Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1984, Qupperneq 31
*LlJBsióla
Uappb°rð-
"Kncfir ’
tendur-
995.
__' i
I.UNDfA htni
*ótal uppsétr
igarmó jfuleikar, ótrúlej
*fÍl tflUttU5
’orðsstóí;
GRAretEHdfR
fyifir lérmmgamej
Þ ngholt ;stræti
Símar
ionna*,, ao arrr*AmTTA\Trr
DV. MÁNUDAGUR 26. MARS1984.
Segir Jón Bragi aö rannsóknir á
þessu sviði hafi hingað til farið fram
með aðstoð lausráðins fólks og hafi
rannsóknir fyrst og fremst miðað að
því að athuga það hráefni, sem fellur
til hér á landi, sérstaklega í landbúnaði
og s jávarútvegi og að kanna vinnsluað-
feröir sem falla best að þessu hráefni
og aðstæðum innanlands. 1 öðru lagi
haf a rannsóknir miðað að því að kanna
þá framleiösluvöru sem úr hráefninu
fæst, sérstaklega ef það er úr sjávarút-
vegi. Þá hafa einnig verið athugaðir
möguleikar á beitingu nýrra aöferða
líftækninnar við hefðbundna atvinnu-
vegi eins og fiskvinnslu og mjólkur-
iðnað.
Hveraörverur og ensím
úr fiskúrgangi og
sauðfjárgörnum
Aðspurður um framtíðarmöguleika
líftækni á Islandi taiar Jón Bragi um
tvo flokka í því sambandi, annar flokk-
urinn snertir vinnslu lífefna og hinn
snýr að notkun nýrra lífefna.
„Mikið er af lyfjaefninu heparin í
sauðfjárgörnum og er það auðvinnan-
legt eftir aðferð sem hönnuö var á
Raunvísindastofnun. Þrjár skýrslur
liggja fyrir um vinnslu heparins.
Heparin kemur í veg fyrir blóðstorkn-
un og er m.a. notað við skuröaðgerðir.
Mætti selja lyfiö til útlanda sem og
raunar ensím líka sem vinna má úr
sauðfjárgömum.
Vinnsla ensíma úr fiskúrgangi hefur
verið til athugunar um nokkurt skeið.
Mest áhersla hefur verið lögð á vinnslu
próteiknkljúfandi ensíma úr skúfum
og görnum þorsks. Nú liggur fyrir að-
ferð til þess að vinna grófhreinsaða
ensímblöndu úr þessi hráefni, sem
nota má i ýmsan iðnað en mikil vinna
er framundan til að fullhreinsa ensím í
blöndunni. Fullhreinsuð ensím eru
margfalt verðmætari.
Þá er möguleiki á að vinna ensím úr
sláturúrgangi. Loks má geta ensíma
úr hitaþolnum hveraörverum sem yrði
ódýr aöferð til að nota í þvottaefni eða
meltuvinnslu sem hvort tveggja fer
fram við háan hita. Þarna er dæmi um
sérstöðu okkar í ensímiðnaöi en ég veit
að Nýsjálendingar sem eygja þennan
möguleika hjá sér eru farnir að þreifa
fyrir sér. Ef við förum út í aö rækta
örverur gætum við notað amínósýrur
og peptíöin úr slógmeltunni eða sykur
unninn úr mysu. Slíkt yrði geysileg
aukning verðmæta slógmeltu og mysu.
Talandi um mysu vil ég víkja að
notkun nýrra lífefna og nefni helsta
möguleika þar, sykur unninn úr mysu,
síldarverkun með ensímum, roðflett-
ingu síldar með ensímum og ostagerð
með ensímum úr þorski.
Mysu er nú að mestu leyti heilt í s jó
en sykur unninn úr henni mætti nota í
fóður, sælgæti, brauð, kökur og drykki.
Þá mætti brugga úr sykri mysunnar
etanól sem Brasilíumenn nota í stað
bensíns að miklu leyti og er slíkt gert
án þess aö breyta þurfi vélum bifreið-
anna.”
