Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Side 13
DV. LAUGARDAGUR 7. JANUAR1984.
13
Ásdís Thoroddsen sem leikur annað adalhlutverkid
í Skilabodum tíl Söndru:
Sandra
hefur
orðið
r
a
vegi
miii
„Já, þetta er fyrsta hlutverkiö
mitt,” segir Asdís Thoroddsen sem
leikur Söndru í kvikmyndinni Skila-
boö til Söndru og er nú stödd á Is-
landi í jólaleyfi frá kvikmyndanámi í
Berlín. „Auövitað lék ég þegar ég
var í barnaskóla,” bætir hún viö.
Hvaö segirðu um persónuna
Söndru?
„Hún átti aö vera eins eölileg eins
og ég gat framast leikiö hana. Þetta
er hrein og bein stúlka sem fer sínar
eigin leiöir. Sandra er engin femme
fatale sem tælir og tryllir Jónas. Hún
er mótvægi viö hinar konurnar í lífi
hans. Eiginkonuna og vinkonuna.
Hún er ljósi punkturinn þegar allt er
farið í rusl hjá honum út af karríern-
um. Hún er í rauninni jákvæð per-
sóna því að allir í grennd viö hana fá
aö vera þeir sjálfir eins og til dæmis
smákrimmarnir. Þaö er ekkert
spilerííhenni.”
Hvernig líst þér á útkomuna?
,,Eg gerði meira en að leika í Skila-
boöum til Söndru. Eg samræmdi
hljóö og mynd og í raun og veru kom
því myndin mér ekki svo mikiö á
óvart. Mér virðist þetta vera eins og
fólk segir: „létt og skemmtileg, al-
þýöleg mynd”. Mér finnst Bessi
standa sig mjög vel. Hann er svo ná-
kvæmur í litlu hlutunum, blæbrigð-
unum. Aukaleikarar margir eru
mjög góöar týpur. Eg hef auðvitaö
sumt viö tæknivinnuna aö athuga en
ég vildi nú heldur tala viö fólkiö
sjálft um þaö. Þetta eru vinir mínir
og ég á eftir aö fara í kaffiboö til
þeirra og diskútera myndina,” bætir
Asdís viö.
Leikhúsfræði, heimspeki,
kvikmyndir
Viö ákváöum aðspyrja hana nánar
um kvikmyndanámiö.
,,Eg byrjaöi núna í haust kvik-
myndanám í Berlín. Eg held aö ég
hafi verið svona 17 ára þegar ég beit
það í mig aö fara út í þessa sálma.
Þaö kemur mér til góöa aö hafa leik-
iö í kvikmynd. Þaö var mér holl
reynsla að prófa mig hinum megin
viö kvikmyndavélina. Eg hef unnið
Asdís.
margvísleg störf viö kvikmyndir og
þaö var ágætt aö reyna þetta líka. Eg
byrjaöi sem hlaupastrákur hjá
Þjóðverjunum sem geröu Paradísar-
heimt. Svo fór ég í sjónvarpiö og var
skrifta þar. En ég fór raunar ekki
beint í kvikmyndanámiö því ég var
einn vetur í leikhúsfræði í Sviþjóö og
einn vetur í heimspeki í Berlín á
meðan ég tók inntökupróf í kvik-
myndanámiö.”
Hvernig er námið byggt upp sem
þú ert í?
„Þetta er þriggja ára nám. Fyrsta
áriö lærum við grunninn, handverk-
iö. Næstu tvö árin verðum viö aö
skipuleggja okkur sjálf og sérhæfa
eftir því sem hugurinn girnist. Þriöja
áriö endar meö lokafilmu. Eg má
jafnvel gera hana hérna heima á Is-
landi. Eg hef mestan áhuga á mynd-
eöa leikstjórn.” „Jú, endilega gera
eigin myndir,” segir Asdís þegar hún
er spurð.
Kann betur við mig hinum
megin við vélina
Hvernig atvikaðist þaö aö þú
fékkst hlutverk í myndinni?
,,I fyrravor kom systir mín í heim-
sókn til mín út til Berlínar og haföi
sagt aö hún heföi dálítið skemmtileg-
ar fréttir. Mig grunaöi strax aö þess-
ar fréttir væru eitthvað í sambandi
viö kvikmyndir og jafnvel aö ég ætti
aö leika. Þaö var tónninn í röddinni
hjá henni. Þegar ég kom heim um
vorið var ég strax sett fyrir framan
kvikmyndavélina. Eg rétt náði aö
læra textann um kvöldiö og morgun-
inn eftir byrjaöi ég aö leika. Eg var
viö þetta í einn mánuö meö hléum
svo aö tökutíminn hefur eflaust fyUt
tværvikur.
