Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Qupperneq 20
20 DV. LAUGARDAGUR10. MARS1984. ff Veifa til hans hvar sem ég hitti hann ff \ „Eg er fæddur í Flatey á Breiöafiröi. Faöir minn Siguröur S. Haukdal var prófastur þar og móöir mín var Bene- dikta Eggertsdóttir. Þar átti ég heima til 12 ára aldurs. Síðan fluttum við aö Bergþórshvoli og þar hef ég búið síðan. Viö faöir minn bjuggum þar félags- búi og síöar fékk ég svo nýbýli úr Berg- þórshvolslandi. Einnig á ég Kárageröi sem liggur þama aö.” — Hvernig atvikaöist aö þú fórst út í pólitík? „Eg hef haft áhuga á pólitík frá unga aldri og mikið tekiö þátt í félagsmálum í sveit og héraöi. Af þeim áhuga leiddi aö ég var kosinn þingmaöur þegar Ingólfur Jónssonhætti 1978. — Þú ert menntaður búfræðingur og bóndi. Hvers vegna lagðir þú fyrir þig búskap? „Það var af ýmsum ástæöum. Eg hafði áhuga á búskapnum. Hins vegar er því ekki aö leyna aö mestur tíminn árum og áratugum saman hefur fariö í félagsmál, sveitarstjórnarmál heima fyrir og þingmennsku. Síðari árin hef ég haft ársfólk sem sér um búskapinn. — Er þetta stórt bú sem þú ert meö? „Eg hef fyrst og fremst verið meö f járbú og mikið af hrossum. Upp á síð- kastið hef ég verið með verulegt af nautgripum og þá til kjötframleiöslu.” — Hvernig er aö vera bóndi og þing- maöur? „Þaö er ágætt. Þaö er nauðsynlegt fyrir þingmann aö hafa fleira fyrir stafni en þingmennskuna til þess aö vera í betri tengslum viö kjósendur sína. En eins og ég sagði áðan þá koma þingmennskan og félagsmálastörfin niöur á búskapnum. Búskapur, eins og fleira, getur ekki veriö í fullkomnu lagi nema maöur sé viö þaö sjálfur, jafnvel þó maöur hafi gott fólk. Þaö er heldur ekki bara búskapur sem ég fæst viö heima heldur líka oddvitastörf og önnur störf aö sveitarstjórn. ” Heim um helgar — Ertu í Reykjavík þann tíma sem þingiðstarfar? „Eg fer heim um helgar. ” — Þú studdir ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens á sínum tíma. „Já. Atvikin höguðu því þannig að þá var ég utan flokka. Þetta var eini möguleikinn á myndun stjórnar. Eg haföi von um að í henni yrði tekið á hlutunum. Stjórnin haföi meðbyr meðal almennings í upphafi og lengst af. Því miður var ég ekki alltaf ánægöur. Þó margt væri gert gott var sneitt hjá höfuðvandanum; ekki tekið á verðbólgunni. Því var í lok tíma- bilsins meiri veröbólga en nokkru sinni fyrr. Orkumálunum var heldur ekki sinnt sem skyldi. Það varö til þess aö orkuverð er hátt í dag. Þaö tókst heldur ekki aö leysa Alusuissedeil- una né koma einu aöalmáli þjóöar- innar í höfn: að auka orkusölu á veröi sem okkur er hagstætt.” Framkvæmda- stofnun — Af hverju var sérframboð þitt sprottiö? „Viö óskuðum eftir því margir aö fram færi prófkjör um frambjóðendur Sjálfstæöisflokksins. Því var hafnað af kjördæmaráöi. I framhaldi af þessu vil ég leggja áherslu á aö þetta er hlutur sem er aö baki. Sjálfstæöismenn á Suöurlandi náöu saman og standa saman sem ein heild og þaö er megin- mál.” — Gekkstu ef til vill