Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1984, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1984, Qupperneq 5
DV. FIMMTUDAGUR 24. MAl 1984. 5 Flugmenn Arnarflugsþotunnar eru taldir haia bjargað 70 mannslífum er þeir með snarræði afstýrðu árekstri viðOrion-vél varnarliðsins imars 1983. FLUGUMFERDARSTJORIEKKITAUNN HAFA SÝNT REFSIVERDA HÁTTSEMI —er Amarf lugsþota og herf lugvél voru nærri lentar f árekstrí Ríkissaksóknari hefur ákveðið að ákæra ekki vegna atviks er varð í há- loftunum skammt frá Vestmannaeyj- um þann 15. mars 1983. Farþegaþota frá Arnarflugi og kafbátaleitarvél frá varnarliðinu voru þá nærri lentar í árekstri. Atvikið er i skýrslu flokkað sem „raunveruleg hætta á árekstri”. Arnarflugsþotan var að koma frá Evrópu í aðflugslækkun að Keflavíkur- flugvelli. Varnarliðsvélin var 1 æfinga- flugi við suðurströndina. Um borö í flugvélunum voru alls 70 manns, þar af 64 í farþegaþotunni. Vamarliðsvélin yfirgaf æfingasvæði sitt án leyfis. Flugumferöarstjóri á Keflavíkurflugvelli, sem hafði báðar vélamar á radar, tók ekki eftir árekstrarhættunni fyrr en mjög seint. Hann er talinn hafa sýnt aðgæsluleysi. Flugmenn Amarflugsþotunnar eru taldir hafa afstýrt árekstri með snar- ræði. Þeir sveigðu þotuna krappt til hægri. Sekúndubroti siöar skaust vamarliðsvélin framhjá. Eftir aö skýrsla sérstakrar rann- sóknamefndar Flugmálastjómar hafði borist ríkissaksóknara í apríl 1983 sendi hann máliö til Rannsóknar- lögreglu ríkisins og fór fram á rann- sóknþess. Þegar málið kom frá Rannsóknar- lögreglunni síöar á árinu sendi sak- sóknari það til samgönguráöuneytis og varnarmáladeildar utanríkisráöuneyt- is til umsagnar. Umsagnir beggja aöila vom á þá leiö að flugumferðar- stjórinn hefði ekki gerst sekur um refsiverða háttsemi þó að mistök hefðu áttsérstað. -KMU. Hafnarfjardarvegur hættulegastur — slysum stórfækkar þó á endurbyggðu köf lunum Sá þjóðvegur þar sem flest um- ferðarslys hafa orðið á undanfömum árum er Hafnarfjarðarvegurinn. „Athyglisvert er að þeir kaflar sem endurbyggðir hafa verið eða lag- færöir á undanförnum árum, frá Kópavogslæk að Engidal, eru nú með mjög verulega fækkun slysa, eöa úr 108 í 76 slys, en hinir tveir, frá Foss- vogslæk að Kópavogslæk og frá Engidal að Flatahrauni, eru meö talsverða aukningu slysa.” Þetta kemur fram í skýrslu um framkvæmd vegaáætlunar í fyrra. Þar er sagt að ráðgerð sé mjög veru- leg lagfæring á vegamótum Hafnar- fjarðarvegar og Flatahrauns á þessu ári auk þess sem fyrirhugaðar séu aögeröir vegna nánast dagvissrar umferðaiteppu á Hafnarf jarðarvegi- Kringlumýrarbraut í Fossvogi. Skipuleg umferðartalning Vega- geröarinnar fer fram á 54 stööum á landinu. I fyrra var einnig gerð víð- tæk könnun á sumarumferö á Vesturlandi og Vestfjörðum. Heildarumferð á þjóðvegum minnk- aði um 3% að meöaltali allt áriö, en sumarumferð um 2%. Sunnan- og vestanvert á landinu minnkaði um- ferð um 4—10% og mest á Vestfjörð- um. Umferð óx hins vegar á norðan- og austanverðu landinu um 4—6% og mest á Austurlandi. Þá var í fyrra haldiö áfram grein- ingu umferöar eftir stefnum og gerð ökutækja á ýmsum veigamiklum vegamótum og safnað var áfram upplýsingum um umferðarhraöa. HERB EV-SALURINN I FIATHÚSINU SKIPTIVERSLUN ^kemuráþeim BílaúrvaUð er síbreyti/egt frá degi tíi dags. LA Uu clVUn 8 VIÐ LÁNUM ÞÉR MILLIGJÖFINA. BURTU A NYRRI BÍL. OFT JAFNVEL ENGIN ÚTBORGUN HIN SÍVINSÆLU OG LANDSÞEKKTU EV KJÖR - ERU KJÖR SEM BYGGJAST Á TRAUSTI VIÐ LÁNUMÍ 3-6-9-12 MÁN. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-18.30. VIÐ ALLS KONAR SKIPTI MÖGULEG TÖKUM GAMLA BÍLINN OPIÐ Á LAUGARD. KL. 10-16. UPPÍ 1929 notadir bílar í eigu umbodssins 7984 - ALLT Á SAMA STAÐ EGILL , -S™!*1*™ VILHJALMSSON HF YFIR HALFA OLD. Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Sími 79944—79775

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.