Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1983, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1983, Blaðsíða 30
38 DV. FÖSTUDAGUR15. APRlL 1983. Eins og mega allir heyra / á eftir- farandi sálmi / elska fáir hvor annan meira / en Eyjólfur og Pálmi. 1 þriöju umræöuumferöinni á sam- eiginlega stjórnmálafundinum, sem haldinn var á Skagaströnd á þriðjudagskvöldið, voru menn famir að gera að gamnisínu eins og sjá má af vísunni hér að ofan. Þá voru líka allir búnir að heyra boðskap hinna fram- bjóðendanna og því hægara um vik að slá á léttari strengi. Vísan er annars eftir Stefán Jónsson alþingismann og var það Páll Péturs- son, sem með hana fór í tilefni þeirra orða Pálma Jónssonar að Sjálfstæðis- flokkurinn gengi nú samhuga til kosninga. Fundurinn á Skagaströnd á þriðjudagskvöldið hófst klukkan 20.30 í samkomuhúsi þeirra Skagstrendinga og var vel sóttur. Fyrirkomulag umræðnanna var á þann veg að hvert framboð fékk 30 mínútur til umráða og skiptust þær niður á þrjár umferðir. Fundarstjóri var Adolf Bemdsen og tímavörður var Páll Þorfinnsson. Fyrsta umferð Eftir að fundarstjóri hafði sett fundinn og boðið gesti velkomna tók fyrsti ræðumaðurinn til máls, það var Páll Dagbjartsson, þriöji maður á D- lista. I ræðu sinni geröi hann þaö aö umtalsefni hve mikill fólksflótti hefði átt sér staö úr kjördæminu á síðasta áratug og væri því brýnt að skapa ný atvinnutækifæri til að snúa þessari þróun við. Einnig nefndi hann að tekjur fólks í kjördæminu væru áber- andi lægstar á landinu í öllum at- vinnugreinum. Þessu yrði að breyta. Næstur tók til máls Þorvaldur Skaftason, fyrsti maður á C-lista. Hann reifaði helstu stefnumiö Banda- lags jafnaðarmanna varöandi stjóm- skipun landsins. Hann nefndi þar beina kosningu forsætisráðherra í tveimur umferðum ef enginn fengi tilskilinn meirihluta í fyrstu umferð. Landið yrði gert að einu kjördæmi í þessari kosn- ingu en annars verði kjördæmaskipan óbreytt. Þorvaldur lofaði því að væntanlegir þingmenn Bandalags jafnaöarmanna myndu ekki taka sæti í bankaráðum, stjóm Framkvæmda- stofnunar eða öðmm slíkum ráðum og stofnunum. Þriðji ræðumaður var Elín Njáls- dóttir, annar maður á A-lista. Hún gerði meðal annars merki jafnaöar- manna, rósina og hnefann, að umtals- efni sínu. Rósin væri tákn fegurra og betra mannlífs, hnefinn væri tákn þess átaks, þess krafts og viljafestu sem þyrfti til að hrinda því í framkvæmd. Hún sagði að þau sem fylktu sér undir þetta merki heföu skyldum að gegna í nútíð og framtíð í ljósi þeirrar fortíðar sem jafnaöarmennskan ætti sér. Á eftir Elínu kom Hilmar Kristjáns- son, annar maður á BB-lista, sér- framboðs framsóknarmanna. Lýsti Hilmar ástæðunum fyrir sér- framboðinu og rakti þær allar götur aftur til ársins 1974. Þá þegar hefði komið fram andstða gegn því aö Páll Pétursson skipaöi