Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1983, Page 6
nortí
/ti tmnAc.
24
DV. FÖSTUDAGUR15. APRIL1983.
Hvað er á seyði um helgina Hvaðeráseyði um helgina
íslandsmót í íþróttum fatlaðra
Nú um helgina fer fram á Selfossi
5. Islandsmótiö í íþróttum fyrir fatl-
aöa. Keppt veröur í sundi, boccia,
bogfimi og borötennis. Rétt til þátt-
töku eiga blindir, hreyfihamlaöir,
þroskaheftir og heyrnardaufir. Alls
eru skráöir til leiks um 170
keppendur frá 10 félögum og hafa
þeir aldrei verið fleiri en nú. Nú eru í
fyrsta skipti skráöir keppendur frá
Isafiröi, Selfossi og Skálatúni. Sýnir
þetta betur en flest annaö þá miklu
grósku sem nú er í íþróttastarfi
fatlaðrahérálandi.
Mótiö veröur sett í Sundhöll Self oss
föstudaginn 15. apríl kl. 19. Að iok-
inni setningarathöfninni hefst keppni
í sundi og boccia. Á laugardag og
sunnudag veröur síöan keppt f rá kl. 9
til kl. 18. Mótinu lýkur svo á sunnu-
dagskvöld meö lokahófi í boöi bæjar-
stjórnar Selfoss. I lokahófinu veröa
afhent afreksverölaun mótsins.
Aðstæður til aö halda mót sem
þetta eru eins og best veröur á kosið
á Selfossi. Þar er glæsileg gisti- og
mötuneytisaöstaöa í sama húsi og
sjálfur keppnissalurinn er. Þaðan er
svo aðeins tveggja til þriggja
mínútna gangur að Sundhöllinni.
Skipulag:
Föstudagur 15. april, Sundhöll Sel-
foss og iþróttahúsiö.
Kl. 18.00 Upphitun.
Kl. 19.00 Mótssetning.
Kl. 19.10 Sundkeppni.
Kl. 19.30 Boccia: Þroskaheftir, riöl-
arl-6.
Hreyfihamlaöir, standandi fl., riðill
1.
Hreyfihamlaöir, sitjandifl., riöill 1.
Laugardagur 16. apríl, Iþróttahúsiö.
Kl. 9.00 Boccia: Þroskaheftir, riölar
7-11.
Hreyfihamlaðir, sitjandi fl., riölar
2-5.
Kl. 11.30 Boccia: Hreyfihamlaöir,
sitjandi fl., riöill 6.
Hreyfihamlaöir, standandi fl., riölar
2-3.
U-flokkur, riðlar 1—6.
Kl. 14.00 Boccia: Urslit allir flokkar.
Kl. 15.30 Bogfimi.
Sunnudagur 17. apríl, íþróttahúsiö.
Kl. 9.00 Boccia: Sveitakeppni, allir
flokkar.
Kl. 14.00 Borðtennis, allir flokkar.
Kl. 19.00 Lokahóf og verðlauna-
afhending.
Kór Tónlistarskóla Húsavíkur
heldur vortónleika ásamt fleirum
Vortónleikar Kórs Tónlistarskóla
Húsavíkur veröa í Húsavíkurkirkju
sunnudaginn 17. apríl nk. og hefjast
kl. 16.
Flutt veröur Missa Brevis eftir
W.A. Mozart. Einsöngvarar meö
kórnum verða: Hólmfríöur S. Bene-
diktsdóttir sópran, Ragnheiöur
Guömundsdóttir alt, Michael J.
Clarke tenór, Halldór Vilhelmsson
bassi.
Strengjasveit Tónlistarskóla Akur-
eyrar leikur með ásamt fleirum. Auk
þess verða einsöngvarar meö vand-
aðaefnisskrá.
Stjórnandi er Úlrik Ólason, skóla-
stjóri Tónlistarskóla Húsavíkur.
Vortónleikar Kórs Tónlistarskóla Húsavíkur veröa haldnir i Húsavikur-
kirkju klukkan 16 sunnudag.
Hörður Sigurgestsson,
forstjóri Eimskips,
í heigarviðtaii
Stóra bomban
í Hollywood
— lítið eitt um
óskarsverð-
launahafann
Jessicu Lange.
