Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Qupperneq 9
DV. LAUGARDAGUR10. MARS1984. 9 „Fem skivor um dagen er bra for magen”. Hollt er hverjum maga aö fá fimm brauö alla daga. A þessa lund hljóöaöi áróöur sem sænsk yfir- völd hófu aö reka fyrir nokkrum ár- um. Nú skyldi hver sósíaldemókrat éta fimm brauðsneiðar á dag, ekki fjórar og ekki sex. Fimm. Þessi tilskipan sænskra stjórn- valda er merkileg fyrir tvennt. I fyrsta lagi stafar hún frá stjómvöld- um en ekki frá hagsmunasamtökum bakara eins og viö könnumst viö hér á Islandi. Stjórnvöld ákváðu sem sagt fyrir þegnana að rétt væri að boröa fimm brauðsneiðar á dag. Af lipurð var þó ekki lögö refsing viö því aö boröa fleiri eöa færri sneiöar. Menn gátu jafnvel sloppiö þótt þeir boröuöu eingöngu kruðubollur. I öðru lagi er mál þetta merkilegt vegna þess, aö Svíar fóru eftir þessum fyrirmælum og átu eftir formúlunni. Þykkt brauðsins Á vinnustöðum uröu líflegar umræöur um hvaöa álegg væri óhættj aö hafa á brauðinu, hversu þykkt' áleggið mætti vera og hver þykkt brauðsins ætti aö vera. Þetta haföi stjórnvöldum láöst aö leiðbeina um. Og yfirvöldin auglýstu stanslaust í öllum tiltækum fjölmiðlum, fem skivor om dagen.. . Imyndunarafli sænskra stjórn- valda eru engin takmörk sett þegar afskipti af prívatmálum borgaranna eru annars vegar. Landsmenn stýfðu líka sitt brauö úr hnefa í réttum skammti fyrst Palme sagöi þaö. Þetta er aðeins eitt dæmi af mörgum um þaö hversu sljóir Svíar eru orönir fyrir öllu sem kemur aö ofan. Engin takmörk viröast fyrir því hversu langt er hægt aö ganga. Fara hjá sér Fyrir nokkru kom út bókin Tilfæld- et Sverige eftir Mogens Berendt. Svíar segjast ekki hafa lesið hana en fara samt hjá sér þegar á hana er minnst. I bókinni er farin yfirferð á sænska kerf iö og sýnt fram á endalausa mis- beitingu á fjölmörgum sviðum. Nafngreind dæmi eru nefnd til rök- stuðnings. Hér veröa nefnd nokkur dæmi úr bókinni sérstaklega þau sem lúta að „barnavemdarmálum”. Með valdi 1982 ákvaö félagsmálaráðið í Kungalv að ófært væri, að Magda og Bertil Johansson fóstruðu Jenny sem var sex ára gamalt barnabam þeirra. Félagsmálaráðið komst aö þeirri niöurstööu að þau hjón væru of eldri. Menn geta sem sagt borið mál sitt undir dómstóla. En vegna þeirra almennu ákvæöa, sem lögin geyma, er starfsmönnum félagsmálastofn- unar heimilt aö ræna bami án þess aö leita fyrst umsagnar dómstólsins. Starfsmennirnir meta sjálfir hvort nauösyn sé skjótra aögeröa, fá sam- þykki félagsmálaráösins, ná í bamið og fela það þangað til þeir hafa útbúiö greinargerö til foreldranna og dómstólsins. Þegar hér er komið sögu era svo margir félagsmálasérfræðingar, félagsráðgjafar, sálfræðingar og embættismenn orðnir flæktir í máliö að virðing þeirra er í veði. Þeir gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda andlitinu. En hvað gerir þá dómstóllinn? Öhjákvæmilega í lagi Dómarinn þarf ekki aö vera og er sjaldnast neinn sérfræöingur í upp- eldi barna. Honum ber aðfaraeftir sömu lögum og félagsmálayfir- völdin. Eins og bent