Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1984, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1984, Qupperneq 3
DV. FÖSTUDAGUR 23. MARS1984. 3 Rádstaf anir vegna kjarasamninganna: Bæturnar koma 10. apríl „Um þetta þurfti aö setja lög og reglugerðir og lagafrumvarp var lagt fram á Alþingi á þriðjudag. Við búumst við fljótri afgreiðslu og að bætumar komi til greiðslu 10. apríl, reiknaöar frá 1. mars,” segir Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri í tryggingaráöuneytinu. Þama er um aö ræða þær hækkanir tryggingabóta sem ríkisstjómin hét við gerð k jarasamninganna. Eggert G. Þorsteinsson, for- stjóri Tryggingastofnunar ríkisins, sagði símana þar rauðglóandi, því að fólk hefði átt von á hækkunun- um fyrr. Páll Sigurðsson sagði að formsins vegna hefði þetta ekki getað gengið hraðar, ákvörðun hefði ekki verið tekin fyrr en 29. febrúar og því útilokaö að setja lög og reglur og reikna allt út til greiðslu fyrir 10. mars. -HERB. Saumastofan íLogalandi — f rumsýning á laugardag Frá Þórunni Reykdal, fréttarit- ara DV í Borgarfirði. Ungmennafélag Reykdæla frumsýnir Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson í Logalandi kl. 21 á laugardag. Leikstjóri er Oktavía Stefáns- dóttir, leikmynd og búningar eru unnin af hópnum og lýsing er eftir Eirík Jónsson og Jón Þórisson. Leikendur em Guðbjörg Þorsteins- dóttir, Guðleif Benediktsdóttir, Maria Ingadóttir, Steinunn Garðarsdóttir, Steinunn Geirs- dóttir, Valgerður Jónasdóttir, Armann Bjarnason, Gunnar Bjamason og Þorvaldur Jónsson. Saumastofan er eina verkefni ungmennafélagsins á þessu ári og verður það sýnt næstu vikumar. -GB. Veítt af rausn — við opnun áfengisútsölu á Selfossi Hin nýja áfengisverslun að Vallholti 19 á Selfossi var vígð síðastliðinn miðvikudag. 130 manns var boðið til veislu og var veitt af mikilli rausn, bæöi drykkur og matur. Skein ánægjan út úr Selfossbúum að vera loksins búnir að fá þessa góðu þjónustu á staðinn. Jón Kjartansson, forstjóri ATVR, setti samkomuna og bauð gesti velkomna. I ræðu sinni þakkaði hann hinum góðu og dug- legu smiðum fyrir hve fljótir þeir hefðu verið aö innrétta húsið. Veislan fór vel fram og voru veitingar góöar og ógleymanlegar. Regína/Selfossi. Brotið beinist gegn því — voru lokaorð saksóknara íhæstarétti fgær sen i er mönni iimkær- a st—lífinu isjálfu Mál ákæmvaldsins gegn Grétari Sigurði Amasyni var tekið til dóms fyrir hæstarétti í gær eftir að sak- sóknari, Þórður Bjömsson, og skipaöur verjandi, Jón Oddsson, höfðu flutt mál sitt. Að sögn Þórs Vilhjálms- sonar, forseta hæstaréttar, má vænta dóms innan eins mánaðar. Eins og fram kom í DV í gær krefst saksóknari þess aö refsing ákærða verði ekki undir 17 ára fangelsi. Verjandi telur hins vegar að refsi- ramminn eigi ekki að fara fram úr 8 til 11 ára fangelsi. Vörnin er byggð á því að ekki hafi verið um ásetningsbrot að ræða. Það hafi verið fyrir tilviljun að leið á- kærða lá að sæluhúsinu á Skeiðarár- sandi. Að skotvopn vom í bifreiðinni hafi verið tilviljun en ekki vegna ein- hverra áforma ákæröa. Voðaskot í átökum í sæluhúsinu Verjandi telur að álíta verði að stúlkan, Yvette, sem lést, hafi orðið fyrir skoti sem af slysni hljóp úr hagla- byssunni í átökum í sæluhúsinu. Þetta hafi því verið voðaskot. Hann hafnar þeirri kenningu að stúlkan hafi orðið fyrir því skoti sem ákæröi hleypti úr byssunni niðri á þjóðveginum enda kveðst ákærði þá hafa beint hlaupi byssunnar upp í loftið og hvergi nærri stúlkunni. Telur verjandi nægjanlega sannaö að ákærði hafi aldrei ætlað sér að nota skotvopnið í öðrum tilgangi en hræða stúlkurnar og hann hafi ekki vis- vitandi beint byssunni að þeim. Verjandi telur að fullyrðingar á- kæröa um hasslykt í sæluhúsinu hafi komið til vegna ofskynjunar hans eöa ranghugmynda vegna fráhvarfsá- hrifa, óreglu, og þannig verið eftirköst óhóflegrar áfengisneyslu. Vera kunni að saggalykt eða lykt af óhreinum og rökum ullarfatnaði hafi komið ákærða fyrir sem svokölluð hasslykt. Verjandi mótmælti þeirri staðhæfíngu ákæruvaldsins að við sönnunarmat á ásetningi ákærða vægi þungt það atriði að ákæröi sagði vöru- bílstjóra rangt til um málavexti. Akærða hafi á þeim tíma ekki verið kunnugt um skotsár Yvette. Hann hafi talið flutningabílinn hafa sterka tal- stöð til að kalla á hjálp en þegar svo reyndist ekki vera hafi hann beðið bilstjórann að hraöa sér