Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Side 35
y j& A. DV. LAUGARDAGUR10 0. MARS1984. Chelsea vann 21-0 t Evrópubikarnum árið 1971 Hálfatvinnumennirnir í Lúxem- borgarliðinu Jeunesse Hautcharge aðstoðuðu við að drekka heimaþorp sitt þurrt eftir aö þeir höfðu unnið sæti í Evrópukeppni bikarhafa með því aö vinna bikarinn þar í landi. JH, sem þá var þriðjudeildarliö, komst árið 1970 óvænt í úrslit í bikar- keppninni og bruggverksmiöja staöarins, B-B-B-Boefferding lofaöi að bjóöa öllu þorpinu á þriggja daga fyllirí, ef þeir ynnu. Bjórinn sem í átti að fara var ómældur, allir máttu drekka eins og þeir vildu. Þeir unnu Og hið ótrúlega gerðist. Jeunesse Hautcharge sigraði Jeunesse Esch í úrslitaleiknum með 4—1. Sigurinn kom geysilega á óvart, ekki síst þar sem Esch voru ellefufaldir bikar- meistarar. Og veislan í þessu 700 manna þorpi hófst og hélt áfram ... og á- fram. I þrjá daga var drukkiö sleitulaust. Og tilefnið var tvöfalt því Hautcharge hafði einnig unniö sér sæti í annarri deildinni, á meöan liðið úr næsta þorpi, Bas Charge, féll í þriöjudeild. Þaö kom ekki tiltakanlega á óvart aö æfingar lágu niðri næstu daga eftir sigurinn, leikmenn og þjálfarar voru hreint og beint að farast úr þynnku. En brátt urðu menn að fara á fætur þar sem liðið hafði unnið sér sæti í Evrópubikarkeppninni og mót- herji þeirra reyndist vera Chelsea. Veðmál Fyrri leikurinn fór fram í Lúxem- borg og var gífurlegur áhugi fyrir honum í landinu. 13.000 manns mættu til að sjá Chelsea taka Lúxem- borgarana í gegn. Þeir skoruðu átta gegnengu. Með þetta veganesti hélt stjörnum prýtt lið Chelsea til Stamford Bridge þar sem seinni leikurinn skyldi haldinn. Nokkur forvitni skapaðist í kringum þennan leik og spurningin um hve mörg mörk Chelsea myndi gera í seinni leiknum var algeng á vörum manna. Allir veðjuðu. Meira að segja leikmenn Chelsea gátu ekki á sér setið og veðbanki var opnaður í búningsherberginu. Peter Osgood veðjaöi 5 pundum við Peter Bonetti að hann myndi skora sex mörk og jafnvel Ron Harris, sem aðeins gerði átta mörk á ellefu árum, veðjaði pundi um að hann myndi skora. Lúxemborgararnir Leikmenn Lúxemborgarliðsins sem mættu Chelsea þetta september- kvöld árið 1971 voru tveir stálverka- menn, nemandi, hárgreiðslumaöur, stöövarstjóri, slátrari og járn- smiöur. I liðinu voru fjórir bræður, einhentur framherji, vamarleik- maður með gleraugu og 15 ára gamall varamaður. Rúmlega 27.000 manns komu til að horfa á markaregnið sem allir bjuggust við — og óskir þeirra voru uppfylltar. Peter Osgood, sem skorað hafði þrjú mörk í fyrri leiknum, geröi fyrsta mark leiksins eftir aðeins f jór- 'ar mínútur. Tveimur mín. síðar skoraði hann annað eftir að mark- vörðurinn, Lucien Fusilier, hafði hálfvarið skot frá Charlie Cooke. Og svo hélt áfram að rigna (mörkum). Jafnvel Ron Harris vann veðmál sitt. Eftir að hafa einleikið úti viö vítateigslínu gaf hann boltann fyrir sem hrökk í markið af baki eins varnarmannsins. Osgood rétti höndina upp til aö láta líta út sem hann hefði gert markið en það var dæmtHarris. Osgood tapaði sínu veðmáli, geröi aðeins f imm. 21-0 Svo gall lokaflautan og þá var staðan orðin 13—0, samanlagt 21—0, sem er algert met í sögu Evrópu- keppni í knattspyrnu. 