Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Blaðsíða 20
20 DV. LAUGÁRDAGUR 31. MARS1984.
Nokkur hluti þess sem Charles Peace lót eftir sig á svarta safni Scotland Yard. Efst til vinstri er stigi sem fella má saman. Lengst til hægri er gerviframlenging á handlegg hans þar sem hann
vantaði marga fingur.
Hann er grannvaxinn, 165—167 sentí-
metrar á hæð og gráhærður. Hann lítur
út fyrir að vera tíu árum eldri heldur
en hann er. A hann vantar einn eða
fleiri fingur á vinstri hönd, hann vagg-
ar og fæturnir eru útglenntir þegar
hann gengur. Hann talar eins og
tungan sé of stór upp í hann. Hann er
óskaplegamontinn.. .
Þessi lýsing lögreglu frá 1875 er á
hinum fjörutíu og þriggja ára Charles
Peace. Hver skyldi halda af þessu að
lýsingin ætti við einn frægasta stórþjóf
og duiargervismeistara Englands sem
auk þess var mikið kvennagull! Til
allrar óhamingju fyrir Peace sjálfan
var hann einnig morðingi og átti eftir
að enda ævidaga sina i gálganum fyrír
tilgangslaust morð. Charles Peace
var, þegar aQt kom til alls, ekki sá yfir-
stéttarglæpon sem samtíðin gerði
hann, jafnvel ekki þó að hann væri oft í
flauelsvesti og diplómatafrakka, né þó
að hann færi alltaf í ránstúra sína á
léttivagni með hesti fyrir undir það
síðasta.
Charles Peace kom í heiminn í Shef-
field hinn 14. maí 1832 sem sonur vel
metins skósmiðs. (Aörar heimildir
segja að faðir hans hafi veriö dýra-
temjari sem á ekki illa við sögu-
sagnirnar um líf Peace.) Hann var
ekki duglegur í skóla að því undan-
skildu að hann var góður í mótun úr
pappír. Hann skapaði lítil listaverk úr
samanlímdum pappírssneplum. Hann
var einnig þokkalegur fiðluleikari sem
kom fram sem Paganini staðarins. I.
barnæsku hlaut hann ævilanga fötlun
þegar annar fótur hans varð undir gló-
andi málmstöng og brotnaði. Þaö olli
völtu göngulaginu.
S/óttugur og Ijótur
Þegar Charles Peace var orðinn
tuttugu ára gamall hafði hann ekki enn
fundið sér framtíöarstarf. Hann hafði
heldur ekki leitað neitt sérlega ákaft
þannig að hann brá sér út á afbrota-
völlinn. En hann var ekki neitt sérlega
heppinn innbrotsþjófur. Hann var
gripinn og dæmdur í fangelsi frá einum
mánuði upp í sjö ár.
Fjórum sinnum var hann dæmdur í
fangelsi á þessum árum. Á milli lifði
hann flökkulífi og flæktist frá bæ til
bæjar. Hann giftist ekkju sem átti einn
son og 1872 var hann kominn aftur til
Sheffield. Hann tók sér bólfestu þar og
byrjaði að reka verkstæði sem gyllti
ramma. Auk þess verslaði hann með
notuð hljóðfæri. Fyrirtækiö gekk
þolanlega þrátt fyrir að hann væri
óábyggilegur, sérlega mikill eigin-
hr.gsmjnaseggur, slóttugur og Ijótur
eins og áður samkvæmt skýrslum
lögreglunnar sem bætti því við að lima-
burður hans minnti á apa og að hann
væri óvenjulega sterkur.
A bak við heiðarlegt yfirbragð
verslunarinnar stundaði Peace iðju
sína sem uppáfinningasamur og slung-
inn þjófur. Lögreglan náði honum ekki
og ástæðan var sú að hann vár snill-
ingur í að dulbúast. Hann hafði ekki
bara leikiö á fiölu í bamæsku heldur
líka tekið þátt í áhugaleikhúsi. Dular-
gervi hans voru fullkominn og hann
hafði gaman af aö láta reyna á gæði
þeirra. Þegar hann var aö lokum
rekinn á flótta og lýst eftir honum um
allt landiö skemmti hann sér við að
hjálpa lögreglumanni við að gæta
fanga! I annað sinn tók hann húsnæöi á
leigu hjá lögreglufulltrúa um hríð.
Síöustu ár ferils síns bjó Peace í
Peckham, útbæ Lundúna, þar sem
hann kom sér fyrir í leiguhúsi ásamt
konu og ástkonu. Hann gaf upp nafnið
Thompson, þóttist vera vellauðugur
heiðursmaður sem stundaði ýmsar
smávægilegar uppfinningar eins og tU
dæmis á hreingerningakerfi fyrir járn-
brautavagna. Onnur uppfinning herra
Thompsons var endursmíðaður fiðlu-
kassi þar sem hægt var að geyma
nauðsynleg tól innbrotsþjófs. Þetta var
undanfari hinna iUræmdu fiðlukassa
Chicagobófanna sem þeir geymdu
hríðskotabyssur 1.
