Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1984, Síða 1
II S DAGBLAÐIЗVÍSIR 119. TBL. — 74. og 10. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1984.
/ r \
5
f
\
\
Söguleg stund á íslandi:
rædtíií
saman í síma ígær
ff
„Magga, ég ætlaði aðeins að
athuga hvemig gengi að vélrita giró-
seölana?” Svar: „Eg er búin að vél-
rita þó, á bara eftir að senda þá út. ”
Þetta er byrjun á samtali tveggja
einstaklinga í gegnum sima i gær.
Það viröist láta lítið yfir sér en í heyrnarlaus.
rauninni er það einstakt hérlendis. Það var
Þau sem „talast” viö eru bæði Vilhjálmsson
Vilhjáhnur G.
auglýsingateiknari
Söguleg stund. Vilhjálmur G. Vilhjálmsson, 28 ára auglýsingateiknari á Auglýsingastofunni hf., hringir í fyrsta skiptið með hinu nýja simtæki
sinu. Vilhjálmur er formaður Félags heyrnarlausra á íslandi. Eins og sjá má fylgjast vinnufélagar hans með á þessari einstöku stund.
DV-mynd Bjarnleifur Bjarnleifsson.
sem hringdi í Margréti Sigurðar-
dóttur, starfsmanns á skrifstofu Fél-
ags heyrnarlausra. Þetta var hans
fyrsta símtal í sérhannaðan síma
sem hann hefur fengið. Söguleg
stund.
„Bróðir minn, sem er við tölvunóm
í Bandaríkjunum, keypti tækiö þar
og kom með það heim,” sagði
Vilhjálmur er við ræddum við hann í
gær með aðstoö vinnufélaga hans á
Auglýsingastofunni hf., Hauks Har-
aldssonar.
I rauninni er þetta símtæki bylting
í samskiptum heymarlausra.
Otrúlegt að Póstur og sími skuii ekki
hafa gert neitt í því aö flytja svona
tæki inn. Tækið kostaði 160 dollara,
eða rúmar 4 þúsund krónur.
Þaö er notað við venjulegan síma.
Heymartólið er lagt á tækið og síðan
er talið slegið inn á lyklaborö.
Setningamar koma fram á sérstakt
ljósaboröátækinu.
Sá sem svarar er einnig með svona
tæki og les setningamar í ljósa-
borðinu á því tækL Síðan slær hann
sitt „tal” inn á tækið og svarar þar
með.
Hugsið ykkur byltinguna. Nú geta
heymarlausir hringt hver í annan og
mælt sér mót einhvers staðar í stað
þess að þurfa að aka kannski langar
vegalengdir til að „ræða”saman um
aðhittastsíðar.
Vonandi var símtal þeirra
Vilhjálms og Margrétar það fyrsta í
röð margra slíkra hérlendis. Tækið
þyrftu allir heyrnarlausir að hafa.
-JGH.
Deilur vegna áforma Portúgals um 12% toll á blautsaltadan ftsk:
Sattfiskurinn nemur
50% af útflutningi
okkar til EFTA-ianda
FÁLKAEGGJAÞJÓFAR
Frá EUasi Snæland Jónssyni,
blaðamanniDVí Visby:
Steingrímur Hermannsson forsætis-
róðherra hleypti miklu lífi í fund for-
sætisráöherra EFTA-landannaíVisby
er hann gagnrýndi harðiega þær fyrir-
ætlanir Portúgala að setja 12% toll á
blautsaltaöan saltfisk okkar á móti 3%
tolli til þeirra sem veittu Portúgölum
veiðiheimildir i fiskveiöilögsögu sinni,
eins og t.d. Kanada.
Vegna máls þessa breytti Stein-
grimur ræðu sinni á siðustu stundu á
fundinum eftir að íslenskir embættis-
menn höfðufengið þessar fyrirætlanir
staðfestar, og sagöi hann m.a. i ræðu
sinni að útflutningur okkar á þessum
fiski næmi 50% af útflutningi okkar til
EFTA-landanna.
Steingrímur átti síöan einka-
viöræður við Mario Soares, forsætis-
ráðherra Portúgals. litið kom fram í
þeim en ákveöiö var að viðskipta-
ráðherra Portúgals, Alvaro Barreto,
kæmi hingaö í opinbera heimsókn 9. júli
nk. til viðræðna um máliö.
-FRI.
OÆMDIR
— sjá bls. 2
— Sjá nánari fréttir á bls. 4
DÝRT AÐ
VERSLA SVANGUR
— sjá Neytendur á bls. 6 og 7