Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1984, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1984, Qupperneq 28
AFGREIÐSLA SÍMI27022 með Bítlunum í fórum sínum, alls 88 lög, flest gamalkunn bandarísk lög, en þó eru 32 lög samin af Lennon og Mc- Cartney. Einhver von mun um útgáfu sumra lag- anna. . . Listahátíðarnefnd segist vera að kanna hingað- komu Duran Duran, Bob Dyl- an og Kinks á hátíðina í sum- ar. Má upplýsa að Duran Duran er bókuð á hljómleika í Bandaríkjunum í sumar, Bob Dylan og Santana hafa tekið upp samstarf og ólík- legt að pyngja Listahátíðar ráði við þann reikning, en veik von er með Kinks sem OPr- ■ W CM SMÆLKI Sæl nú! Flestir eru nú farnir að gefa út plötur. George Best, fótboltakappi og fyrrum fylliraftur, hefur sungið inn á piötu ásamt unn- ustu sinni og ungfrú alheimi, ary Stavin, og útgáfan er iður í mikilli líkamsræktar- ..erferð parsins en lagið heit- ir: It Takes Two To Shape Up and Dance. . . Status Quo hyggst leggja af hljómleika- ferðir og síðasta upptroðslan verður utan dyra í Lundúnum um miðjan júlí, en löngu er uppselt á hljómleikaröð í byrjun sumars. Von er á svana- söng Soft Cell í formi breið- skífu nú í lok mánaðarins, This Last Night In Sodom og Bananarama og Blancmange gefa út plötur í byrjun apríl. . . Eins og komið hefur fram fann BBC upptökur ferðast um Evrópu næstu mánuðina. . . Frankie Goes to Hollywood er áT leiðinni með nýja smáskífu til að fylgja eftir Relax-laginu; nýja lagið heitir two Trib- es. . . Motorhead hefur stokkað upp spilið og Lemmy er eini upphafsmaður sveit arinnar sem eftir er. Tveir nýir gítaristar og trommari úr Saxon, Pete Gill, eru inn- anborðs.. . Nýja breiðskífan frá KajaGooGoo er væntan- leg í byrjun næsta mánaðar- . .. Nena er síður en svo fyrsta þýska hljómsveitin sem kemst á topp breska list- ans. A síðustu árum hefur Goombay Dance Band, Trio og Nicole, gist toppsætið í Bretlandi. . . Meðal laga á nýrri breiðskífu Rockwells er bítlaperlan Taxman eftir George Harrison. \ -GSL Tónlist frá heimkynnum kondórsins í FLESTAR GERÐIR BIFREIÐA. HLÝ TEYGJANLEG EFNI í FJÖLBREYTTU LITAÚRVALI BENSÍNSTÖÐVAR SKEUUNGS SKELJUNGSBÚÐIN SÍÐUMÚLA Hér á landi hafa hinar suður- amerískupanflautur veriölítt þekktar og ekki veit ég til þess að nokkur Is- lendingur hafi spilaö á þær svo að heyrst hafi. Þau litlu kynni okkar af þessum flautum eru af plötum rúmenska flautuleikarans Zamfir. Hann hefur undanfarín ár útsett vinsæl dægurlög og stef úr klassískum verk- um fyrir þessar flautur með allgóðum árangri og hafa þessi lög mikið verið spiluö í ríkisfjölmiðlunum. En panflauturnar eru ekki gerðar til þess að spila vestræn dægurlög heldur eru þær einkenni á suður-amerískum þjóð- lögum og eru hljóðfæri sem indíánamir í Andesfjöllum hafa þróað fyrir sína tónlist. Incantation er bresk fimm manna hljómsveit sem hefur tekið fyrir þetta sérkennilega hljóðfæri og spilar þá tónlist sem sköpuð er fyrir panflautur. Hafa þeir gefiö út tvær hljómplötur þar sem þeir hafa útsett þessi þjóðlög á mjög svo aðgengilegan hátt að unun er að hlusta. En þaö þarf að hlusta vel til aö finna hin sérkenni- legu áhrif sem þessi tónlist hefur á mann. Til fyllingar við stefin spila þeir einnig á hina ýmsu gítara, spænska og suður-ameríska og em greinilega engir byr jendur á því sviði. Incantation gaf út fyrstu plötu sina fyrir tveim árum og nefnist hún Cacharpaya (Panpipes Of The Andes). ÖIl lögin tólf á plötunni eru suður- amerísk þjóölög aö undanskildu einu. Á þeirri plötu em meðlimir Incantati- on sjö, en tveir þeirra heltust fljótt úr lestinni, enda virðist mér þeir tveir vera minniháttar þegar miö er tekið af seinni plötu Incantation. Utsetningar á þjóðlögunum eru aðgengilegar og þrátt fyrir yfirleitt einföld stef hefur þeim félögum tekist aö gæöa tónlistina því lífi með út- setningum sínum sem þarf til að hinn almenni hlustandi leggi við eyrun. Enda fór svo að platan varð mjög vinsæl og titillagið Cacharpaya fór hátt á breska vinsældalistann. Það vekur nokkra furðu að þjóölag spilað á panflautur og gítara skuli komast á vinsældalista, en það sýnir það að sé góð tónlist spiluö reglulega getur allt skeð. Cacharpaya er takt- mikið