Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1983, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1983, Síða 12
12 DV. FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST1983. DAGBLAÐIÐ-VÍSIR Úlgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIDLUN HF. Sfjómarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoóarrilstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON ogÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjóm: SÍÐUMÚLA12—14. SÍMI8ÓA11. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA33. SÍMI27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI ll.SÍMI 27022. Sfmi ritstjómar: 86411. Setning, umbrot, mynda- og plötugerö: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. P rentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Áksriftarverð á mánuði 230 kr. Verð f lausasölu 20 kr. Helgarblað 22 kr. Lengií buröarliðnum Ríkisstjórnin mun, ef að líkum lætur, stefna að því að fella söluskattinn niður en taka í hans stað upp svokallað- an „virðisaukaskatt”. DV greindi frá þessu nú í vikunni. Reynt yrði að taka upp hinn nýja skatt um áramótin 1984-5. Virðisaukaskattur er notaður víða erlendis. Söluskatturinn er aðeins innheimtur á einu viðskipta- stigi, það er við sölu til hins endanlega neytanda. Virðis- aukaskattur yrði innheimtur á öllum viðskiptastigum, við innflutning, framleiðslu, heildsölu og smásölu. I fljótu bragði virðist þetta flækja kerfið og ekki vera til bóta. Þó fylgja breytingunni ýmsir kostir. Söluskatturinn er innheimtur af ýmsum mikilvægum aðföngum atvinnurekstrarins, svo sem orku, viðhalds- þjónustu og fjárfestingarvörum. Þetta veldur svokallaðri „uppsöfnun” skattsins. Hann getur sem sagt lagzt oftar en einu sinni á hið sama. Ríkisstjórnir hafa síðustu árin til dæmis verið að fást við að „endurgreiða iðnaðinum uppsafnaðan söluskatt” í þeirri grein. Slík endurgreiðsla hefur oftast borið merki geðþóttaákvarðana. Endur- greiðslan hefur yfirleitt ekki verið til þeirra, sem af var tekið, heldur einhverra annarra samkvæmt hinum „nei- kvæða sósíalisma”, sem hér ríkir. Þá eru undanþágur frá söluskattinum margar og marg- víslegar, svo að telja má, að öryggi söluskattskerfisins sé stefnt í hættu. Margir telja, að virðisaukaskatturinn sé öruggari og menn komist síður undan greiðslum. Hann sé „hlutlaus- ari” og óháðari fjölda þeirra viðskiptastiga, sem varan fer um á leið sinni til endanlegs neytanda. „Uppsöfnunar- áhrifunum” megi eyða. Unnið hefur verið að samningu frumvarps um virðis- aukaskatt síðan í tíð ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens. Núverandi ríkisstjórn er talin munu leggja áherzlu á af- greiðslu frumvarps um skattinn fyrir áramót. I stað 23,5 prósenta söluskatts kæmi væntanlega 19—21 prósent virðisaukaskattur, sem ekki byði upp á slíkar undanþágur sem söluskattskerfið nú gerir. Á móti kostum hins nýja skatts umfram söluskattinn kemur, að virðisaukaskatturinn yrði mun dýrari í inn- heimtu. Innheimtan dreifðist á öll stig viðskipta, og gjald- endum fjölgaði að sama skapi. Búast má við, að fyrirtæk- in þurfi að leggja meiri fyrirhöfn í bókhald. Virðisaukaskattur hefur lengi verið í burðarliðnum. Að minnsta kosti 10 ár eru síðan stjórnvöld tóku að íhuga upptöku hans í alvöru. Nefnd á vegum f jármálaráðuneyt- isins samdi greinargerð um skattinn fyrir rúmum átta árum, og er hér talsvert stuðzt við greinargeröina. Því er ekki að undra, þótt margir efist enn um, að þessi skattur verði tekinn upp. Enginn veit, hver afstaða alþingismanna verður, þegar á reynir. Sumir telja, að aðrar þjóðir hafi góða reynslu af skattinum. Aðrir telja reynsluna slæma. Þá er alltaf hætta á, þegar rætt er um upptöku nýrra skatta, að stjórnvöld noti skattbreytinguna til að hafa meira fé af landslýð. Því er margt að varast og fara verður með fyllstu gát í þessu mikilvæga máli. Þó gæti ráðið úrslitum, að auðveldara yrði að leggja tekjuskattinn niður og færa skattheimtuna meira í óbeina skatta, ef virðisaukaskattur væri kominn í stað sölu- skatts. Haukur Helgason. VIRÐISAUKA- SKATTUR EÐA SÖLUSKATTUR Frá því er skýrt aö embættismenn fjármálaráðuneytisins séu ennþá aö þrýsta á um að söluskattur veröi lagð- ur niöur en viröisaukaskattur tekinn upp í staðinn. Þessar tilraunir emb- ættismannanna hafa staöiö árum saman. Árið 1975 kom út á vegum fjár- málaráöuneytisins greinargerö um kosti og galla