Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1983, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1983, Síða 4
4 DV. FÖSTUDAGUR 26. AGUST1983. Slæmar heimtur hjá Pólarlaxi: „Erum langt frá vonum" —segirJóhann Geirsson stöðvarstjóri „Þetta hefur ekki gengið nógu vel það sem af er sumri, svo við erum langt frá vonum. Við höfum nú fengið 2500 laxa, sem er ekki nema fjórðungur af því sem viðunanlegt getur talist,” sagði Jóhann Geirsson, stöðvarstjóri í laxeldisstöðinni Pólariaxi viö Straumsvík. Sagði Jóhann að í ár hefði verið sleppt frá stöðinni um 200.000 göngu- seiöum. I fyrra hefði verið sleppt 100.000 ársgömlum seiöum og 20.000 sumaröldum. Aðspurður um ástæöuna fyrir slæmum endurheimtum kvaö Jóhann ekki vitað með vissu um hana. Ymsar getgátur væru þó uppi. Til dæmis kæmi til greina að eitthvaö af þeim fiski sem Pólarlax hefði sleppt hefði gengið upp í Kollaf jörð og verið tekinn þar. Þá gæti eitthvað hafa gengið úrskeiöis við sleppingu jafnframt því sem móttökuaöstæður væru ef til vill ekki nógu góðar. „En þetta er algjörlega óstaðfest,” sagði Jóhann. „Við höfum verið með endurbætur á lónunum, sem við tökum fiskinn í, en þær hafa ekki skilaö sér enn sem komið er. Þá má vera að þessi stöð- uga vestanátt, sem verið hefur, eigi sinn þátt í lélegum endurheimtum. t henni brýtur upp á lónin svo við sjáum ekki þegar fiskurinn kemur inn.” Pólarlax hefur hafið tilraunir meö aö sleppa sumaröldum seiðum. Hefur verið sleppt um 20.000 slíkum, eins og áður sagði, en þau eru 30—40 grömm að þyngd. „Þetta hefur hvergi verið reynt svo ekki er vitað um árangur,” sagði Jóhann. ,,Auk þeirra, sem sleppt var í fyrra, höfum við í ár sleppt um 27.000 og sleppum svo á mánudaginn um 30.000 sumar- öldum seiðum. Enn meira magni verður sleppt í haust. Fyrsti árangur þessarar tilraunar ætti þó ekki að koma í ljós fyrr en næsta vor.” Sagði Jóhann að þessar slæmu endurheimtur í ár leiddu ekki til samdráttar í sleppingum í stöðinni. Nú væri farið að venja seiöin við sjó þannig að honum væri hleypt í hlut- fallinu 15—20% í ferskvatnið. Hefði þetta gefist vel og yrði fram haldið. -JSS. Vörumarkaöurinn opnaður á Seltjamamesi í dag Vörumarkaðurinn opnaði stórmark- að að Eiðsgranda 11, í hinum nýja mið- bæ Seltjamamess, í morgun. Verslun- in er hin glæsilegasta og um 1100 fer- metra stór. Fjöldi manna hefur unnið að því að undanfömu að gera allt klárt fyrir opnunina. Boðiö verður upp á þær nýjungar sem þekkjast í verslunar- rekstri og m.a. sérstakt kjötborð, fisk- borð og ostaborö. Verslunin verður opin til kl. 22 i kvöld og virka daga til kl. 19. 1 "a* Tj Fjöldi manna hefur unnið í hinni nýju verslun að undanförau þannlg að allt yrði tUbúið fyrir daginn í dag. V orumarkaðurínn er í hinum nýja miðbæ Seltjaraaraess. DV-myndir S Akranes: Alvarlegt atvinnuleysi Um 70 manns eru nú skráðir at- vinnulausir á Akranesi skv. upplýs- ingum vinnumiðlunar bæjarins í síð- ustu viku. Hefur verkalýðsfélagið haft áhyggjur af þessu alvariega ástandi í bænum það sem af er þessu ári. I vetur voru á tímabili rúmlega 100 manns á atvinnuleysisbótum þó ekki væri taliö meö það verkafólk sem frystihúsin sögðu upp. Að því með- töldu voru á atvinnuleysisskrá 2—300 manns. Það ástand varði aðeins skammantima. ■ Mikið atvinnuleysi var allan sl. vetur en minnkaði í vor og vom þá á atvinnuleysisskrá um 30 manns. Síðan hefur það aukist aftur í sumar og nú njóta um 50 manns bóta hjá út- hlutunamefnd Verkalýðsfélags Akraness. Verkalýösfélagiö hefur hvaö eftir annað skoraö á atvinnu- málanefnd bæjarins og atvinnurek- endur á Akranesi að gera eitthvað til úrbóta í þessum efnum. Fundir hafa verið haldnir um þetta mál og í síðustu viku var enn rætt saman að tilhlutan verkalýösfélags- ins, atvinnumálanefndar og forráöa- manna bæjarins. Upplýst var þá að úthlutunarnefnd Verkalýðsfélags Akraness hafði gert könnun á öllum vinnustöðum i bænum, svo og á Grundartanga. Hvergi var um eitt einasta atvinnutækifæri að ræða. -JSS. Svomælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Byrjað