annaö sæti B-list- ans, meðal annars vegna afstöðu hans til einstakra mála i héraði. Síðan þá hefði óánægjan magnast stig af stigi og ekki minnkaði hún er Blöndumálið kom til sögunnar. Margoft hefði verið reynt að ná samstarfi en án árangurs og því hefði nú verið gripið til sér- framboðs. Af hálfu G-listans talaði Þórður Skúlason, annar maður á listanum. I ræðu sinni gerði hann stóriöjumál að umtalsefni. Hann sagði að í komandi kosningum yrði tekist á um framtíðar- stefnu í íslenskum atvinnumálum. Annars vegar væri þar um að ræöa stóriðjustefnu hinna flokkanna og hins vegar íslenska leið Alþýðubanda- lagsins. Þá varaði Þórður við nýrri viðreisnarstjórn. Síðastur ræðumanna í fyrstu umferð var Sverrir Sveinsson, þriðji maður á B-lista. Hann byrjaði á því að rekja helstu æviatriði sín, en ræddi síðan mikilvægi þess að ná verðbólgunni niður, svo og atvinnumál. „Væntanlegir þingmenn Bandalags jafnaðarmanna munu „Sjálfstæðisflokkurinn gengur til þessara kosninga sam- ekki taka sæti í bankaráðum, stjórn Framkvæmdastofnunar huga,” sagði Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra. eða öðrum slíkum ráðum og stofnunum,” sagði Þorvaldur Skaftason, efsti maður á C-lista. „Viðskiptahallinn í árslok samsvaraði verði þrjú þúsund þriggja herbergja ibúða, sem er sama og byggingarverð beils byggðarlags hér á Norðvesturlandi,” sagði Jón Sæmundur Sigurjónsson, efsti maður A-listans. á árinu. Nota sem sagt árið bara til kosninga,” sagði Ingólfur Guðnason, efsti maður á BB-lista. Önnur umferð Fyrsti ræðumaður í annarri umferö var Eyjólfur Konráö Jónsson, annar maður á D-lista. Hann gerði verðbólguna aö umtalsefni og likti niðurtalningarstefnu Framsóknar- flokksins við niðurtalningu þá er ætti sér stað við geimskot. Næstur talaði Sigurður Jónsson, þriðji maður á C-lista. Hann ræddi ÚRSLIT 1979 Úrslit kosninganna annan og þriðja desember 1979 urðu þessi: Alþýðuflokkur 611 atkvæði. Framsóknarflokkur 2506 atvkæði, þrir þingmenn. Sjálfstæðisflokkur 1606 atvkæði, einn þingmaður. Alþýðubandalag 984 atkvæði, einn þingmaður. Á kjörskrá voru 6560. Atvkæði greiddu 5863 eða 89,4 af hundraði. Kjörnir þingmenn voru: Páll Pétursson (B), Stefán Guðmundsson (B), Ingólfur Guðnason (B), Pálmi Jónsson (D) og Ragnar Arnalds (G). Landskjörinn þingmaður úr kjördæminu var Eyjólfur Konráð Jónsson (D). FRAMBODSUSTAR A-listi Alþýðuflokksins 1. Jón SæmundurSigurjónsson hagfr., Siglufirði. 2. Elín Njálsdóttir póstafgrm., Skagaströnd. 3. Sveinn Benónýsson bakaram., Hvammstanga. 4. Pétur Valdimarsson iðnverkam., Sauðárkróki. 5. Regína Guðlaugsdóttir iþróttakennari, Siglufirði. 6. Hjálmar Eyþórsson, fv. yfirlögregluþj., Blönduósi. 7. Axel Hallgrímsson skipasmiður, Skagaströnd. 8. Baldur Ingvarsson verslunarm., Hvammstanga. 9. Sigmundur Pálsson húsgagnasmm., Sauðárkróki. 