Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Blaðsíða 16
DV. LAUGARDAGUR 7. JANUAR1984. Myndir: Eggert Pétursson o? >w. Ai l o ■>/. V /■&, / . -v "Faijl t V 1 J/ '/ /' éfærð ófarir — hvernig haf a á það gottí skafli „Mér finnst svona katastrófu- stemmning alltaf svo skemmti- leg,” sagði mannvinur einn, þar sem hann hékk yfir útvarpstæki ásamt vinum sínum á miðviku- daginn var og hlustaði á fréttir af ofviðri, ófærð og óförum. Þessari yfirlýsingu hans var illa tekið og á honum dundu ásakanir um mann- vonsku, meinfýsi og aðrar ávirðingar. Hann tók þessum skömmum ekki illa, en varðist fimlega og hélt því fram, að fyrir stressaðan borgarbúa á neysluþjóðfélags- tímum væri svona veður eitt það besta sem hugsast gæti. „Hugsið ykkur bara alla þá tímaþræla, sem allan ársins hring miða líf sitt við gang stimpilklukkunnar, en geta nú slórað í ófærðinni með góörisamvisku!” Andmælendur hans brugðust ókvæða við og yfirgnæföu útvarps- þulinn meðan þeir formæltu félaga sínum. Hann glotti á móti og skellti öðru hverju uppúr, svo leiftraði á hvítar postulínstennur í dökku skegginu. „Elskurnar mínar, þetta er bara góð til- breyting. Þeir sitja í bílunum sínum og snjórinn kominn upp á húdd, vitandi það, að þetta er ekki þeim að kenna! Alveg sama hvað yfirboðarar þeirra segja! Höfuð- skepnurnar hafa tekið ráðin úr /» /'-■ V &/ höndum þeirra. Þetta er á við besta sumarfrí að slóra svona í vinnutímanum og eiga ekki ann- arra kosta völ! ” Rommí í stormi Þessu rifrildi lauk að sjálfsögðu ekki þarna, erí málflutningur hins skeggjaða mannvinar er reyndar ákaflega athyglisverður! Það þótti nú ekki lítið krydd í tilveruna í gamla daga, þegar skólahaldi var aflýst vegna veðurs. Og blessuð börnin lágu úti í gluggum, rýndu út í kófið og reyndu að ímynda sér hvernig tilfinning það væri að veröa úti! Og svo tóku for- eidrarnir kannski fram spilin; hvílík nautn það var aö sitja heima og spila rommí á skóla- tíma! Hvers vegna ættu hinir full- orðnu að bregðast öðruvísi við en börnin? Staðreyndin er auðvitaö sú, að fjöldi fullorðinna fyllist barnslegri gleöi, þegar stormur- inn geisar. Ungir jeppaeigendur sem gamlir fyllast nýjum þrótti, / S7/ /Z> þar sem þeir sitja undir stýri og rýna út í sortann. Þeir prófa farar- tækið eins og það framast þolir; enginn snjóskafl er svo hár, að jeppaeigandinn setji ekki í fjór- hjóladrifið og reyni við hann. Og þegar bíllinn hefur komið sér vel fyrir á kviðnum og meö öllu von- laust að hreyfa hann með vélarafl- inu, bölva glaðir ökumenn og klappaskóflunni. Þetta er þaö næsta, sem borgar- búinn kemst hörmungum. Við höfum öll (eða flest) lesiö eitthvaö um mannskaðaveður fræg, haröindavetur mikla (1918), mannskæð eldgos og sjúkdómsfar- aldra, sem fóru illa með forfeöur okkar og formæður. Og ef það á að verða hefð, að 4. janúar ár hvert bresti á snjóstormur með ófærð og erfiðleikum, er það svo sem ágætt. Það er talað um að Reykvíkingar hafi gleymt því hvernig veður- fariö er á þessu landi, en það er ekki alveg rétt. Fæstir þeirra vita það, eða kannast við óveður, nema af bókum. Öveður eins og var á miðvikudag er því hin þarfasta kynning. En það er aftur á móti ekki ástæða til þess að gera sér lífið óþarflega erfitt þó geri vont veður. Það er að vísu gott að kynn- ast því, við hvaða erfiðleika for- feður okkar áttu að etja þegar þeir voru að draga fram lífið í þessu harðbýla landi, en þó er óþarfi aö gera sér lífiö of erfitt. Þeir sem eru vel búnir geta notið óveðursins i næði. Nokkrir nauðsynjahlutir Þaö þarf auövitað varla aö taka fram, að menn ættu alltaf að vera vel búnir af fatnaði. Þegar kemur fram á vetur, ætti hver ein- asti bíleigandi að koma fyrir i far- artæki sínu ullarnærfötum, góðum skjólflíkum og loðfóðruðum búss- um. Svo þarf auðvitað aö hafa skóflu í bílnum líka. Sumir eru auðvitað ekkert gefnir fyrir þaö aö moka og gætu þess vegna sleppt skóflunni og treyst á lögreglu og hjálparsveitir. En þaö er óneit- anlega betra að hafa skóflu við höndina, og verður komið að því síöar. Ymis annar búnaður er einnig bráðnauðsynlegur fyrir þá, sem vilja njóta ófærðarinnar. Hentugt er að hafa teppi, en að sjálfsögðu væri svefnpoki enn betri. Þá verður að hafa í huga að mönnum er fátt nauðsynlegra en matur og því best að hafa með sér prímus og eitthvað af pakkasúpum og kexi, ásamt kaffidufti. (Vatn er ekkert vandamál, það er alltaf hægtaðbræðasnjó.) Menn ættu þó að fara varlega með prímusinn og kveikja ekki á honum inni í bílnum. Best væri aö fara með hann út og nota skófluna til þess að grafa dálítið snjóbyrgi, þar sem gæfist skjól til aö stunda matseld. Ef margmenni er í bilnum, er auðvitað gott aö hafa með gítar og einhverja góða söngbók, t.d. Fjár- lögin. Spil er líka gott aö hafa með, en ef mjög þröngt er í bíln- um, er ekki ráðlegt að spila upp á peninga. Ef menn eru hins vegar einir er líka gott að hafa meö sér góða bók, en þykktin réðist nokkuð af veður- hæðinni. Þess má líka geta, aö þar sem margmenni safnast saman í óveðrum, svo sem á lögreglu- stöövum í félagsheimilum og víðar geta spil, töfl eða hljóðfæri lagað stemmninguna mjög. Góð stemmning skiptir höfuðmáli undir slíkum kringumstæðum og þegar vel tekst til um hana minn- ast menn þess lengi á eftir. Þannig er t.d. gamalt fólk í London sem kemst við þegar það ræðir um stemmninguna í loftvarnabyrgj-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.