Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Síða 12
|i
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 60., 64. og 65. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Skerseyrarvegi 4, Hafnarf., tal. eign Hafsteins Haralds-
sonar, fer fram eftir kröfu Guðjóns Armanns Jónssonar hdl. á eigninni
sjálfri þriðjudaginn 13. mars 1984 kl. 14.45.
Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi.
Nauðungaruppboð
Annað og síðasta á eigninni Breiðvangi 12, 3. hæð t.h., Hafnarfirði, tal.
eign Elinar Isleifsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 12.
mars 1984 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarf irði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 96., 101. og 106. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1980 á
eigninni Stekkjarkinn 7, Hafnarfirði, þingl. eign Sigurðar Hjálmars-
sonar, fer fram eftir kröfu innheimtu ríkissjóðs, Hafnarfjarðarbæjar
og Veðdeildar Landsbanka Islands á eigninni sjálfri mánudaginn 12.
mars 1984 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 24., 28. og 35. tölublaði Lögbirtingablaösins 1982 á
eigninni Grænakinn 9, kjallara, Hafnarfirði, þingl. eign Jóns Daníels-
sonar, fer fram eftir kröfu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna á eigninni
sjáifri mánudaginn 12. mars 1984 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 88., 92. og 94. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni Suðurgötu 80, Hafnarfirði, þingl. eign Byggingar sf., fer fram
eftir kröfu Arnar Höskuldssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudaginn 12.
mars 1984 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annaö og síðasta á cigninni Sléttahrauni 28, 3. hæð t.v., Hafnarfirði,
tal. eign Sigurðar J. Einarssonar, fer fram á eigninni sjálfri mánu-
daginn 12. mars 1984 kl. 16.30.
Bæjarfógetinn íHafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 56., 59. og 61. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni Brekkubyggð 16, Garðakaupstað, tal. eign Þóru Guðleifs-
dóttur, fer fram eftir kröfu Sparisjóðs Reykjavíkur og nágr. og borgar-
sjóðs Reykjavíkur á eigninni sjálfri mánudaginn 12. mars 1984 kl.
17.00.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Sléttahrauni 24, 2. hæð t.v., Hafnarfirði,
þingl. eign Asmundar E. Einarssonar, fer fram á eigninni sjálfri
þriðjudaginn 13. mars 1984 kl. 14.15.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
aunað og síðasta á hluta í Fýlshólum 5, þingl. eign Ingva Theodórs
Agnarssonar, fer fram eftrir kröfu Gjaldhcimtunnar í Reykjavík og
Hafsteins Sigurðssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 14. mars
1984 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Blesugróf 22, þingl. eign Hauks Arnasonar, fer fram
eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Ara Isberg hdl. og Veðdeild-
ar Landsbankans á eigninni sjálfri miðvikudaginn 14. mars 1984 kl.
10.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 97., 101. og 104. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á Draga-
vegi 11, þingl. eign Sverris Sigurðssonar, fer fram eftir kröfu Guöjóns
Á. Jónssonar hdl. og Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri
miövikudaginn 14. mars 1984 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Mior ocj ft n r t. rrrx a '-'tt/ t tt
DV. LAUGARDAGUR10. MARS1984.
Það birtist i skákstil Ingvars sú launfyndna kerskni og kenjótta glæfranáttúra sem er svo sterkur þáttur i
skapgerð hans.
Bi§kup
drepmní
Grlndavík
Það var myrkur um miðjan dag.
Hinn ömurlegi dumbungur vetrarins
grúfði sig eins og syndug kona yfir Suð-
umesin, breiðgatan mikla hlykkjaðist
milli úfinna hraunflesja, löðrandi í
saur og vætu og skítugar bifreiðamar,
sem óku með ofsahraða og fullum ljós-
um, hvæstu og frussuöu hver á aðra
eins og snakillir sundmenn í Vestur-
bæjarlauginni.