lag sem hefur fengið frábæra|- meðhöndlun félaganna í Incantation, og þaö má einnig segja um lögin og plötuna í heild að betri meðhöndlun geti þessi þjóðlagatónlist ekki fengið í hinum vestræna heimi. Þrátt fyrir hinar óvæntu vinsældir Cacharpaya (Panpipes of The Andes) hafa þeir Forbes Henderson, Simon , Rogers, Mike Taylor, Tony Hinnigan og Chris Swithinbank, sem skipa Incantation, ekki freistast til aö breyta um tónlistarstefnu. Á nýjustu plötu þeirra, Dance Of The Flames, er enn að finna suður-amerísk þjóðlög i útsetningum þeirra. Það sem helst hefur breyst er að söngurinn skipar meiri sess hjá þeim en á Cacharpaya. Á þeirri plötu var aðeins eitt lag raddað, en á Dance Of The Flames er hægt að tala um aö þrjú lög séu sungin og kemur þaö ekki niður á gæðum laganna. Sungiö er á f rummáli. Það eru í heild litlar breytingar á tónlistinni frá fyrri plötunni. En samt finnst mér eins og meira hafi verið lagt í útsetningar og upptökuvinnu á Dance Of The Flames, enda sjálfsagt meiri peningar verið til umráða. Það eru tíu lög á plötunni, allt þjóðlög í útsetningum Incantation. Og það er sammerkt meö þessum tveim plötum að erfitt er að gera upp á milli laga. Annaðhvort finnst þér þessi tón- list góð og þá finnst þér öll lögin góð, eða á hinn veginn, þér líkar ekkert. En viss ef ég um að allir unnendur hvers konar þjóölagatónlistar grípa þessar plötur fegins hendi. Þetta er sjálfsagt einhver besta kynning sem suður- amerisk þjóðlagatónlist hefur fengið í hinum vestræna heimi. ÍNCANTATION — CACHARPAYA (PANPIPES OF THE ANDES) - DANCE OF THE FLAMES Það getur verið dálítiö óþægilegt að fá í hendur plötu hverrar aöstand- endur eru algerlega framandi; þama er plata með tíu lögum og á albúminu er mynd af fimm náungum og á texta- blaðinu eru þeir nafngreindir (þó þannig að maður veit ekki hver er hvað) og svo er bara að hlusta. Þrátt fyrir nokkrar eftirgrennslanir tókst mér ekki að afla frekari upplýsinga um þá sveit sem hér á í hlut, þýsku (það byggi ég á nöfnum meðlimanna) Nyjar plötur hljómsveitina Twelve Drummers Drummlng, og er við hæfi að senda dreifingaraðilum hérlendis litla ádrepu fyrir að láta ekki upplýsingar fylgja slikum nýstirnum. En kannski ókunnugleikinn tryggi fremur hlut- læga hlustun. Eg geri fastlega ráð fyrir því að þetta sé fyrsta breiðskífa sveitarinnar þar sem platan er ekki sérstaklega nafngreind. Og innihald plötunnar bendir líka í þessa átt. Tónlist TDD er nokkuö ungæðisleg og á eftir að taka verulegum þroska ef að líkum lætur. Músíkin myndi flokkast undir léttverk- aö popp, ekki þó af allra léttasta meiöi því að þeir bera sýnilega nokkrar .taugar til „artrokksins”, samanber Genesisstæl í laginu Your Voice og einnig er ljóst að David Bowie stendur þeim ekki fjarri, söngvaranum i það minnsta, sem fellur í eftiröpunargryfj- una eins og fleiri (hver láir þeim þaö svo sem?) í laginu Have You Heard It? Það sem tengir tónlistina yngri stefn- um er helst mjög svo einfaldur bassa- leikur sem mér finnst passa illa inn í annars metnaöarfull lög, ég nefni sem dæmi Out On The Streets. Lögin sem slík eru mörg hver ansi álitleg og vel til þess fallin að „fara á heilann á manni”. Laglínur verða því að teljast frambærilegar en ekkert lag- anna er þó að mínu mati líklegt til að seilast hátt á lista, platan er mjög jöfn út í gegn, rís hvergi verulega hátt en dettur heldur ekki niður fyrir gott meðallag. TDD er fimm manna sveit og ástæða til að kynna liðið: Ralf Aussem (gítar), Colin Drummond (hljómb.), Rudi Edgar (söngur), Kurt Schmidt (bassi) ogSibiSiebert (trommur). Það eru þeir Edgar og Schmidt sem að mestu sjá um lagasmíðar þótt allir meðlimir komi við sögu og nokkrir að auki. Athygli hlustenda beinist fyrst og fremst að Edgari söngvara sem skilar sínu með prýði og er ekki hægt að heyra á framburöi hans að hér sé Þ jóð- verji á ferð. Aörir meðlimir sýna lítil tilþrif sem vert er að nefna, heildin er góð á kostnaö einstaklingsins (stenst þetta?). Semsagt: ágætisfrumraun hjá þýskum drengjum en tónlistin í léttara lagi. -TT. IIMCANTATIOIM TWELVE DRUMMERS DRUMMING: Ungæðisleg en lofar góðu /^Tgwlislarij SÆTA ÁKLÆÐI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.