hefur veriö á era þessi lög mjög rúm og opin fyrir túlkun og félagsmálayfirvöldin hafa túlkað þau svo aö í þeim felist heimild til að taka bam af for- eldrum gegn vilja þeirra. Ef dómarinn ónýtir ákvörðun félags- málafólksins er hann jafnframt aö efast um vald þeirra til aö meta nauðsynina. Til þess hefur dómarinn ekki vald. Hann skal aöeins skera úr um hvort ráðstöfunin hefur veriö fyrir innan ramma laganna. Og vegna þess hversu almenn lögin era er næsta óhjákvæmilegt aö svo sé. • Kerfið í gang Annað dæmi má nefna um ráðslag sænskra pedagóka: Lítil stúlka, var læs og skrifandi áöur en hún hóf skólagöngu og dúx í bekknum í skólanum eftir aö hún hóf skólagöngu. Dag nokkurn birtust tveir starfs- menn bæjaryfirvalda og smeygðu sér meö stúlkuna út um bakdyr á meðan móðirin beið viö hliðið. Síðan hefur stúlkan veriö í fóstri hjá ýmsum f jölskyldum og foreldram og afa og ömmu verið bannað aö hafa samband við hana. Astæöan fyrir því aö móðirin var svipt forræöinu var sú að henni haföi oröið á aö leita til félagsmálayfir- valda í andlegri lægö sem hún komst í þegar sambúð hennar viö föðurinn var viö aö rofna. Þá fór kerfið í gang. Starfsmenn þess mættu á heimilið og gerðu athugasemdir, meðal annars um aö heimilið einkenndist af til- raunum til aö lifa um efni fram. Það Félagsmálabullur gömul fyrir slíkt hlutverk. Magda var 58 ára og Bertil 63. Jenny haföi veriö í þeirra umsjá í tvö ár þegar þetta geröist, allt frá því aö faðir hennar, sonur Mögdu og Bertils, dó úr krabbameini. Hann haföi veriö einstætt foreldri, sem nú er kallaö, og Jenny því dvaliö mikinn hluta af ævi sinni hjá afa og ömmu. Hún undi hag sínum vel en félagsmálaráðið ákvaö aö hún skyldi fóstrast á einka- heimili. Jenny var tekin burt meö valdi. Tvíburafaðirinn Þekkt sænskt dagbiaö kom því til leiðar, að Magda og Bertil gætu hitt félagsmálaráðherra Svíþjóöar, Sten Anderson, 59 ára fööur fimm ára gamalla tvíbura. „Herra félags- málaráðherra, era Magda og Bertil of gömul til að ala Jenny upp?” Félagsmálaráöherranum var greini- lega ekki skemmt. „Sem félagsmála- ráðherra get ég ekki haft afskipti af einstökum málum.” Félagsmálaráð- herrann varð einfaldlega að treysta niöurstöðu félagsamálaráösins í Kungálv. Þarlaukmálinu. Heimsmeistarar í valdbeitingu Svíar eiga heimsmet í aö taka böm frá foreldrum meö valdi eða gegn vilja foreldranna. Áreiöanlegar tölur eru ekki til en áætlað er að árlega séu 20 þúsund böm tekin frá foreldrum sínum, þar af um helmingur gegn vilja foreldr- anna. Hliðstæöar tölur frá Dan- mörku era þrisvar sinnum lægri og fimm sinnum lægri í Noregi. I Evrópu almennt er slikt háttalag mun sjaldgæfara og í sumum löndum hrein undantekning. Tilgangur félagsmálayfirvalda meö þessum aögerðum er að koma í veg fyrir aö börnin fái ófullnægjandi ur>- eldi og umhiröu. Skoöanir yfir-valda á því hvenær bam fái ekki nógu gott uppeldi eru mjög breytilegar milli landa. Ef fylgt væri sænsku skil- greiningunni væru þúsundir bama í Noregi og Danmörku sem umsvifa- laust ætti að taka af f oreldrunum. „Barnaverndarlög" Sænsku