Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1983, Blaðsíða 14
14
DV. FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER1983.
Kaspturov — maður úrsins
— í shúhheiminum
Garri Kasparov stundar nám við enskudeildina i tungumálastofnun Azerbajdzjan.
Garrí Kasparov rótburstadi Viktor Kortsnoj en þó ad
margir, kannski flestir, hafi einmitt búist við þeim úr-
slitum, þá verður því samt ekki neitað að einvígið
þróaðist nokkuð á aðra lund en vœnst hafði verið.
Kortsnoj lék á köflum svo hörmulega illa að miðlungs-
menn í Taflfélagi Reykjavíkur hefðu roðnað upp í hárs-
rcetur hefði þeim orðið á önnur eins glappaskot og sjálf-
um,,varaheimsmeistaranum”.
En auðvitað má segja með allmiklum sanni að skák-
maður sem leikur jafnherfilega illa inn á milli á alls
ekki skilið að þreyta kappi við Karpov um heims-
meistaratignina, og það er líka satt og rétt að yngis-
maðurinn Kasparov er í alla staði vel að sigrinum
kominn.
DV hefur borist í hendur umsögn frá APN, hinni
sovésku fréttastofu, um persónuleika sigurvegarans.
En við birtum hér þessa frásögn APN óbreylta og
látum fljóta með nokkrar skemmtilegar Ijósmyndir,
einnig þœr eru frá APN. -BH.
Tímarit fyrir alla
ó
<§f§r
ER SAFN STUTTRA, AÐGENGILEGRA GREINA
UM ALLT MILLI HIMINS OG JARÐAR,
SEM SETTAR ERU FRAM Á AÐGENGILEGAN
OG AUÐSKILINN HÁTT.
“ VÍÍ'Ð!'’* 1
* * ***?£■ '
,w"'*'
Bo«g um
!. ,"w«
llRil'Z;
ER SAMBLAND AF SKEMMTUN
OG FRÓÐLEIK ÓG HENTAR
ÖLLUM ÞEIM SEM HAFA
LlTINN TÍMA TIL LESTRAR
EN VILJA SAMT FYLGJAST MEÐ.
'<.....K, vft.o'i'-
”%>
,íntnf.a
W % d
■C'S? •>
hM *• W, .1»
„ »»>08
itrsf
Vr>
>«., >, «,„,A
VoflM"1 C,isiu’ » *
ER EKKI SlÐUR KJÖRIÐ
TÍMARIT FYRIR LESTRAR-
HESTINN, SEM FÆR
HVERGI EINS MIKIÐ
AÐ LESA FYRIR
JAFN LlTIÐ VERÐ.
ÞAÐ VIÐRAR
ALLTAF VEL
TIL AÐ LESA
Timarit fyrir alla >
‘*TÍI
siBi
Hinn tvítugi Garrí Kasparov,
sem nýlega bar sigur af hólmi í
viðureigninni viö Kortsnoj, er einn
jftirtektarverðasti persónuleikinn
ískákheiminum.
Um allan heim fór mikil skák-
bylgja er þessi ungi stórmeistari
háði einvígi viö hinn þrautreynda
skákmeistara Viktor Kortsnoj.
Garrí var ekki orðinn 18 ára
þegar blaðamenn, sem tóku þátt í
alþjóðlegri skoðanakönnun, settu
hann í annað sæti á eftir heims-
meistaranum. Skáksérfræðingar
meta hæfni hans meiri en hjá
Karpov og Fischer, þegar þeir
voru á sama aldri og hann er nú.
Kennari hans var Mikhail Bot-
vinnik, fyrrverandi heimsmeist-
ari, en hjá honum stundaði Garí
nám um sjö ára skeið. Botvinnik
varð fyrstur til að koma auga á
hæfileika hans. Botvinnik sagði að
það hefði verið sláandi hversu
fljótur hann heföi verið að átta sig
og hversu gott minni hann hafði.
„Hann finnur út flókin afbrigði og
sér fyrir leiki sem eiga að koma á
óvart. Hann minnir á Alekhin
sjálfan hvaö varöar leikfléttur.”
En þeir sem efuðust sögðu að hin
kákasíska skapgerð Kasparovs
gæti komið í veg fyrir að hann gæti
náð sér á strik þegar hann léki við
rólega skákmenn. Garrí lítur á sig
sem bjartsýnismann og er viss um
að það sé eitt af því sem byggi upp
styrk sinn.
Það er ekki aðeins að Garrí nái
góðum árangri í skákinni. Hann
lauk námi við miðskóla með gull-
verðlaunum og er nú í námi við
tungumálastofnun Azerbajdzjan
og stundar nám við enskudeildina.
Hann hefur gott minni eins og
áður hefur verið sagt og getur ekki
aöeins haft yfir heila kvæðabálka
utan að heldur einnig margar
blaðsíður í eftirlætisskáldverkum
sínum.
Hin „kákasíska skapgerð” hans
fellur vel saman við skynsemis-
stefnuna. Hann notaöi „Cooper
test” í undirbúningi sínum fyrir
einvígið í London. Samkvæmt
þeim nægir fólki á milli tvítugs og
þrítugs, sem er í góöu íþrótta-
formi að hlaupa tvær mílur á
sextán mínútum. Garrí fer þessa
vegalengd á 12 mínútum á hverj-
um degi á sandströndinni, (hann
bjó sig undir einvígiö á strönd
Kaspíahafs). Hann er vel byggður
líkamlega, er 177 sm og vegur 72
kg. Hann gerir daglega æfingar
sem þjálfa alla vöðva. Hann
syndir, hjólar og hefur mjög
gaman af fótbolta. Hann er búinn
aðfá alla aðstoðarmenn sína, sem