að feðra óskýrðan sjúkdóm Banvænn sjúkdómur, ofnæmis- bæklun, mætti skammstafast OB, hefur verið mjög til umræðu undan- farið. Eftir að þessi sjúkdómur hefur geisað í Ameríku og Evrópu í fólki og fjölmiðlum tóku íslendingar sig tU og fóru að ræða málið, einkum eftir að vitað var um sjúkdómstilfeUi í Sviþjóð og Danmörku. Þaö er mest einkennandi við þennan sjúkdóm að hann leggst á kynvUlinga og eitur- iyfjasjúklinga og þykjast fróðir menn geta séð að smit verði ef hann berst inn í blóðrásina með einum eða öðrum hætti. Hér er um svonefndan menningarsjúkdóm að ræða á Vesturlöndum og hefur hann verið sóttur í samneyti við frumstæðari þjóðir sem ferðamenn eru stundum að skoða sér tU skemmtunar, og vegna þeirra neysluvenja sem fylgja því aö reyna að deyfa í sér lífið með elturiyfjaneyslu. Því hefur jafnvel verið haldið fram að OB sé landlægur sjúkdómur við Karabíska hafið. Ann- ars vita menn svo sem ekki neltt um OB og róða þelm mun mlnna við hann. A miðöldum hefði því verið haldið fram að hann væri refsing guðs fyrir ósiðsamt líferni og má það tii sanns vegar færa. Hér á Iandi hefur borið töluvert á kynvUlingum, sem hafa myndað með sér samtök, og kennt þau við árið 1978, skrifað ’78, en hefði aiit að einu getað verið ’69. Stundum hafa þessi samtök verið að bjóða timarit tU sölu í Austurstræti og er lítUl munur á þessum samtökum og öðrum þeim sem berjast mjög tU valda og áhrifa i landinu í öfugu hlutfaUi við meðlima- fjölda. Nú mun hafa komið frétta- auki í útvarpi, þar sem kvartað var yfir því að engin skrá væri yfir kynvUlinga á íslandi, svo hægt væri að fylgjast með heUsufari þelrra. Einhver félagaskrá hlýtur þó að vera tU og ætti hún að geta verið betri en engin. Hins vegar ber á það að líta að ekki eru aUir í samtökunum ’78, eins og þegar er komið fram, en þeir sem ekki eru skráðir geta valdið ákveð- inni hættu. Þeir fara tU útlanda tU að lifa lífinu eins og þar stendur, og elns koma hingað kynvUlingar ár hvert erlendis frá án þess að slíks sé getið f vegabréfum og þeir geta borið með sér sjúkdóminn. Auðvitað er þetta ekki nema hluti vandamálsins þvi eiturlyfjaneytendur, þeir sem sprauta sig, eru einnig í stórhættu, og það án þess að nokkuö verði við ráðið að því er séð verður. Þannig kunna margvíslegar aðstæður að valda því að OB berist hingað tU lands, enda hafa ná- grannalönd okkar þegar orðið fyrir barðinu á OB án þess að þau hafi nokkru fengið um það ráðið. Engum er í raun ljóst hvernig á að bregðast við þessum vanda og yfirlýsingar þar um eru meira og minna mark- leysa. En eitt hefur ríkisútvarpið reynt að tryggja með fréttaauka sinum hér á dögunum, og það er að koma inn í umræðuna þeim aðtta sem sýnt er að á að kenna um OB á tslandi, ef og þegar sjúkdómurinn blrttst okkur. Hér er átt við varaar- liðlð é Keflavfkurvelli. Athygllnni er aUt í cinu beint að vamarliðinu þegar ofnæmisbæklun er á dagskrá í Svíþjóð og Danmörku, og látið að því liggja að á KeflavíkurflugveUi búi hætta sem við fáum að líkindum ekki við ráðið. Þetta gengur jafnvel það langt að Ólafur Jensson, yfirlæknir Blóðbankans, lýsir yfir að hann noti ekkl blóð úr varnarliðsmönnum, en þess er látið ógetið að Blóöbankinn flytur inn blóðefni erlendis frá, kannski frá Svíum eða Dönum en um það þarf engar yfirlýsingar. Það er því alveg ljóst að búið er þegar að ákveða hvaðan OB kemur tU landsins. Hún kemur frá varnarliðinu. Þetta eru einhverjar svívirðUegustu aðdróttanir sem hér hafa lengi heyrst í fjölmiðlum og hefur þó margt verið brallað. Þótt marglýst hafi verið yfir að hingað hafi verið pöntuð atómsprengja ef tU styrjaldar kemur, búið sé að ljúga þvi upp oftar en einu sinni að hér séu geymd kjamorkuvopn, og göngulið eyðUeggi nokkra strigaskó með vissu mttlibUi við að ganga undir rauðum fánum frá Keflavik tU Reykjavíkur, þá er ekkert af þessu nóg fyrir rauðllðana.Nú skal sem sagttryggja að OB verði rétt feðrað ef tU stykkis- inskemur. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.