Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1984, Blaðsíða 42
DV. MANUDAGUR 26. MARS1984.
r...............1
Aðalfundur
Aöalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur veröur hald- 8
inn mánudaginn 26. mars nk. aö Hótel Sögu, Átthagasal, kl.
20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga að reglugerðarbreytingum ■
fyrir fræðslu- og menningarsjóð VR.
Stjórn félagsins hvetur félagsmenn til að fjölmenna á fundinn.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. ■
flAUSAR STÖDUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa.
Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Deildarfulltrúa hjá Trésmiðju Reykjavíkurborgar.
Upplýsingar veitir rekstrarstjóri Trésmiðju í síma 18000.
Forstöðumenn á eftirtalin dagheimili: Laufásborg, Laufás-
vegi 53—55 og leikskólann Tjarnarborg, Tjarnargötu 33.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri eða umsjónarfóstrur
á skrifstofu dagvistar barna^ Fornhaga 8, í síma 27277.
Umsóknarfrestur er til 6. apríl.
Skrifstofumann hjá starfsmannahaldi Reykjavíkurborgar.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma 18800.
Halldóra Rafnar og Sjöfn Sigurbjörnsdóttir. Þær sátu dagana 3. og 4. mars ráðstefnu i Helsinki i Finnlandi
um öryggis- og afvopnunarmál. Tii ráðstefnunnar var boðað af kvennahreyfingum stjórnmáiafiokka sem
sætieiga á finnskaþjóðþinginu. DV-mynd Bjarnleifur.
Að ef la öryggi og
f rið í heiminum
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 6. hæö, á sérstökum umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00 mánudaginn 2. apríl 1984.
Greió
er gámaleió
Gámar, stórir gámar, lltlir gámar, opnir gámar,
lokaðir gámar, þurrgámar, Jrystigámar, gafl-
gámar, tankgámar... Nejndu bara hvers konar
gám þú þaijt undir vöruna. Við höfum hann.
Og auðvitað höjum við öll Jullkomnustu tæki til
þess að Jlytja gámana að ogjrá skipi — og heim
að dyrum hjá þér, ej þú vilt.
Við tryggjum þér öruggaJlutninga, því að þá vit-
um við, að þú skiptir ajtur við okkur.
Skipadeild Sambandsins annastJlutningaJyrir
Þig-
m
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SlMI 28200
— rætt við þær Halldóru Raf nar og Sjöfn Sigurbjörnsdóttur,
en þær sátu nýlega ráðstefnu kvenna í Helsinki um öryggis-
ogafvopnunarmál
„Það var á margan hátt fróðlegt að
sitja þessa ráðstefnu. Á henni kom
fram greinilegur vilji á að minnka þá
togstreitu sem aukist hefur á milli
landa vegna vaxandi vigbúnaðar í
heiminum. Og orð eru jú til alls fyrst. ”
Þetta sögðu þær Halldóra Rafnar,
formaöur Landssambands sjálfstæðis-
kvenna og Sjöfn Sigurbjörnsdóttir frá
Sambandi alþýöuflokkskvenna, en þær
sátu dagana 3. og 4. mars ráöstefnu í
Helsinki í Finnlandi um öryggis- og af-
vopnunarmál.
Til ráðstefnunnar var boðað af
kvennahreyfingum þeirra stjórnmála-
flokka sem sæti eiga á finnska þjóö-
þinginu. Þessar kvennahreyfingar
hafa áður haldið svipaðar ráðstefnur,
árið 1973 fyrir Helsinkifundinn og 1980
fyrir Madridráðstefnuna.
Þátttakendur á ráðstefnunni í
Heisinki voru 78 frá 43 kvenna-
hreyfingum í 17 löndum Austur- og
Vestur-Evrópu. Þetta var í fyrsta
skiptið sem konum frá Islandi var
boðið.
Þær Sjöfn og Halldóra sögðu að
meöal annars hefði veriö rætt um að
minnka togstreituna með þvi að auka
samskipti á milli þjóöa.
