Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1983, Page 5
DV. FÖSTUDAGUR 26. AGUST1983.
5
Heykögglaverk-
sm/ð/a á hjólum
— furðutæki
á vegum
íSkaga-
firðiog
Eyjafirði
Stefán Þórðarson, bóndi á Teigi í
Hrafnagilshreppi í Eyjafirði, hefur
undanfarna mánuði veriö á ferðinni á
allsérkennilegu farartæki sem vakið
hefur athygli margra. Er þama um að
ræða gamlan yfirbyggðan Trader með
heljarmikinn blásara færiband og ann-
að dót aftan í og inni í sér.
Tæki þetta er ekki aöeins sérkenni-
legt heldur og mjög merkilegt eins og
við komumst að þegar við heimsóttum
Stefán á dögunum og könnuðum það
nánar.
Þama er um að ræða heila hey-
kögglaverksmiðju — þá einu sinnar
tegundar á tslandi og þótt víöar væri
leitað. Tæki þetta hefur vakið mikla
athygli meðal bænda og þá ekki síður
þeirra sem reka stóru graskögglaverk-
smiðjumar. Sjá þeir í því ógnun við
veldi sitt enda kemur þetta tæki
örugglega til meö að spara mörgum
bóndanum mikiö fé.
Stefán hefur þróað þetta tæki sjálfur
meö aðstæður hér á landi í huga. Hefur
hann verið nokkur ár að þreifa sig
áfram með það en nú virðist það vera
komið í það form sem hann hugsaöi
sér. Hann byrjaði í hlöðunni heima hjá
sér en þangað komu þá bændur meö
hey sem hann síðan kögglaði.
Nú er allt komiö á einn stað — sem
sé á Traderinn gamla — og þar er aö
finna malara, kögglara, færiband og
annað sem til þarf við góða heyköggla-
verksmiöju. Stefán keyrir nú á milli
bænda, þegar tími er til, og kögglar
fyrir þá það hey sem þeir vilja. Getur
hann blandað fyrir þá í kögglana allt
sem til þarf, eins og fiskimjöl og ann-
að. Sparar bóndinn sér þarna mikil
kjarnfóðurkaup fyrir utan hvað þetta
er hagkvæmt f yrir hann.
I venjulegri graskögglaverksmiöju
er grasið tekið blautt af túnum þeirra
og það síöan þurrkað við mikinn hita
áðuren þaðer kögglaö. I hinni litlu
kögglaverksmiðju, Stefáns á Teigi,
ganga hlutimir eins fyrir sig nema að
bóndinn lætur hann köggla hey sem
hann hefur sjálfur þurrkað yfir sumar-
ið.
Kögglaverksmiðjan á hjólum er þá
pöntuö á bæinn aö hausti eöa vetri til
og þar er tekið til við að köggla það hey
sem bóndinn óskar eftir. Er það annað-
hvort sett í poka eða geymt laust á
góðum stað. Bóndinn leggur sem sagt
sjálfur til heyið en Stefán vélarnar og
vinnuna.
Þórarinn Lárusson, hjá Ræktunar-
félagi Norðurlands, sagði okkur að
hann heföi mikla trú á þessu tæki.
, ,Þetta hefur gengið seint því það vant-
aði fjármagn í þetta og oft hafa verið
settir peningar hér á landi í óarð-
bærari hluti en þessa vél,” sagði
hann.
,,Það er þegar komin góð reynsla á
þetta og bændur hér í nágrenninu eru
mjög ánægðir meö þessa færanlegu
kögglaverksmiðju. Kaupfélagiö hérna
fékk Stefán í vinnu við að köggla hey
fyrir sig og það var ekki hægt að sinna
eftirspum. Reksturinn byggist á því að
heyfengur bænda sé nægjanlegur og ég
tel aö þetta fyrirkomulag eigi mikla
framtíð fyrir sér hér á landi,” sagði
hann.
-klp-
Stefán Þórðarson, bóndi á Teigi, við hluta af gömlu vélinnl sem hann gerði Heykögglaverksmiðjan á hjólum í hlaðinu að Teigi í Hrafnagilshreppi í Eyjafirði.
fyrstu tiiraun með í hlöðunni heima hjá sér.
„ÁFRAM ÍRLAND”
ÁHUGALITLIR
UM
ÍSLANDSFERD
Ahugi Ira á knattspymulandsleik
Islendinga og Ira um miðjan næsta
mánuö virðist ekki allt of mikill. Fyrir-
hugað var að stuðningsmenn írska liðs-
ins kæmu með sérstakri flugvél til Is-
lands á leikinn og hvettu sína menn en
hætta var við ferðina þar sem lítill
áhugi vará henni á Irlandi.
Iramir höfðu boðið ferðaskrifstof-
unni Úrvali að fá „tómu” sætin í vél-
inni til baka og hafði Urval auglýst
þessa sérstöku Irlandsferð. Nokkur
áhugi virtist á henni.
Var ætlunin að fara til Irlands og
dvelja þar á meöan leikurinn færi fram
hér. Síöan yrði komið aftur með vélinni
þegar náö yrði í írsku stuðningsmenn-
ina.
Að sögn Steins Lárussonar, for-
stjóra Urvals, hættu Irar við þessa ferð
til Islands þar sem írsku stuðnings-
mennirnir sýndu ferðinni mjög lítinn
áhuga og engan veginn tókst að fylla
vélina.
-JGH
-n
Nýir pelsar á markadinn f rá Akureyri:
Einn pels fæst
úr fimm til
sex gærum
„ Við erum rétt að fara af stað með
þetta og það er skammt í aö fyrstu
pelsamir veröi sýndir opinberlega,”
sagði Steindór Kárason, yfirmaöur
hinnar nýju pelsadeildar Sambands-
ins á Akureyri, er við litum inn hjá
honum á dögunum.
klippt og síðan væri byrjað að raða
saman stykkjum eftir módeli. Er
það seinlegt verk því fá verður rétt-
an lit og áferö. Fara fimm til sex
gæmr í hvern pels en úr hverri gæru
eru teknir hlutar sem falla vel sam-
an.
Steindór var þar að leggja siðustu
hönd á nýjan pels sem eflaust á eftir
að vekja mikla athygli hér á Islandi
og viöar. Þetta er gærupels sem bæði
er hægt að fá með hettu og kraga og
er mjög svo klæðileg flík.
Steindór sagöi að gæran væri
Galdurinn er síðan að sauma
þetta saman svo ekki sjáist. Var
fenginn sérstök pelsasaumavél til
þess en einnig eru notaöar margar
aðrarvélarviðsaumaskapinn. Hing-
að kom sænskur maöur sl. haust til
að kenna svona pelsagerð og Steín-
dór dvaldi í Finniandi nú í ár til að um og viöar og eiga sjálfsagt eftir að
læra þetta enn betur. Svona pelsar sláígegnhér.
eru mjög vinsæiir á Noröurlöndun- -klp-
Steindór Kárason við sýnishom af nyja gærupelslnum sem Sambandsverk-
. smiðjumar á Akureyri em að byrja að framleiða.
DV-mynd -klp-