Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1984, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1984, Side 12
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON ogÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍDUMSULA 12—14. SÍMI 86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33.%SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir,smáauglýsingar,skrifstofa: ÞVERHOLTI ll.SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 86611. Setning,umbrot, mynda-og plötugerö: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf„ Skeifunni 19. Áskriftarverö á mánuöi 250 kr. Verð í lausasölu 22 kr. Helgarblaö2S kr. Ringulreið fyrír sauðburð Hin óskráöa regla, aö Alþingi skuli slitið upp úr miöjum maí, byggist á, aö í gamla daga þurftu þingmenn að taka hnakk sinn og hest og ríða til sauðburðar. Enn er haldið stíft við þessa reglu, þótt atvinnuhættir og samgöngur hafi gerbreytzt síðan á nítjándu öld. Ráðherrar hafa vanið sig á að nota sauðburðartímann til að komast á óþarfa fundi í útlöndum. Og óbreyttir alþingismenn eru komnir með farseðla til sólarlanda.„ Þessi ferðaþrá hefur tekið við af sauðburöi sem forsenda þess, að Alþingi veröur sér til skammar á hverju vori. Aldrei hefur þó æðibunugangurinn og ringulreiðin verið meiri en aö þessu sinni. Frumvörp og tillögur hafa verið afgreiddar í kippum, þótt mjög fáir þingmenn hafi kynnt sér innihald þeirra. Eitt dæmið um þetta er lögræðis- frumvarpið, sem varð að lögum fyrir misskilning. Efri deild hafði breytt þeirri útgáfu frumvarpsins, sem kom frá neðri deild. Þurfti frumvarpið því að fara aftur til nefndar í neðri deild, hefðbundið skref til samræming- ar á útgáfunum tveimur. Síðan hefði framsögumaður nefndarinnar kynnt niðurstöðuna á deildarfundi. Fyrir misskilning milli Ingvars Gíslasonar þingforseta og Gunnars G. Schram nefndarformanns var vikið frá eðlilegri málsmeöferö. Að viðstöddum nefndarformanni var útgáfa efri deildar tekin til atkvæða af deildarforseta og samþykkt án athugasemda nefndarformanns. Þetta kom þingmönnum auðvitað í opna skjöldu. Þeir héldu, aö máliö hefði fengið eðlilega meðferð. Þegar menn áttuöu sig á, aö svo var ekki, var það orðið um sein- an. Lögræöisfrumvarpið var orðiö að lögum í útgáfu, sem alveg er óvíst, aö sé í samræmi við vilja Alþingis. Æðibunugangurinn og ringulreiöin lýsa sér á ýmsan annan hátt. Hrossakaupin blómstra í öðru hverju skoti, meöan þingforsetar gera hlé á fundum til að leysa ósam- komulag milli stjórnarflokkanna eða innan annars hvors stjórnarflokksins. Þessu fylgir ógeðfelldur blær. Landsfrægt er, að þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins geröu með sér kaup um, að Mjólkursamsalan fengi áfram að brjóta skattalög gegn því, að húsnæðissamvinnufélögum yrði kippt úr hús- næðisfrumvarpinu. Þetta mangó-mál hnekkti áliti fólks á Alþingi. Heilir þingflokkar og einstakir þingmenn notfæra sér tímahrakið á síðustu dögunum til að hindra framgang mála, sem meirihluti er fyrir. Þannig var á síðustu stundu hindrað, að Alþingi samþykkti frumvarp um af- nám einokunar Grænmetisverzlunar landbúnaðarins. Stefán Valgeirsson hélt þinginu gangandi næturlangt með málþófi út af bankanum, þar sem hann vildi verða bankastjóri. Framsóknarmenn mættu ekki á fund í fjár- veitinganefnd til að hindra, að Pálmi Jónsson yrði for- maður nefndarinnar í störfum hennar í sumar. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti Sameinaðs þings, hefur hvað eftir annað þurft að minna formenn nefnda á, að liggja ekki á málum. Samt tókst Ölafi Þ. Þórðarsyni aö gera allsherjarnefnd óstarfhæfa með því að neita að halda fundi til að hindra bjórfrumvörp. Eftir tíða kvöld-, nætur- og helgarfundi er þreyttum og vansvefta afgreiðslumönnum á þingi meira eða minna óljóst, hvað hefur veriö afgreitt og hvað ekki. Hitt ætti ekki að vefjast fyrir þeim, af hverju þjóðin hefur lítið álit á þingmönnum og Alþingi. Jónas Kristjánsson. J8ei lAM AS HUÐAaUTMMH .70 DV. FIMMTUDAGUR 24. MAl 1984. „Neytendur eiga kröfu á aö sú vara sem þeir kaupa sé ga/ia/aus og standist þær gæðakröfur