eftir aöstoð. Oráðlegt hefði verið og ófram- kvæmanlegt aö flytja hina slösuöu meö flutningabílnum og engum tilgangi þjónaði að tefja tímann með skýrslu- gerð. Varðandi þá breytni ákæröa að setja stúlkuna í farangursgeymsluna sagði verjandi að ákærði hefði talið það vænlegasta kostinn. Missti sjálfsstjórn á geði sínu og heilbrigðri hugsun „Þaö sem þarna gerðist virðist mjög tilviljanakennt og tilfallandi aðstæður á staðnum meira og minna komið ákæröa úr tilfinningalegu jafnvægi þannig að hann hafi misst sjálfsstjórn á geði sínu og allri heilbrigöri hugsun svo jaörað hafi við sturlun þannig að viðbrögð hans hafi orðið tilviljana- kennd og án eðlilegrar sjálfsstjómar. Brot ákærða virðist framið í ákafri geðshræringu eða undir öðru skamm- vinnu ójafnvægi á geðsmunum á ör- skotsstund. Um ásetning er þvi ekki að ræða,” sagði Jón Oddsson ver jandi. Hann mótmælti þvi að ákærði heföi ekki játað. Játning hefði legið fyrir frá upphafL „Akærða er vitanlega ljós sekt sín og hefur viðurkennt brot sitt. Það gerði hann þegar i upphafi rannsóknarinnar. Brot ákærða var framið í geðs- hræringu. Um ásetning var ekki að ræða,” sagði verjandi. 1 síöari ræðu sinni sagði ríkissak- sóknari að ákærði hefði margoft verið staðinn að stórfelldum ósannindum. Það væru ósannindi að hasslykt hafi verið í sæluhúsinu. Það væru ósannindi að hann hafi skotiö upp í loftið á þjóð- veginum. Rakti saksóknari fleiri staöhæfingar ákærða sem hann taldi ósannindi. Saksóknari skýrði frá krufnings- skýrslu. I skýrslu læknis sagði aö 51 hagl hafi komið í bakhluta stúlkunnar. Henni hafi verið ráðinn bani með því að skotiö hafi verið á hana úr hagla- byssu. Höglin hefðu fýrr en síðar valdið dauða hennar ef ekkert hefði verið að gert. Innilokun í farangurs- geymslu bíls ákærða hafi hins vegar útUokað að stúlkan gæti haldiö lifi. „Þetta var ásetningsbrot og varðar við 211. grein hegningarlaganna,” sagði saksóknari. Tilviljun að hann varð ekki tveimur manneskjum að bana Hann rakti síðan brot ákærða gagnvart Marie Luce. „Akærði yfirgaf stúlkuna meðvitundarlausa. Þegar hann yfirgaf hana vissi hann ekki hvort hún væri lífs eða liðin. Hann skilur hana eftir á eyðistað, langt frá mannabyggð, um miðja nótt. Það var algjör hending aö stúlkan lifði þetta af. Það að stúlkan liföi þetta af var án vitundar og vilja ákærða,” sagði saksóknari. Hann sagöi að í þessu máli væri ekki aö finna nokkum hlut til refsilinunar. Þvert á móti væru mörg atriði honum til þyngingar. Lokaorð saksóknara voru: „Brotið beinist gegn því sem er mönnumkærast — lífinu sjálfu. Og það var tilviljun að hann varð ekki tveimur manneskjum að bana.” -KMU. Ákærði fannst i þessu byrgi neðariega i hliðum Hafrafells skammt frá þeim stað sem græni Mercedes Benz-billinn fannst með líki frönsku stúlkunnar i farangursgeymslu. Í byrginu var hann vopnaður riffli með kíki og hagla- byssu ásamt miklu afskotfærum. DV-mynd Guðni Bragason. Fyllilega sakhæfur en haldinn persónu- leikatruflunum Grétar Sigurður Ámason. Myndin var tekin i ágústmánuði 1982, nokkrum dögum fyrir hið örlaga- ríka kvöld. Niöurstaða geðrannsóknar, sem Hannes Pétursson yfirlæknir framkvæmdi á Grétari Sigurði Arna- syni, er sú að raunveruleikamat hans og dómgreind séu óskert og hann teljist þvi fyllilega sakhæfur. ,,Eg tel að Grétar Sigurður Ama- son sé ekki haldinn formlegri geðveiki og sýni ekki einkenni um meiriháttar taugaveiklunar- viðbrögð. Né heldur er Grétar haldinn greindarskorti,” segir í niðurstöðunni. ,JEg tel hann hins vegar haldinn persónuleikatruflunum og að hann hafi skapbresti sem ef til vill má rekja til lélegra uppeldisskilyrða í bernsku og á unglingsárum. Persónuleikatruflana Grétars virðist helst verða vart undir á- hrifum áfengis og/eða undir miklu álagi og virðast viöbrögð hans þá geta orðið heiftarleg og allt að því tilviljanakennd þó sjálfsstjórn sé sæmilegþess utan. I þvi sambandi er hugsanlegt að langvarandi þreyta og svefnleysi á- samt eftirstöðvum mikillar áfengis- neyslu kunni að hafa haft áhrif á að- dragandann að þvi atviki sem Grét- ar Sigurður er kærður fyrir,” segir geðlæknirinn. -KMU. LEIKFÉLAG MOSFELLSSVEITAR SAUMASTOFAN - HLÉGARÐI EFTIR KJARTAN RAGNARSSON MOSFELLSSVEIT SÝNINGAR: FIMMTUDAGA, FðSTUDAGA OG SUNNUDAGA KL 21.00. MIÐA- OG BORÐAPANTANIR í SÍMUM: 66822 - 66860 OG 66195

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.