Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1984, Page 6
6
DV. FOSTUDAGUR 23. MARS1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Harðar deilur í Noregi vegna fyrirhugaðs læknaverkfalls:
Læknar vilja að
Gro Harlem segi
sig úr lækna-
felaginu
— læknar hyggjast knésetja sveitarfélögin
með verkfallshótun sinni
Gro Harlem Brundtland, fyrrum forsætisráöberra Noregs, telur aögerðir lækn-
anna ábyrgðalausar en fær það svar að hún skuli segja sig úr læknafélaginu.
„Nú er nóg komið af skítkasti frá
Gro Harlem Brundtland. Hún á ekki
heima í læknafélaginu lengur.”
Þaö er Bengt-Lasse Lund, forseti
norska læknafélagsins, sem komst
þannig að orði eftir að læknafélagið
hafði lent í útistööum við Gro Harlem
Brundtland, fyrrverandi forsætisráð-
Lech Walesa gagnrýn-
ir handtöku höfundar
Lech Walesa, leiötogi Einingar í Pól-
landi, hefur fordæmt handtöku
rithöfundarins Marek Nowakowski,
sem er kunnur stjómarandstæðingur.
Walesa hefur sakað stjómvöld í Pól-
landi um að reyna að þagga niður í
rithöfundum.
I yfirlýsingu sem barst vestrænum
fréttamönnum í hendur í gær segir
Walesa: „Tilraunir era gerðar til að
þagga niður í pólskum bókmenntum.
Rithöfundur verður að vera hlýðinn
eða hljóöur. Ella verður honum
stungiöífangelsi.”
Walesa lýsti Nowakowski sem frá-
bæram rithöfundi sem heföi skrifaö
bestu bókina um heriögin sem bönnuðu
Einingu, hina óháöu verkalýðshreyf-
ingu, 1981. Nowakowski var hand-
tekinn fyrr í þessum mánuði. Hann er
49 ára gamall stuðningsmaöur Eining-
ar og andófsmaöur. Honumhefurverið
gefið að sök að hafa unniö með ótil-
greindri hreyfingu á Vesturlöndum
sem sé andstæðingur pólskra hags-
muna.
Það mátti ráða af yfirlýsingu Walesa
að þama væri átt við pólska
rithöfundinn og nóbelsverðlauna-
hafann Czeslaw Milosz, sem er
búsettur í Bandaríkjunum og hefur
þrásinnis orðið fyrir árásum pólskra
stjómvalda.
1 yfiriýsingu Walesa sagði að það
væri hræðilegt þegar menn litu svo á
aö það gæti skaöað hagsmuni Pólverja
þegar „hæfileikaríkur og sannur Pól-
verji” starfaði með Pólverjum
erlendis, sem ,,svo gáfaður og mikill
Pólverji eins og Milosz” væri fulltrúi
fyrir.
herra Noregs, vegna verkfalls sem
læknar hafa boðað til í apríl. Gro
Harlem Brundtland er sjálf læknir að
mennt og félagi í læknafélaginu.
Deilan spratt af því að Brundtland
kallaöi verkfallið ábyrgðarlaust.
,,Eg yrði undrandi ef læknar lands-
ins féllust á verkfallið,” segir hún og
vitað er að skiptar skoðanir eru um
þetta mál meðal læknanna.
Brundtland heldur því fram að litil
klika innan læknasamtakanna hafi
barið málið í gegn.
En læknafélagið mótmælir því harð-
lega. Segir að ekkert mál hafi verið
undirbúið jafnvel innan félagsins og
einmitt þetta. Samtímis er Bruntland
hvött til að seg ja sig úr félaginu.
Baksvið þessarar deilu eru heilsu-
gæsluumbætur sem fyrirhugaðar era í
Noregi. Umbætur þessar eiga meöal
annars að hafa það í för með sér að
læknar komi í auknum mæli til starfa
úti á landsbyggðinni. Samtíinis því
hafa læknar náð nýjum samningum
sér til handa sem fela í sér aukna
möguleika fyrir þá á að reka eigin
læknisstofur.
