTý með getraun — um söngvakeppni Evrópu Strákarair í 4. flokki Týs frá Vest- mannaeyjum í knattspyrnu hafa ákveðið að efna til getraunar um sigur- vegara í söngvakeppni Evrópu sem fer fram í Cardiff í Wales 23. apríl og verður sjónvarpað beint til íslands. Þetta er fjáröflunarleið fyrir flokkinn sem fer í keppnisferö erlendis í sumar. Strákarair hafa látiö útbúa getrauna- seðla og er fyrirkomulag getraun- arinnar þannig að spáð er um hvaða þjóðir verða í efstu þremur sætunum — eða frá hvaða þjóðum söngvararair koma sem hafna í efstu sætunum. „Það er skylda dómstóls ÍSÍ að taka málið fyrir” — segir Bergur Guðnason lögfræðingur um „Pétursmálið” — „Eg er ekki í vafa um aö ef dómstóll ISI tekur mál Péturs Jóhannessonar til meðferðar þá mun dómstóllinn gera dóm dómstóls HSI ómerkan og sigur Breiðablik<= gegn Gróttu verða látinn standa óhaggaður,” sagði Bergur Guðnason lögfræðingur en hann hefur tekið að sér mál Breiðabliksmanna, sem hafa ákveðið að áfrýja dómi dómstóls HSI um að leikur Breiöabliks gegn Gróttu, sem Breiðablik vann, hafi verið dæmdur Breiðabliki tapaður. Bergur sagði aðdómstóll HSI hefði hvað eftir annað vitnaö í reglur ÍSl þegar hann kvaö upp úrskurð sinn. j— Ég tel því það skyldu dómstóls ISI |að taka málið upp. Annað væri frá- leitt.sagðiBergur. -SOS. Hververður íslandsmeistari 1983? Lokaátökin í Laugar- dalshöllinni um helgina —fyrstu leikimir í kvöld og þá leikur KR við Víking kl. 21.15 Hvaða liö verður íslandsmeistari i handknattleik 1983? — Sigra Víkingar fjórða árið i röð eða tekst KR eða FH að setja strik i reikning þeirra? Þessum spurningum verður sennilega svarað um helgina í Laugardals- höllinni þótt hugsanlega gæti komið til aukaleikur um tslandsmeistara- titilinn. Sex síðustu leikirnir í úrslita- keppninni verða háðir um helgina. Fyrstu leikirnir í kvöld. Úrslitakeppnin hefur nú verið með nýju sniði. Fjögur efstu liðin frá mótinu i vetur leika til úrslita — f jórar umferðir. Þremur er lokið og nú VORNIN VAR GOD EN SÓKNIN BRÁST „Vörnin var góð hjá okkur í þessum leik en sóknin var aftur á móti mjög iéleg,” sagði Hreinn Þorkeisson, landsliðsmaður í körfu- knattleik en islenska landsliðið tekur um þessar mundir þátt í Norður- landamótinu í körfuknattlcik sem fram fer í Svíþjóð. íslenska liðið lék fyrsta leik sinn í gærkvöldi og var leikiö gegn Finnum. Finnland sigraði með 65 stigum gegn 49, sem er mjög lágt stigaskor en sannar hins vegar svo ekki verður um villst orð Hreins hér að framan. Það blés ekki byrlega fyrir íslenska Iiðinu í byrjun leiksins því landsliösmenn okkar máttu sig vart hreyfa þá voru dómararnir búnir að dæma af þeim knöttinn. I þrettán fyrstu dómum sínum dæmdu þeir villu á íslenska liðið en í ekkert skiptið var dæmt á Finna. Vítanýting íslenska liðsins var afleit í þessum leik. Liðið fékk 21 skot en hitti aðeins úr 8 skotum. Nýtingin 38% sem er hörmulega lélegt hjá landsliði. En vörnin var góð og þeir Flosi Sigurðsson og Þorvaldur Geirsson voru bestu menn hennar. Sóknarleikur islenska liðsins brást hins vegar alveg að þessu sinni og er vonandi að ekki verði framhald á því. Á eftir leik Islands og Finnlands léku Svíar gegn Norðmönnum og varð sá leikur nokkuð sögulegur. Norðmenn byrjuðu með miklum látum, komust í 30—14 en engu að síöur höfðu Svíar náð yfirhöndinni fyrir leikhlé og þá var staðan orðin 47—44, Svium í vil. I síðari hálfleik juku Svíar fengið forskot og sigruðu að lokum með 91 stigi gegn 76 stigum Norðmanna. Gunnar Valgeirsson dæmdi leik Svíþjóðar og Noregs og fékk hann góða dóma eftir leikinn. _________ Markhæstir í V-Þýskalandi Markhæstu leikmenn í vestur-þýsku 1. deildinni í knattspyraunni eru nú eftir leikina um helgina. K.H. Rummenigge, Bayern 18 Rudi Völler, Bremen 16 Karl Aligöwer, Stuttgart 15 M.Burgsmiiller, Dortmund 15 Horst Hrubesch, Hamborg 14 Bum-kun Cha, Frankfurt 14 Pierre Littbarski, Köln 14 Á skíðum í