til stuönings viö stjórn Gunnars Thoroddsens til að ná meiri áhrifum? Þú varöst í kjölfar þess formaöur stjómar Framkvæmda- stofnunar ríkisins. „Pólitík er eftirsókn eftir áhrifum til aö láta gott af sér leiða og koma fram málefnum héraös og þjóöar. Þess vegna hafnaði ég ekki leiðum til slíks. Hvort ég hafi misnotað þaö er annað mál. Framkvæmdastofnun hefur sætt miklu ámæli en hún hefur komiö mörgu góöu til leiöar, til dæmis frysti- húsaáætlunum um allt land og gatna- geröaráætlun. Gagnrýni á þessa stofnun hefur aöallega komiö frá Reykjavíkursvæöinu. Eg vil benda á þaö í því sambandi aö Framkvæmda- stofnun tók viö Alafossi, sem er í út- jaðri Reykjavíkur, fyrirtæki sem einstaklingum tókst ekki aö reka, reisti það viö og rekur þaö nú með miklum myndarskap. Þarna vinna 3— 400manns.” — Víkjum aö Bergþórshvolsdeil- unni. Hvert er upphaf hennar aö þínu mati? „Þegar séra Páll hóf kærur og óhróöurskrif um mig í blööum þá vil ég leggja áherslu á aö ég svaraði ekki og vildi ekki svara þó aö gengiö væri eftir í blöðum. Þessar deilur, sem nú eru aftur hafnar í blööum, hófust heldur ekki fyrir mína tilstuölan heldur eru þær ættaöar frá einhverjum stuðnings- manna Páls. RÍKISSAKSÓKNARI PG/kbg K. 2011/81 OSKASI TILORriNT I SVARI Beykjavík . 23. scptember 19e3 1 Visaó er til bréfs yóar, herra sóknarprestur, daa- setts 11. október s.l., sem meó fylodu tvær ljósmyndir. Enn- fremur er visaó til fimm bréfa yóar, dagsettra 26. október Ufc/ 'ib'o 2, i2. júii s.i. oe ó. og 2b. i.m. auk fylgigagna, aóallega 1 jósmynda, sorn þér hafió sent rannsóknar- lögreglustjóra ríkisins og embú-tti ríkissaksóknara hafa-borist mcð bréfum hans, dagsettum 2Ö. október 1962, 27. nóvember 1982, 25. juli s.l., 17. f.m. og 1. þ.m., þar scm bornar eru marg- vislcgar sakir á Eggert Haukdal, alþingis.T.ann, Bcrgþcrshvol i II. Tekið skal fram,- aó fran.antalcar kærur yóar og gögnin, som-þeim fylgdu þykja eigi gefa tilefni til sérstakra aógeróa af hálfu ákæruvaldsins en athygli er vakin á því, aó þér getió a.vallt leitaó réttar yóar fyrir hinum almcnnu dóm- stólum um þau ágreiningsefni yóa’r og alþingismannsins, sem tílhoyrá sviói einkair.álarcttarins. Til séra Páls Pálssonar, Bergþórshvoli, Vestur-Landeyjum. Afritr Ecccrt Haukdal, alþinoismaóur, Bcrgþórshvoli II, Vcstur-Landc-yjum-. Eannsóknariögreglustjóri ríkisins. ÍÉg® Bréf ríkissaksóknara sem Eggert vísar tilí viðtaiinu. fyrir honum á allan þann hátt sem hugsast gat.” — Hann segist í gömlu blaöaviötali í DV hafa boðið þér vináttu en þú ekki þegið. „Liggur svariö ekki í því sem ég er að segja? Þaö þáru allir hann á höndum sér. Eg vísa þessu algerlega á bug.” Land á að nýta ti! landbúnaðar Þegar hann sótti um prestakallið fékk hann góöan stuöning og ég og fleiri studdum hann og bárum hann á höndum. Eg sem oddviti flýtti bygg- ingu kennarabústaöar fyrir hann og útvegaöi honum kennarastarf. Greiddi „Síðan leigði ég af honum jörðina eins og ég haföi áður gert af fööur mínum. Þá kom þaö upp aö hann vildi