Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Blaðsíða 10
10
DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1984.
TRULOFUNARHRINGAR
FRÁ
JÓIMIOG ÓSKAR/
ÞAÐ
ER RÉTTA LEIÐIN
FRÁBÆRT ÚRVAL
GÓD
ADSTADA JÓN 09 ÓSKAR,
Laugavegi 70, 101 Reykjavik, simi24910.
HÚSBYGGJENDUR
Að halda að ykkur hita
er sérgrein okkar:
Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið
frá mánudegi til föstudags. Afhendum vöruna á bygging-
arstað viðskiptamönnum að kostnaðarlausu.
Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi.
Aðrar söluvörur:
Glerull — Steinull — Múrhúðunarnet — Útloftunar-
pappi — Þakpappi — Plastfolía — Álpappír — Spóna-
plötur: venjulegar/rakaþolnar — Pípueinangrun: frauð-
plast/glerull.
BORGARPLAST HF
-Borganesi simi93-7370 II
Kvðld^mi og helQarsfmi 9^-73^5
Auglýsing um aðalskoðun bifreiða í
Keflavík, Njarðvík og Grindavík og
Gullbringusýslu 1984.
Skráð ökutæki skulu færð til almennrar skoðunar 1984 sem
hér segir:
1.
Eftirtalin ökutæki sem skráð eru 1983 eða fyrr:
a. Bifreiðir til annarra nota en fólksflutninga.
b. Bifreiðir, er flytja mega 8 farþega eða fleiri.
c. Leigubifreiðir til mannflutninga.
d. Bifreiðir, sem ætlaðar eru til leigu í
atvinnuskyni án ökumanns.
e. Kennslubifreiðir.
f. Lögreglu-, sjúkra- og björgunarbifreiðir.
g. Tengi- og festivagnar, sem eru meira en
1500 kg að leyfðri heildarþyngd, skulu fylgja
bifreiðum til skoöunar.
2.
Aðrar bifreiöir en greinir í lið nr. 1, sem skráðar eru nýjar
og í fyrsta sinn 1981 eða fyrr.
Aðalskoðun í Keflavík hefst 2. apríl nk.:
Iapríl ökutækinr. Ö-1 -0-1750
I maí ökutæki nr. 0-1751—0-3750
Skoðunin fer fram að Iðavöllum 4, Keflavík, kl. 8—12 og 13—
16 alla virka daga nema laugardaga.
A sama stað og tíma fer fram aðalskoðun annarra
skráningarskyldra ökutækja s.s. bifhjóla og á auglýsing þessi
einnig við um umráðamenn þeirra.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild
ökuskírteini. Framvísa skal og kvittun fyrir greiðslu bifreiða-
gjalda og vottorði fyrir gildri ábyrgðartryggingu.
I skráningarskírteini bifreiðarinnar skal vera áritun um að
aöalljós hennar hafi verið stillt eftir 31. júlí 1983.
Vanræki einhver að færa bifreið sína til skoðunar á auglýst-
um tíma, verður hann látinn sæta ábyrgð að lögum og
bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst.
19. mars 1984
Lögreglustjórinn í Keflavík,
Njarðvík, Grindavík og
Gullbringusýslu.
„Pianóleikarínn þarfað haida mikið afturafsér en styðja söngvarann þeim mun betur.
„Ég fer heim með jákvæðu
hugarfari og er reiðubúin
að vinna mikið”
— rætt við Þóru Fríðu Sæmundsdóttur píanóleikara
Það hlýtur ávallt að vera fengur
fyrir hverja þjóð að eiga á að skipa
vel menntuðum tónlistarmönnum.
Við lslendingar höfum átt því láni að
fagna að tónlistarmenn okkar hafa
einskis látið ófreistað í þeim efnum
að komast eins nálægt fullkomnun-
inni í list sinni og kostur er á og þá
ekki sett fyrir sig að halda af landi
brott um lengri eða skemmri tíma til
framhaldsnáms. I Stuttgart í Þýska-
landi er um þessar mundir að ljúka
námi píanóleikarinn Þóra Fríða
Sæmundsdóttir. Tíðindamaður DV
var þar á ferð á dögunum og fannst
ekki úr vegi að rekja gamirnar úr
Þóru Fríðu vegna þess að hún er á
leið heim til Islands eftir fimm og
hálfs árs framhaldsnám í Þýska-
landi. Hvaö er hún búin að vera að
gera síðastliðin ár?
loknu pianókennara-
prófí heima, frá Tónlistarskólanum i
Reykjavík, fannst mér ég mega til að
læra meira. Eg hafði hafið píanónám
8—9 ára gömul, fyrst í einkatimum
en síðan fór ég í Tónlistarskólann.
Kennarar mínir þar voru Hólmfríður
Sigurjónsdóttir, Halldór Haraldsson
og síöasta árið Ursúla Ingólfsson.
Þrátt fyrir að þeim áfanga væri náð
að ljúka kennaraprófinu langaði mig
að læra meira. Tvö lönd komu eink-
um til greina aö mínu mati til fram-
haldsnáms, Bandaríkin og Þýska-
land. Þaö varð úr að ég þreytti
inntökupróf í tónlistarháskólann í
Freiburg, náði því og dvaldist þar
við nám í tvö og hálft ár. Eg lauk
þaöan þýsku píanókennaraprófi.
L5 JTK4Y
áöllum
blaðsölustöðum
70 metra salíbuna
ogtyrkneskt baó á eftir!
afmælisgetraun
GETRAUN III
MISSTU EKKIVIKU UR LIFI ÞÍNU