Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Qupperneq 18
18 DV. LlAUGARDAGUR 7,'JANUAR 1984. . Grámi hversdagsleikans Nú er komið nýtt ár, mér finnst vissara að taka það fram ef það hefur fariö framhjá einhverjum, og grár hversdagsleikinn hefur tekið viö af veisluhöldum og flugeldaskot- hríð og virtust það ekki neinir kreppueldar sem loguöu á himin- hvolfinu klukkan tólf á gamlárs- kvöldi. En drunginn haföi sem betur fer ekki sest endanlega að í sálum okkar þegar happdrættin fóru að skjóta inn í stofu til okkar, galdranornum á priki sem lofa þeim háum vinningi sem á tromp og sprengja sig aö því búnu í loft upp og hlæja svo þessi ósköp að okkur þessum tromplausu sem höfum styrkt gott málefni miklu lengur en við höfum ætlað okkur og erum vissir um að það kemur ekki vinningur á miðann okkar fyrr en Foröum daga, þegar fólki þótti voru líka til happdrætti þótt þau daginneftiraðviðhættumviðhann. taka því aö beygja sig eftir krónu, hefðu ekki tök á að auglýsa sig meö Benedikt Axelsson aðstoð galdranornar á priki. Þá þótti flestum nokkuð gott ef þeir áttu til hnífs og skeiðar og gömul kona sagöi mér að þaö væri stórhættulegt að vinna stærsta vinninginn í happ- drætti, fólk yrði nefnilega brjálað af því og hún hafði lesið það í blaði að þeir sem ynnu hæsta vinninginn í happdrætti í útlöndum legðust undantekningarlaust í drykkjuskap og kvennafar og dræpu sig, ef ekki á drykk juskapnum þá á kvennaf arinu. Á þessum árum var SIBS með merkjasöluhappdrætti og voru merkin með glugga, í sumum þeirra var tala sem þýddi aö viðkomandi hafði fengið vinning en í flestum var núll og þurftu handhafar slíkra merkja ekki að hafa hinar minnstu áhyggjur af geöheilsu sinni. Einn sólríkan sumardag var ég sendur út á götu til að kaupa svona Lansnlr á jálaskákþrautnm Glíman við jólaskákþrautirnar var vonandi ekki of erfið að þessu sinni en þær voru nokkuð misjafnar að þyngd. Eitt eiga þrautirnar þó sam- eiginlegt og það er falleg lausn og allt virðist afar eúifalt, ef á annað borö er komið auga á hugmyndina. Hér koma lausnirnar langþráðu og nú skulu menn bera saman viö sínar. Margar hugmyndanna er vert að leggja á minnið. 1. I. Fritz 1961 Stöðumynd 1 — Hvítur leikur og vinnur. 1. Bhl! Hxhl 2. a8=D Hdl 3. Dhl!! Aftur og nýbúinn! Hvítur vinnur, því að síðara a-peðið kemur upp með skák. 3. — Hxhl 4. a7 Hdl 5. a8=D+ Kb5 6. Db8+ og 7. Dxh2 og vinnur. 2. Platovy 1911 Hvítur lcikur og heldur jöfnu. 1. h7! Stöðumyiid 2 — Auðvitað ekki 1. b8=D Hb2+ og síðan 2. — Hxb8. Síðasta hálmstráið er pattiö. 1, —Hb2+ Eftir 1. - Kxh7 2. Kc3 Hg3+ 3. Kb2 Hb3+ 4. Kal! leikur hvítur næst 5. b8=D Hxb8 og er patt! 2. Ka3 Ha2+ 3. Kb4 Kxh7 4. Kc3 Ha3+5. Kb2Hb3+6. Kal Þá er komin upp sama staöa og í afbrigðinu hér að framan. Svartur á leíkinn, en getur ekki hindraö patt. 6. — Bd5 7. b8=D Hxb8 patt og jafn- tefli. 3. Lommer 1935 Hvítur leikur og vinnur. Það virðist ótrúlegt, en í aöalaf- brigðinu er svartur mát í 6. leik! 1. Rf7+ Ke6 Eftir 1. — Kf6 2. d7 verður peðið að drottningu (2. — Rf6+ er ólöglegt) abcdefgh Stöðumynd 3 — og 1. - Kd4 2. Bh7 Rf6+ 3. Kf5 leiöir til vinnings (riddari og biskup gegn kóngimáta„létt”). 2. Bb3+ Kd7 3. Ba4+ Ke6 4. d7!! Lykilleikurinn, sem e.t.v. er ekki svo auðvelt aö koma auga á. Svartur á aðeins eina leið til þess að stöðva peöið. 4. — Rf6+ 5. Kg5 Rxd7 6. Bb3+ — Ogsvarturermát! 4. Iximmer 1933 Hvítur leikur og heldur jöfnu. Þetta virðist óleysanlegt, því að hvemig á hvítur að koma í veg fyrir að svarta f-peðið verði að drottn- ingu? Hann lumar á óvæntri brellu. 1. Kc8+! Kc2 Aðrir leikir breyta engu. 2. Hb7!! Lítill leikur, en óskaplega sterkur. Hótar 3. Hf7, svo svartur fær sér drottningu. abcdefgh Stöðumynd 4 — 2. — fl=D 3. Hc7+ Kd3 Eða 3. - Kb3 4. Hb7+ Ka4 5. Ha7+ Kb5 6. Hb7+ Ka6 7. Hb6+ Ka7 8. Hb7+ Ka8 9. Hb8+ og svartur sleppur ekki úr þráskákinni. 