Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1983, Blaðsíða 12
12
DV. FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER1983.
Það er ekki nema um það bil vika
síðan ríkisstjómin okkar samþykkti
ný fjárlög og ennþá styttra er
þangað til lög gera ráð fyrir aö við
skjötum peningunum okkar upp í
himinhvolfið og sjáum þá verða að
marglitum stjömum á kolsvörtum
miösvetrarhimni þótt búast megi við
aö ljós þeirra verði lifandis skelfing
lítið hjá öllu því myrkri sem nóttin
býryfir.
Mér er sagt aö viö sem notum
ennþá Jón Sigurösson og félaga hans
úr Islandssögunni, sem fyrrverandi
alþingismenn og lögfræðingar vilja
þröngva kennurum til aö minnast á í
skólum landsins, til að kaupa fyrir
kínverja og handblys séum gamal-
dags því að nú sé búið að finna upp
plastseöil sem sé svipaðrar náttúru
og asninn í ævintýrinu sem tað
gullpeningum ef kippt var í halann á
honum.
Fólk sem á slíkan seðil þarf ekki
annað en veifa honum framan í
kaupmanninn og þakka fyrir
viðskiptin á meöan viö, unnendur
Islandssögunnar, tínum Jón Sigurös-
son í lúkumar á afgreiðslustúlkunni
og vegna þess hvaö hann náði góðum
árangri í því sem enginn man lengur
hvað var finnst okkur dálítið slæmt
aö hann skuli vera minna metinn en
plast.
Góð fjárfesting
Eg get ekki sagt að ég sé ýkja hrif-
inn af skoteldum og púöurkellingar
er mér meinilla viö en vegna þess að
í f jölskyldunni er tíu ára þrýstihópur
Farsælt komandi ár
Háaloftið
neyddist ég til að fara á stúfana í
fyrra og kaupa dáh'tiö af flugeldum
og blysum. Þrýstihópurinn kom að
sjálfsögöu með og átti hann í upphafi
ferðar aö fá að bera fram óskir um
hvað kaupa skyldi en þegar á staöinn
var komiö og hann vildi helst tæma
sjoppuna, eins og það er kallað, voru
ráöin tekin af honum og keyptur
heimilispoki af minni gerðinni.
Forðum daga voru engar
leiðbeiningar á því dóti sem fólk
heiðraði himinhvolfið með á
gamlárskvöldi en nú eru miðar á því
öllu sem segja okkur nákvæmlega
hvernig eigi að fara aö til að
árangurinn verði sem bestur.
Eg fór auövitaö í einu og öllu
eftir leiðbeiningunum, setti rándýran
skoteld í tóma maltflösku, miðaöi
honum á Rjúpnahæöina og skaut
honum rakleitt inn um stofuglugg-
ann hjá mér. Sem betur fer ohi hann
engum skaða en þegar fariö var að
athuga máhð kom í ljós að prikið á
flugeldinum var svo bogið að ég heföi
kannski haft einhverja von um að
hitta Rjúpnahæðina ef ég hefði
miðaðáEsjuna.
Margt til
gamans gert
En það er margt fleira sem viö ger-
Benedikt Axelsson
um okkur til gamans á þessum síðasta
degi ársins og í tilefni hans fer
sjónvarpið í sparifötin og sýnir okkur
valda kafla úr ensku knattspyrnunni
á meöan eiginkonurnar bogra yfir
steikinni í eldhúsinu og bömin bíða
spennt eftir því að forsætisráðherra
ljúki máU sínu svo aö þau geti farið
aö horfa á fólkiö í sirkusnum dansa á
línu og missa niður um sig buxurnar.
Eg bíö hins vegar alltaf spenntur
eftir boðskap rikisstjórnarinnar um
það hvernig viö eigum að bregöast
við þeim skakkaföllum sem þjóðar-
búið hefur orðið fyrir og stafar
venjulega af verðfaUi á fiskmörkuð-
um eða hækkun á bensíni og oUu en
að þessu sinni verður sjálfsagt talaö
um hrun fiskstofnanna en eúis og
aUir vita er bágborið efnahags-
ástand þjóðarinnar nú þorskunum aö
kenna, þ.e.a.s. þehn sem synda í
sjónum og drepa sig á unga aldri í
veiöarfærum togaraflotans í stað
þess aö fara að ráðum fiskifræðinga
og gera það ekki fyrr en þeir eru
komnir sæmilega á legg.
En þótt ég geti vel hugsað mér að
hlusta á góða og gagnmerka ræðu
um þorskinn er ég ákveðinn í því að
slökkva á ríkisstjórninni ef hún
minnist einu orði á sultarólar og
opna ekki aftur fyrr en í fyrsta lagi
þegar trúðamU- í sirkusnum fara að
skvetta ímynduöu vatni framan í
áhorfendur sína og missa niður um
sig.
P.s.
Eg aðeins vil nota að endingu tæki-
færið og óska lesendum mUium gleöi-
legs árs. Þótt viöskiptahallavanda-
málið sé ærið mun ég vökva andann í
formi koníakstárs.
Eg vona að á nýja árinu allir græði
og allir fái á því góðan byr. Nú kveiki
ég mér í pípu og púa í næði. Það
passar, því kvæðinu er lokiö, —
blessaðir.
Kveðja
Ben. Ax.
Vfödrögum
lO.janúar
Hmhonsmenn
í Rejfkjavík og
nagFenm
Hver perrra
j er næstur þér?
Aðalumboð, Suðurgötu 10, sími 23130
Umboðið Grettisgötu 26, sími 13665
Sjóbúðin Grandagarði 7, sími 16814
Hreyfill, bensínsala, Fellsmúla 24, sími 85632
Verslunin Straumnes,
Vesturbergi 76, sími 72800
Sparisjóðurinn Seltjarnarnesi, sími 25966
SIBS- deildin Reykjalundi, Mosfellssveit
Borgarbúðin, Hófgerði 30,
Kópavogi, sími 40180
Bókabúðin Gríma, Garðaflöt 16-18,
Garðabæ, sími 42720
Vilborg Sigurjónsdóttir, c/o Bókabúð
Olivers Steins, Strandgötu 31,
Hafnarfirði, sími 50045
Lilja Sörladóttir,Túngötu 13,
Bessastaðahreppi, sími 54163