10. Pála Pálsdóttir, fyrrv. kennari, Hofsósi. B-listi Framsóknarflokksins 1. Páll Pétursson alþingismaður, Höllustöðum. 2. Stefán Guðmundsson alþingismaður, Sauðárkróki. 3. Sverrir Sveinsson veitustjóri, Siglufirði. 4. BrynjólfurSveinbergsson oddviti, Hvammstanga. 5. Pétur Arnar Pétursson deildarstj., Blönduósi. 6. Sigurbjörg Bjarnadóttir húsfr., Bjarnagili. 7. Gunnar Sæmundsson bóndi, Hrútatungu. 8. Magnús Jónsson kennari, Skagaströnd. 9. Skarphéðinn Guðmundsson kennari, Sigiufirði. 10. Gunnar Oddsson bóndi, Flatatungu. BB-listi sérframb. framsóknarmanna 1. Ingólfur Guðnason alþingism., Hvammstanga. 2. Hilmar Kristjánsson oddviti, Blönduósi. 3. Kristófer Kristjánsson bóndi, A-Hún. 4. Björa Einarsson bóndi, V-Hún. 5. Jón Ingi Ingvarsson rafvm., Skagaströnd. 6. Helgi Ólafsson rafvm., Hvammstanga. 7. Sigrún Björasdóttir hjúkrfr., A-Hún. 8. Indriði Karlsson bóndi, V-Hún. 9. Eggert Karlsson vélstj., Hvammstanga. 10. Grímur Gíslason gjaldk., Blönduósi. C-listi Bandalags jafnaðarmanna 1. Þorvaldur Skaftason sjómaður, Skagaströnd. 2. Ragnheiöur Úlafsdóttir nemi, Skagaf. 3. Sigurður Jónsson byggingafr., Akureyri. 4. Valtýr Jónasson fiskmatsmaður, Siglufirði. 5. Stefán Hafsteinsson, Blönduósi. 6. Vilhelm V. Guðbjartsson sjómaður, Hvammstanga. 7. Friðbjöra Öra Steingrímsson íþróttakennari, Skagaf. 8. Erna Sigurbjörnsdóttir húsmóðir, Skagaströnd. 9. Arnar Björnsson nemi, Húsavík. 10. Ásdís Matthiasdóttir skrifstofum., Reykjavík. D-listi Sjálfstæðisflokksins 1. PálmiJónsson ráðherra, Akri. 2. Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður, Reykjavík. 3. Páll Dagbjartsson skólastjóri, Varmahlíð. 4. Ölafur B. Óskarsson bóndi, Viðidalstungu. 5. Jónísberg sýslumaður, Blönduósi. 6. Jón Ásbergsson framkvstj., Sauðárkróki. 7. Knútur Jónsson skrifststj., Siglufirði. 8. Pálmi Rögnvaldsson skrifstm., Hofsósi. 9. Þórarinn Þorvaldsson bóndi, Þóroddsstöðum. 10. Sr. Gunnar Gíslason, fv. prófastur, Glaumbæ. G-listi Alþýðubandalagsins 1. Ragnar Arnalds fjármálaráðherra, Varmahlíð. 2. Þórður Skúlason sveitarstjóri, Hvammstanga. 3. Ingibjörg Hafstað húsfreyja, Vík, Skagafirði. 4. Hannes Baldvinsson framkvstj., Siglufirði. 5. Þorvaldur G. Jónsson bóndi, A-Hún. 6. Steinunn Yngvadóttir húsmóðir, Hofsósi. 7. Brynja Svavarsdóttir húsmóðir, Siglufirði. 8. Guðmundur Theodórsson verkamaður, Blöuduósi. 9. Anna Kristín Gunnarsdóttir kennari, Sauðárkróki. 10. Kolbeinn Friðbjaraarson, form. Vöku, Siglufirði. valddreifingu og mikilvægi hennar fyrir lýðræðið. Hann ræddi einnig hið nýja stjómskipunarkerfi Bandalags jafnaðarmanna og lýsti ástandinu í þjóöfélaginu eftir misheppnaða stjórn gömlu flokkanna gegnum árin. Þá var röðin komin að Jóni Sæmundi Sigurjónssyni, fyrsta manni á A-lista. Hann talaði um óstjórn núverandi ríkisstjórnar og þá sér-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.