Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1984, Side 17
17
Mtt>rpqrAvr a<* orrn a ottta a ** i..m
DV. MÁNUDAGUR 26. MARS1984.
Gerír herskylda menn að betri
þjóðfélagsþegnum? Sú er skoðun
bréfrítara.
Einkenni íslensks
þjóðfélags:
Tillitsleysi og
eigingirni
Islendingur skrifar:
Meö tíðari samgöngum og sam-
skiptum viö ýmsar erlendar þjóöir og
miklu nánara sambandi viö þjóðlíf
þeirra erlendu gegnum sjónvarp, t.d.
af fréttaflutningi, er fólk fariö aö gera
sér gleggri grein fyrir þeim mismun
sem er á þjóðlífi okkar og því er annars
staðar tíökast, ekki síst í þeim löndum
sem við höfum mest samskipti við.
Þessi samanburður verður okkur Is-
lendingum ekki í hag, því miður. Og
það sem verra er, flestir okkar virðast
vera sammála þessu ef þetta er rætt
ofan í kjölinn manna á milli en breyt-
ing verður þó ekki til batnaöar svo
marktæksé.
I erindi sem haldið var á fundi í
félagi einu hér í borg fyrir skömmu var
gerð tilraun til að útskýra hegðunar-
mynstur í þjóðlífi Vesturlanda og
Austurlanda og aðalmismun á því og
svo hins vegar reynt að greina mis-
mun þessa mynsturs hér á Islandi og
nágrannalanda okkar eða öllu heldur
þeirra landa sem við höfum nánust
tengsl við í samgöngum og viðskiptum.
Auðvitað hlýtur að vera munur á
þjóðlífi því sem á sér stað á eyju svo
langt norður í hafi sem hér og því sem
þróast hefur gegnum aldir við háborð
lista og tæknibyltinga hverra af ann-
arri.
En fleiri þjóöir hafa búið við kröpp
kjör en Islendingar. Það er því nær
óskýranlegt hvers vegna þjóðlíf er hér
á landi meö allt öðrum hætti en annars
staðar hvað varðar hegðunarmynstur í
heildarmynd þjóðlífsins.
Sóðáskapur og hirðuleysi setur svip
á umhverfi og eignir. Skemmdarverk
eru framin á víðavagni að tilefnis-
lausu, jafnt í þéttbýli sem dreifbýli.
Tillitsleysi og eigingirni setja svip á
umgengnishætti.
Það er óþarfi að taka sérstök dæmi,
þau eru öllum ljós. Umferðarmál á
frumstigi vegna tillitsleysis. Við-
skiptalíf í viöjum vegna eigingirni og
vanþroska og ókurteisi í hámarki
vegna tillitsleysis.
Annars staðar í heiminum er einnig
pottur brotinn. Róstutímar renna upp
með vissu millibili. Morð, rán og
ofbeldi eru ekki fátíð í nágrannalönd-
um frekar en annars staðar.
En þjóðlíf í dagsins önn er með
öörum hætti en hér á landi. Fólk á ekki
í samskiptaörðugleikum á almanna-
færi og kurteisi er aðalsmerki almenn-
ings. Fólk umgengst lystisemdir og
velsæld af eins konar vegnu meðalhófi
en vegur í góösemi að velsæminu og
nýtur lífsins eftir efnum og ástæðum
en ekki umfram.
Frumskilyrða fyrir slíku þjóðlífi er
að leita í uppeldi og aga. Hvorugt er
fyrir hendi hér á landi. Skóla og heimili
skortir hvort tveggja. Herskylda hjá
öðrum þjóðum, raunar öllum, er liður í
aga og uppeldi. Island er eina landið í
heiminum þar sem enginn hefur nein-
um skyldum að gegna við fööurlandið.
Þegnskylduvinna á yngri árum, t.d.
eitt ár við hvað eina sem kæmi þjóð-
félaginu að gagni, myndi gjörbreyta
lífsháttum og þjóöfélagsgerð. En á það
má ekki minnast. Einn þingmaður
Sjálfstæöisflokksins bryddaði upp á
þessum „ósköpum” á Alþingi fyrir
mörgum árum. Hann mátti þakka
fyrir að sleppa lifandi heim í hérað!
Bprnin okkar skyldu aldrei neinum
skyldum gegna. Ævarandi frelsi tii
orðs og æðis heitir það. Frelsi til
hvers?
Og áfram heldur þjóðlífið í takt við
tillitsleysi, eigingirni, skemmdarverk
og sóðaskap í bland.
PARDUS HF
SMIÐJUVEGI C28
KÓPAVGGI - SÍMI 79011.
NÝTT LAKK OG LYKTARLAUST
KOPAL FLOS og KOPAL JAPANLAKK_________________________________
Nýja KÓPAL-lakkið frá Málningu hf. hefur heldur betur KÓPAL-lakkið gerir þér kleift að lakka án þess að
slegið í gegn, enda má segja að það hafi ákveðna kosti, menga andrúmsloftið og valda heimilisfólkinu berjandi
sem ekki sé hægt að líta frctmhjá í vali á áferðafallegu höfuðverki. Kópal lakkið er lyktcirlaust. Þú lakkar svo
lakkii KÓPAL lakkið fæst bæði gljáandi, (KÓPAL að segja hvað sem er - og skolar síðan úr áhöldunum
JAPANLAKK) og perlumatt (KÓPAL FLOS). með vatni.
Betra getur það varla verið.
PLEGEL
HÚSSINS
PLEGEL-
stallaða þakstálið
er í heilum plötum í
mörgum lengdum.
LITIR:
Svart, rautt og brúnt -
Allir fylgihlutir og saumur
í sömu litum
Fyrirliggjandi á lager.
Einnig bjóðum við ýmsar
aðrar prófílgerðir
fáanlegar við sérpöntun
í mörgum þykktum,
litum og lengdum.
PLEGEL þakstálið neglist beint á
pappaklætt þak — þarf enga grind.
\