„Okkur fannst einnig mjög athyglis-
vert að konur frá austantjaldslöndun-
um svokölluðu, sem voru í meirihluta á
ráöstefnunni, lögðu mikla áherslu á aö
frjáls félagasamtök á Vesturiöndum
létu þessi mál til sin taka.
Þetta er athyglisvert vegna þess að
í austantjaldslöndunum eru jú miklar
hömlur settar á stofnun frjálsra
félagasamtaka.”
Á ráðstefnunni var lögð áhersla á að
Stokkhólmsráðstefnan, er nú ræðir,
öryggis- og afvopnunarmál, og ríkis-
stjómir, stefni að alhliöa afvopnun
meðþví að:
1) Taka afstöðu gegn notkun kjarn-
orkuvopna.
2) Styðja aö komiö veröi á kjarnorku-
lausum svæðum þegar þar sem
viðkomandi ríki hafa oröiö sammála
um slíkt.
3) Einsetja sér að ekki verði nein
kjarnorkuvopn í Evrópu né verði þeim
beintaðEvrópu.
4) Að fram fari „frysting” kjamorku-
vopna sem skref í átt til alhliða af-
vopnunar. Verði þetta gert á jafn-
réttisgrundvelli þar sem öryggis allra
aðila verði gætt.
-JGH.
Bókaklúbbur AB
gef ur út Mýs
og menn
Bókaklúbbur Almenna bóka-
félagsins hefur sent frá sér skáld-
söguna Mýs og menn eftir John
Steinbeck í þýöingu Olafs Jóhanns
Sigurðssonar.
Þessi stutta skáldsaga er einhver
frægasta bók Steinbeck og hefur
tvisvar verið kvikmynduð síðan hún
kom fyrst út árið 1937. Siðari kvik-
myndin var sýnd í íslenska sjón-
varpinu fyrir skömmu.
Leikgerð samdi höfundur einnig af
bókinni og hefur hún verið sýnd víöa
um heim, m.a. hér í Iönó.
Þýðandinn, Olafur Jóhann
Sigurðsson, segir um bókina í eftir-
I mála viö þessa útgáfu hennar:
| „Þessi útgáfa á Músum og mönnum
j er önnur útgáfa bókarinnar á íslensku
en fýrri útgáfa hennar kom út 1943”
Hefur Oiafur Jóhann endurskoöað
fýrri þýðingu sína svo rækilega að
segja má að um nýja þýðingu sé að
ræða enda er þessi þýðing svo góð að
sagan er ekki síður bókmenntaperla á
íslenskunni en frummálinu.
Þessi útgáfa Músa og manna er
myndskreytt af norska myndlistar-
manninum öyvind Hansen. Bókin er
189 bls. með eftirmála þýðandans. Hún
er prentuð í Prentstofu G. Benedikts-
sonar og bundin í Félagsbókbandinu
hf.
Ofið
altaris-
klæði
fært kapellu
kirkjugarðs
Hafnarfjarðar
Stjórn Kvenfélags Hafnar-
fjarðarkirkju gaf nýrri kapellu
kirkjugarösins í Hafnarfirði ofið
altarisklæöi fyrir skömmu. Frú
Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir
gerði klæðið sem er ofið úr hvítum
hör með jafavefnaöi, einföldustu
vef naöargerð sem þekkt er.
A framhlið klæðisins er lat-
neskur kross byggður úr 12 fer-
hyrndum flötum og á bakhlið þess
eru þrjár súlur sem tákn
himinsins. Ofan í krossinn og
súlurnar eru saumaðir þrír píra-
mídar sem tákn heilagrar, þrenn-1
ingar.
Jóhanna Andrésdóttir, for-
maður kvenfélagsins, afhenti
klæðið og Eggert Isaksson, for-
maður kirkjugarðsstjórnar, veitti
þvi viðtöku og þakkaöi hina
höfðinglegu gjöf.
-GB.