Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1984, Síða 3
Messur
Guösþjónustur í Reykjavíkurprófastsdæmi
sunnudaginn 18. mars 1984.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Bamasamkoma í
safnaðarheimili Arbæjarsóknar kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta í safnaðarheimilinu kl. 2.00.
Organleikari Jón Mýrdal. Félagsvist á vegum
Bræðrafélags Arbæjarsóknar á sama stað
sunnudagskvöld kl. 20.30. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
ASKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.00.
Guðsþjónusta kl. 2.00. Föstumessa miöviku-
dagskvöld 21. mars kl. 20.30. Sr. Ami Bergur
Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Laugar-
dagur: Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Sunnu-
dagur: Guðsþjónusta kl. 2.00 í Breiðholts-
skóla. Sr. Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Bamasamkoma kl.
11.00. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Guðsþjónusta kl. 2.00. Stanley Mitton, fulltrúi
Hjálparstofnunar kirkjunnar í Bandaríkjun-
um, talar í tilefni af starfi Hjálparstofnunar-
innar við hungraða og þjáða. Organleikari'
Guðni Þ. Guðmundsson. Bamagæsla.
Bræðrafélagsfundur mánudagskvöld kl.
20.10. Félagsstarf aldraðra miðvikudag kl.
2—5. Æskulýðsfundur miðvikudagskvöld kl.
20.00. Yngri deild æskulýðsfélagsins fimmtu-
dag kl. 16.30. Bænastund á föstu miðvikudags-
kvöld kl. 20.30. Sr. Olafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL: Laugardagur:
Barnasamkoma í safnaðarheimilinu við
Bjamhólastíg kl. 11.00. Sunnudagur: Guðs-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 11.00. Sr. Þor-
bergur Kristjánsson.
DOMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Dr. Yap
Kim Hao, biskup frá Malasíu, aðalritari
kristniráðs Asíu prédikar. Mál hans verður
túlkað. Sr. Hjalti Guðmundsson. Messa kl.
2.00. Vænst er þátttöku fermingarbarna og
fjöiskyldna þeirra. Foreldrar lesa bænir og
ritningartexta. Dómkórinn syngur við báðar
guðsþjónustumar. Organleikari Marteinn H.
Friðriksson. Sr. Þórir Stephensen. Laugar-
dagur: Bamasamkoma að Hallveigarstöðum
kl. 10.30. Sr. Agnes M. Sigurðardóttir.
LANDAKOTSSPtTALI: Messa kl. 10.00.
Organleikari Birgir As Guðmundsson. Sr.
Hjalti Guðmundsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 14.00.
Sr. Sigurjón Guðjónsson, fyrrverandi prófast-
ur í Saurbæ, prédikar. Félag fyrrverandi
sóknarpresta.
FELLA- OG HÖLAPRESTAKALL: Laugar-
dagur: Bamasamkoma i Hólabrekkuskóla kl.
2.00.
Sunnudagur: Bamasamkoma í Fellaskóla ki.
11.00. Guösþjónusta í Menningarmiðstöðinni
við Gerðuberg kl. 2.00. Sr. Hreinn Hjartarson.
FRlKIRKJAN IREYKJAVIK: Guðsþjónusta
kl. 14.00. Ræðuefni: Hann setur spumingar-
merki við réttlæti mitt (5. ræðan í prédikana-
röð úr Jobsbók). Fermingarbörn lesa bænir
og texta. Fríkirkjukórinn syngur undir stjóm
organistans Pavel Smid. Dóra Reyndal
sópransöngkona syngur stólvers, Bist du bei
mir, eftir J.S. Bach. Fermingarbörn og for-
eldrar þeirra hvattir til að koma. Aðal-
safnaðarfundur að lokinni messugjörð. Sr.
GunnarBjömsson.
GRENSASKIRK JA: Bamasamkoma kl.
11.00. Guðsþjónusta kl. 2.00. Altarisganga.
Organleikari Ami Arinbjamarson. Ferm-
ingarböm komi til messu. Æskulýösfundur
mánudagskvöld kl. 20.00. Almenn samkoma
nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr. Halldór S.
Gröndal.
HALLGRIMSKIRKJA: Bamasamkoma og
messa kl. 11.00. Börnin komi í kirkjuna og taki
þátt í upphafi messunnar. Kynning á starfi
Gideonfélagsins. Sr. Karl Sigurbjömsson.
Messa kl. 2.00 fyrir heymarskerta og aðstand-
endur þeirra. Sr. Miyakó Þórðarson. Kvöld-
messa með altarisgöngu kl. 5.00. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson. Kvöldbænir með lestri
Passíusálms eru í kirkjunni alla virka daga
föstunnar kl. 18.15 nema miðvikudaga.
Þriðjudagur 20. mars: Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30, beðið fyrir sjúkum. Miðviku-
dagur 21. mars: Föstumessa og aö henni lok-
inni fræðsluerindi dr. Einars Sigurbjöms-
sonar. Umræður og kaffiveitingar.
LANDSPITALINN: Messa kl. 10.00. Sr. Ragn-
ar Fjalar Lárusson.
HATEIGSKIRKJA: Laugardagur: Bama-
guösþjónusta kl. 11.00. Sunnudagur: Messa
kl. 11.00. Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl. 2.00.
Sr. Eiríkur J. Eiríksson prédikar. Sr. Am-
grímur Jónsson. Föstuguðsþjónusta miðviku-
dagskvöld kl. 20.30. Sr. Amgrímur Jónsson.
KAIISNESPRESTAKALL: Laugardagur:
Bamasamkoma i safnaðarheimilinu Borgum
kl. 11.00 árd. Sunnudagur: Messa í Kópavogs-
kirkju kl. 2.00. Umræður og kaffisopi i
safnaðarheimilinu Borgum að lokinni messu.
