Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1984, Qupperneq 3
Messur
Guðsþjónustur í Reykja-
víkurprófastsdæmi sunnu-
daginn 13. maí 1984.
ARBÆJARPRESTAKALL: Guðsþjónusta i
safnaðarheimili Arbæjarsóknar kl. 11.00 árd.
Organleikari Jón Mýrdal. Ath. breyttan
■ messutíma. Sumarferð barna úr sunnudags-
skóla Arbæjarsóknar til Hveragerðis og Sel-
foss verður farin frá safnaðaheimilinu sunnu-
daginn 13. maí kl. 13.30. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
ASKIRKJA: Kirkjudagur safnaðarfélags As-
prestakalls. Guðsþjónusta kl. 2.00. Inga Rós
Ingólfsdóttir sellóleikari og Hörður Askelsson
leika. Kaffisala eftir messu í safnaðarheimili
kirkjunnar. Ferðir frá Hrafnistu og Norður-
brún 1 kl. 13.15. Sr. Arni Bergur Sigurbjörns-
son.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Messa kl.
14.00 í Breiðholtsskóla. Sr. Lárus Halldórsson.
BUSTAÐAKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11.00. Sr. Sólveig Lára Guðmundsdóttir.
Guðsþjónusta kl. 2.00. Félagar úr Gideons-
hreyfingunni kynna starf sitt og Hörður
Geirlaugsson stígur í stólinn. Lögreglukórinn
syngur, organleikari og söngstj. Guðni Þ.
Guðmundsson. Fundur Kvenfélags Bústaða-
sóknar mánudagskvöld kl. 20.30. Félagsstarf
aldraðra miðvikudag. Sr. Olafur Skúlason.
DOMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Dómkórinn
syngur, organleikari Marteinn H. Friðriks-
son. Sr. Agnes M. Sigurðardóttir.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 10.00.
Sr. LárusHalldórsson.
FELLA- og HÓLAPRESTAKALL: Guösþjón-
usta í Menningarmiðstööinni við Geröuberg
kl. 2.00. Sr. Hreinn Hjartarson.
FRIKIRKJAN í Reykjavík: Almenn guðs-
þjónusta kl. 14.00. Sr. Arelíus Níelsson
messar. Fríkirkjukórinn syngur, organisti og
söngstjóri Pavel Smid. Sr. Gunnar Björnsson.
GRENSASKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00.
Sr. Halldór S. Gröndal messar, organleikari
Arni Arinbjamarson. Kaffisala kvenfélagsins
kl. 15.00. Mánudagur kl. 20.30: Fundur kven-
félagsins. Fimmtudagur kl. 20.30: Almenn
samkoma. Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRlMSKIRKJA: Laugardagur 12.
maí: félagsvist til ágóða fyrir kirkjubygg-
inguna í safnaðarheimilinu kl. 3.00. Sunnu-
dagur: Messa kl. 11.00. Sr. Karl Sigurbjöms-
sor.. Þriðjudagur kl. 10: Fyrirbænaguðsþjón-
usta, beðið fymr sjúkum. Miðvikudagur 16.
maí: Náttsöngur kl. 22.00.
LANDSPITALINN: Messa kl. 10.00. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson.
HATEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr.
Arngrímur Jónsson.
KÖPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00.
Sr. ÞorbergurKristjánsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Prestur sr. Sigurður Haukur Guðjóns-
son, organleikari Jón Stefánsson. Einleikur á
fiðlu, Heiðrún Gréta Heiðarsdóttir. Ein-
söngur, Friðrik Kristinsson. Sóknamefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 14.00. Aðal-
safnaðarfundur að lokinni messu. Þriðju-
dagur: Bænaguðsþjónusta kl. 18.00. Færeysk
guðsþjónusta þriðjudagskvöld kl. 20.30. Jakub
Kass, sóknarprestur í Nesi á Austurey, mess-
ar. Föstudagur 18. mai kl. 14.30: Síðdegis-
kaffi. Sr. Ingólfur Guðmundsson.