Almannagjá — Þetta verður skiðaganga ársins, sagði Halldór Matthíasson skíðagöngu- kappi þegar hann sagði okkur frá Þing- vallagöngunni sem verður á sunnudag- inn. — Gangan hefst í Flcnginga- brekku í H vcradölum og verður gengið um Hellisheiði, Nesjavelli, Grafning og endað í Almannagjá, sagði Halldór. Halldór sagði að skráning i gönguna, sem er 30 km ganga, væri kl. 11—12.30 og rútuferð væri að göngunni lokinni frá Almannagjá að Hveradölum. — þetta er erfið ganga en fallegt um- hverfi getur stytt gönguköppunum stundir, sagði Halldór. Fyrirliði KR í leikbanni Friðrik Þorbjömsson, fyrirliöi KR, getur ekki leikið meö KR-ingum gegn Víkingum í Laugardalshöllinni í kvöld þar sem hann er í eins leiks keppnis- banni. Litla-bikar- keppnin Litla-bikarkeppnin í knattspyrau hefst á morgun og verða þá leiknir tveir leikir.Breiöablik mætir Keflavik í Kópavogi og Haukar leika gegn Akra- nesi í Hafnarfirði. Báðir leikirnir hefj- ast kl. 14. hefst sú fjórða og síðasta. Leikirair verða. Föstudagur Kl. 20.00Stjarnan-FH Kl. 21.15 Víkingur-KR Laugardagur Kl. 14.00 FH-Víkingur Kl. 15.15 KR-Stjaman Sunnudagur KL 20.00 Víkingur-Stjarnan Kl. 21.15 KR-FH. Ekki þarf aö efa að mikil spenna verður í þessum leikjum og og ef til vill ráðast úrslit ekki fyrr en í síðasta leik. Fyrir lokaumferðina standa Víkingar best að vígi. Hafa hlotið tveimur stigum meira en KR og em þremur stigum á undan FH. Gott veganesti í úrslitabaráttuna en tvö stig geta þó verið fljót að hverfa. Áreiðanlegt að Víkingar gera sér grein fyrir því að meistaratitillinn er allt annað en kom- inn í höfn. Staðan nú. Víkingur 9 6 1 2 204—200 13 KR 9 5 1 3 212-199 11 FH 9 4 2 3 203-201 10 Stjarnan 9 1 0 8 180—199 2 Markatala ræður ekki úrslitum ef lið verða jöfn í lokin. Þrjú efstu liðin hafa öll möguleika á meistaratitlinum en Stjarnan ekki lengur. Þó má gera ráð fyrir að leikirnir við Stjömuna verði mjög erf iðir fyrir hin liðin öll. Stjarnan tapaði flestum leikjum sínum — með mjög litlum mun. -hsím. Nanna Leifsdóttir, Akureyri Góður árangur hjá Nönnu í Pykátunturi — þar sem hún tryggði sér 73,14 Fl-stig í stórsvigskeppni Polar Cup Nanna Leifsdóttir frá Akureyri náði mjög góðum árangri í stórsvigskeppni Polar Cup, sem fór fram í Pykatunturi í Finnlandi á þriðjudaginn og miðviku- daginn. Nanna fékk fyrir árangur sinn 73,14 Fl-stig, sem gefur henni alþjóð- lega punkta og því betri rásnúmer í keppni á næsta ári erlendis. Nanna og Tinna Traustadóttir hafa verið ræstar út síðastar í Polar Cup-keppninni. Anna Melander frá Svíþjóð, sem er besta stórsvigskona Norðurlanda ogsú - eina sem keppti í heimsbikarkeppn-: inni, varð sigurvegari báða dagana.. Melander fékk tímann 2:28,14 min. á þriðjudaginn. Þá varð Nanna í 29. sæti með tímann 2:37,79 mín. en Tinna varð úr leik þar sem hún keyrði út úr brautinni. Melander fékk svo tímann 2:24,13 mín. á miðvikudaginn. Þá varð Nanna í 24. sæti á 2:32,22 mín. og Tinna í 39. sætiá2:38,81mín. Þriðja íslenska stúlkan tók þátt í keppninni. Það er Þórdis Jónsdóttir frá Isafirði, sem keppir fyrir Noreg. Þórdís varð í 27. sæti fyrri daginn á 2:37,58 mín. og í 26. sæti seinni daginn á2:37,59mín. I -SOS ÚRSLITAKEPPNI ÍSLANDSMÓTSINS1. DEILD LOKASLAGURINN HEFST í HÖLLINNI í KVÖLD KI. 20.00 FH-STJARNAN Kl. 21.15 STÓRLEIKUR VETRARINS KR—VÍKINGUR Ráðast úrslitin í kvöld? Nú er allt að verða vitlaust! Lim og Wilti fra «HOTEL# m llnll OASKfUfSTOfAN > URVALHMr Bwmcu sám teeoo ^ HOTEL •KÚLAOÖTVMl »•“" 1 23M * 233M 11* Alltaf í leiðinni Hótel J þjónusta SKÚLAGÖTU30. S,MAR 1 23 88 & 2 33 88 JÍiiáUííJ ViA Mtjiim Mhrupappir FORMPRENT HvetftogAtu 7*. simar 2SM0 — 2SSM. Hafðu samband við EIMSKIP Þeir eru lánsamir sem skipta við sparisjóðinn 5PARI5JDÐUR HAFNARFJARÐAR FH leikur í (jR) TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN P OGIOOS -=rrr V_V aðalstræti e - reykjavIk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.