Ferð hingað
minnirá
dauðannV
litíð inn
iegsteinasmiðju
ykjavík.
rr
Bíóguðinn blótaður i
í Berlín
— DV litast um á hinni heimsþekktu
kvikmyndahátíð. i
HELGARBLAÐ
64 SÍÐUR
MEÐAL EFNIS:
Heillandi hellasamfélag
— skyggnst inn í einstaka hella
i Tyrklandi þar sem kristinn
trúflokkur hefur búið i rúmar
sautján aldir.
Frjálst útvarp
í Frans kannað
Er Biblían gleymt
og grafið rit?
GALLERY LÆK JARTORG: Á morgun,
laugardaginn 16. apríl klukkan 15.00, veröur
opnuð í Gallery Lækjartorgi samsýning á
vegum SATT — Sambands alþýðutónskálda
og tónlistarmanna. Fjöldi myndlistarmanna
á þátt í sýningunni en sýningin er haldin til
styrktar SATT og rennur helmingur andvirðis
seldra mynda til kaupa SATT á húsnæðinu
Vitastíg 3 undir starfsemi félagsins. Sýningin
verður mjög fjölbreytt og samanstendur hún
af grafíkmyndum, teikningum, olíumálverk-
um, vatnslitamyndum, pennateikningum o.fl.
I tilefni sýningarinnar verður gefin út eftir-
mynd af málverki Jóhanns G. Jóhannssonar
sem málaö var 1971 og tileinkað hljómsveit-
inni Cream. Seld eintök verða tölusett og
árituð á sýningunni en síðar verður dregið úr
númerum seldra mynda og í vinning verður
málverk eftir einn þeirra myndlistarmanna
sem þátt taka í sýningunni. Þeir sem óska
eftir eintaki í póstkröfu geta hringt í síma
15310 og pantað eintak. Ágóði seldra mynda
rennur til SATT.
I heild verður fyrirkomulag sýningarinnar
með þeim hætti að í stað seldra mynda verða
hengdar upp nýjar myndir jafnóðum, en boðið
er upp á hagstæða greiðsluskilmála; við stað-
greiðslu 10% afsl. og afborgunarskilmála frá
þrem til sex mánaða án aukakostnaðar fyrir
kaupanda. Sýningin stendur til 1. maí og
verður opið daglega frá kl. 14—18, nema
fimmtud. og sunnud. frá kl. 14—22.
Þeir listamenn sem vilja taka þátt í sýning-
unni, en af einhverjum orsökum hefur ekki
náðst til, geta leitað upplýsinga í síma 15310.
NYLISTASAFNIÐ, Vatnsstig 3b: A morgun,
laugardag, opnar Guðbrandur Harðarsson
sýningu á verkum sínum í Nýlistasafninu.
Ópið verður virka daga frá kl. 16—20 en um
helgar frá kl. 14—20. Sýningunni lýkur 24.
apríl.
Listmunahúsið: Á morgun, laugardag, opnar
Ágúst Petersen sýningu á portret og manna-
myndum, eru 72 myndir á sýningunni og hluti
myndanna til sölu. Sýningin verður opin alla
virka daga nema mánudaga frá kl. 10—18 og
laugardaga og sunnudag frá kl. 14—18.
.Sýningunni lýkur 1. maí.
LISTASAFN ASI: Þar stendur yfir sýning
Hjörleifs Sigurðssonar á kritarteikningum,
olíu- og vatnslitamyndum. Sýningin er opin
daglega frá kl. 14—22. Lokað mánudaga.
Sýningunni lýkur 1. maí.
KJARVALSSTAÐIR: Fjórar nýjar sýningar
þessa helgi. 1 austurforsal sýnir franski ljós-
myndarinn Ives Petron 55 ljósmyndir. 1
austursal verður Guðmundur Björgvinsson
með akrílmálverk. 1 vesturforsal sýnir Þor-
björg Pálsdóttir og í vestursal Vilhjálmur
Bergsson.
Mokkakaffi, Skólavörðustíg: Þessa dagana
heldur Ásgeir Lárusson sýningu á Mokkakaffi
og er þetta fimmta sýning hans, en hann hefur
m.a. sýnt áður í StlM og Suðurgötu 7,þá hefur
hann tekið þátt í mörgum samsýningum.
Þrjátíu og tvær myndir eru á þessari sýningu
og eru allar unnar með vatnslitum. Sýningin
stendur út þennan mánuð.