virðisaukaskatts og kem- ur þar fram” aö út frá tekjuöflunar- sjónarmiöi hins opinbera hefur viröis- aukaskatturinn ótvíræöa yfirburöi yfir söluskatt”. Hins vegar er viöurkennt aö „viröisaukaskattur veröur nokkru dýrari í framkvæmd en núverandi söluskattur, þar eö innheimtan dreifist á öll stig viðskipta og gjaldendum fjölgar af þeim sökum. Auk þess má í flestum tilvikum reikna meö aukinni fyrirhöfn viö bókhald fyrirtækja”. Góður í upphafi Áriö 1960 voru sett lögin um sölu- skatt sem enn gilda aö stofni til. Skatt- urinn var þá 3%. Eru fróðir menn um skattheimtu og skatteftirlit þeirrar skoðunar aö lögin hafi veriö góð, jafn- vel einhver bestu skattalög sem sett hafi verið, réttlát og einföld í senn. En því miður voru margir áhrifa- menn þeirrar skoðunar aö nota ætti söluskatt til þess aö hafa áhrif á neyslu í staö þess aö skatturinn ætti aö vera hlutlaus gagnvart hinum ýmsu vöru- tegundum og þjónustu. Var hart sótt aö ýmsar vörur og þjónusta yröi undanþegin söluskatti og hefur sú sókn aukist með árunum. Þannig hefur skattsviöiö orðiö þrengra en aö sama skapi hefur orðiö aö hækka innheimtuprósentuna og Haraldur Blöndal Samkomuhald um verslunar- mannahelgina Ungmennafélögin forustuaðiH um framkvæmd samkomuhalds Allt frá fyrstu tíö hafa ungmenna- félögin á Islandi verið forustuaðili um almennt samkomuhald í landinu en einkum þó í dreifbýli hin síöari ár. Hluti af þessu verkefni, og aöalfor- sendan fyrir myndarlegri framkvæmd þess, hefur veriö þátttaka ungmenna- félaganna í byggingu samkomuhúsa og síðar félagsheimila, gerð íþrótta- mannvirkja ýmiskonar og síöast en ekki síst uppbygging á margskonar aðstööu varanlegri og tímabundinni á helstu útsamkomustööum landsins. Hið síðasttalda hafa ungmennafélög- in og hérðassamböndin oft gert í góðri samvinnu viö aöra hagsmunaaöila. Ánægjulegast hefur þetta samstarf veriö við Skógrækt ríkisins þar sem forráðamenn skógræktarinnar hafa tekið höndum saman viö forustu ungmennafélagshreyfingarinnar um nýtingu á viðkvæmri aöstööu og ýmsa framkvæmd. Nægir í þessu sambandi aö minna á ágæta samvinnu UlA og forráða- manna skógræktarinnar á Haliorms- staö. Mesta ferðahelgi ársins Verslunarmannahelgin er nú sem fyrr mesta ferðahelgi ársins og einmitt þá hafa ungmennafélögin (héraös- samböndin), íþróttafélögin í Vest- mannaeyjum, bindindissamtökin og fleiri aöilar verið meö skipulagt útisamkomuhald um árabil. Þar fyrir utan er fólki boöiö upp á skipulagöar ferðir af ýmsu tagi um byggðir og óbyggðir og enn aörir kjósa aö ferðast á eigin vegum til staða sem ekki bjóöa upp á skipulagt samkomu- hald eða þjónustu. Það verður því ekki sagt aö fá- breytni ríki um val fólks á dvalarað- stööu þessa mestu ferðahelgi ársins. hleikvæð skrif ogspurning blaðamanns DV Aö gefnu tilefni er óhjákvæmilegt að fara nokkrum oröum um þessa starf- semi á vegum ungmennafélaganna ef veröa mætti til upplýsinga fyrir blaöa- menn og annað fólk. Þaö er tæpast grannskoöuö niöurstaöa aö skella skuldinni á samkomuhaldara þegar samkomugestir koma allslausir í slíka útilegu, utan þaö aö vera vel birgir af áfengi. Ef blaöarnaður sandkornsins í DV 8. ágúst sl. heldur að samkomuhaldarinn geti gefiö foreldrum svör viö slíku þá held ég aö hann hafi farið yfir lækinn til þessaðnáívatn. Sandkorns-blaöamaður DV telur aö skrif sama blaðs frá 2. ágúst sl. um samkomuna í Þjórsárdal hafi vakið mikla athygli. Þaö er auðvitaö gott og blessað hjá blaöamönnum sama blaðs að hrósa hver öðrum þegar aörir gera það ekki. En ef það hefur veriö markmið viðkomandi blaöamanns að leita einungis aö því neikvæöa á umræddri samkomu þá hefur það tekist býsna vel. En á móti kemur sú spurning: er það heiðarleg fréttamennska og sanngjöm gagnvart þeim samtökum sem að sam- komunni standa og þeim mikla f jölda sjálfboðaliða ungmennafélaganna sem lögðu nótt við dag til undirbúnings og framkvæmdar þeirrar samkomu sem hérumræðir? Drykkjuvanda- málið djúpstætt Eins og áður var aö vikið er sam- komuhald af ýmsu tagi, fyrir ung- mennafélaga og annaö fólk, eitt af stærri verkefnum ungmennafélaganna á Islandi og því með ólíkindum að verða vitni að því að blaöamenn skuli í alvöru varpa fram þeirri spumingu hvort samtökin geti lagt nafn sitt við slíkt. — Ástæöan, áfengisneysla sam- komugesta. Ef áfengisneysla fólks, í þessu áfengissjúka þjóðfélagi, er næg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.