Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Blaðsíða 19
DV. LlAUGAftDAGUR7.'JANUAR1984. 19 merki til styrktar StBS og þegar glugginn á því var opnaður kom í ljós vinningstala sem geröi þaö aö verkum aö ég var ekki í rónni fyrr en ég fékk sendan lampaskerm sem ég sá strax aö var örugglega ekki það mikils viröi aö þaö borgaöi sig aö leggjast i drykkjuskap og kvennafar vegnahans. Nú er öldin önnur Nú til dags þýöir víst ekki aö bjóða fólki upp á lampaskerma í vinning, utanlandsferð í hálfan mánuö og bíll er þaö minnsta sem fólk getur hugsað sér enda eru víst allir hættir aö beygja sig eftir krónu þótt hún sé alltaf að styrkja stööu sína aö sögn þeirra sem vit hafa á rekstrarhalla og erlendum lántökum. En þótt hér séu mörg happdrætti og stór veröur vort daglega lif víst mesta happdrættið á þessu ári aö sögn ráðamanna sem eru enn aö slá niöur verðbólguna þótt þeir séu búnir aö því og herma þetta eftir fiskveiöi- flotanum sem mér er sagt að ætli bráöum að fara aö veiða þorsk. Eg hef alltaf dáUtið gaman af því aö þegar ráöamenn þjóðarinnar tala um eitthvaö sem fariö hefur úr- skeiöis erum þaö viö Islendingar sem berum sökina, viö höfum Ufaö um efni fram, en þá sjaldan aö hægt er aö tala um eitthvað jákvætt er þaö ríkisstjórninni aö þakka, hún sló niður veröbólguna. Um dagúin las ég það í blaði að laun fóUts í landinu heföu hækkaö helmingi mrnná en sá kostnaöur sem talinn er duga til aö framfleyta sér og samt er hvorki lát á hnattferðum né brennivínskaupum, það er helst að sumh- neiti sér um að skipta um bíl jafnoft nú og áöur. Ef ég væri einn af ráöamönnum þjóðarinnar myndi ég ekkert skilja í þessu enda hlýtur þetta aö vera næstum því óskiljanlegt úr því aö ekki er búiö aö láta einhverja víra- flækju reikna út hvernig þetta fær staöist. Stundum hefur mér þó dottið í hug aö hver Islendingur eigi sinn sjóö sem sé eins og ríkissjóöur, galtómur, en eins og hann megi nota þennan sjóö þegar í harðbakkann slær og nauösynleg verkefni eru á döfinni, sbr. Kröfluvirkjun og steinuUarverk- smiöju sem mun víst geta á tíu árum eða svo framleitt einangrun sem dugar okkur til eiliföarnóns eða lengur. Eg þekkti líka einu sinni mann sem var talinn eiga buxur sem voru þeirrar náttúru aö í hvert sinn sem hann stakk höndunum í vasana kom hann upp meö peninga og ef marka má framkvæmdir mannsins hefur hann oftast nær veriö með hendur í vösum. En hvernig svo sem þessu er variö ætla ég aö enda þennan þátt á vísu sem kunningi minn einn heyröi kveðna af álfum á nýársnótt. Á árinu aö vanda vonum viö ÖU aö veröi ekki mikil kreppa, kátt veröi jafnan í koti og höll og keypt geti allir jeppa. Kveöja Bcn. Ax. AÐALFUNDUR Vélstjórafélags Islands verður haldinn sunnudaginn 15. janúar kl. 14.00 að Borgartúni 18. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Muniö eftir félagsskírteinum. Stjórn Vélstjórafélags íslands. Frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja — Vorönn 1984 Stundaskrár veröa afhentar mánudaginn 9. janúar 1984 kl. 10.00 gegn greiöslu pappírsgjalds kr. 500. Kennsla hefst skv. stundaskrá þriðjudaginn 10. janúar. Nemendur öldungadeild- ar mæti til viðtals mánudaginn 9. janúar kl. 18.00. Skólameistari. 