Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1984, Blaðsíða 5
DV. FÖSTUDAGUR16. MARS1984.
21
Hvað er á seyði um helgina Hvað er á seyði um heigina
Kvikmyndaklúbburinn Norðurljós sýnir:
„Not a love story”
Kvikmyndaklúbburinn Norðurljós
sýnir sunnudaginn 18. mars kl. 17
kanadísku heimildarmyndina Not A
Love Story — kvikmynd um klám.
Þessi mynd var sýnd á Kvikmynda-
hátíð 1982 og vakti þá mikla athygli.
Það er kanadiski leikstjórinn
Bonnie Sherr Klein sem gerði þessa
mynd 1981. Hún fékk í lið meö sér
Lindu Lee Tracey, nektardansmey frá
Montreal, og saman kanna þær klám-
iðnaðinn í Bandaríkjunum; heim
gægjugatasýninga, klámblaða, nektar-
sýninga og kynóramarkaðinn yfirleitt.
Myndin er stranglega bönnuð böm-
Listaskólar í Reykja-
vík með uppákomur
Tveir listaskólar innan vébanda
BISN standa næstu daga fyrir uppá-
komu í bæjarlífi Reykjavíkur. Eru þaö
Leiklistarskóli Islands og Tónlistar-
skóli Reyk javíkur.
Nemendur í Leiklistarskólanum
sýna unglingaleikritið „Bara ljón” í
Kramhúsinu, Bergstaðastræti 9b, á
laugardag og sunnudag kl. 15. Leikrit
þetta var frumsýnt um siðustu helgi og
þykir gott. Verð aðgöngumiða er 30 kr.
og eru þeir seldir á skrifstofu skólans,
Lækjargötu 14b, sími 25020.
Nemendur Tónlistarskóla Reykja-
víkur halda tvenna tónleika á vegum
skóla síns í næstu viku að Kjarvals-.
stöðum. Þriðjudaginn 20. mars, kl.
20.30, verða fyrri tónleikarnir og verða
þar flutt frumsamin verk nemenda.
Síðari tónleikarnir verða daginn eftir
— miðvikudag — og verður þar flutt
mjög f jölbreytt dagskrá. Aðgangur að
þessum tónleikum er ókeypis.
Hollandsdagar
í Háskólabíói
Hópur Hollendinga, sem vinna aö
i ferðamálum í sínu heimalandi, er’
kominn hingað til lands til að kynna
land sitt og fyrirtæki.
Kynningin veröur í anddyri Há-
skólabíós og veröur opin almenningi
á milli kl. 13.30 og 17 á laugardag og
eftir hádegi á sunnudag.
Verður þama ýmislegt fróðlegt að
sjá enda mörg fyrirtæki sem þama
verða með bása þar sem frammi
liggja bæklingar og annað tengt
ferðamálum í Hollandi.
Söngur, lúðrablástur
og dans í Hafnarfirði
I tilefni hækkandi sólar og mildari
veðráttu mun verða haldiö sérstakt
skemmtikvöld í veitingahúsinu TESS í
Hafnarfirði, laugardaginn 17. mars.
Það eru Karlakórinn Þrestir í
Hafnarfiröi, Karlakórinn Stefnir í Mos-
fellssveit og Lúörasveit Hafnarfjarð-
ar, sem standa sameiginlega að þess-
ari hátíð, sem verður með nokkuð
óvenjulegu sniði, en þar mun verða
ríkjandi söngur, lúðrablástur og dans.
A dagskrá þessa skemmtikvölds,
sem hefst kl. 21, koma fram báðir kór-
arnir og syngja hvor í sínu lagi nokkur
lög, og syngja síðan saman. Þá mun
Lúörasveit Hafnarfjarðar leika nokk-
ur lög og þar að auki leika sérstaka
karnivalmúsik og annað léttmeti fyrir
dansi. Einnig mun sérstök danshljóm-
sveit leika aö skemmtiatriðum lokn-
um.
Kar/akórinn Stefnir i Mosfe/lssveit kemur fram á skemmtuninni i Hafnar-
firði, ásamt iúðrasveit og Karlakórnum Þröstum úr Hafnarfirði.
að fækka og fer nú hver að verða síðastur til
að sjá þessa sýningu sem hlotið hefur góðar
undirtektir áhorfenda, jafnt sem annarra
gagnrýnenda. AndarDráttur er samheiti
tveggja stuttra leikrita (Kynórar og Tilbrigði
við önd) eftir Bandarikjamanninn David
Mamet sem hvað mestar vonir eru nú
bundnar við vestanhafs sem leikskáld.
Með hlutverkin í því fyrra fara Kjartan
Bjargmundsson, Ellert A. Ingimundarson,
Sólveig HaUdórsdóttir og Sólveig Pálsdóttir.
En í því seinna Helgi Bjömsson og Viðar
Eggertsson. Leikstjóri er Svanhildur
Jóhannesdóttir.