barnaverndarlögin era dæmigerð um þá þróun sem orðið hefur í sænskri lagasetningu, fráhvarf frá nákvæmum lagatexta til al- mennra ákvæða sem yfirvöld geta síðan túlkaö eftir hentugleikum hverjusinni. Fyrstu sænsku lögin um heimild til aö svipta foreldra umráöum yfir börnum sínum eru frá 1924. Þar miðaðist heimildin viö þaö að börn væru vanrækt, aö lífi þeirra og heil- brigði væri stefnt í hættu. Viö laga- Laugardags- pistill ÓSKAR MAGNÚSSON fréttastjóri breytingu 1942 hljóöaöi ákvæöiö á þá lund að líkamlegt og andlegt heil- brigði væri í hættu. 1960 varð ákvæðinu breytt þannig aö heimilt var að svipta foreldra umráöum ef meðferð bams á heimili væri þannig að Jikamlegu og andlegu heilbrigöi væri hætta búin eöa ef eðlilegur þroski barnsins væri í hættu vegna skorts á uppeldishæfileikum foreldr- anna. Loks varö breyting á lögunum 1982. Samkvæmt þeirri breytingu geta yfirvöld nú tekið böm frá foreldram ef um er aö ræöa skort á ummönnun eöa ef aörar heimilis- aðstæður hafa í för með sér hættu fyrir heilbrigði og þroska barnsins. Og hver ákveður? Hér er heimildin orðin svo rúm aö spurning vaknar um það í valdi hvers þaö sé aö meta hvenær aöstæður séu meö þeim hætti sem lagaákvæðiðlýsir. Þessi ákvöröun er tekin af starfs- mönnum félagsmálakerfisins. Þeir bregðast við af minnstu grun- semdum eöa eftir nafnlausar kærur. Aö formi til er ákvöröunin tekin af félagsmálaráöinu. En ráöiö er skipað leikmönnum og þeirra leiðar- ljós er almennt ákvæði í félagsmála- lögum frá 1980. Ef þau lög era tengd lögunum sem áður hefur verið minnst á eins og vera ber veröur niöurstaðan sú aö félagsmálayfir- völd geta hagað sér við borgarana eftir sínum geöþótta á þessu sviöi. Leikmennirnir í félagsmálaráöinu verða að styðjast viö álit sérfræöing- anna og hvert geta foreldrar snúiö sér ef þeir telja sig misrétti beitta ? Án umsagnar Dómstóll á að veita umsögn sína um réttmæti þess að taka barn af f or- voru jólaplattar á veggjunum. Frá skólanum tókst þeim aö fá ummæli um að stúlkan væri feimin og einræn. Jákvæðar umsagnir Samlíf foreldranna lagaðist og þau giftu sig og fengu jákvæðar umsagnir sálfræðings. Samt gátu þau ekki fengið barn sitt aftur. Loks stakk félagsmálastofnunin upp á þeirri málamiðlun aö móöirin mætti heimsækja bamið en ekki faöirinn. ■ Við hann höfðu sérfræðingamir reyndar aldrei rætt. Þá var bent á þá leið, til aukinna samskipta móöur og barns, aö ef hún skildi viö fööurinn og reyndi aö byggja upp nýtt heimili undir leiösögn sálfræðings gæti svo farið að hún fengi meira yfir dóttur sinniaðsegja. Hér hafa aðeins verið tilfærö tvö dæmi af mörgum sem greint er frá í bók Mogens Berendts. Önnur dæmi líta mun verr út en eru lengri í frá- sögn og því ekki tíunduð. Islendingar ættu að sporna viö auknum opinberum afskiptum af einkalífi og öörum málum en varast aö fljóta sofandi að feigðarósi eins og Svíar hafa í mörgum tilvikum gert. Þeir lúta nú stjórn manna sem kallaðir hafa veriö félagsmála- bullur. -óm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.