En um síðir fór að djarfa fyrir
Grindavík í kafþykkri regnmóðunni og
Ladan mín rataði eins og gamalt heim-
fúst hross beint i hlaðvarpann á
FESTI, hinu veglega og snyrtilega fé-
lagsheimili þeirra Grindvíkinga sem
stendur eins og hver annar teinréttur
útvöröur við fordyri þorpsins.
Inni í Festi var áttunda umferö í al-
gleymingi — áttunda umferð fyrsta al-
þjóðlega skákmótsins sem haldið er á
Islandi utan höfuðborgarinnar.
Áhugasamir skákunnendur af Suður-
nesjum og öðmm byggðarlögum voru
búnir að hreiðra um sig í notalegum
stólunum og mændu spekingslega á
sýningartöflin stóm sem héngu uppi á
veggjunum yfii* höfði keppendanna
— eitt sýningartafl fyrir hverja skák
eins og vera ber. öll er aöstaöa þarna
til sæmdar þeim sem lagt hafa hönd
að verki, jafnt heimamönnum og Jó-
hanni Þóri Jónssyni sem af sumum er
kallaður guðfaðir íslenskrar skáklist-
ar, svo mjög sem hann hefur barist í
tímans rás fyrir því að útbreiða þessa
dásamlegu bardagalist hugans og
greiða götu skákmanna hvar sem hann
kemur því við, og þaö er víða.
Gamli skólinn og kynslóða-
byltingin
I hópi áhorfenda vom margir kunn-
ir skákmenn og skákunnendur og bar
ég þar meðal annars kennsl á Olaf
Magnússon. Olafur varð Islandsmeist-
ari fyrir liðlega áratug en svo dró hann
sig í hlé eins og alltof margir góðir
skákmenn hafa gert hér á Islandi og
þvi hefur minna að honum kveöið í
skáklífi en gott væri. En vonandi sér
hann sig um hönd og fer aðtefla aftur á
mótum.
Keppendur sátu yfir skákum sínum
þungt hugsi, hver á kafi í sínum eigin
hugarfylgsnum í leit að snjöllum áætl-
unum. Skyndilega spratt einn þeirra á
fætur, skimaöi yfir salinn og yggldi
sig; svo fór hann að spígspora milli
borðanna, leit til skiptis á skákirnar
eöa þá að hann kastaði ygglibrúninni
upp á sýningartöflu og glotti misjafn-
lega hýrlega. Þetta var Ingvar As-
mundsson, skólastjóri Iönskólans, og
einn allra skemmtilegasti skákmaöur
landsins af gamla skólanum.
Þegar svo er um skákmann sagt að
hann sé af gamla skólanum er ekki
verið að gefa í skyn aö hann sé lakari
skákmaður en þeir sem yngri eru. En
það er alkunna að ungu meistararnir
eru miklu betur að sér um vissa hluti
herfræðinnar en þeir gömlu, og mætti
þar helst til nefna byr janafræðina.
Ungu strákamir hafa lagt miklu
meiri rækt við byrjanir og hina fræði-
legu undirstööu skáklistarinnar en títt
var í gamla daga og þessvegna er það
staöreynd að eldri kynslóðin á einmitt
mjög í vök aö verjast í upphafi skákar
gegn hinum yngri, en nær oft glimr-
andi spili í miötaflinu og endataflinu,
svo framarlega sem hún kemst sæmi-
lega klakklaust út úr byr juninni.
Það er á allra vörum hvílík kyn-
slóðabylting hefur nýlega gerst í ís-
lenskri skáklist og er það stórkostlegt
ánægjuefni hverjum þjóöhollum
manni því að slík bylting er líklega
eina byltingin sem ekki étur börnin sín,
heldur þvert á móti — á sama hátt og
hin víðfræga byggðastefna Jóhanns
Þóris í skák er eina byggöastefnan
sem ekki veldur þjóðinni ómældu tjóni
og tilgangslausum f járaustri.
Ingvar Ásmundsson fórnar
manni
,,Nú veröur Ingvar eitthvað að