Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Side 2
2 DV. LAUGARDAGUR10. MARS1984. __ Minnihlutaf lokkarnir á Alþingi um f járlagagötin: EFAST UM AÐ VAND- INN SÉ SVONA MIKILL Talsmenn minnihlutaflokkanna á Alþingi draga þaö í efa að götin í fjár- lögunum séu eins stór og fjármála- ráöherra heldur fram. Þeir eru jafn- framt reiðubúnir til þess aö leggja fram tillögur um aukinn spamaö og auknar tekjur til þess að loka þeim götum sem endanlega þarf að loka. Kjartan Jóhannsson, formaöur Alþýöuflokksins, sagöi á Alþingi í fyrradag aö í stórum dráttum mætti hugsa sér aö skipta úrlausninni í þrennt. Spara upp í þriöjunginn af þeim tveim milljöröum sem talað væri um, ná inn nýjum tekjum upp í annan þriöjung og fresta síöasta þriðjungn- um f ram á næsta ár. Kristín Halldórsdóttir, þingmaöur Kvennaiistans, sagöi í samtali viö DV aö gaman væri aö hafa töfraformúlur og slá sérfræöingunum viö þegar spurt væri eins og blaöiö geröi hvernig ætti aðlokagötunum. Hún sagðist ekki hafa slíkar lausnir á boröinu. ,,Og þeirra þarf ekki endi- lega meö,” sagöi Kristín, „vandinn er ekki nýr og ekki víst aö hann sé svona mikill. Albert talar um viövörun.” Um sparnaö sagöi hún aö honum mætti vafalaust koma við víöa. I yfir- stjórn ráðuneyta og ríkisstofnana, meö lækkun og afnámi útflutningsbóta, meö því aö bíöa meö flugstöðina í Keflavík svo dæmi væru nefnd. Þá sagði hún alveg óeðlilegt aö Seölabank- inn græddi stórlega í dráttarvöxtum vegna báginda ríkissjóðs. Loks nefndi Kristín vannýttan tekjulið sem væri aö uppræta skattsvik í fullri alvöru. Yms- ir teldu hundruö milljóna ef ekki milljaröa fara fram hjá ríkiskassan- um. I samtali við Ragnar Amalds, for- mann þingflokks Alþýðubandalagsins, benti hann fyrst á að meö aðgeröum sínum í fyrrasumar hefði ríkistjórnin kallaö yfir sig 800 milljónir af þeim 1.260 milljóna króna halla á greiðslu- stööu ríkissjóös sem fram heföi komið um áramótin. „Þennan vanda bjó ríkisstjómin til sjálf og hann endur- tekur sig í ár, svo einfalt er það,” sagöi Ragnar. Hann sagðist aö vísu draga mjög í efa aö rekstrarstaöa ríkissjóðs yröi meö þessum hætti þegar uppgjör lægi fyrir. Vandinn væri því líklega minni í rauninni en látið væri í veðri vaka. Ragnar benti á aö auðvelt væri aö fella niður framlag til flugstöðvar- innar í Keflavík. Þá væri sjálfsagt að hætta við skattalækkanir fyrir stór- eignamenn og fyrir verslunina. Og jafnsjálfsagt væri aö taka á ný upp skatt áskemmtiferðirtilútlanda. Ekki náöist samband við neinn tals- mann Bandalags jafnaöarmanna til þess a ö skýra viöhorf þess. HERB Þær voru kampakátar, þær Sigriður Kristinsdóttir og Jóhanna Óskarsdóttir, þegar Ijósmyndari DV smellti af þeim þessari mynd i fyrrakvöld. Ástæðan var sú að þær höfðu unnið Skoda-bifreið i bingói sem Neskirkja efndi til í Sigtúni þetta sama kvöld. Hér sjást þær stöllur Sigriður (t.v.l og Jóhanna við splunkunýjan farkostinn. Bingóið var fjölsótt. DV-mynd: Bj. Bj. AÐSÓKN EYKST AÐ HRAFNINUM „Aðsókn aö Hrafninn flýgur fór hægt af stað en hefur aukist jafnt og þétt því aö myndin spyrst mjög vel út hjá al- rnenningi. Þeir sem sjá myndir og era ánægðir meö þær eru oft besta aug- lýsingin, því sjaldan lýgur almanna- rómur,” sagöi Hrafn Gunnlaugsson, leikstjóri myndarinnar. Aö sögn Háskólabíós hefur aösóknin verið mjög mikil síöustu daga og aldrei meiri en um síðustu helgi. „Gagn- rýnendur hafa veitt myndinni einróma lof,” sagöi Hrafn m.a. og að móttökur á myndinni á Berlínarhátíðinni hafi veriö mjög góöar og hafi tekist samningar um að dreifa henni víöa um lönd. Myndin hefur nú veriö sýnd i um fimm vikur i Háskólabíói og eru sýningargestir orönir um 20 þúsund. Um aðra helgi veröur myndin flutt í Nýja bíó og fara því að verða síðustu forvöð fyrir almenning að sjá hana í Háskólabíói. A fimmtudag var myndin sýnd á Eskifirði. -HÞ. Finnar bjóða blaðamönnum flokksblaðanna í heimsókn: Einnig Finnar telja DV vera óháö dagblað „Það er rétt, finnska utanríkis- ríöuneytið bauö blaöamönnum frá fjórum íslenskum dagblööum til Finnlands, en DV var ekki haft meö vegna þess að DV er ekki pólitískt blað,” sagöi Ariel Rimon sendiráös- ritari í samtali viö DV. Tilefni samtalsins var ofangreint boö finnska utanríkisráðuneytisins til fjögurra blaðamanna af Tímanum, Þjóðviljanum, Alþýöu- blaöinu og Morgunblaöinu til Finn- lands vegna ferðar forseta Islands þangaö í apríl. Sá háttur hefur oft verið hafður á, af hálfu erlendra ríkja, að bjóöa íslenskum blaöa- mönnum í kynnisferöir á undan for- setaheimsóknum til að kynna land og þjóö. DV hefur sem óháö blað meöal annars haft þá sérstööu í kerfinu á Islandi aö taka hvorki krónu af þrett- án milljón króna greiöslum ríkisins af fjárlögum til flokkspólitískra blaöa, né af þriggja miiljón króna greiöslum þess af heimildar- ákvæðum fjárlaga til sömu nota. Hafa DV-menn veriö ánægöir meö þessa viðurkenningu á sérstöðu blaðsins. I Finnlandi tíökast einnig aö - styðja flokkspólitísk málgögn en ekki óháö blöö á borö viö Helsingin Sanomat sem talin em komast af á eigin verðleikum. DV-menn eru að vonum ánægðir meö finnska viður- kenningu á DV sem óháöa biaöinu á Islandi. -óm. Helgi Skúlason í hlutverki sinu í kvikmyndinni Hrafninn flýgur. Mazda 626 2,0 1980. Sjálfskiptur, ekinn aöeins 47.000 km, sumar- og vetrardekk, út- varp. Algjör toppbíll. Skoda 120-L 1978. Ekinn 30.000 km. Sami eigandi frá upphafi, sérlega vel meö farinn bíll. Skoda 120-L 1981. Algjör gullmoli enda sér hvergi á bílnum. Ekinn 12.000 km. Mazda 3231977. Snotur bíll í góðu standi. Ekinn 94.000 km, útvarp fylgir. jmmoD Econoline 250 1979. Tilvalinn ferðabíll, búið klæða hann að innan. Þú reddar rúminu og ferð svo í ferðalag. CHRYSLER SK®DA crrtecr Opiö í dag 1—5 JÖFUR hf. Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.