Sr. Ami Pálsson:
LANGHOLTSKIRKJA: Oskastund bamanna
kl. 11.00. Söngur — sögur — leikir. Guðsþjón-
Fjölskylduhátíð
og skemmtikvöld
— á Sögu og í Háskólabíói á sunnudaginn
Ferðaskrifstofan Samvinnu-
ferðir—Landsýn gengst fyrir mikilli
f jölskylduhátíð og öðrum skemmtun-
um á sunnudaginn i Háskólabíói og á
HótelSögu.
Skemmtunin i Háskólabíói hefst kl.
14. Verður þar boðið upp á marg-
vísleg skemmtiatriði fyrir alla fjöl-
skylduna. Meðal þess má nefna þá
Steina og Olla, barnaleikhúsið Tinna,
trúða, og ýmsar sýningar, m.a.
pönnukökubakstur og speglasalur
verður opinn. I anddyrinu stendur þá
yfir kynning sem hollenskir aðilar
eru meö, og er þar margt fróðlegt að
sjá.
A sunnudagskvöldið kl. 19 hefst svo
Hollandskvöld í Súlnasal Hótel Sögu.
Verður þar og margt til skemmtunar
og fróðleiks. Er þarna upplagt
tækifæri fyrir þá fjöimörgu sem ætla
að heimsækja Holland í sumar eða
þá sem hafa hug á því að fá smjör-
þefinn af því sem þar er og verður á
boðstólum.
áBroadway
Ómar Ragnarsson hefur fengiö
marga til að hlæja um dagana. Nú
eru 25 ár siöan hann byrjaði að
skemmta fólki opinberlega og i
tilefni þess verður sérstök hétið
honum tiI heiðurs é Broadway i
kvöid.
Hinn landskunni skemmtikraftur,
Omar Ragnarsson, stendur á
merkum tímamótum um þessar
mundir, en nú eru liðin 25 ár frá því
að hann hóf feril sinn sem skemmti-
kraftur og jafnframt 30 ár frá þvi
hann lék sitt fyrsta stóra hlutverk í
leikhúsi.
Af því tilefni hafa nokkrir aðilar
tekið sig saman um að halda Omari
hóf, þar sem rifjað verður upp
skemmtiefni frá ferli Omars í aldar-
fjórðung.
Hófið verður haldiö í Broadway,
föstudaginn 23. mars nk., og verður
þar boðið upp á fjölbreytta dagskrá,
með gríni og söng, þar sem Omar
sjálfur kemur fram ásamt ýmsum
gestum sem tengjast ferli hans í
gegnum árin. Omar mun m.a. koma
fram með nokkrum af þeim undir-
leikurum sem hann hefur lengst
starfaðmeð.
Auk þess mun hann taka lagiö með
hljómsveit Gunnars Þórðarsonar,
bæði lög, sem hann hefur sjálfur
sungið inn á hljómplötur, og Iög með
textum eftir hann sem aðrir hafa
gertvinsæl.
Vmsir aðilar og skemmtikraftar
aðrir munu troða upp í hófinu, með
skemmtiefni er tengist Omari og
ferli hans í skemmtibransanum og
fréttamennskunni og er þar af nógu
aö taka. Matseðillinn samanstendur
af uppáhaldsréttum Omars, sem
framreiddir verða í samvinnu við
eiginkonu hans, Helgu Jóhanns-
dóttur, og kennir þar ýmissa grasa,
ekki síður en i skemmtidagskránni.
Rocky Horror-helgi
í Klúbbnum
Helgina 15., 16. og 17. mars verður miklð um að vera í Klúbbnum, öU kvöldin,
þ.e. Rocky horror-helgi. 20 manna dans- og söngvahópur, sem kallar sig
Rocky horror-hópinn, verður með sérsamið atriði sem byggt er á bió-
myndinni: Rocky horror show, sem vakti mikla athygli hér á landi fyrir
stuttu, undirleikinn sér hljómsveitin Toppmenn um.
Þarna er á ferðinni mjög vandað verk sem kostað hefur óhemju vinnu.
Að þessum söngleik loknum mun hljómsveitin Toppmenn sjá um dansinn fyrir
gesti Klúbbsins.
Hin kunna hljómsveit Frakkarnir leikur á tónleikunum i Sigtúni i kvöld.
Einnig koma þar fram hljómsveitirnar Kikk, Vonbrigði og Grafik.
SATT-tónleikar í
Sigtúni
SATT-samtökin gangast fyrir
nokkrum tónleikum á næstunni og
eru hinir fýrstu þeirra í kvöld,
föstudagskvöld i Sigtúni. Þar koma
fram hljómsveitimar Frakkamir,
Vonbrigði, Grafík og Kikk. Húsið er
opnaö klukkan tíu en tónleikamir
standa tilkl. þrjú.
Næstu tónleikar em síðan í Safari,
fimmtudagskvöldið 22. mars, og er
þar um að ræða sérstakt kvenna-
kvöld með hljómsveitunum Dá,
Djellý-systrum og Dúkkulísunum.
í kvöld
Þriðju tónleikarnir em síðan
fimmtudagskvöldiö 29. mars og er þá
um aö ræða þungarokkskvöld með
hljómsveitunum Drýsli, Centaur og
Lizzard. Fleiri tónleikar eru
áformaðir í byrjun apríl.
Allur ágóði af þessum tónleikum
rennur til starfsemi SATT.
Verð aðgöngumiöa á Sigtúns-
tónleikana er 250 kr. og forsala á þá
er í Fálkanum, Laugavegi og Karna-
bæ, Austurstræti.