Eg kann þó betur viö mig hinum
megin viö vélina. En ég hefði ekki
viljáö veröa af því aö leika. Eg held
að þaö hafi verið bráöhollt fyrir mig
aöprófa þetta.”
Hvernig pældiröu í persónunni?
„Eg fékk aðra gerö handrits út og
smáfyrirmæli gegnum systur mína
hvernig leikstjórinn vildi aö ég léki
Söndru. Þetta var persóna sem, eftir
því sem leikstjórinn túlkaði hana,
býöur ekki upp á nein dramatísk til-
þrif og ég treysti mér alveg aö eiga
við hana. I rauninni þekktu Duna og
Stína mig áöur og ég geri ráð fyrir
að þær hafi valið mig í hlutverkið
vegna þess aö þær þekkja minn
karakter. Þær hafa treyst því aö ég
gæti verið mjög eðUleg fyrir framan
vélina eöa leikið m jög eöUlega mann-
eskju.”
Þekkiröu einhverja eins og
Söndru?
,,Já, hún hefur oröiöá vegi mínum.
Eg segi þó ekki aö hún sé algeng.”
Með fötuna tóma til fjalls
Hvernig var vinnan viö kvikmynd-
ina Skilaboð tU Söndru?
„Þetta er sú skemmtilegasta kvik-
my nd sem ég hef unniö við hingað tU.
AðaUega vegna samstarfsfólksins.”
Hvað finnst þér um íslenska kvik-
myndagerð?
„Eg byrjaði aö vinna viö íslenska
kvikmyndagerö þegar ég lauk
menntaskóla. Þá var hún að taka við
sér. Þannig aö ég datt beint í lukku-
pottinn. Eg vona aö þaö veröi ekkert
lát á kvikmyndagerðinni hér og aö ég
eigi eftir aö fá að taka þátt í henni
áfram.”
Hefuröu eitthvað aö athuga við þaö
sem hingað til hefur veriö gert af
kvikmyndum hér?
„Eg veit ekki hvort það er rétt á Is-
landi aö kvikmynda eftir bókum.
Hérna eru bækur fólki svo heUagar.
Þaö veröur svo sárt ef í einhverju er
út af breytt. Þaö var ekki mikið
brugöiö út af söguþræöi bókarinnar í
þessari mynd. En samt voru ein-
hverjir aö kvarta þegar persónunni
Söndru var hnikað til.
Islensk handritsgerð er gloppótt en
handritiö er undirstaða hverrar
myndar. Þaöerokkar veiki punktur.
Eg minnist þess sem Þorgeir
Þorgeirsson sagöi einu sinni varð-
andi þetta: „Islenskir kvUcmynda-
gerðarmenn eru komnir yfir bæjar-
lækinn og stefna meö fötuna tóma tU
fjalls.”
-SGV
TÓNSKÓLI EMILS
Nýtt námskeið hefst 9. janúar.
Kennslugreinar: píanó, harmóníka, gítar, munn-
harpa og rafmagnsorgel. Innritun daglega í simum
16239 og 66909.
TÓNSKÓLI EMILS
Brautarholti 4.
Hótel Loftleiðir
stærsta hótel landsins.
Gisting í Reykjavík í
algjörum sérflokki.
Hótel Loftleiðir eina hótelið sem býður gestum sínum
aögang að sundlaug, gufubað-
stofu, vatnsnuddpotti og hvíldarherbergi.
Auk bess er á hótelinu fjölbreytt bjónusta svo sem
hárgreiðslu.og rakarastoft, snyrtistofa að ógleymdum
veitingum eins og hressandi kaffi og Ijúffengum réttum.
Kynnið ykkur kjörin hjá okkur.
Sími 91-22322.
HOTEL LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA pm HÓTEL
aö 80-150 manna veisl-
urnar og árshátiöirnar eru
haldnar á Hótel Hofi •
aö veislumaturinn, kaftiö,
meölætiö og þaö allt er til
reiöu?
aö þér er óhætt aö
hringja eöa koma og 1a upp-
lýsingar?
'TT^aövíö eigum pá von a
þér. _________
4jóid4-l<yf)
RAUÐARÁRSTÍG 18
SÍMl28866