Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1983, Side 3
DV. FÖSTUDAGUR 26. AGUST1983.
Skip hennar hátlgnar Bretadrottníngar HMS Glasgow sést hér á hægri hönd en forystuskipið USS Dewey er í baksýn.
SþS /DV-myndir Einar Ólason.
TAUGIN STREKKT
-NATO-floti
heimsóttur
Fastafloti NATO kom til Reykjavík-
ur í kurteisisheimsókn i gærmorgun. I
flotanum eru fimm skip auk elds-
neytisbirgðaskips. Farið var með
fréttamenn útvarps, sjónvarps og
blaöa, ásamt ljósmyndurum og kvik-
myndatökumönnum til móts við flot-
ann í morgunskímunni í gær.
Flotinn var staddur út af Garðskaga
er Landhelgisgæsluþyrlan TF-RÁN
kom til móts við hann, með fjölmiðla-
fólkið innanborðs. Eftir myndatöku-
hringsól var stefnan tekin á forystu-
skip flotans, USS Dewey.
Og þar sem ekki reyndist unnt að
lenda þyrlunni á skipinu var gripið til
þess ráðs að slaka fjölmiölafólkinu og
hafurtaski þess niöur í taug. Enginn
fór samt á taugum í þeirri flugferð
þrátt fyrir að fæstir hefðu farið slíka
ferðáður.
Um borð í USS Dewey var tekið á
móti fólkinu með morgunverði og að
honum loknum var haldinn stuttur
blaðamannafundur með yfirflotafor-
ingja fastaflotans, Bandarikjamannin-
um Gregory F. Streeter.
Á fundinum kom meðal annars fram
að skipin fimm, sem eru frá Banda-
ríkjunum, Kanada, Bretlandi, Þýska-
landi og Hollandi, lögöu af staö frá Kiel
í Þýskalandi 15. þessa mánaðar og aö
héöan myndu þau halda næstkomandi
mánudag, áleiðis til Grænlands.
Samtals eru 1400 manns á skipunum
fimm, þar af 400 á USS Dewey.
Eftir blaðamannafundinn var farið í
skoðunarferð um skipið á meðan það
seiginn flóann.
I upphaflegri áætlun skipanna átti
forystuskipiö að leggja að bryggju um
klukkan níu og voru því DV-menn
sallarólegir hvað timann varðaði til að
koma efninu í blaðiö á tilskildum tíma.
Heldur fóru þeir samt aö ókyrrast
þegar upp úr dúrnum kom að töluverð
seinkun yrði á komutímanum. Og það
varð úr að þeim ásamt fréttamanni út-
varps og fulltrúa utanríkisráðuneytis-
ins var útvegað far í skipsbáti sem
flutti yfirflotaforingjann í land. Með
þessu móti tókst aö bjarga því sem
bjargað varð eins og lesendur DV sáu í
gærdag. SÞS.
Hér er Gregory F. Streeter flotaforingi á leið niður í léttbátinn sem flutti hann i
land ásamt þeim blaðamönnum sem lá á. Ahöfn skipsins og þeir blaðamenn sem
ekki lá á fylgjast með af stakri athygli.
Á leiðinni til lands i léttbátnum spjall-
aði orðum hlaðinn flotaforinginn við
blaðamenn um heima og gelma.
Horskipið L'SS Dewey, forystuskip^
fastaflotans, er vel buið vopnum eins
og önnur skip flotans. Það er útbúið
bæði til loftvarna og kafbátavarna.
Skipið er um sex þusund tonn og á
þvi er 400 manna áhöfn.
Hér er taugin strekkt i tvennum
skilningi. Það er ekki á hverjum degi
sem blaðamenn eru látnir siga niður
ur þyrlu úti á rúmsjó. Hér er það
k Helgi Pétursson, fréttamaður hljóð-
L varps, sem hangir í lausu lofti.