Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1983, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1983, Blaðsíða 32
Skákmótíð í Chicago: Rússar efstir Elvari Guömundssyni tókst meö haröfylgi að halda jöfnu við Ehlvest í biðskákinni úr 3. umferö heims- meistaramóts æskumanna í Chicago og skildu því íslensku piltarnir og þeir rússnesku jafnir, 2—2. Fjórða uinferö var tefld i gær. Áttu þá okkar menn í höggi við Brasilíu- menn og vann Margeir sinn andstæð- ing, Paolozzi að nafni, af venjuiegu öryggi. Skák Jóns I.. gegn Braga fór tvívegis í bið og hefur Braga peð yfir. Jóhann Hjartarson vann sinn and- stæöing en Karl Þorsteins gerðist full veiðibráður eftir vamarsigurinn góða gegn Rússanum í fyrradag, hirti baneitrað peö sem varð honum senn að f jörtjóni. Islendingar hafa þá tvo vinninga gegn einum og lakari biðskák. Rússar unnu Kínverja, 2,5— I, 5, og eru þá efstir með 12 vinninga; Islendingar eru i öðru sæti með 11 Jiv og biðskák, 3. Bandaríkjamenn með II, 5v,4. Englendingarmeðllv. -BH. íslenskir 100 krónu seðlarafgreiddir íerlendum bönkum: Ferðamaðurátti ekkifyrirkaffi Hann var heldur óheppinn sænski blaðamaðurinn sem hér var á ferð ásamt öðrum norrænum starfsfé- lögum sínum. Eins og gerist og geng- ur var honum boðið í ökuferð út á iand með tilheyrandi stoppi og kaffi- þambi en þegar sá sænski ætlaði að greiða fyrir veitingamar hrökk gjaldeyririnn ekki til. Aö visu var hann með 6 hundrað krónu seðla í veskinu en þeir voru allir af gömlu gerðinni. Hafði hann fengið þá í Skánska bankanum í Stokkhólmi án nokkurra athugasemda. Að sögn Skúla Sigurgrimssonar í Seðlabankanum áttu svipaðir at- burðir sér stað þrisvar á síðasta ári og þar voru norskir bankar að verki. ,,Við höfum sent út óhemju magn af upplýsingum varðandi myntbreyt- inguna,” sagði Skúli Sigurgrímsson, „og hálf undarlegt að þetta geti gerst.” -EIR. Ekið á tvo NATO-dáta • Ekið var á tvo dáta úr NATO-her- skipaflotanum fyrir utan veitinga- staöinn Safari uin klukkan hálftólf í gærkvöldi. Annar þcirra er af banda- riska skipinu en hinn af því hol- lenska. Þeir voru báöir fluttir á slysadeild Borgarspitalans og reynd- ust ekki alvarlega meiddir. Bifreiðin, sem ók á þá, kom á mikl- um hraöa austur eftir Skúlagötunni. Dátarnir reyndu að henda sér í burtu, en tókst ekki og hafnaði bíllinn á þeim. Þeir skárust á fótum, en að öðru leyti eru meiðsli þeirra ekki teljandi. -JGH LOKI Þetta var stöngin inn hjá Albert. 27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA33 SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1983. Úrbætur í húsnæðismálum á næsta leiti? „VH> ÆTLUM EKKI AD FARA AÐ SOFA” — segir ðgmundur Jónasson, einn forgöngumanna fundarins í Sigtúni um húsnæðismál — „Höfum áður fengið loforð sem hafa verið svikin” „Eg er vissulega mjög ánægður með skjót viðbrögð og góöar undir- tektir félagsmálaráðherra,” sagöi ögmundur Jónasson fréttamaður, einn þeirra sem standa að hreyfing- unni um úrbætur í húsnæöismálum og eftirminnilega hafa bent á neyö þeirra sem af veikum mætti eru að reyna að koma sér þaki yfir höfuöiö. „Við eigum að sjálfsögðu eftir að gaumgæfa þessi mál rækilega því enn er margt óljóst,” sagði ögmund- ur ennfremur, „og við skulum ekki gleyma því að oft áöur hafa okkur verið gefin loforð sem hafa verið svikin. Hreyfingin varð einmitt til vegna svikinna loforöa og eitt er víst að hún lognast ekki út af fyrr en þess- um málum hefur verið kippt í liðinn. Við skulum heldur ekki gleyma því að þaö er ekki veriö að gera á okkur neitt góðverk heldur höfum viö að- eins fengið fyrirheit um aö hugsan- lega verði dregið úr þvi misrétti sem við höfum verið beitt. Við ætlum ekki að fara að sofa þótt bærilega gangi eins og stendur,” sagði ögmundur Jónasson að lokum. I framhaldi af kröfum þeim sem settar voru fram á fundinum í Sig- túni um húsnæöismál og góðum undirtektum æðstu yfirvalda þeirra mála gerði þingflokkur Alþýöu- flokksins samþykkt á fundi sínum í gær þar sem bent er á að flokkurinn hafi ár eftir ár lagt til að húsnæðislán verði hækkuð og lánstími lengdur. En ekki hlotið stuðning hvorki innan þingsnéutan. -EIR Islandsralfíð hófst i gær með þvl að ekin var Sprengisandsleið. íslensku keppendunum þeim Ómari og Jóni og Gunnlaugi og Þorsteini gekk mjög Forystuna hafa ítalarnir Sorghini og Bardini 6 Range Rover. Myndirnar eru teknar við upphaf rafísins igær. vel og eru þeir meðal fremstu ökumanna eftir fyrsta dag keppninnar. D V-myndir Ó. G. Lm ísafjörður: Vó salt á fjögurra metra háu grasbarði Frá Kristjáni Friðþjófssyni, frétta- ritara DV á Bolungarvík: Bíllinn vó salt á fjögurra metra háu grasbarði og þá sá ökuþórinn, grunaður um ölvun, ekki annað ráð vænna en að koma sér út úr bílnum, enda blasti íbúðarhús við honum fyrirneðan barðið. Þannig endaði óvenjuleg ökuferð hjá manni einum á Isafirði um klukkan hálfsjö í gærmorgun. Hann byrjaði á því að bakka út úr bíla- stæði. Ekki tókst betur til en svo að hann lenti á sorpkassa á húsinu beint á móti. En þarna endaði ekki — eftiraöhafa ekiðá sorpkassa ogsíðan yfir lóð ökuferðin og var haldiö áfram og mikil sveigja tekin. Ekki var bíllinn réttur af og því ók hann yfir lóðina sem ekkert væri. En er bíllinn fór aö vega salt við enda lóöarinnar, eins og áður hefur verið lýst, sá maðurinn sitt óvænna. -JGH. Þannig endaði ökuferðin sú, bifí- inn satá kviðnum. DV-mynd Kristján Friðþjófsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.