1. a7h2 2. a8=B! Já, hann fær sér biskup, því aö nú er 2. —hl=D hættulaust, því aö hvítur er patt! 2. — Ba7+! 3.Kxa7hl=D Nú hrósar svartur happi og bíður eftir mátinu eftir 4. b8=D Dal+ 5. Kb6 Db2+ 6. Ka7 Da3+ 7. Kb6 Db4+ 8. Ka7 Da5+ 9. Kb7 Be4 mát. 4. b8=R+! Og nú fær hann sér riddara! Enn á hann þó eftir aö glíma viö einn frels- ingja. 4. — Kd8 5. Bxhl Ba4 6. Bc6! c2 7. Bxa4 cl=D 8. Rc6+ Kc8 9. Re7+ Kd8 10. Rc6+ og svartur getur ekki unnið. 7.0. Duras 1933 Stöðumynd 7 — Hvítur ieikur og vinnur. Þessi er fræg og hefur eflaust komið mörgum kunnuglega fyrir sjónir. 1. Hg6! Hf8 2. He6! Ba5 3. He7 Bd8 4. He8! Hh8 5. Hg8! Hxg8 6. fxg8=B! Að sjálfsögöu fær hann sér ekki drottningu, því aö þá væri svartur patt. Nú er hann hins vegar óverj- andi mát (7. Bd5 mát) í næsta leik. 8. Liburkin 1946 a b c d e f q h Stöðumynd 8 — Hvítur leikur og heldur jöfnu. 1. Re3 Hd3 2. Kc2! Hxe3 3. Rd8!! Og svartur getur ekki unnið! Leiki hann kóngnum (t.d. 3. — Kb8) kemur 4. Kd2 He4 5. Kd3 Hel 6. Kd2 meö jafntefli, því aö — He5? er svarað meö riddaragaffli. Og ef e-peðið fellur er staðan auövitaö jafntefli. 3. — He2+ 4. Kd3 Hel 5. Kd2 He4 6. Kd3 He5 7. Kc3! Hc5+ 8. Kb4! He5 9. Kc3 og staðan er jafntefli. 9. Birnovl947 abcdefgh Stöðumynd 9 — Hvitur leikur og vinnur. 1. Ha7+ Kb8 2. a8=R+! Ka6 Rc7+ Ka5 Ef 3. — Ka/b7, þá 4. Re6+ og síðan 5. Hgl. Ef 3. - Kb6, þá 4. Rd5+ Ka6 5. Rb4+ og c-peðið fellur. 4. Hbl Bg5! 5. Hxg5+d5+!«. Hxd5+ Ka4 Ef 6. - Kb6 7. Hb5+ Kxc7 8. Hc5+ og vinnur. Nú getur hvítur ekki átt við e-peðið, en hann spinnur mátnet. 7. Rb5! cl=D+ 8. Rc3+ Ka3 9. Ha5+ Kb210. Ha2 mát! abcdefgh Stöðumynd 10 — Hvítur leikur og vinnur. Höfund veit ég ekki að þessari þraut, en hana sá ég í Júgóslavíu í sumar. Hún er einkar lagleg. Báöum riddurunum þarf hvítur aö bjarga ef hann ætlar aö vinna. 1. Rd6 He7+2. Kf2He6 Ekki 2. — gxh3, vegna 3. Hal+ Kb6 4. Rc8+ og hrókurinn fellur. Nú hót- ar svartur enn báðum riddurunum. 3. Hal+ Kb6 4. Rc4+ Kc5 5. Rf4 Hf6 Hvaö nú? Báðir riddararnir í upp- námi. 6. Re5!! Hxf4 7. Ke3! Þótt ótrúlegt sé, á svarti hrókurinn sér engrar undankomu auðið vegna riddaragaffals. 7. — Hf5 8. Ke4! Hg5 (eða h5) 9. Ha5+ Og hvert sem kóngurinn fer, kemur riddaraskák og síðan 11. Hxg5 (eöa h5). Hvítur vinnur. Sveit: Stig: 1. Sv. Stefáns Jónssonar, en auk hans spiluðu þeir Einar Jónsson, Kolbeinn Pálsson, Elías Guömundsson, Hjálmtýr Baldursson og Alfreð Alfreðsson 173 2. Karls Hermannssonar 134 3. Haralds Brynjólfss. 125 4. Grethe Iversen 116 5. Sig. Brynjólfss. 112 6. EinarsBaxter 97 Sveit Stefáns vann yfirburðarsigur í mótinu, tapaöi aöeins einum leik fyrir sveit Sigurðar Steindórssonar. Aðalfundur Bridgefélags Suöurnesja veröur fimmtudaginn 5. jan. 1984 og eru félagar alvarlega áminntir um aö mæta stundvíslega. Æsispennandi spilamennska verður aö fundi loknum. Bridgedeild Skagfirðinga Þriöjudaginn 3. janúar mættu sextán pör til leiks og spiluöu tvímenning í ein- um riöli. Hæstu skor hlutu þessi pör: Guðni Kolbeinsson — SUg: MagnúsTorfason Oli Andreason — 272 Sigrún Pétursd. I.ilja Jónsd.