13—0 sigurinn er met sem Chelsea liði hefur aldrei tekist aö slá síðan og óliklegt verður aö teljast að svo muni veröa. Atta mörk Peter Osgood er met hvaö breskt lið varöar og hann jafnaði Evrópumetið. En hvað liðsmenn Jeunesse Hautcharge áhrærði, þá hurfu þeir aftur til vinnu sinnar í f jallaþorpinu og kannski þeir hafi fengið sér eitt glas af B-B-B-Boefferding bjór, svona til huggunar. Liðin Chelsea liöiö var þannig skipað í seinnileiknum: Peter Bonnetti, John Boyle, Ron Harris, John Hollins, Dave Webb, Marvin Hinton, Charlie Cooke, Tommy Baldwin, Peter Os- good, Alan Hudson, Ian Hutchinson. Mörkin gerðu: Osgood 5, Hudson, Hollins (víti), Webb, Harris, Baldwin 3, Houseman. Lúxemborgararnir sem léku: Fusulier, Welscher L, Frantzen, Welscher E, Schoder (Simon), Batt- ello, Welscher R (ThiU J), Welscher J; SchrobUtgen, ThiUG, Kaiser. Ron Harris, fyrirliði Chelsea, skor- aði mark og græddi pund. Peter Osgood skoraði átta mörk en tapaði fimm pundum. „Leikmadur vlkuiinar” lllWk STAPLETON Borist hefur ósk um aö koma meö punkta úr leikferli Frank Staple- ton. Eg ætla aö birta hér skrá yfir leiki hans en vísa aö öðru leyti til helg- arblaðs DV þann 12. nóvember síðastliöinn þar sem ferill hans er rakinn í stuttu máli. Lið Keppnis- tímabil Leikir deild Mörk Leikir bikar Leikir mjólk Leikir alls Mörk alls Arsenal Arsenal 1974- 75 1975- 76 1 23+2 4 1 1 + 1 1 1 25+3 5 Arsenal 1976-77 40 13 3 1 6 3 49 17 Arsenal 1977-78 39 13 6 4 7 2 52 19 Arsenal 1978-79 41 7 10 4 4 1 55 12 Arsenal 1979—'80 39 14 11 6 7 5 57 25 Arsenal 1980—'81 40 14 1 1 2 42 16 Man. Utd. 1981-'82 41 13(1) 1 2 44 13(1) Man. Utd. 1982—'83 41 14 7 3 9 2 57 19 Man. Utd. 1983—'84 29 10 1 6 2 36 12 Leikir 1983—84 eru til dagsins í dag. Samtals Arsenal 1974—'81 223+2 75 32 15 26+1 14 281+1 3104 Man.Utd. 1981-'84 111 37(1) 9 3 17 4 137 44(1) Alls 1974—'84 334+2 112(1) 41 18 43+1 18 418+3 148(1) Tölur á eftir plúsmerkjum þýða fjölda leikja sem varamaöur. Tölur í sviga þýöa fjöldi marka úr vítum. Frank Stapleton hefur leikiö 36 landsleiki, þann fyrsta áriö 1977, og var fyrirliði í þeim síöasta, gegn Möltu. Manchester United keypti hann á 900.000 pund. Leikmaður vikunnar verður fastur póstur í framtíðinni og ef einhver vill vita um leikferil ákveðins leikmanns þá er velkomið aö senda^nn línu. Frank Stapleton. Sendist til: Helgarblað DV. Knattspyrnusíða Síðumúla 12—14 105 Reykjavík. SÖLUFÖLK Oskum eftir fólki til að selja happdrættismiða. Góð sölulaun. Uppl. á skrifstofunni í síma 687333. BLINDRAFÉLAGIÐ, Samtök blindra og sjónskertra, Hamrahlíð 17. BELTAGRAFA TIL LEIGU í ÚLL VERK GERUM FÖST TILBOÐ. UPPLÝSINGAR í SÍMA 54918. Einbýlishúsalóðir Hafnarfjarðarbær mun á næstunni úthluta lóöum 1. og 2. áfanga Setbergs. Um er að ræða 30—40 lóðir, einkum fyrir einbýlishús, en einnig nokkur raðhús og parhús. Lóðirnar eru sumar byggingarhæfar nú þegar, en lóðir í 2. áfanga verða byggingarhæfar sumariö 1984. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa bæjarverkfræöings, Strandgötu 6, þar meö taliö um gatnageröargjöld, upptöku- gjöld, byggingarskilmála og fleira. Umsóknum skal skila á sama stað á eyðublöðum sem þar fást eigi síðar en 27. mars nk. Eldri umsóknir þarf að endurnýja. Bæjarverkfræðingur. SIMi k -**************** k k k k i k k k k k k ★ ★ * ★ ★ ★ ★ ★ * i * 18936 SALUR - A ÆVINTÝRI í FORBOÐNA BELTINU Hörkuspennandi og óvenjuleg geimmynd Aðalhlutverk; Peter Strauss Molly Ringwald Sýnd kl. 5,7,9 og 11. íslenskur texti. ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ I y- $ $ y- í * ¥■ ¥ * ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ * ★ t t ! ! !

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.