kippa því til baka. Eg hef aldrei deilt við hann. Eg hef aldrei kært hann. Af minni hálfu var friöur. En sumir eru ekki fyrir frið. Hvaöa prestur stendur í því aö kæra sveitunga sína og nágranna? Eg vildi borga fyrir túnin og ég hef taliö eölilegra aö þau veröi nýtt af heimamanni ef prestur þarf ekki á þeim aö halda. Land á aö nýta til land- búnaðar.” — Páll sagði í viðtali 1982 aö þú hefðir flæmt í burtu fyrri prest? „Presturinn á undan, séra Höröur Þ. Ásbjörnsson, mótmæiti þessu í kjallaragrein í DV. Þessi orö voru slíkar ály gar aö engu tali tekur. ” — En Páll hefur leyfi til að ráöstafa túnunum eins og honum sýnist? „Já hann hefur þaö. Þaö voru ágætir menn sem höföu áhyggjur af þessum ágreiningi og sáu aö viö svo búið mátti ekki standa. Erlendur Áma- son á Skíðbakka, sóknarnefndarfor- maöur og oddviti í Austur-Land- eyjum, beitti sér fyrir samkomulagi sem viö gengum frá. Þaö var ekki fyrr þornað blekið á þeim samningum en presturrauf þá.” IRÍKISSAKSÓKNARI PG/kbg Reykjnvik, 23. scptembc?r 1 9 8 3 T M. 2911/81 ÓSKAST TlLCnnNT I SVARI . Visaó er til bréfs yóar, herra umboósdómari, dag- setts 30. mai s.l., sem meó fylgdi endurrit dómsrannsóknar yóar og margvisleg rannsóknargögn varóandi kærur séra Páls Pálssonar, sóknarprests, Bergþórshvol i i Vestur-Lanaeyjélvreppi | á hendur Eggerti Haukdal, alþinaismanni, Bergþcrshvolí II, fyrir brot gegn XXV. kafla hinna almennu hcgningarlaga. Tekió skal fram, aó rannsókn máls þessa þykir eins og þaó nú liggur fyrir, eigi gefa tilefni til frekari aógeróa ékæruvalcsins. Til Allans V. Magnússonar, skipaós unboósdómnra. Aírit: ccgert Hsukdal, alþincisn.aÓur, Bc-rcbórshvoli II, Vcstur-Lar.dc/jum. Ra.nnsókr.arlögrcglustjóri rikisins. Scra Páll Pálsscn» . Bcrgþórshvoli, Vestur-Laiidey jum. Samningur — Gekk það út á aö þú fengir aö nota túnin? >rJá, og það átti að standa í eitt ár. Páll rauf það áöur en þaö kom til fram- kvæmda. Þess vegna fór ég út í lög- bann og vann þaö mál með hliösjón af þeim samningum sem viö höföum gert. Svo var þaö búiö eftir ár. ” Krytui Deilur þeirra séra Páls Pálssonar á Bergþórshvoli og Eggerts Haukdai eiga sér langan aödraganda. Eggert hefur búiö á Bergþórshvoli frá 12 ára aldri eins og fram kemur hér í viötalinu. Fyrst bjó hann með foreldrum sínum á prestssetrinu, en faöir Eggerts var prestur aö Berg- þórshvoli frá 1945 til 1975, og síöar á nýbýlinu Bergþórshvoll II sem og eignarjörð sinni, Káragerði, sem liggur aö Bergþórshvoli n. Séra Páll fékk prestakalliö aö Bergþórshvoli áriö 1975 en fluttist ekki þangað fyrr en ’79 þegar nýtt prestssetur reis á jörðinni. Er þaö steinsnar frá íbúð- arhúsi Eggerts. — Þú hefur þá ekki afnot af túnunumnúna? „Nei.” — Er það ekki slæmt fyrir búskapinn? „Eg fer annað. Aö öðru jöfnu heföi ég verið tilbúinn aö greiða það hæsta veröi og það er í þágu sveitarfélagsins aö ég nýti túnin. Eg er meö fólk í vinnu. Túnið hefur líka farið í niðurníðslu. Myndir: EinarÓlason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.