Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1983, Síða 8
8
DV. FÖSTUDAGUR 26. AGUST1983.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Litiðáskólavörur:
Það borgar sig að
skoða verðmiðana vel
Sumarfrí bamanna er bráðlega á
enda. Skólarnir hefjast flestir núna um
og eftir mánaöamótin. Misjafnt er þó
eftir landshlutum hve snemma
kennsla hefst. I sveitaskólunum byrjar
hún eitthvað seinna en í bæjunum.
Fólk er farið að kaupa skólavörur í
þeim verslunum sem þær selja. Þó
kom þeim sem við ræddum viö saman
um að verulegur skriöur kæmist ekki á
söluna fyrr en um leiö og skólamir
hæfust. Því má búast við að í seinni
hluta næstu viku og í þeirri þar næstu
veröi mikiö að gera í bóka- og ritfanga-
verslunum.
Við litum inn í tvær ef elstu skóla-
vörubúðum landsins, Pennann og Bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar. A
báðum stöðum var okkur sagt að fólk
spyrði mikið um verð áöur en það
keypti. Núna er enn sitthvað til á veröi
síðan í fyrra og þeir sem sleppa vilja
létt út úr innkaupum á skólavörum
ættu heldur að drif a sig en hitt.
Til þess aö gefa mönnum einhverja
ofurlitla hugmynd um það hvaö hlut-
irnir kosta og hversu verðbiliö getui
veriö mikið er best að taka dæmi um
verð á skólatöskum. I Pennanum kosta
þær frá 200 og upp í 1200 krónur. 1
Eymundsson er verðbiliö enn meira —
frá 164 krónum og upp í 1670 krónur.
Þær dýrustu em reyndar miklu f remur
skjalatöskur en skólatöskur en em
samt mikið keyptar af nemum í fram-
haldsskólunum. Verðmunur getur
verið ótrúlega mikill á töskum sem h'ta
nánast að segja eins út. Fer hann eftir
framleiðslulandi, efni og því hversu
gömul sendingin er.
Annað dæmi um mikinn verömun
fundum viö á stílabókum hjá
Eymundsson. Með því að fletta í
sundur stafla af litlum stílabókum
rákumst við á eina á eldgömlu verði,
hún kostaði 55 aura. Stærri stílabækur
með 80 síöum í A4 broti og meö gorm-
um kostuöu hins vegar allt upp i 40
krónur. Það hefði mátt kaupa nokkrar
af hinum fyrir það fé.
Munurinn var ekki eins mikill í
Pennanum en mikill þó. Odýrasta
stílabókin kostaði 5,80 og sú dýrasta 36
krónur.
Veski undir penna, blýanta, strok-
leður og annað sem þarf eru eitt af því
nauðsynlega. I Pennanum eru slík
veski til á verðbilinu 60—300 krónur.
Mesti verðmunurinn lá í því hvort eitt-
hvaö var í veskjunum eða ekki. Pokar
með engu innihaldi voru ódýrastir á
meöan veski meö blýöntum, litum,
reglustikum og öðrum hlutum voru
dýrari. Svipaða sögu er aö segja frá
Eymundsson. Odýrasti pokinn undir
penna og blýanta kostaði 33 krónur en
dýrasta veskiö með blýöntum og litum
kostaði 600 krónur. Þaö var reyndar
langtum dýrara en það næsta fyrir
neðan. Ástæðan var lítil tölvuklukka
utan á veskinu. Hægt var að láta hana
sýna klukkustundir, mínútur og
sekúndur og daga og ár. Ekki beinlinis
alveg bráðnauðsynlegt fyrir börn í
barnaskóla.
Smáhlutirnir, svo sem blýantar
pennar og strokleður eru tiltölulega
það langdýrasta sem kaupa þarf.
Blýantur af venjulegri gerð kostar 2—3
krónur. En sé hann orðinn á einhvern
hátt sérstakur fer verðið upp í 8—12
krónur. Strokleöur er hægt aö fá á 2,50
en annað er hægt aö kaupa á heilar
16,50. Reyndar stórt strokleður bæði
fyrir penna og blýanta.
Pennar eru einnig talsvert dýrir. En
þó er hægt að fá ódýra tússpenna og
penna sem líkjast blekpennum fyrir
þokkalegt verð. Þannig kostar ný gerð
af tússpennum, sem hefur svipaða
eiginleika og blekpennar, 24 og 44
krónur í Pennanum. Þeir eru einnota
en endast upp undir allan veturinn.
Einnig er hægt aö fá ódýra skrúf-
blýanta sem kaupa má í blý eftir
þörfum. Er slíkt mikið notaö í skólum
nú orðið.
Tilgangurinn með þessari grein er
ekki aö gera neina úttekt á því sem til er
af skólavörum fyrir börnin. Aöeins aö
hvetja fólk til að horfa bæöi lengi og vel
á ýmsa verðmiða áður en keypt er. -DS.
Svemarnir ungu og foreldrar þeirra voru að líta á skólatöskur í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar. Þeir virtust
vita nokkurn veginn bvað þeir vildu.
Bakpokar eru mjög vinselir undir skólabækurnar nú á dögum. Þessi fest i Penn-
anum og kostar 1083 krónur. Hann er gerður með það í huga að bak bamsins, sem
hann ber, á ekki að geta skaðast af.
Urvalið af skólavörum er orðið breint otrúlegt. Hér má til demis sjá á þriðja tug gerða af pennaveskjum. Annars
staðar i sömu verslun voru til enn fleiri gerðir.
Þessir tússpennar eru nú mikið að
koma í stað blekpenna enda miklu
ódýrari en svipað að skrifa með þeim.
DV-myndir Bj. Bj.