Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1984, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1984, Qupperneq 16
16 ?í DV. R1MMTUDAGUKS4: MAÍ1984:* 0 Spurningin Kaupirðu hljómplötur? Leif David Halvorson: Nei, ég tek mik- iö af tónlist upp úr útvarpinu. Hermann Gíslason: Nei, það geri ég ekki. Eg á enga peninga til slíks. Siguröur Olason pípuiagningamaöur: Aldrei. Eg hef lítinn áhuga á plötusöfn- un. Trausti Guöjónssou pípulagninga- maður: Nei, ég kaupi mér aldrei piöt- ur. Agúst Sigurðsson skrifstofumaður: Það er sjaldan. En ég slæ þó til þegar velliggurámér. Góö kjallara- grein Kristíhar Halldórsdóttur — DV þökkui géð fréttaþjónusta 3731-2991 hringdi: Mig langar að koma á þakklæti til DV fyrir gott blað. Eg var mjög hrifin af grein Kristínar Halldórsdóttur alþingismanns um nauðgunarmáliö, sem birtist sem kjallaragrein þann 14. maí sl. Einnig finnst mér ástæða til að þakka DV fyrir góða fréttaþjónustu. Mér finnst hún bera af fréttaþjónustu annarra blaða. Plastpoki tapaðist Agnar hringdi: Hann var alveg í öngum sínum vegna taps á hvítum plastpoka. Hann týndist um helgina í Austurbæjarskóla er Agnar var þar viö knattspyrnuiök- un. I pokanum voru pennaveski, tölva og gleraugu. Finnandi er vinsamlegast beöinn um að láta vita í síma 41042. TVÖ FLUGFÉLÖG BETRIEN EITT Bréfritari segir samkeppni þá sem Arnarflug veiti Flugleiðum nú af hinu góða og svipaða og Loftleiðir og Flugfélag (slands veittu hvort öðru fyrir sameininguna. Bréfritari er ekki ánægður með Berlin Alexanderplatz, þýsku framhaldsþætt- ina, en þessi mynd er úr þeim. Sjónvarpið: Vandið valá framhalds- þáttum Guðrún Runólfsdóttir skrifar: Sjónvarpsdagskráin hefur verið hrikalega lítilfjörleg núna undanfarn- ar vikur og nú þegar nýr framhalds- myndaflokkur á miðvjkudögum byrj- aði, frá og með í gær, þá er mælirinn fullur og meira en það og tími til kom- inn að láta álit sitt í ljós. Til hvers er sjónvarp eiginlega? Er það ekki fyrst og fremst afþreyingar- miöill — að minnsta kosti á meðan ekki eru fleiri en ein rás til að velja um? Eftir vinnudag langar mann til að geta sest viö að horfa á eitthvað létt og gott og skemmtilegt. Mín vegna mega gjarnan fljóta með . góðar kennslu/kynningarmyndir svo sem hingað til hafa verið, t.d. ýmsar dýra- lífsmyndir og myndir um læknisfræði- leg efni og annað slíkt. En þegar kemur aö myndum og framhaldsmyndaflokkum, þá vill maður skemmtilegt efni og/eða vand- aða framhaldsflokka. I gær, 16.15., var byrjað á þýskum framhaldsflokki, í 14 þáttum hvorki meira né minna, og ef byrjunin gefur eitthvað til kynna um framhaldið er þetta sjónvarpinu til skammar. I raun er erfitt aö skilja hvernig annað eins og þetta getur komist á dagskrá hjá ís- lensku sjónvarpi — ég vil vona aö allir þeir sem eru mér sammála — og ég vil vona að það séu margir — láti í ljós að þættir eins og sá sem byrjaði í gær- kveldi séu fyrir neðan allar heUur og alger andstyggð. Eg vU að hætt verði útsendingu á öðru eins efni og þessu. Fyrst hélt maður að þetta væri bara leiðinlegt en það var ekki aöeins svo heldur og hreinn viðbjóður og langt