Þessar umbótatillögur, sem læknam-
ir vilja gjarnan að verði að veruleika,
era nú til umfjöllunar hjá einstökum
sveitarfélögum. Fram að þessu hafa
bara 130 af 450 sveitarfélögum fallist á
tillöguna. Það er til að reka á eftir
„jákvæðum” svörum sveitarfélag-
anna sem læknamir hafa nú boðað til
verkfalla í 312 sveitarfélögum þann 1.
apríl.
Ef verkfalliö verður að veruleika mun
neyðarþjónusta stöðvast svo og heilsu-
gæsla í skólum og elliheimilum.
Trúlegt þykir aö flest sveitarfélaganna
muni láta undan fyrir slíkum hótunum.
Fáupp-
gripa-
af la af
sinneps-
Mitterrand hvetur til
viðræðna við Sovét
gasi
Lech Walesa.
Francois Mitterrand Frakklandsfor-
seti beindi orðum sinum til Banda-
ríkjaþings og Bandaríkjaforseta í gær
á fyrsta degi vikulangrar heimsóknar
sinnar og sagði að Vesturveldin yrðu
að taka að nýju upp viðræður við
Sovétríkin. Ennfremur sagði hann þau
þurfa aö berjast gegn fátæktinni í
Þriðja heiminum ef heimsfriðurinn
ætti að haldast.
Obeinum oröum sakaöi hann Banda-
ríkjastjóm fyrir afskipti og íhlutun í
innanríkismál Suöur-Ameríkulanda,
þegar forsetarnir skiptust á borðræð-
um í kvöldveröarboöi í Hvíta húsinu í
gærkvöldi.
Leiddi Reagan þetta siöasta hjá sér
en fullvissaði Mitterrand um að
Bandaríkin leituöu friðar og öryggis.
Tíu sjómenn liggja nú á sjúkrahúsi í
Svíþjóð vegna meina sem þeir hlutu af
snertingu við sinnepsgas. Síðustu daga
hafa 40 togarar fengið sinnepsgas um
borð, þar sem þeir hafa verið aö
veiðum í suðurhluta Eystrasalts.
Meðal annars fékk færeyskur togari
sinnepsgas í vörpuna á miðunum fýrir
sunnan Gotland og þrír færeyskir
sjómenn hlutu branasár.
Enn vita menn ekki hvaðan gasið
kemur en eflir síðustu heimsstyrjökl
sökktu menn fleiri þúsund tunnum af
þýsku sinnepsgasi fyrir sunnan
Borgundarhólm.
Áskorendaeinvígi Smyslovs og Kasparovs:
KASPAROV SÁTTUR VIÐ JAFNTEFLI
Kasparov og Smyslov öttu saman
hestum sínum í sjötta sinn í Vilnius í
Litháen í gær og fór skák þeirra í bið
eftir 43 leiki. Staða Smyslovs er
sjónarmun betri en fastlega má þó
búast við að skákinni lykti með jafn-
tefli. Þeir hafa sex peð hvor í
biskupaendatafli og er staöan jö& að
ööru leyti en því að Kasparov hefur
tvípeð. Þótt Smyslov þyki snjall í
endatafli fær hann varla gert sér mat
úr svo smávægilegum stöðuyfir-
burðum.
Ljóst var að Kasparov, sem hafði
svart, gerði sig ánægðan með
skiptan hlut í gær, þvi að hann tefldi
afbrigði það af drottningarbragði
sem kennt er við Lasker og þykir í
mesta lagi gefa svörtum jafntefli. En
svartur þarf aö vanda sig ef ekki á
illa að fara og því er þetta afbrigði
ekki mikið teflt. Kasparov var hins
vegar vel með á nótunum og nýjung
hans í 17. Ieik jafnaði taflið svo til
alveg. Mikil uppskipti fylgdu í kjöl-
farið og eins og fyrr sagði era nú
aðeins eftir tveir biskupar á borðinu
og jafnteflisfnykurinn yfirgnæfandi.
