Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Qupperneq 11
DV. LAUGARDAGUR10. MARS1984. 11 Með stórleihhúsin í London og Sjallann á Æhureyri í tahinu Gudriln Sigríðnr Haraldsdóttlr gerdl leikmy nd og búninga fyrir Silkkuladi handa Silju Hún sagöist ekki vita hvernig það eiginlega gerðist að hún lenti í leik- mynda- og búningagerð. Þaö var jú fyrir hendi áhugi á listum og hún sótti námskeiö í myndlist hjá Hring í Myndlistarskóla Reykjavíkur í f jög- ur ár. Framhaidið af því var tækni- teiknun i Iðnskólanum og um tíma vann hún sem tækniteiknari og módelsmiður. En leikhúsiö kom bara. Þetta er í stærstu dráttum það sem var undanfari þess að Guðrún Sigríð- ur Haraldsdóttir hélt til náms í þeirri list að búa til umgjörð leiksýninga. Hún er fædd og uppalin á Hvanneyri í Borgarfirði og var þar til 12 ára ald- urs en flutti þá til Reykjavíkur. Þar var hún sem sagt orðin tækniteiknari og módelsmiður eftir nokkur ár en var það ekki nógu gott? Ekki segir hún... — Tækniteiknunin ætlaði mig lif- andi að drepa. Eg þoldi ekki þessar reglustikur og nákvæmu málsetn- ingu og að þurfa alltaf að vinna eftir öðrum. Sköpunin eða hugmyndirnar voru alltaf annarra. Og það er haldið til útianda... Ég fór tvítug til London í Wimble- don School of Art and Design með það i huga aö læra leikmynda- og búningahönnun. Það var byrjað á undirbúningsdeild þar sem námið var mjög almennt og komið inn á öll svið myndlistar. Þetta fyrsta ár er eiginlega til að ákveöa hvað maöur vill taka fyrir en ég þurfti þess ekki. Eg var ákveöin strax. Sjálfur kúrs- inn, eftir undirbúningsárið, er þrjú ár og til að komast í hann þarf að fara í inntökupróf og viðtal. Þama er lögð áhersla á að við þekkjum vel inn á allar hliöar uppsetningar en hins vegar lítið farið í leikstjórn eða leik. Var þaö eitthvað sérstakt við leik- myndagerðina sem heillaði þig.. . ? — Þaö freistaði mín og gerir enn aö þetta er stór mælikvarði í mynd- listarsköpun. Því stærra stykki þeim mun betra. Það hefur líka alltaf ver- ið í mér þetta, að búa eitthvað til. Anægð? — Já, ennsemkomiðer. Súkkulaði handa Silju lenti í Sjallanum en ekki Samkomuhúsinu, þurftirðu ekki að hverfa frá því sem þú hafðir hugsað þér meö leikmynd- ina...? — Eg var búin að hugsa töluvert miðað við leikhúsið og koma hingað til aö skoða það. Hins vegar hafði ég ekki haft tíma til að byrja svo það kom sér vel. Hefði leikmyndin orðið mikið öðru- vísiíleikhúsinu? — Ekki í hugsun nei, en það hefði verið miklu meiri myndrænn strúkt- úr og viðameiri leikmynd. Þar hefð- um við þurft að skapa umhverfi sem er til staðar í Sjallanum og við not- um. Ertu kannski ánægö með að sýn- ingin lenti í Sjallanum? — Mér fannst þetta góð hugmynd og eiga mjög vel við. Var eitthvaö sérstakt sem þú hafðir í huga varðandi leikmyndina útfráefnitextans? — Leikritið er allt litlar myndir og mjög aflokaðar. Þetta verður að vera þannig að persónumar eiga sína staði og hvert svæði má ekki endumýtast. Heimilið getur til dæm- is ekki verið líka unglingastaðurinn. Þaö erfiöasta við að útfæra þetta var að ljósin sem leikfélagið á era engan veginn nóg til að geta veriö á fleiri en einumstað. Eftir að Gunna Sigga lauk náminu í London, vann hún í þrjú ár í leikhús- um þarna úti. Fyrst var hún „free- lance” viö leikmynda- og búninga- gerð í London. I Stoke on Trent síðan eitt og hálft ár. Þar byrjaði hún sem aðstoðarhönnuður en var svo hækkuð i tign og hannaði leikmynd og bún- inga við þrjú leikverk. I Stoke er hringleikahús og reynt að hafa verk- efnavalið sem fjölbreytilegast. Á Guðrún Sigriður Haraidsdóttir: ,,Ég þoldi ekki að þurfa alltaf að vinna eftiröðrum." DV-mynd JBH. hverju ári eru sett upp ein tvö leikrit eftir Shakespeare, tvö samin af heimamönnum og afgangurinn er farsar og einhver eldri og þyngri verk. Eftir dvölina í Stoke on Trent hélt Gunna Sigga aftur til London og fór að vinna sem leikmyndamálari hjá nokkrum leikhúsanna, meðal þeirra voru National Theater og Covent. Garden óperan. Síðan var hún hjá Kinton Walker fyrirtækinu en það eru verktakar sem taka að sér aö vinna fyrir leikhús. Þarna vann hún meðal annars fyrir Royal Shake- speare Company. — Gegnum þetta á ég auðvelt meö að fá atvinnuleyfi og við erum búin að tala um að ég komi aftur til Kinton Walker. Það er þó ekkert komið á hreint ennþá. Saknarðu útlandsins? — Já, ég sakna London. Það er alveg hrikalega erfitt aö koma upp. Eftir 7 ár er svo margt búið að breyt- ast, kunningjar, ættingjar, allt. Eg er kannski líka svo mikið öðruvísi sjálf. Súkkulaði handa Silju er ekki fyrsta verk Gunnu Siggu hér á landi. . . — Eg kom heim haustið 1980 og gerði búninga fyrir söngleikinn Grett’. Þá var ég líka búin að vinna hjá sjónvarpinu. Þar gerði ég bún- inga fyrir Róbert Elíasson kemur heim frá útlöndum. Og sumarið 1979 búninga fyrir kvikmyndina Oðal feðranna. Þau vom 24 sem luku námi í leik- mynda og búningahönnun í Wimble- don-skólanum árið 1980 og Gunna Sigga sagði aö 6 þeirra hefðu fengið vinnu við þetta síðan. Um 70 útskrif- ast á ári hverju í þessari grein á Bretlandi og þaö er hörkusamkeppni í bransanum. Sumir hafa’ða og hún virðist vera ein af þeim. Eru miklir peningar í þessu í Bretlandi? — Ekki í leikhúsunum, svaraöi hún, en mað- ur mokar inn í „freelancing”. JBH/Akureyri Mazda 1984 —,— Sýndar veröa 1984 árgerðirnar af MAZDA 323, MAZDA 626 og MAZDA 929, sem nú kemur á markaðinn í nýju og breyttu útliti og með fjölmörgum tæknilegum nýjungum. Ennfremur sýnum við úrval af notuðum MAZDA bílum, sem allir seljast með 6 mánaða ábyrgð. KOMIÐ OG SKOÐIÐ ÞAÐ NÝJASTA FRÁ MAZDA. i I I Mazda 929 BILABORG HF. Smiðshöfða 23 sími 812 99

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.