Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Side 13
DV. LAUGARDAGUR10. MARS 1984. 13 Bill Lombardy er búinn að láta af prestsskap og helgar sig skákinni að nýju. Hann er mikili aufúsugestur á islenskum skákmótum og birtum við sérstakt samtal við hann i næsta helgarblaði um ástir, skák og trúmál. Helgi Ólafsson er fagurkeri skáklistarinnar og brosir hýrt þegar hann kemur auga á fallega fléttu. Margeir Pétursson teflir ekki á þessu móti en brá sér til Grinda- víkur til þess að skýra skákirnar i 8. umferð fyrir áhorfendum. Hér veltir hann vöngum yfir viðureign Jóns L. og Knezevic. Jón L. Árnason er i fararbroddi og hefur aðra höndina á stórmeistara- áfanga. Alþjóðlega skákmótið í Grindavík hefur vakið mikla athygli á Suðurnesjum. Hér eru nokkrir áhorfendur uppi i skýringasal og hlýða á útlistanir Margeirs. gera”, hvíslaði Olafur Magnússon, „ef hann bakkar meö hrókinn þá fellur peðið og þá er hann dauður. En ég hugsa að Ingvar vilji drepast eins og maður og liklega fómar hann bara biskupnum á Finnur sex! ” En þannig var að skák þeirra Ingv- ars Asmundssonar og Elvars Guð- mundssonar var orðin gífurlega spenn- andi. Ingvar hafði hvítt og tefldi stinn- ingshvasst til vinnings eins og hann hefur skapið til. Miðborðið var orðið, laust í reipunum og upp runnin sú ör- lagaríka ögurstund þegar lokahríöin veröur ekki umflúin — nú skal barist til lífs eða dauða og annar hlýtur aö falla. Og svo lék Ingvar — hann hugsaði sig fyrst um dálitla stund, en ekki lengi; áhorfendur biðu í ofvæni því að ekki þurfti skarpan til aö skilja að hér hlaut að draga senn til ógurlegra tíð- inda; og svo fómaði hann biskupnum af fullri einurð á Finnur sex, rétt eins og Olaf ur hafði séð fyrir. „Helvíti teflir karlinn skemmti- lega,” tautaði þrekvaxinn Suðurnesja- maður og iðaði í skinninu — þetta var í fyrsta sinn aö hann kom til að fylgjast með viðureigninni og varð svo fárán- lega heppinn að veröa vitni að jafnfrá- bærri taflmennsku. Skemmtilegur skákstfll Ingvar Asmundsson var hér á árum áöur rómaður um landið og reyndar út fyrir landsteinana, allt til Vestur- heims, fyrir sérlega skemmtiiegan skákstíl. Þaö birtist í skákstíl Ingvars sú launfyndna kerskni og kenjótta glæfranáttúra sem er svo sterkur þátt- ur í skapgerð hans, en jafnframt birt- ist i honum sú ískalda rökhyggja og stærðfræðilega nákvæmni sem Ingvar hefur tamiö náttúm sina viö i námi og starfi. Elvar Guömundsson er öflugur skákmaður af kynslóð hinna ungu meistara, en styrkur hans mátti sín lít- ils gagnvart sóknarhörku Ingvars og það er best að orðlengja það ekki frek- ar að fyrr en varði hmndu varnir svarts eins og múrveggir Jeríkóborgar foröum daga og hvítur vann glæsilega. Ingvar hefur teflt vel í þessu móti, en æfingaleysið hefur háð honum og valdið honum afdrifaríkum fingur- brjótum — þannig missti hann niður tvær skákir sem hann hafði teflt af miklum þunga og sigurinn blasti við, þegar allt hrundi við ein mistök. En þessi stirðleiki, sem orsakast af æf- ingaleysinu, er að rjátlast af Ingvari og það er umhugsunarvert að hefði hann ekki glutrað niður þessum vinn- ingum væri hann kominn með aðra höndina á áfanga í alþjóöatitil. I rauninni er þaö allt að því óviðeig- andi að Ingvar skuli ekki vera búinn að næla sér í titil — hann er að vísu ekki nógu skólaður í byrjunum og ýmsum öörum greinum skákfræðinnar til þess að verða stórmeistari en honum yrði ekki skotaskuld úr að verða alþjóðleg- ur meistari ef hann gæfi sig eitthvað að skákmótum um hríð og fengi næði til' þess að sinna þessum hlutum. Þar sem enginn þekkir mann...... , jVð hugsa sér að ég skuli hafa unniö hann Ingvar hér i gamla daga, og það á . þeim árum þegar hann var upp á sitt besta,” hvíslaði Olafur, skemmti sér konunglega og bætti við í galsa: „Mikið helvíti hlýt ég að vera góöur! ” En mér var hinsvegar efst í huga að þessi snilldarskák Ingvars ætti að. verða Olafi sjálfum, Jóni Kristinssyni og ýmsum öðrum köppum af eldri kyn- slóðinni brýning til þess að láta ekki vopnin ryðga öUu lengur upp á veggn- um en seilast í þau og herða að nýju í eldi og blóði, sjálfum sér til sæmdar og skákunnendum til skemmtunar. Eg gaf mig á tal við Ingvar og grennsiaöist eftir því hvort honum léki ekki hugur á aö nýta hinn nýja byr og tefla eitthvað í mótum á næstunni. „Jú, ætli sú verði ekki raunin,” kvað Ingvar. — Býstu kannski við að fara á skák- mótið í Neskaupstað eöa þá Islands- mótið um páskana ? spurði ég. „Það er eiginlega best fyrir mig að fara tU Bandaríkjanna og tefla á mót- um þar,” sagði Ingvar og var nú horf- in ygglibrúnin. „Það er nefnUega langbest fyrir mig að tefla þar sem enginn þekkir mig — þessir strákar hérna vita alltof vel hvar ég er veikur fyrir og geta notað sér það.” Það er töluverður sannleUrur fólg- inn í þessum orðum Ingvars og má í þvi tilefni vísa tU ágætrar stöku, sem merkur maður orti út af allt öðru til- efni: Þar sem enginn þekkir mann, ' þar er gott að vera, því að aUan andskotann er þar hægt að gera. Til mikils að vinna Fyrsta alþjóðlega skákmótinu á Is- landi utan Reykjavíkur mun ljúka um þessa helgi. Framan af má segja að þetta mót hafi legiö i skugga hinna fyrri stórverka, Búnaðarbankamóts- ins og Reykjavíkurskákmótsins, en nú er það komið af fuUum þrótti fram í dagsbirtuna og er það vel. Það er ekki langrar stundar verk að aka hina rennisléttu hraöbraut suöur tU Grindavíkur og það má búast við því að lokahríðin verði hörð, miskunnar- laus og spennandi svo að skákunnend- ur á höfuðborgarsvæðinu geta þess- vegna óragir sest undir stýri og tekið stefnuna á Festi í Grindavík nú um helgina. Jón L. Arnason er í fararbroddi enn sem komið er — hann verður að ná tveimur vinningum úr síðustu þremur skákunum til þess að hljóta hinn lang- þráða áfanga í stórmeistaratitil og það er tU mikils að vinna fyrir hann og reyi.dar þjóöina alla. Texti og myndir: Baldur Hermannsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.