— 238 Stefán Gunnarsson Bergurlsleifsson — 233 Guðjón Sigurðsson Björn Hermannsson — 231 Lárus Hermannsson 226 Næstu tvo þriöjudaga veröur spilað- ur tvímenningur en síöan hefst aðal- sveitakeppni deildarinnar 24. jan. 1984. Svör við get- raun 3. Þetta er leiðin og það er leyfi- legt að fara yfir þrjár línur. 1. Þeir eru27 talsins. 2. 1 1 /j i ' ? 4. 5. Línurnar eru nákvæmlega jafnlangar. 6. vi-n=rv F.h. Vegagerðar ríkisins er óskaðeftir tilboðum í 2 mulnings- vélar, festivagn með olíutank og skúr, verkfæraskúr á hjólum, ýmsa fylgihluti og ónotaða varahluti í vélarnar. Mulningsvélarnar eru af gerðinni Universal 1830 forbrjótur og Universal 880 með kjálka og rúllubrjót, báðar af árgerð 1966. Tækin veröa til sýnis væntanlegum bjóðendum á athafnasvæði Vegagerðar ríkisins við Grafarvog í Reykjavík. Allar nánari upplýsingar um tækin og greiðslukjör verða veitt- ar hjá véladeild Vegagerðar ríkisins í Reykjavík. Tilboðum skal skila til Innkaupastofnunar ríkisins eigi síöar en kl. 11:00 f.h. föstudaginn 20. janúar nk. og verða þau þá opnuð í viðurvist viðstaddra bjóöenda. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 INNRITUN í ALMENNA FLOKKA fer fram í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1, þriðjudag og miðvikudag kl. 17—21. Kennslugjald greiðist við innritun. INIURITUIU í PRÓFADEILDIR grunnskóladeildir, forskóla sjúkraliða og fram- haldsskólastig fer fram mánudaginn 9. janúar og þriðjudaginn 10. janúar kl. 17—21. Ath.: 3. önn forskóla sjúkraliða, mætið til náms mánudaginn 9. janúar kl. 18.30. Styrkir til Noregsfarar Stjóm sjóðsins Þjóðhátíðargjöf Norðmanna auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna Noregsferða 1984. Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur sjóðsins „aö auðvelda Islendingum að feröast til Noregs. I þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, samtökum og skipulögðum hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla samskipti þjóðanna t.d. meö þátttöku í mótum, ráðstefnum eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli, þ.e.a.s. ekki eru veittir styrkir til þátttöku í samnorrænum mótum, sem haldin eru til skiptis á Norðurlöndunum. Ekki skal úthlutað ferðastyrkjum til einstaklinga eða þeirra sem eru styrkhæfir af öðrum aðilum.” I skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögð á að veita styrki, sem renna til beins ferðakostnaðar, en um- sækjendur sjálfir beri dvalarkostnað í Noregi. Hér með er auglýst eftir umsóknum frá þeim aðilum, sem uppfylla framangreind skilyrði. I umsókn skal getið um hvenær ferð verður farin, fjölda þátttakenda og tilgang far- arinnar. Auk þess skal tilgreina þá upphæð, sem farið er fram á. Umsóknir óskast sendar til stjórnar sjóðsins, Forsætis- ráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu, Reykjavík, fyrir 1. febrúar 1984.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.