NESKIRKJA: Messa kl. 14.00. Orgel og kór-
stjórn Reynir Jónasson. Kaffisala á vegum
kvenfélagsins í safnaðarheimilinu að lokinni
messu. Sr. Guðmundur Oskar Olafsson. Mið-
vikudagur: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr.
Guðmundur Oskar Olafsson.
SELJASÖKN: Guðsþjónusta i Olduselsskól-
anum kl. 11.00. Ath. breyttan messutíma.
Fyrirbænasamvera Tindaseli 3 fimmtudags-
kvöld kl. 20.30. Sóknarprestur.
H.IALPRÆÐISHERINN.
Sunnudag kl. 11. Helgunarsamkoma. KL 20:
Bæn. KL 20.30: Hjálpræðissamkoma.
Kommandör Will og Kathleen Pratt frá
Bandaríkjunum og kommandör Solhaug frá
Noregitala.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Ath. breyttan
tíma. Sr. Gunnþór Ingason.
KIRKJA ÖHAÐA SAFNAÐARINS:
Bama- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00.
Baldur Kristjánsson.
Fundir
Kvenfélag Bústaðasóknar
heldur fund mánudaginn 14. maí kl. 20.30.
Kvenfélag Bessastaðahrepps kemur í heim-
sókn. Skemmtiatriði. Mætið vel og stundvis-
lega.
Vorkonur Alþýðuleikhússins:
Sýningar á Undir
teppinu hennar ömmu
hefjast aftur
Vorkonur Alþýöuleikhússins hef ja
nú aftur sýningar á Undir teppinu
hennar ömmu eftir Nínu Björk Arna-
dóttur, en nokkurt hlé varð vegna
óviðráðanlegra ástæðna. Breyting
hefur nú orðið á hlutverkaskipan og
tekur Margrét Akadóttir við hlut-
verki Önnu S. Einarsdóttur um tíma,
en Asa Svavarsdóttir leikur hlutverk
Margrétar.
Undir teppinu hennar ömmu hlaut
mjög góða dóma og hefur verið upp-
selt á flestallar sýningar. Háskólinn,
nokkrir framhaldsskólar, starfs-
menn geðdeilda ríkisspítalanna og
konur þær er sóttu Vorvöku Kven-
félagasambands Islands hafa komiö
á hópsýningar og hefur þá verið boð-
ið upp á umræður eftir sýninguna.
Vorkonumar halda til i ráöstefnusal
Hótel Loftleiða og þar er miðasalan
opin daglega frá klukkan 17—19,
miðapantanir í síma 22322. Athygli
skal vakin á því að sýningum fer nú
fækkandi.
Sýningar um helgina veröa sem
hérsegir:
Föstudagll.maíkl.21
Sunnudag 13.maíkl. 17.30.
JðlÓ-RALL
1984
Fuglaskoðunarferð
Ferðafélags íslands
Laugardaginn 12. maí næstkom-
andi mun Bifreiðaíþróttaklúbbur
Suðurnesja, ásamt Ragnarsbakaríi
hf. í Keflavík, standa fyrir svoköll-
uöu JóJó-ralli. Þetta rall er það
fyrsta á árinu sem gefur stig til Is-
landsmeistara ökumanna og
aðstoðarökumanna í ralli.
Kl. 8 að morgni laugardagsins 12.
maí mun Ragnar Eðvaldsson, for-
stjóri í Ragnarsbakaríi hf., ræsa
fyrsta bílinn, en frá bakaríinu munu
keppendur aka sem leið liggur um
Suðurland.
A meðan keppendur spreyta sig í
rallinu geta áhorfendur fylgst með
þeim á sjónvarpsskjá milli þess sem
þeir horfa á hinar ýmsu uppákomur
sem verða við Ragnarsbakarí á
meðan á keppni stendur. I ár verður
reynt að gera JóJó-rallið skemmti-
legt, jafnt fyrir áhorfendur sem
keppendur, og má í því sambandi
nefna sjónvarpsskjá þar sem hægt
verður að fylgjast með keppendum,
auk þess sem haldiö verður kassa-
bilarall milli fjögur stórverslana í
Njarðvík og Keflavík, þeirra Nonna
og Bubba, Víkurbæjar, Hagkaups og
Samkaupa.
