Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Side 5
5 W5PI Oí RnOAOHAOO AJ .VCi DV. LAUGARDAGUR10. MARS1984. Stefán Benediktsson, Bandalagi jafnaðarmanna: Ekki undar- legt við þessar aðstæður „Miðaö við tímasetningu skoðana- könnunarinnar er þessi niðurstaða ekkert óeðlileg,” sagði Stefán Bene- diktsson, þingmaður Bandalags jafnaðarmanna. ,Rjarasamningamir, sem nýlega hafa veriö gerðir, eru í augum fólks nokkurs konar griðarsamningar milli launafólks og ríkisstjórnar. Launafólk trúir að endir sé orðinn á kjara- skerðingunni, að verðlag sé orðiö stöðugt og komi ekki til með að hækka og vonar aö slíkt haldist sem allra lengst. Við slíkar aðstæður er ekki und- arlegt að 75 prósent sýni rikis- stjóminni velvilja. Það má minna á hvað ríkisstjóm Gunnars Thoroddsen var vinsæl þótt núverandi stjórnarherrar haldi því fram að hún hafi verið sú alversta sem nokkurn tima hafi stjórnað þessu landi,” sagði Stefán Benediktsson. -KMU. EiðurGuðnason, Alþýðuflokki: Kemur á óvart að fylgið skuli ekkivera meira „Sú prósentutala sem segist styðja ríkisstjórnina er nokkru lægri en samanlögð prósentutala atkvæða Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks í síðustu kosningum. Þetta em tveir stærstu flokkarnir og ekki óeölilegt að stjórn þeirra hafi mikinn stuðning,” sagði Eiður Guðnason, for- maður þingflokks Alþýðuflokksins. „Hins vegar kemur mér kannski mest á óvart að ekki skuli enn fleiri styöja stjómina þegar þess er gætt að þrjú langstærstu blöðin, Morgun- blaðið, DV og Tíminn, styðja hana með ráðum og dáö og seg ja lítt eða ekki frá málum eða sjónarmiðum stjórnarand- stöðunnar. Rikisfjölmiölamir, útvarp og sjónvarp, hafa sömuleiðis lagst á sveif með ríkisstjóminni og málgögnum hennar og næstum slegið þagnarmúr um stjómarandstööuna en hampað stjóminni í hverju máli. Þess vegna kemur það á óvart að fylgi stjóm- arinnar skuli ekki vera ennþá meira,” sagöi Eiður. -KMU. Matthías Á. Mathiesen viðskiptaráðherra: Sýnist þetta nokkuð eins og ég hélt sjálfur ,,Aö svo miklu leyti sem slíkar skoðanakannanir er marktækar er ótvírætt meiri stuðningur við ríkis- stjórnina nú en í október sl„” sagöi Matthías A. Mathiesen aðspurður um fylgi við ríkisstjómina nú miöaö viö í október sl. samkvæmt niðurstöðum skoöanakönnunar DV. „Þetta þýðir að störf ríkisstjórn- arinnar og stefna hefur sterkan hljóm- grunn og ætti það að vera hvatning til að halda áfram á þeirri braut sem ríkisstjóm og stjórnarflokkar em á. Mér sýnist þetta vera nokkuð eins og ég ímyndaði mér sjálfur,” sagði Matthías A. Matthiesen viöskipta- ráðherra. -HÞ. SigríðurDúna Kristmundsdóttir, Kvennalista: St jórnar- hollusta og misskilin ættjarðarást „Það er út af fyrir sig ekki margt um þessar niðurstöður aö segja,” sagöi Sigríöur Dúna Kristmundsdóttir, þing- maöur Kvennalista. „Reynslan sýnir að síðan skoðanakannanir af þessu tagi hófust, er nokkum veginn sama hvaða ríkis- stjóm situr að völdum á Islandi og hvað hún gerir, hún hefur alltaf skoðanakannanafylgi. Islendingar eru almennt ákaflega ríkisstjómarhollir menn og er það nokkurs konar mis- skilin ættjarðarást. Hins vegar er ljóst að menn mynda sér skoðanir af ríkisstjórnum mikið af fréttaflutningi í fjölmiðlum. Þeir flokkar sem mynda núverandi ríkis- stjórn hafa mjög sterka aðstöðu til að koma skoðunum og málflutningi á framfæri á meðan stjómarandstaðan er meira og minna málgagnslaus og hluti hennar gersamlega án málgagns. Það er því varla von á öðrum niður- stööum en þessum á meðan fólki gefst aöeins kostur á að heyra ríkisstjórnar- hliðina á málunum.” -HÞ. Eigendur laxeldisstöðva óánægðir með gjaldskyldu til stof niánasjóða landbúnaðarins: Hafa ekki borgaö krónu í tvö ár Með lögum, sem sett voru fyrir tveim árum, var laxeldisstöðvum gert að greiöa í stofnlánasjóði land- búnaðarins likt og um rekstur lögbýla væri að ræða. Nokkrar stöðvar skoöast sem hluti af rekstri lögbýla og hafa þær greitt í sjóðina en hinar ekki. Astæðan er sú að forstööumenn sjóðanna telja þær ekki lánshæfar úr stofnlánasjóðunum þar sem þær séu ekki hluti af rekstri lögbýlis. Telja for- stöðumenn því fjármunum sínum á glæ kastað ef þeir eiga aðeins að greiða í sjóðina en ekki koma til greina hvað lánaveitingar úr þeim varöar. Ekkert hefur gengið né rekið í þessu máli í tvö ár nema hvað sjóðirnir halda áfram að rukka og stöðvamar neita að borga. En nú berast þær fréttir, að í undirbúningi sé nýtt frumvarp til laga um ræktun, eldi og veiði vatnafiska og eftir því sem næst veröur komist felst m.a. í því að kvöð þessara stöðva til að greiða í stofnlánasjóði landbúnaðarins verði aflétt. Búist er við að frumvarpið verði lagt fyrir Alþingi alveg á næstunni. -GS. kynnir stiga og handrið úr bæsaðri eik. Við komum, mæl- um og gerum verð- tiiboð. Góðir greiðsiuskii- málar. Margra ára Ármúla 20. Símar 84630 og 84635. Markmið okkar er að selja bestu húsgögnin á besta verðinu Við leggjum höfuðáherslu á bólstruð hús- gögn og bjóðum upp á 10 liti af leðri og næstum óteljandi liti í áklæðum. Hús- gögnin okkar eru viðurkennd gæðavara. Gerið verðsamanburð. Það er beggja hagur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.