sem geröar eru." Verslun með kartöflur og annað grænmeti Fá mál hafa aö undanförnu verið ofar á baugi en verslun meö kartöfl- ur. Skiljanlegt er að menn séu á móti einkasölu eöa einokun. Sumir telja einkasölu allt til ágætis en aörir finna henni allt tii foráttu. En þaö er ekki nóg aö vera á móti ríkjandi verslunarháttum meö grænmeti, kartöflur og aöra garöávexti. Þaö þarf að hugsa dæmiö til enda, þegar menn krefjast breytinga. Augljóst er öllum sem komið hafa nálægt verslun meö grænmeti og kartöflur að þaö sættir sig enginn við aö versla með þessar vörur aðeins einn til tvo mánuöi á ári hverju. I flestum árum duga íslenskar kartöflur frá því í lok ágúst og fram í maí áriö eftir. Einstaka sinnum hafa íslenskar kartöflur veriö á markaön- um fram aö mánaðamótum júlí/ágúst. Þá hefur aðeins þurft aö flytja inn erlendar kartöflur í einn mánuö. Þeir sem vilja afnema einkaleyfi Grænmetisverslunarinnar hljóta að gera sér grein fyrir því aö mjög fljót- lega mun koma krafa frá heildsölum um aö fá aö selja íslenskar kartöflur og grænmeti. Enginn þarf að blekkja sjálfan sig né aöra í þeim efnum. Heildsali sem leggur í umtaisverðan kostnaö viö aö koma upp aöstööu til að pakka kartöflum og/eöa græn- meti sættir sig ekki viö aö geta ekki nýtt þessa aöstööu allt áriö. Þaö er því ekkert sem heitir frjáls verslun þegar ekki er nægilegt framboð á innlendri vöru. Skipulagsleysi í verslun og inn- flutningi kartaflna og grænmetis mun leiöa til þess að samtök framleiðenda munu riðlast og sam- staöa um eitt eða tvö fyrirtæki verður ekki lengur fyrir hendi. Eg geri líka fastlega ráö fyrir aö þaö sem vakir fyrir þessum mönnum sé að sundra samtökum framleiöenda. Þeim er ósárt um þaö þó félög bænda veröi veik og lítils megnug. Því miður hafa búvöruframleiö- endur ekki borið gæfu til aö vinna saman á öllum sviöum. Þar á ég viö hænsnabændur, sem reynt hafa aö AGNAR GUÐNASON BLAÐAFULLTRÚI BÆIMDASAMTAKANNA neytenda er ekki flókið að skipu- leggja landbúnaöarframleiösluna þannig aö hún þjóni neytendum enn betur, jafnframt því sem hægt væri aö tryggja bændum betri afkomu en þeir hafa i dag. Þaö þarf aö skapast samstarf á breiöum grundvelli um framleiöslu, innflutning og verslun meö grænmeti, kartöflur og aðra garðávexti. Þaö samstarf veröur aö byggjast á gagnkvæmu trausti neyt- enda, framleiöenda, kaupmanna og heildsala. Fyrst veröa menn að gera sér grein fyrir hvort raunverulega er vilji fyrir hendi að vemda innlenda framleiöslu. Ef svo er þá er málið tiltölulega auöleyst. Viöurkenna veröur aö of mikiö var flutt inn af finnsku kartöflunum. Þegar kaupin voru ákveðin var taliö aö erfitt mundi veröa aö fá kartöflur í öörum löndum. Verulegar • „Þeir sem vilja afnema einkaleyfi Grænmetisverslunarinnar hljóta að gera sér grein fyrir því að mjög fljótlega mun koma krafa frá heildsölum um að fá að selja íslensk- ar kartöflur og grænmeti.” kroppa augun hver úr öörum, meö dyggilegri aðstoö frjálshyggju- manna. Mesta blekkingin er aö ýmsir bændur halda að þeir eigi góða stuöningsmenn í þeim hópi sem markvisst hefur unniö aö því aö grafa undan bændastéttinni og viljaö veg hennar sem minnstan. Hvað er framundan? Ef þessir menn fá aö ráöa ferðinni er útlitiö dökkt hjá bændastéttinni. Þaö er reynt aö ala á sundrung, sem á endanum leiöir til ófamaöar fyrir alla. Meö góöum vilja og samstööu innan bændastéttarinnar og í sam- vinnu viö víösýna menn í röðum skemmdir voru í þessum finnsku kartöflum, eins og alþjóö er kunnugt. Stærsti hlutinn var heilbrigöur og mjög góðar matarkartöflur. Þrátt fyrir þaö að margir neytendur hafa eingöngu fengið góöar kartöflur þá er eins og þeir þori ekki aö viður- kenna það. A mannamótum hvísla þeir sem fengu góöu kartöflumar, en hinir æpa sem vora ekki eins heppnir. Neytendur eiga kröfu á aö sú vara sem þeir kaupa sé gallalaus og standist þær gæðakröfur sem geröar era. Þetta hlýtur aö vera stefna allra sem fást viö verslun aö viðskipta- vinirnir séu ánægöir. Þaö er því slæmt þegar illa tekst til, sérstaklega þegar einkasala á í hlut.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.