Biðskákina tefla þeir áfram í dag.
Staöan í einviginu: Kasparov —
Smyslov3 1/2 — 11/2.
Hvítt: Vassily Smyslov
Svart: Garrí Kasparov
Drottningarbragð.
1. d4 d5 2. Rf3 Rf6 3. c4 e6 4. Rc3
Be7 5. Bg5
Smyslov endurtekur auðvitað ekki
5. Bf4, eins og hann lék í 4. skákinni.
Nú teflir hann aðalafbrigöiö en
Kasparov hefur undirbúið sitt af
hverju.
5. — h66. Bh4 0-0 7. Hcl Re4
Þessi hugmynd er kennd við fyrr-
um heimsmeistara Emanuel Lasker
og þykir traust og leiða til jafnteflis-
legrar stööu, því að nú verða upp-
skipti á biskupum og riddurum.
8. Bxe7 Dxe7 9. e3 c610. Bd3 Rxc311.
Hxc3 dxc412. Bxc4 Rd713.0-0 b6
Eilífðarvandamál drottningar-
bragðsins og ýmissa annarra skák-
byrjana er biskupinn á c8. Kasparov
reynir að leysa það með því að koma
honum til b7 en þessi leið hefur á sér
ógæfustimpil síðan Polugajevsky
vann Kurajica snyrtilega á stór-
meistaramótinu i Solingen fyrir tíu
árum. önnur hugmynd er 13. -e5 og
reyna að koma biskupnum út þá
leiðina.
14. Bd3 c515. Bb5!
Þannig tefldi Polugajevsky ein-
mitt. Biskupinn gerir innrás og hótar
að drepa riddarann, sem valdar c-
peðið.
15. -Hd816. Bc6 Hb817. Dc2
abcd-efgh
17. -cxd4!
Framhaldið i skák Polugajevsky
og Kurajica varð 17. -Bb7? 18. Bxb7
Hxb7 19. dxc5 og nú neyddist svartur
til þess að eyöileggja peöastöðuna
með 19. -bxc5, því að ef 19. -Rxc5, þá
20. b4 Rd7 21. Rd4 ásamt 22. Rc6 með
ógnandi stöðu. Leikur Kasparovs er
mun sterkari og vafalaust árangur-
inn af heimavinnu hans.
18. Rxd4e5!
Það er mikilvægt að reka riddar-
ann á brott áður en hann nær að
hreiðra um sig á c6-reitnum.
Kannski hefði Smyslov mátt hug-
leiða 18. exd4, því að nú nær Kaspar-
ov að jafna tafUö.
19. Rf5 Df6 20. Hdl
Svarið viö 20. b4 hefði einnig verið
20. -Rc5! T.d. 21. bxc5 Bxf5 22. Da4
bxc5 23. Hxc5 Bd3! 24. Hfcl Hb2 og
svartur hefur náð frumkvæðinu.
20. -Rc5 21. Hxd8+ Dxd8 22. Rg3 Be6
23. b4Hc8!
Þannig'nær svartur endanlega að
jafna taflið.
24. Bf3 Ra6 25. a3 Hxc3 26. Dxc3 Dc7
27. Dd2 Rb8 28. Re4 Rd7 29. h3 Rf6
Honum er sama þótt hann fái tví-
peð. Svarta staöan ætti að vera nægi-
legatraust.
30. Rxf6+ gxf6 31. e4 Kg7 32. Be2 Dc6
33. De3 Dc2 34. Kh2 Db3 35. Dxb3
Bxb3 36. Bg4 Bc2 37. Bf5 Bd3 38. Kg3
Be2 39. Bg4 Bfl 40. Kf3 Kf8 41. g3 Bc4
42.Ke3Ke743.b4
Hér fór skákin í biö og lék
Kasparov (svartur) biöleik eftir um
10 mínútna umhugsun. Varla hefur
hann mikið að óttast.
JLA