Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1984, Side 11
DV. FIMMTUDAGUR 24. MAl 1984.
11
Stórbreyting í matvöruverslun á Akureyri:
Tveir nýir kjör-
markaðir hjá KEA
Kaupfélag Eyfiröinga gerir nú mikla
breytingu á matvöruverslun á Akur-
eyri og við Eyjafjörð. Felur þaö meðal
annars í sér að kjörmarkaðsverð mun
gilda í þremur verslunum, þrjár
verslanir eru lagðar niður og í útibúun-
um veröur tekið upp nýtt verð-
lagningarkerfi.
Nú þegar hefur versluninni í Kaup-
angi verið lokaö og um mánaöamótin
hverfa líka kjörbúðirnar að Hlíöargötu
11 og Strandgötu 25. A móti kemur að
fariö verður út í markaösverðlagningu
í verulega auknum mæli. I Sunnuhlíö
er þegar farið aö lækka verð og á þar
að verða kjörmarkaður. Um mánaöa-
mótin verður búið að stækka og endur-
bæta kjörbúðina á Byggöavegi 98 og
þar kemur líka kjörmarkaöur.
I Hrísalundi verður áfram stærsti
kjörmarkaðurinn en Valur Amþórsson
kaupfélagsstjóri sagöi í samtali við DV
að á mörgum vörutegundum yrði
sama verð í öllum þessum mörkuðum.
Verð yrði þó aldrei nákvæmlega hið
sama.
Til viöbótar þessu sagði Valur að um
mánaðamótin væri ætlunin að taka upp
markaðsverðsetningu í útibúunum á
Dalvík, Olafsfirði og Siglufirði. Síöan
sagði hann aö ætlunin væri að taka upp
breytilega verðsetningu í litlu útibúun-
um viö fjörðinn og minni búöunum á
Akureyri. Þær fengju þá að njóta verð-
lækkunar þegar hægt væri aö ná fram
afslætti á vörukaupum. Með hagræð-
rngu í rekstri þeirra yröi einnig reynt
aö lækka vöruveröið.
Þrátt fyrir þessar miklu breytingar
er stærsta framkvæmd KEA í
verslunarmálum bygging verslunar-
húss á Dalvík. Þegar því verki lýkur
verður lögð niður kjörbúöin við Skíöa-
braut þar í bæ.
Valur Arnþórsson sagði að til-
gangurinn meö endurskipulagningu
matvöruverslunarinnar væri að bæta
verulega verslunarkjör á félagssvæð-
inu frá því sem nú er. Taldi hann þó að
vöruverð þar væri með því lægsta sem
gerðist í landinu. Með skipulags-
breytingum núna ætti verðlækkun til
neytenda að verða á bilinu 5—10% en
þó mjög mismunandi eftir vöruflokk-
um.
JBH/Akureyri
SVAVASÝNIR
Frá Kristjáni Einarssyni, fréttarit-
ara DVáSelfossi:
Svava Sigríöur Gestsdóttir hefur
opnað sýningu í Listasafni Arnes-
sýslu á Selfossi en á sýningunni eru
34 verk, vatnslitamyndir og myndir
unnarúrbleki.
Þetta er 7. einkasýning Svövu en
hún er einn af stofnendum mynd-
listarfélags Arnessýslu og hefur
tekiö þátt í mörgum samsýningum.
Svava stundaöi nám við Mynd-
listarskólann við Freyjugötu og við
Bergenholts Dekörations fagskole í
Khöfn. Sýning hennar er opin kl. 14—
21 um helgar og kl. 18—21 virka
daga. Henni lýkur um mánaðamótin.
Svava Sigriður Gestsdóttir listmálari.
Selfoss:
D V-mynd Kristján.
Norræn stein-
steypuráðstefna
hér á landi
A vegum sambands norrænu stein-
steypufélaganna verður haldin hér í
sumar í fyrsta sinn ráöstefna um
vísindalegar framfarir í steinsteypu-
málum. Fjöldi vísindamanna er
væntanlegur á ráðstefnuna og meöal
þeirra sem flytja þar erindi er verk-
fræðingurinn og prófessorinn Fritz
Leonhardt, einn þekktasti verk-
f ræöingur í heiminum.
Ráðstefnur þessar eru haldnar
þriðja hvert ár. A ráðstefnunni hér,
10.—12. ágúst, verður þátttökugjald
rúmlega 10 þúsund krónur og þá allt
innifalið en þátttaka hvern daginn
fyrir sig mun kosta 3.800 krónur.
Tveggja ára undirbúningur hefur
verið á vegum Steinsteypufélags Is-
lands, Rannsóknastofnunar' bygging-
ariðnaðarins og Sementsverksmiðju
ríkisins. Talsmaöur er Ríkharður
Kristjánsson verkfræöingur hjá Línu-
hönnun hf. en upplýsingar fást einnig
hjáFerðaskrifstofuríkisins. HERB
UPPBLÁSNAR
ÁL-
BLOÐRUR
Heildsötubirgðir:
Pdll Pdlsson
Umboðs- og heildverslun,
Laugavegi 18A,
sími 12877.
9
GLÆSILEGT URVAL
HÚSGAGIMA
TVEIMUR HÆÐUM
RAFTÆKI - RAFLJOS
og rafbúnaður.
Raftækjadeild ||. hæð
^ /mcrr y
W vörur JH ^
5 á markaðsverði. 2
Já OPIÐ í KVÖLDTILKL. 7 S--------
fk IÖLLUM DEILDUM g JL-PORTIÐ
---* NÆG
BÍLASTÆÐI
Glœsilegt úrval
ledursófasetta
í ledurdeild,
3ju hœð.
VISA
Munið okkar hagstæðu
greiðsluskilmála
JL-GRILLIÐ Grillréttir allan daginn
J|i~^
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Simi 10600
Nýkomnir K ARLM AIMIM ASKÓ R
Tegund 4.
Litur: svartur.
Nr. 40-45.
Verðkr. 648,-
Tegund 1.
Litur: grár.
Nr. 41-45.
Verðkr. 738,
Tegund 5.
Litur: svartur.
Nr. 41-45.
Verðkr. 789,-
Tegund 6.
Litur: brúnt ruskinn.
Nr. 39-45.
Verðkr. 660,-
Tegund 144.
Litur: brunn.
Nr. 41-46.
Verðkr. 1.089,-
Tegund 143.
Litur: svartur.
Nr. 41-45.
Verðkr. 1.228,-
Póstsendum
Laugavegi 1 — Sími 1-65-84