Jón Bragi segir að á síöasta ári hafi
rannsóknir á verkun saltsíldar farið
fram á Raunvísindastofnun sem miöi
að því að skilja geril verkunarinnar.
,,Fyrsta áfanga þessara rannsókna er
nú senn lokið og bendir margt til þess
aö verkun saltsíldar verði fyrst og
fremst fyrir tilstilli ensíma úr
meltingarvegi síldarinnar. Ef það
reynist rétt opnast ýmsir athyglisverð-
ir möguleikar á síldarverkun með
ensímum úr síld eða þorski. Þá benda
líkur til aö nota megi próteinkljúfandi
ensím úr maga þorsks við ostagerð í
stað ensímsins renníns úr kálfum sem
er dýrt og takmarkað aö magni þótt
viö höfum ekki rannsakað þetta aö ráði
enn.”
Þetta segir Jón Bragi aö séu aðeins
nokkur dæmi um þá verðmætaaukn-
ingu sem átt gæti sér stað eða upp á
nokkur þúsund milljónir króna árlega
— þótt ekkert af þessu verði að veru-
leika nema fjárfest sé í rannsóknum og
innlendri þekkingaröflun.
Iðnaður fyrir fámenna,
neyslufreka þjóð
,,Eg held að við Islendingar gætum
átt góða möguleika á hinum alþjóðlega
markaði lífenfaiönaðar þótt það sé enn-
þá spurning hvemig við komumst inn á
þann markaö. Sem stendur eigum við
200 gramma ensímblöndu í krukku hér
í ísskáp á Raunvísindastofnun og það
dugir skammt til kynningar á fram-
leiðslunni á erlendum mörkuðum.
Ahugaleysi fjárveitingavaldsins og
forystumanna atvinnuveganna stafar
fyrst og fremst af eðlilegum þekking-
arskorti. Auk þess hefur auðfenginn
afli undanfarinna ára og áratuga slævt
viðleitni manna til nýjunga en það er
lífsnauðsyn að nýta betur innlent hrá-
efni, einkum þegar er skortur á því.
Lífefnaiðnaðurinn er ekki mannfrekur
en skilar miklu í aöra hönd og það er sú
tegund atvinnustarfsemi sem fámenn,
neyslufrek þjóð þarf á að halda,” segir
Jón Bragi Bjamason.
Nefnir Jón Bragi sem dæmi að
framleiöslan í ensímiönaði sé fyrir-
huguð um 75 þúsund tonn á næsta ári
aö verðmæti um G00 milljónir dala. Tel-
ur hann að ef stjómvöldog samtök í at-
vinnuvegum sjái sér fært að hefjast
handa um að styrkja rannsóknir á \
þessu sviði strax telji hann möguleika i
á því aö Island geti skapað sér stóran !
sess í þessum iðnaði á heimsmarkaöin- i
um vegna sérstæðra hráefna okkar og
eðli atvinnuvega okkar.
HÞ
íslensks iðnaöar — Framtíð íslensks iðnaðar — Framtíð íslensks iðnaðar — Framtíð
Reykjavík: 91-31615/86915
Akureyri: 96-21715/23515
Borgarnes: 93-7618
Víðigerði V-Hún.: 95-1591
Blönduós: 95-4136
Sauðárkrókur: 95-5175/5337
Siglufjörður: 96-71489
Húsavík: 96-11940/41229
Vopnafjörður: 97-3145/3121
Egilsstaðir: 97-1550
Seyðisfjörður: 97-2312/2204
Höfn Hornafirði: 97-8303
interRent
Akureyri: Verslunin Kompan. Akranes: Verslunin Amor. ísaflörður: Húsgagnaverslun ísafjarðar. Keflavík: Verslunin Róm. Sauðárkrókur: Hátún Vestmannaeyjar; Verslunin 1
VEF0 FRÁ 342.000 KRÓNUM, MED RYDVÖRN
Reynsluaksturiboði ** E *T7\
/ SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200