Keppninni lýkur svo við Ragnars-
bakarí um kl. 16 þennan sama dag.
Sunnudaginn 13. maí verður fárin
árleg fuglaskoðunarferðFeröafélags
Islands um Miðnes og Hafnarberg,
en slíkar ferðir hafa verið farnar allt
fráárinul967.
Farið verður frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin, kl. 10.30
árdegis. Fyrst verður ekiö út á
Alftanes og skyggnst eftir margæs, en
hún á aö vera hér nú á leið sinni til
varpstöövanna sem eru á Grænlandi.
Síðan verður ekið aö Hraunsvíkinni,
rétt austan við Grindavík, og hugað
að fuglum þar. Þá verður haldið á
Hafnaberg, sem er aögengilegasta
fuglabjarg fyrir íbúa höfuðborgar-
svæðisins. Síðan liggur leiöin til
Hafna og Sandgerðis, en á báðum
þessum stöðum er mikið fuglalíf.
Þátttakendur fá ljósritaöa skrá
með nöfnum þeirra fugla sem sést
hafa frá ári til árs og merkja við eða
skrifa inn nýja.
Leiðsögumenn í þessari ferö
verða: Erling Olafsson, Grétar
Eiríksson, Gunnlaugur Pétursson og
Kjartan Magnússon.
Æskilegt er að hafa með sjónauka
og Fuglabók AB. Ferðinni lýkur um kL
19.
Kjarvalsstaðir:
Sögu- og skipulagssýning
Næstkomandi laugardag, 12. maí,
kl. 14 opnar Davíð Oddsson borgar-
stjóri sögu- og skipulagssýningu í
Kjarvalssal að Kjarvalsstöðum í
Reykjavík.
Markmiöið með sýningunni er að
gefa borgarbúum og öðrum lands-
mönnum tækifæri til að kynna sér
ýmsa þætti úr skipulagi
Reykjavíkur, bæði úr nútíð og fortíð.
Sýningin er í 6 deildum: 1)
Söguleg þróun byggðar — skipulags-
saga. 2) Félagsmál og fritímaiöja. 3)
Ibúar og athafnalíf. 4) Umferðar-
mál. 5) Nýleg skipulagsverkefni. 6)
Framtíðarsýn.
Sýningin er aöallega í myndrænu
formi, þ.e. ljósmyndir, loftmyndir,
kort, skipuiagsuppdrættir og
skýringarmyndir. Sem dæmi um ný
skipulagsverkefni, sem kynnt eru á
sýningunni, má nefna skipulag
ibúðabyggðar við Grafarvog, skipu-
lag nýs miðbæjar í Kringlumýri og
skipulagstillögu að Aðalstræti og
nágrenni.
Sunnudaginn 13. maí kl. 16 flytur
Páll Líndal lögmaður erindi á
Kjarvalsstöðum sem hann nefnir:
Aldaskrá, spjall um þróun skipulags-
mála í Reykjavík undanfarin 100 ár.
Fimmtudaginn 17. maí kl. 20.30
fjallar Gestur Olafsson, forstöðu-
maður Skipulagsstofu höfuðbnrgar-
svæðisins, um framtíðaibyggð á
höfuðborgarsvæðinu.
Lokadag sýningarinnar, 20. maí
kl. 15 til 16.30, kynna skipulags-
höfundar ný skipulagsverkefni á
vegum Reykjavíkurborgar. Eftir þá
kynningu verður farið með strætis-
vagni frá Kjarvalsstöðum og fyrir-
huguð byggingarsvæöi skoðuð undir
leiðsögn skipulagshöfunda.