Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Síða 7
DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1984. Uti viö ysta sæ, nánar tiltekið í Kántrýbæ á Skagaströnd. Staðurinn er frekar miðsvæðis í þorpinu og stórt skilti dregur athyglina að. Þetta er ekki mjög stórt hús, séð að utan, en reynist stærra þegar inn er komið. Maður gengur sjávarmegin inn, þar var Hallbjöm að opna nýjan stað, Kántrý II, ferðamannaverslun og sjoppu með tilheyrandi spilakössum og afdrepi fyrir ferðamanninn að láta ferðaþreytuna líða úr sér. Þaö er innangengt í Kántrýbæ, sjálfan mat- sölustaðinn sem er lokaður 8 mánuði á ári. Túrisminn nær ekki til Skaga- strandar nema yfir sumarið, gerði það eiginlega ekki heldur þá fyrr en kántrýæðið hélt innreið sina. Hallbjöm hefur miklar fyrirætlanir um uppbyggingu Kántrýbæjar í sam- bandi við tónlistarsköpunina. Þegar hann gefur út Kántrý HI sem gæti orðið í sumar, ef guð og peninga- stofnanir lofa, ætlar hann aö fara að hugsa um að innrétta loftið og opna þar Kántrý III. Hann hefur líka látið sér detta í hug að færa umhverfi Kántrýbæjar meira í vestrastíl með því að reisa grindur til að hestamenn geti bundið fáka sína og dalla til að brynna þeim. Og ein hugmyndin er að á hverju sumri verði haldin kántríhelgi á Skagaströnd. „Þaðan kemur þetta ís- lenska kántrí,” segir Hallbjörn, ,,og Skagaströnd hlýtur alltaf aö verða musteri þeirra sem dá þessa tónlistar- stefnu.” Mestar áhyggjur hefur hann nú af því að þessar hugmyndir verði allar kæfðar í peningaleysi. „Ef þetta gengur ekki hjá mér í sumar meö Kántrýbæ, þá er ég á hausnum,” segir Hallbjörn. „Þá deyr þetta villta vestur hér á Skagaströnd.” Við settumst niður inni í Kántrýbæ. Staöurinn er smekklega innréttaður í anda stefnunnar. A veggjunum hanga plötur kántrikóngsins og aðeins eins er saknaö, lífs. Gestanna er ekki að vænta fyrr en í sumar. Þá verður Hallbjöm ef til vill kominn með ýmsar skemmtileg- ar nýjungar í matargerðarlistinni. Hann er til dæmis að hugsa um að bjóða upp á baunarétti eins og þeim fyrir vestan geðjast svo vel að. Nú urðum við að láta kaffi og kökur nægja meðan við áttum tal saman. „Fyrstu plötuna sem ég syng inn á gef ég ekki út, það er Svavar Gests sem gerir það. Hún hét Hallbjörn syngur eigin lög og var miklu meira svona í klassískum stíl. Svo kemur Kántrý I árið 1981 og þá er ég útgefandi sjálfur. Ég spurði Svavar eftir fyrstu plötuna hvort hann væri tilbúinn að gefa út aðra plötu með mér. Hann játti því nú svona fyrst en dró í land. Þessi fyrsta plata gekk ekkert ofsalega vel fyrst, ég var óþekktur og hanri reiknaði með því að hún myndi ná lengra strax. Það varð úr að Svavar sagöist ekki geta gefið þessa plötu út af ýmsum á- stæðum. Eg var ákveðinn í að láta aðra plötu koma út svo ég ákvað að gefa hana út sjálfur og fékk í þaö fjárhagsaöstoö. Eg var ekkert þekktur og kántrí- stemmningin að byrja hér á landi, Oðal þá að fara af staö og fleiri svona staðir. Það var líka að byrja svolítiö æði í fatnaði og svona. Mér datt í hug að fyrst svona áhugi var fyrir þessu þá væri ekki svo vitlaust að leita fyrir sér einmitt á þessu sviði. Þar fyrir utan hef ég alla tíð haft ákaflega gaman af kántrítónlist og hlustaði mikið á hana þegar ég vann á Keflavíkurflugvelli. ” Hvenær varstu þar? „Það var um 1955. Eg vann þar í eld- húsi og smíðum í þrjú sumur.” Ertukokkur? „Nei, ég er ómenntaður kokkur. Eg hef verið kokkur til sjós, svolítið svona, en ég er ekki lærður. ” Svo kemur Kántrý II. Hvað er um hanaaðsegja? „Það var akkúrat ári síðar sem ég fór í stúdíó. Kántrý I gekk ofsalega vel og ég var hvattur til að halda áfram. Það vantar nú ekki, maður er vel hvattur sko, þó það hafi nú kannski svona takmarkaö að segja. En þess vegna fór ég út í Kántrý II og taldi mig alveg öruggan með að ég mundi alveg sleppa frá henni. Eg er bara ekki sloppinn frá henni.” Hvað kostaði þessi plata? „Þessi plata kostaði út úr stúdiói, fyrir utan allan auglýsingakostnað og slíkt, rúm 500 þúsund. Það var náttúr- lega einum of mikið. Eg er ekki búinn að selja af henni nema svona 1700 plötur sennilega, en Kántrý I seldist í 1000 eintökum á þremur mánuðum. Inn í þetta spilar náttúrlega dýrtíðin og peningaástandið hjá fólki. Eg heföi þurft að selja svona 2400 plötur til að komast nokkum veginn skaðlaust út úr því. Annars eru ástæðumar fyrir þess- ari tregu sölu fleiri. Eg tel mig til dæmis hafa sannanir fyrir því að þaö hafi ekki verið staðið nógu vei að dreifingunni á henni hjá Steinari.” Kántríkóngur á hausnum Heldurðu að þeir hafi ekki haft trú á plötunni? - sjá næstu síóu Hallbjjöm Hjartarson heimsóttur í Kántrýbæ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.