Gailerf Gangurinn, Mávahlíð 24: Um þess-
ar mundir sýnir hollenski myndlistarmaður-
inn Pieter Holstein myndir sínar þar. Pieter
er víðkunnur fyrir myndir sýnar og hefur
tvisvar áður sýnt hér á Islandi. Sýningin
stendur til 20. apríl.
GALLERÍ LANGBRÖK: Hjördís Bergsdóttir
sýnir tauþrykk. Þetta er fyrsta einkasýning
Hjördísar, en hún hefir tekið þátt í samsýn-
ingum. Hjördís er ein af 9 textílmönnum sem
reka verkstæði að Grettisgötu 16. Hópurinn
kallar sig Grettlur. Á sýningu Hjördísar eru
málaðar myndir á tau, handþrykktir púðar og
bandþrykktar lengjur sem hægt er að panta
eftir í metratali. Einnig er hægt að kaupa
púðaverin af sýningunni. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12—18 og um helgar frá kl.
14—18. Hún stendur til 20. apríl.
LISTASAFN EINARS JÖNSSONAR: Safnið
er opið sunnudaga og miðvikudaga frá kl.
13.30-16.00.
HÁHOLT, DALSHRAUNI 9b HAFNAR-
FIRÐI: Sigurður Haukur Lúðvíksson sýnir
vatnslita- og oliumyndir. Sýningin er opin
daglega kl. 14—22 frá 2.—17. apríl.
SAM 83 — listsýning
félagsmanna Hamragarða
Laugardaginn 16. apríl kl. 14.00 verður opnuð
í Hamragörðum, Hávallagötu 24, listsýning 35
félagsmanna í aðildarfélögum Hamragarða,
en það eru starfsmannafélög samvinnufyrir-
tækjanna í Reykjavík og Nemendasamband
Samvinnuskólans.
Alls eru 86 verk á sýningunni og er þar um aö
ræða olíumyndir, vatnslitamyndir, grafík,
akrílmyndir, teikningar, tréskurð, hluti gerða
úr stáli og beini, koparstungu og fleira. Hluti
verkanna er til sölu.
Sýningin verður opin frá 16. apríl til 1. maí og
opin daglega frá kl. 16.00 — 20.00 virka daga
og um helgar og sumardaginn fyrsta kl.
14.00-22.00.
Flestir sem taka þátt í þessari sýningu, sem
heitir — SAM 83, hafa ekki sýnt verk sín
opinberlega áður, en liér er um tómstunda-
verkfólksaðræða.
Safnahúsið á Sauðárkróki
I Safnahúsinu á Sauðárkróki er á sæluviku
Skagfirðinga sýning á batik og vatnslita-
myndum Katrínar H. Ágústsdóttur. Sýningin
var opnuð 10. apríl kl. 16 og stendur til 17.
apríl.
Málverkasýning
Fríkirkju vegi 11
Dagana 16.-23. apríl 1983, heldur Ketill Larsen
málverkasýningu að Fríkirkjuvegi 11.
Sýninguna nefnir hann „Ljós frá öðrum
heimi”. Þetta er 14. einkasýning Ketils. Á
sýningunni eru um 45 myndir. Þær eru ýmist
málaðar í olíu- eöa akríllitum. Einnig eru
nokkrar teikningar. Á sýningunni verður leik-
in tónlist eftir Ketil af segulbandi, til að undir-
strika blæbrigði myndanna. Sýningin verður
opin alla dagana frá kl. 14—22.
NORRÆNA HOSIÐ við Hrlngbraut: Þar
stendur yfir sýning um leynilega blaðaútgáfu
í Noregi og þátt hennar í norskri andspymu-
hreyfingu meðan á hernámi Noregs stóö,
1940—45. Sýningin er að meginhluta byggð á
efni af sýningu sem háskólabókasafnið í Osló
setti upp vorið 1980 en sú sýning var síðan
m.a. sýnd í Frihedmuseet (frelsisafninu) í
Kaupmannahöfn. Að sýningunni standa auk
háskólabókasafnsins í Osló og félags leyni-
legu blaðaútgáfunnar, sendiráð Noregs á Is-
landi, Landsbókasafn Islands og Norræna
húsið. Sýningin stendur út apríl og er öllum
opin á venjulegum opnunartíma hússins.
Á laugardag opnar Þórður Hall sýningu á
málverkum og teikningum í kjallara Norræna
hússins.