Hjónadjöfull
DulargervisUst Peace kom berlega í
ljós þegar hann var loks handsamaöur
af lögreglunni.
Yfirvöldin vissu fyrst ekki hvem þau
höfðu fengiö í netiö. Menn trúðu í
fyrstu á herra Thompson og það var
' ekki fyrr en eftir sakbendingu ástkonu
Peace að raunverulega voru borin
kennsla á hann. Hún fékk þau 100 pund
sem sett höfðu verið til höfuðs honum
eftir að hann hafði drepið Arthur
Dyson.
Charles Peace var nágranni Arthurs
Dyson og hinnar írskættuðu konu hans.
Hún var há og stæðileg kona og Peace
byrjaði strax á því að heUla hana.
Þrátt fyrir að hann minnti á apa féll
hún fyrir tUburðum hans. Þau fóru
saman á veitingahús og áttu leynileg
stefnumót í kvistherbergi. Peace heim-
sótti því næst Dyson í tíma og ótíma
þangaö til eiginmanni hennar var farið
að mislíka. Hann skrifaði þessi skUa-
boð á pappírsseðil: „Charles Peace er
hér meö beöinn um að blanda sér ekki
frekar í fjölskylduUf mitt.” Bréfinu
henti hann inn um bréfalúguna hjá
Peace.
„öskraðu
eða óg skýt"
Við þetta herti Peace ofsóknirnar
enn frekar. Hann klifraði utan á húsinu
og lá á gluggum hjá Dysonhjónunum.
Um leið margskoraði hann á frú Dyson
að yfirgefa mann sinn. I júU 1876 var
þetta orðiö svo slæmt að Peace var
heimsóttur af lögreglunni. Það hafði
einhver áhrif, að minnsta kosti haföi
Dyson-fjölskyldan frið fyrir honum
þaö sem eftir liföi sumars.
En Charles Peace fylgdist með þeim
úr f jarlægð. Og þegar þau fluttu inn í
nýtt hús þann 26. október voru þau
boðin velkomin í garöshUðinu af
Peace. „Eg skal ofsækja ykkur,” sagði
hann.
Þann 29. nóvember, aö kvöldlagi,
mánuði seinna, sást til Charles Peace
fyrir utan heimiU hjónanna eins og svo
oft áður. Það skýrðist síðar að hann
hafði afráðiö stefnumót við frú Dyson
kvöldið áður. Nú virtist hún ekki hafa
eins mikinn áhuga á að hitta hinn nær-
göngula tilbiöjanda sinn. En hann elti
hana að kamrinum í garði húss þeirra
hjóna og stöðvaöi hana með byssu.
„Oskraðu eöa ég skýt,” sagöi hann, og
frú Dyson öskraði og maður hennar
kom hlaupandi frá húsinu. Mennirnir
tveir lentu í handalögmálum.
Fiðlulaikur
og upplestur
„Eg skaut af byssunni til að hræða
Dyson,” sagði Peace seinna fyrir rétti.
Eg skaut enn einu sinni og skotiö fór í
höfuö Dysons. Hann féll um koll og ég
vissi að það myndi þýða endalok mín
ef til mín næöist. Eg hljóp því eins og
fætur toguðu á meðan frú Dyson
öskraði eins og stunginn grís! ”
Það sem eftir var ævidaga sinna var
Charles Peace á flótta undan réttvís-
inni. Lýst var eftir honum fyrir morð
og fé lagt til höfuðs honum, 100 pund.
Hann rændi sér leið í gegnum hálft
Englandi og slapp, án þess að hann
næðist, inn í London þar sem hann,
eins og fyrr sagöi, leigði sér hús í
útbænum Peckham. Þama settist
hann að ásamt konu sinni og barni
þeirra. Lét hann þau búa í kjallaranum
en bjó sjálfur á hæöinni ásamt ástkonu
sinni. Hún var um þrítugt og hét Susan
Grey. „Hræðileg kona sem bæði drakk
og tók í nefið,” sagði Peace fyrir rétti.
Hann gaf upp nafnið Thompson og
af bar það að Susan og kona hans rifust
alla daga. Svo ótrúlegt sem það kann
að virðast þá hafði þetta ekki nein
Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál — Sérstæc
VEL KLÆDDUR
MAÐURER
ENGINN BÖFI
Charles Peace var ágætur fiðluleikari. Stórþjófurinn og morðinginn
skemmti oft nágrönnum sinum með fiðluleik og upplestri.