Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Page 34
Plutini erí draum- um Frahha hampandi hinna frábæru tengiliða enska liðsins Bryan Robson og Glenn Hoddle á meðan á Italíu er hann markahæstur ásamt Zico. „Hann er auðvitað hættulegur, bæði sem markaskorari og einnig þegar hann skapar marktækifæri. Hann er alltaf inni í spilinu, stjórnsamur og kröfuharður, við þekkjum leik hans vel.” Þetta sagði Bobby Robson um Fiatmi rett fyrir leikinn gegn Frökk- um. Það virðist samt ekki vera nóg að þekkja leikni Platini, allavega dugði það Englendingum skammt því eins og fyrr segir gerði Platini bæði mörk leiksins og opnaði hina sterku vörn Englendinga hvað eftir annað. Mörkin, gerð með skalla og úr auka- spyrnu, unnu á enska liðinu og færðu Platini enn nær markametinu hjá franska liðinu. Það er einn af mestu markaskorurum knattspymu- sögunnar, Just Fontaine, sem á þetta met og er það 27 mörk, einu meira en Platini hefur gert. Faðir hans kenndi honum Hin frábæra nákvæmni auka- spymuskota er uppskera strangra æfinga sem faðir hans, fyrrum knatt- spyrnumaöur sem hefur ætíð leiöbeint syni sínum, lét Platini ganga í gegnum þegar han var unglingur. Faöirinn stillti þá upp stómm dúkk- um til að hindra skot sonar síns og þannig þjálfaðist hin frábæra nákvæmni hans í aukaspymum upp. Þykir geta hans í þessum efnum nálg- ast færni bestu manna, eins og Reiner Bonhof, sem alltaf er negldur meistari aukaspymanna. Og úr því farið er að tala um aukaspyrnur þá efast ég um að Ásgeir Sigurvinsson standi þessum mönnum nokkuð að baki, enda minna aukaspyrnur hans ansi mikið á Bon- hof. En þetta var nú útúrdúr. Eins og fyrr segir þá vann Platini aðdáun allra áhorfenda á Parc de Princes og allir viðstaddir, að hinum svekktu aðdáendum Englendinga undanskildum, fögnuðu hetjunni meö miklum látum. Ekki vinsæll „Þetta hefur verið stórkostleg vika fyrir mig. Fyrst að gera tvö mörk gegn Torino (erkifjendur Juventus) á Italíu og koma svo hingað og gera önnur tvö. Eg er í mjög góðu formi,” sagði Platini eftir leikinn. Það skrítna við feril þessa frábæra leikmanns er að hann hefur aldrei unn- ið hug og hjarta franska knattspyrnu- unnenda, þrátt fyrir það mikla sem hann hefur gert fyrir franska boltann. Þegar hann var í Nancy unnu þeir bik- arkeppnina þar í landi margoft og á árum hans með Saint Etienne unnu þeir meðal annars meistaratitilinn. I augum áhorfenda var hann alltaf f jarlægur og jafnvel hrokafullur. ,,Eg veit að ég er ekki vinsæll en ég hef ákveðið að láta öll hrósyrði sem vind um eyru þjóta, alveg eins og alla niöumíöslu,” sagði Platini áöur en hann hélt af stað til Italíu í hittiðfyrra í leit aö betri knattspymu, meiri sigur- möguleikum og kannski örlítiö fleiri aurum. Vinsæll meðal leikmanna Juventus greip dreng eftir aö hann hafði leitt Frakka til sigurs gegn Itöl- um og stuttu síðar urðu þeir síðar- nefndu heimsmeistarar. I leiknum lék Platini hinn stórgóða Marco Tardelli margoft upp úr skónum og eftir leikinn lét sá síðarnefndi hafa eftir sér: „Eg hef aldrei þjáðst eins mikiö og í dag.” Eftir heimsmeistarakeppnina voru þeir tveir komnir í sama lið, Juventus, en Platini hefur nú framlengt samn- inginn við þá til 1986. Þó að illa gangi að ganga í augun á hinum almenna franska knattspyrnuá- hugamanni þá er ekki þar með sagt að þetta eigi við um fólk almennt. Sam- band hans við leikmenn og þjálfara er undantekningarlaust mjög gott. Platini var mikið í mun að góður andi ríkti í franska landsliðinu fyrir leikinn gegn Englendingum. „Það er ekkert í húfi nema bara að hafa gaman af þessu,” sagði hann fyrir leikinn til aö létta pressunni af leikmönnum liðs- ins, en fjölmiðlar lögöu áherslu á að nú