4. Hd7+ Ke4 5.He7+ og þráskákar, því að ef kóngurinn fer yfir á f-línuna kemur Hf7 + og síð- an Hxfl með jafntefli. 5. Vilnev—Esklapon 1910 Hvítur leikur og heidur jöfnu. 1. b6+! Kxb6 Eftir 1. — Kb7 2. Rb5 nær hann að stöðva svarta b-peðið. 2. Rc8+! Rxc8 3. Ke6 b2 4. g7 bl=D 5. g8=DDb3+ Nú lætur nærri að raða stöðunni upp aftur og reyna á ný, því að drottningin fellur. Ekki er þó allt sem sýnist. 6. Kd7! Dxg8 Oghvítur er patt! abcdefgh Stöðumynd 5 — 6. Tavariani 1972 Stöðumynd 6 — Hvítur leikur og heldur jöfnu. Þetta er furðuleg þraut og fyndin. Ljóst er að 1. a7 h2 2. a8=D hl=D gengur ekki, því að hvítur er óverj- andi mát á h8. Hann verður því að grípa til annarra ráða. Gamall refur leikur lislir sínar í nýrri bók Einn af elstu og virtustu bridge- meisturum Bandaríkjamanna er Os- wald Jacoby — hann er reyndar átt- ræður og var kominn á toppinn um svipað leyti og Ely Culbertson. Nýlega kom út ágæt bridgebók eftir hann og son hans Jim, sem er einn af núverandi heimsmeisturum. Bókin heitir „Improve your bridge with Os- wald Jacoby” og hægt er að panta hana frá The Bridge World, 39 West 94th Str., New York, NY. 10025 fyrir 4,25dollara. I einum hluta bókarinnar eru heil- ræði fyrir lengra komna. I spili dagsins leikur hann á andstöð- una með því að spila gegn þeim líkum, sem andstaöan hefir leitt í ljós. Austur gefur/allir á hættu: Nordur + K107 AlO 0 KG432 + 1086 VrsTtm Auítur * 965 + D432 v D975 (J62 09 0 105 + 09752 * AKD4 Sunijn * AG8 v K843 O AD876 + 3 Sagnir gengu þannig: Austur Suður Vestur Norður pass 1T pass 3T pass 3S pass 4H pass 4G pass 5T pass pass 6T pass pass Harður samningur, sem byggðist á því að finna spaðadrottningu. Vestur spilaöi út laufi, austur drap með drottningu og spilaöi laufakóng. Jacoby trompaði, tók trompin og ás og kóng í hjarta. Siöan var hjarta tromp- að, lauf trompað og hjarta trompaö. ' Staðan var þá þessi: Norduk + K107 V - O G + - VkSTl H Austuh + 965 + D43 - V — O - o - + ° + A SUÐUR + AG8 V — O D Austur var sár og heimtaði skýringu. Og það stóð ekki á henni hjá gamla manninum. „Eg vissi að þú gast hæg- lega blekkt með laufaháspilin, en þú gerðir enga tilraun til þess. XQ Bridge Stefán (puðjOhnsen Bridgefélag Breiðholts Þriðjudaginn 3. janúar var spilaöur eins kvölds tvímenningur með þátt- töku 10 para. Urslit urðu þessi: Eiríkur Bjarnason — Stig: Halldór S. Magnússon Anton Gunnarsson — 134 Árni Alexandersson Steingrímur Þórisson — 129 Helgi Skúlason Leif ur Karlsson — 125 Hjálmar Pálsson 120 Meðalskor 108 Félagið óskar spilurum gleðilegs árs og þakkar samstarfið á liðnu ári. Spilarar sem eiga óskráö bronsstig í fórum sínum eru minntir á að síðustu forvöð eru að skila þeim næsta þriðju- dag á keppnisstað og verður séð um að koma þeim til Bridgesambands Islands. Næsta þriöjudag hefst sveitakeppni félagsins, með fyrirvara um næga þátttöku. Spilarar eru hvattir til að mæta vel og tímanlega til skráningar. Einnig er hægt að skrá sveitir hjá Baldri í síma 78055. Spilað er í Gerðu- bergi, keppnisstjóri er Hermann Lárusson. Bridgefélag Suðurnesja Lokið er JGP-mótinu með þátttöku 11 sveita, spilaðir voru 16 spila leikir. Urslit urðuþessi: * - Jacoby vissi að austur hafði byrjað með AKD í laufi og hjartagosa. Meö spaðadrottningu að auki, þá var ekki ósennilegt að hann hefði opnaö í fyrstu hönd. Samt spilaði hann spaðakóng og svínaði síðan spaðagosa. Þú hefðir getað drepið fyrsta slag á laufakóng og spilað síðan ásnum til þess að fela drottninguna. En þú reyndir allt sem þú gast til þess að sýna mér þrjá hæstu í laufi til þess að láta mig halda að þú gætir ekki átt spaöadrottninguna. Þess vegna spilaði ég upp á að þú ættir hana.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.