Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Side 1
Niðurstöður skoðanakönnunar DV:
Ríkisstjórnin hefur mjög aukiö fylgi sitt síðan DV gerði skoðana-
könnun á fylgi hennar í október síöastliðnum, samkvæmt niður-
stööum könnunar DV um síðustu helgi. Af öllu úrtakinu í skoðana-
könnuninni nú sögðust 56,8% fylgja ríkisstjórninni, 17,2% kváðust
andvíg ríkisstjórninni, 21,5% voru óákveðin og 4,5% vildu ekki
svara þessari spurningu.
Fylgi ríkisstjórnarinnar var í október síðastliönum 48,2% af öllu
úrtakinu í könnuninni þá. 27,7% voru þá andvíg stjórninni, 20,7%
óákveðin í afstööu til hennar og 3,5% vildu ekki svara.
Af þeim sem taka afstööu í skoðanakönnuninni nú styðja 76,8%
ríkisstjórnina en 23,2% eru henni andvíg.
-HH
— sjá nánar um niðurstöður og
viðbrögð st jórnmálaforingja á bls. 4-5
Matthildingar rifja upp samstarf-
ið sem lauk fyrir tíu árum -
fegrunaraðgerðir í Japan -
Jónas Kristjánsson skrifar um
matsölustaði - skákmótið í
Grindavík - Breiðsíðan - Isa-
bella Rossellini - Furðuheimar
tunglanna - Sælkerasíða -
öskudagur á Akureyri - heim-
sókn í klósettpappírsverksmiðju
- kútmagakvöld lionsklúbba -
Thomas Dolby í helgarpoppi
Rætt við Eggert Haukdal alþingismann um deilu hans og Páls Pálssonar, prests á Bergþórshvoli, ogfleira