skyldi England sigrað. Þakkaði hinum Eftir leikinn var hann mjög hógvær og sagði að fyrra markið hefði aldrei oröið nema með þætti Jose Tourre sem hafði skapað færi eftir aö hann sjálfur hefði verið búinn að klúðra boltanum og einnig þakkaöi hann Alain Giresse sem gaf fyrir er Platini skallaði bolt- annímarkið. Platini í Juventus- búningi. , JEf á að skrifa þetta mark á mig þá er það félögum mínum að þakka því það er alltaf ómæld ánægja sem fylgir því að spila með þeim. ” I ár var Platini kjörinn leikmaöur ársins í Evrópu af fréttamönnum og sigraði hann með miklum stigafjölda, langt á undan næstu mönnum sem voru Kenny Dalglish og Allan Simonsen. „Hann átti þetta svo sannarlega skiliö,” sagði Paolo Rossi, félagi Platini í Juventus og fyrirrennari hans semhandhafi „gullknattarins”. Á sama bekk og Kopa og Fontaine Eftir leikinn við enska sagði íþrótta- dagblaðið L’Equipe að enn einu sinni hefði Platini sannað að hann á rétt til aö geta kallast besti knattspymu- maður Frakka frá upphafi. Blaöiö sagði að hann ætti þennan titil fullt eins skilið og Kopa og Fon- taine sem voru mennirnir á bak við velgengni franska liðsins á HM 1958. Fontaine geri þá 13 mörk, met sem ekki hefur enn verið slegið og Kopa lagði meirihluta þeirra upp. En hvað sem öllum vinsældum líður þá er þaö nokkuð víst að í draumi sér- hvers knattspyrnuaödáanda í Frakk- landi er mynd af Michael Platini þar sem hann hampar Evrópubikarnum í komandi júnímánuði. Keppni sem háð verður í Frakklandi og heimamenn taldir mjög sigurstranglegir í. Evrápu- biharnum Knatispymukóngurinn franski, Michael Platini, sem hélt til Italíu til frekari landvinninga, sneri aftur heim til Frakklands og endurheimti konung- dæmi sitt þar. Mikil fagnaðarlæti Flugeldar sprungu og þúsundir áhorfenda hylltu stjörnuna með því aö syngja nafn hennar hástöfum að lokn- um leik Frakka og Englendinga mið- vikudaginn 29. febrúar sl. Hin skrúf- hæröi Platini lýsti dimman kvöldhim- ininn upp meö tveimur glæsilegum mörkum um leið og Frakkar grófu til- raunalið Englendinga í sandinn. Þessi sigurFrakka varsáfyrsti síðanl963. Platini var sem ungum manni neit- að um samning hjá fyrstu deildar lið- inu Metz, vegna þess að talið var að lungun í honum hefðu eyðilagst er hann andaði að sér eitraðri loftgufu. En síðan þá hefur leiðin aðeins legið upp á við. Fyrrnefndur landsleikur hlýtur að teljast meðal hæstu tindanna á háfleygum ferli Platinis. Fagnaöar- lætin entust mun lengur en niður- lægingaröskrin sem hann fékk aö heyra er hann lék síðast á Parc de Princes vellinum. Það var í október sl. er ítalska liðið hans, Juventus, lék við Paris StGermain í Ebrópukeppni bik- arhafa. Raymond Kopa Síðan hefur Platini verið krýndur knattspyrnumaður Evrópu, fyrsti Frakkinn til að vinna þann heiður í 25 ár eða síðan Raymond Kopa vann þann titil. Það er margt líkt með Kopa og Platini sem leikmönnum. Kopa lék sem frammiliggjandi tengiliður rétt eins og Platini gerir í dag. Þetta er svipað hlutverk og þeir Charlie Nichol- as og Kenny Dalglish gegna hjá sínum félögum, nema hvað Platini, og Kopa á meðan hann var, taka miklu meiri þátt í uppbyggingu spilsins. Annars var Raymond þessi Kopa einn af aöal- mönnunum í Real Madrid liðinu sem á ofanverðum sjötta áratugnum ríkti yfir knattspymuheiminum og vann Evrópukeppni meistaraliða fjögur ár í röð. Og eins og Kopa hélt Platini utan og gekk til liðs við ítalska liðið Juventus og hefur síðan gert tilkall til krúnunnar um besta knattspymumann í heimi, ásamt Rumenigge, Rossi, Zico og Maradona. Skyggði á Robson og Hoddle Frábær leikur hans gegn Englend- ingum skyggði gjörsamlega á getu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.