Sýningar Þjóðleik-
hússins um helgina:
Lokaæfing f næstsiðasta sínn, Sveyk,
Skvaldur og Amma þó!
Sveyk í síðari heimsstyrjöldinni, eftir
Brecht og Eisler, hefur fengið góða aðsókn og
mjög góðar undirtektir. Bessi Bjamason
leikur Sveyk, en aðrir í stórum hlutverkum
eru Þóra Friðriksdóttir, Gunnar Eyjólfsson,
Gísli Rúnar Jónsson, Baldvin HaUdórsson og
Sigurður Sigurjónsson. Sveyk verður sýndur
á föstudagskvöld og á sunnudagskvöld.
Amma þó!, bamaleikrit Olgu Guðrúnar
Amadóttur, verður sýnt á laugardag kl. 15 og
á sunnudag kl. 15. Bömin kunna vel að meta
þetta ævintýri úr Reykjavík nútímans og
hlusta grannt á textann og fylgjast vel með
makalausri framvindunni í leikritinu. Síðast
var uppselt á þessa sýningu.
Skvaldur, farsinn vinsæU eftir Michael
Frayn, verður sýndur á laugardagskvöld, kl.
20 og fer nú hver að verða síðastur að sjá
þetta fjörmikla stykki. Sýningar eru orðnar
hátt í fimmtíu talsins og áhorfendur orðnir
um 18 þúsund. Aðeins þr jár sýningar eftir.
Lokaæfing, eftir Svövu Jakobsdóttur,
verður sýnd í næstsiðasta sinn á sunnudag kl.
16 (ath. óvenjulegan sýningartíma). Magnað
og umrætt leikrit um nærtækt íhugunarefni.
Allra síðasta sýning verur fimmtudaginn 22.
mars. Aukasýningar verða ekki á leikritinu,
SAFARI: Diskótekið á fullu um helgina.
SIGTtlN: Opið í kvöld og laugardagskvöld.
Diskótek.
HOLLYWOOD: Diskótek alla helgina.
HOTEL SAGA: Lokað á föstudagskvöld
vegna einkasamkvæmis. Laugardagskvöld:
„Söguspaug” í Súlnasal, skemmtidagskrá
með Ladda, Jörundi, Emi og Pálma. Hljóm-
sveit Magnúsar Kjartanssonar leikur fyrir
dansi.
Leiklist
25. sýning á Gísl.
Uppselt á allar sýningar til þessa.
A sunnudagskvöldið er leikritið Gísl eftir
Brendan Behan sýnt í 25. skipti hjá Leikfélagi
Reykjavíkur og hefur verið uppselt á allar
sýningar til þessa og mikil kátina rikt á
sýningum. 1 stærstu hlutverkum eru Gísli
Halldórsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir,
Jóhann Sigurðarson, Guðbjörg Thoroddsen,
Guðmundur Pálsson, Hanna Maria Karlsdótt-
ir, Steindór Hjörleifsson, Sigurður Skúlason
og Aðalsteinn Bergdal. Sigurður Rúnar Jóns-
son stjórnar allri tónlistinni, sem eingöngu er
flutt af leikurunum sjálfum. Leikstjóri er
StefánBaldursson.
I kvöld (föstudagskvöld) er sýning á Guð
gaf mér eyra eftir Mark Medoff, en leikritið
hefur hlotið óvenjugóðar viðtökur leikhús-
gesta. Sigurður Skúlason og Berglind Stefáns-
dóttir fara með stærstu hlutverkin, auk
þeirra leika Karl Agúst Ulfsson, Lilja Þóris-
dóttir, Valgerður Dan, Sigriður Hagalin og
Harald G. Haralds stór hlutverk. Leikstjóri er
Þorsteinn G unnarsson.
A laugardagskvöld er Hart í bak sýnt og eru
nú aðeins örfáar sýningar eftir á leikritinu.
Þar em í helstu hlutverkum Soffía Jakobs-
dóttir, Jón Sigurbjömsson, Kristján Franklín
Magnús, Edda Backman, Sigurður Karlsson,
Steindór Hjörleifsson og Aðalsteinn Bergdal.
Leikstjóri er Hallmar Sigurðsson.
A laugardagskvöld er auka-miðnætur-
sýning á Forsetaheimsókninni vegna fjölda
áskorana og er það jafnframt 40. sýning
verksins.
Sýningum fækkar
á AndarDrætti
AndarDráttur, sýning Alþýðuleikhússins,
verður sýnd að Hótel Loftleiöum annað kvöld
(laugardag) kl. 20.30. Sýningum fer nú óðum
AMERISKUR L UXUSBILL OGUM ÞAÐ ÞARF EKKI
FLEIRIORÐ
499.700
Jl____________________
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
Framdrif - Vél 2200cc - Sjálfskipting -
Aflstýri — Aflhemlar —
Hituð afturrúða — Electronisk kveikja
Deluxe innrétting — Digital klukka —
Litað gler
Fjarstýrður hliðarspegill —