fyrir neðan virðingu sjónvarpsins aö senda annað eins út. Það getur verið vont að vera án tölv- unnar sinnar. SKEMMTISTAÐAHALL- ÆRI66 MÓDELANNA Nokkur 66módelskrifa: Við erum hér nokkrir krakkar sem lásum greinina sem birtist í DV þann 16. maí sl. um misrétti það sem 66 árgangurinn veröur aö láta sér lynda í sambandi við skemmtistaði borgarinn- ar. Reykjavík á að teljast miðstöð skemmtanaUfsins hér á landi og okkur finnst það algjört óréttlæti og bara lé- legt að alls enginn skemmtistaður skuU vera fyrir 66 módelin. Við vitum um marga staði úti á landi þar sem 66 módeUn fá aðgang að vínveitingastöð- um. Okkur langar að spyrja: A fólk að fórna þarna heUu ári af því timabUi ævi sinnar þegar það hefur áhuga og mikla ánægju af því að skemmta sér? Og er virkUega enginn af ykkur, skemmtistaðaeigendur, sem getur sett sig í okkar spor og haft 18 ára aldurs- takmark að minnsta kosti einu sinni á helgi? I von um skjótar úrbætur. Útvarp: Tónlistarmenn verði kynntir á kvöldin Regina V. skrifar: Eg vU taka undir orð S.B. frá Akur- eyri sem birtust í DV þann 4. þ.m. Ekki veitir af þáttum þar sem virki- lega góðir hljómUstarmenn eru teknir fyrir, saga þeirra rakin og gömul og ný lög leikin eftir þá, í stað þessarar svo- köUuöu diskó-break tónUstar sem glymur aUa daga, laga, sem eru vinsæl í 2—3 vikur en gleymast síðan. Reynið nú að höfða til aUra og takiö upp svona þætti á kvöldin. Eg er viss um að þeim verður vel tekiö af mörgum. Ahorfandi skrifar: Það er nú að sannast áþreifanlega, ef svo má að orði komast, að ákvörðun Steingríms Hermanns- sonar um að veita Arnarflugi leyfi tU áætlunarflugs var hárrétt og fær- ir okkur aftur til þeirra ára, þegar flugfélögin tvö, Loftleiöir og Flugfé- lag Islands, þjónuöu landsmönnum með harðri en drengUegri sam- keppni. Raunar hefur aldrei verið gert eins stórt axarskaft í flugmálum og þegar sameining þessara tveggja flugfé- laga var knúin i gegn. Nú, þegar deUa um kjör flug- manna Flugleiða stendur yfir, var þó annað félag í landinu, Arnarflug, sem ekki er í verkfaUi og getur haldiö uppi samgöngum við umheim- inn. Það var engin lífsnauðsyn fyrir samgönguráðherra að setja lög á flugmenn Flugleiða úr því Arnarflug hélt uppi flugi. Hann hefði fremur átt aö kanna hvað það er í raun sem veldur því að þaö eru aðeins flug- menn Flugleiöa sem grípa tU verk- faUsvopnsins en ekki Amarflugsflug- menn. En sem áhorfandi að þessum yfir- standandi deUum flugmanna og Flugleiða viröist það bera hæst aö samskipti starfsfóUcs Flugleiöa og stjómenda þeirra eru með þeim hætti að fátítt er í atvinnulífinu. Er þá farið aö saxast á slagorðið þeirra hjá Flugleiöum: „Gott fólk hjá traustu félagi”. Enda ber litið á traustinu, a.m.k. er það ekki gagn- kvæmt. Það væri verðugt verkefni þeirra er gera kannanir að kynna sér hvers vegna samskipti virðast vera mun betri mUli starfsfólks og stjórnenda hjá Arnarflugi en hjá Flugleiðum. En vonandi er sá tími að koma að Arnarflug sé smátt og smátt að fá stuðning landsmanna og hyUi svipaö því er Loftleiðir höfðu á sínum tíma. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.