Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1984, Blaðsíða 2
18 Sjónvarp Sjónvarp Kroppasýningar og fegurðarsam- keppni karla i Bretlandi verða á dagskrá sjónvarps 22. júnikl. 21.20 og nefnistþátturinn Eitthvað fyrir konur. Spencer Tracy og Katherine Hopburn í hlutverkum sínum i myndinni Eitt rif úr mannsins síðu. á eitt sáttir. Þýöandi Kristmann Eiðsson. 00.20 Dagskrárlok. Sunnudagur 24.júní 17.00 Sunnudagshugvekja. Séra Þor- bergur Kristjánsson flytur. 17.10 Teiknimyndasögur. Lokaþátt- ur. Finnskur myndaflokkur í fjórum þáttum. Þýöandi Kristín Mantyla. Sögumaöur: Helga Thor- berg. (Nordvision — Finnska sjón- varpiö). 17.25 Hvalkálfurinn. Þessi einstæða kvikmynd var tekin í sædýrasafn- inu í Vancouver af mjaldurkú sem bar þar kálfi. Þýðandi Jón O. Edwald. 17.40 Ósinn. Kanadísk kvikmynd um auðugt lífríki í árós og á óshólmum í Bresku Kólumbíú og nauðsyn verndunar þess. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. 17.55 Evrópumót landsliða í knatt- spyrnu — undanúrsUt. Bein út- sending frá Lyon. (Evróvision — Franska sjónvarpið) 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. ,20.00 Fréttir og veður. 20.25 Augiýsingarogdagskrá. 20.35 Sjónvarp næstu viku. 20.50 Stiklur. 16. Undir hömrum, björgum og hengiflugum. Stiklaö er um við önundarfjörö, Dýraf jörð og Arnarfjörð þar sem brött og ill- kleif fjöU setja mark sitt á mann- lífið, einkum aö vetrarlagi. Myndataka: örn Sveinsson. Hljóð: Agnar Einarsson. Umsjón: Omar Ragnarsson. 21.35 Sögur frá Suður-Afríku. 3. DularfuU kynni. Myndaflokkur í sjö sjálfstæðum þáttum sem gerðir eru eftir smásögum Nadine Gordimer. Ekkja ein kemst í kynni við ungan mann, sem sest að hjá henni, en er þó oft fjarvistum. Þegár frá Uður vekja athafnir hans og framkoma ugg hjá kon- unni. Þýðandi Oskar Ingimarsson. 22.30 Kvöldstund með Arnett Cobb. Bandarískur djassþáttur. Tenór- saxófónleikarinn Amett Cobb leik- ur ásamt hljómsveit í Fauborg- djassklúbbnum í New Orleans. 23.10 Dagskrárlok. Breski framhaldsmyndaflokkurinn um börnin við ána verður fyrr á dag- skránni iaugardaginn 23. júní en venjuiega eða kl. 17.15. Ástæðan er bein útsendingkl. 17.40. Bandarískur djassþáttur með tenórsaxófónleikaranum Arnett Cobb verður isjónvarpi sunnudaginn 24. júníkl. 23.30. Borgarvirki nefnist myndin sem sýnd verður föstudagskvöldið 22. júní kl. 22.05. Þarsegir frá ungum og ósérhlifnum lækni. Sjónvarp laugardag kl. 22.30: ERFIÐLEIKAR IHJONABANDI LÖGMANNA Þau Adam og Amanda Bonner eru hjón og bæði lögfræðingar. Hjónaband þeirra hefur verið mjög gott þar til þau standa andspænis hvort öðru í réttar- salnum. Þar er Amanda verjandi konu sem er ákærö fyrir að hafa stytt eigin- manni sínum aldur. Adam er hins vegar sækjandi í málinu. Fjölmiölar slá upp málaferlunum, m.a. vegna þess að lögmennimir eru hjón, og hefur sá uppsláttur sín áhrif á sam- skipti hjónanna. Myndin er frá árinu 1949 og er svart- hvít. Hún nefnist Eitt rif úr mannsins síðu og tekur 101 mínútu í sýningu. Dómar kvikmyndahandbóka um hana em mjög góðir, allt að fjórar stjörnur. Með hlutverk lögmannshjónanna fara þau Katherine Hepbum og Speneer Tracy. Meö önnur aðalhlut- verk fara Judy Holliday og David Wayne. Þýöandi er Jón Thor Haraldsson. SJ DV. FtísTUDÁG UR15. JÓNÍ1984.' Kvikmyndir Kvikmyndir KVIKMYNDIR UM HELGINA UMSJÓN: FRIÐRIK INDRIÐASON Þrjár nýjar myndir eru komnar í kvikmyndahúsin nú fyrir helgina, Cannery Row í Nýja bíó, A Nous Deux í Stjörnubíó og Heat and Dust í Regnbogann. Svipmynd úr Cannery Row. Cannery Row, eða Ægisgata, er byggð á einum af þekkt- ari skáldsögum John Steinbeck með þeim Nick Nolte og Debra Winger í aðalhlutverkum, leikstjóri er David S. Ward. Sagan var, og er, eitt af mínum uppáhaldsverkum eftir Steinbeck og það gengur svolítið illa hjá Ward að koma til skila þeirri sérstöku tilfinningu og andrúmslofti sem sagan býr yfir en ef myndin er tekin án tengsla við söguna stendur eftir nokkuð hugguleg mynd sem flestir ættu að hafa gaman af hvert sem f æðingarár þeirra er. Cannery Row fjallar um haffræðinginn Doxa og unga stúlku, Suzy. Stúlkan vinnur á hóruhúsi en Doxi, skarpur karl með gullhjarta, verður ástfanginn upp fyrir haus af henni. Myndin Heat and Dust í Regnboganum er byggð á sam- nefndri skáldsögu Ruth P. Jhabvala um unga stúlku sem fer til Indlands til að kanna afdrif breskrar konu sem 60 árum áður hafði yfirgefið mann sinn og eru sögur þessara tveggja kvenna fléttaðar saman í myndinni. Julie Christie og Greta Sacchi fara með hlutverk kvennanna en auk þeirra mun dáðasti leikari Indverja, Shashi Kapoor, fara með eitt aðalhlutverkið í myndinni. Leikstjóri er James Ivory. Stjömubíó hefur frumsýnt frönsku myndina A Nous Deux með þeim Jacques Duaronc og Catharine Deneuve í aðalhlutverkum en Deneuve hefur verið gífurlega afkasta- mikil á síðustu árum og man maöur varla eftir franskri mynd undanfarið þar sem hún hefur ekki verið í aðalhlut- verki. A Nous Deux fjallar um samband konu, sem eftirlýst er fyrir fjárkúgun, og karlmanns sem eytt hefur stórum hlut ævi sinnar í fangelsi vegna ýmissa afbrota. Af öðrum myndum í kvikmyndahúsunum er fátt sem þarf að geta um utan myndarinnar Once up on a time in America part 1 eftir Sergio Leone með Robert De Niro í aðalhlutverki sem Bíóhöllin sýnir núna. Auk þess er hægt að benda á að í allri þeirri súpu mynda sem Regnboginn hefur endursýnt undanfarið má finna margar perlur ef grannt er skoðað eins og til dæmis „Á flótta í óbyggðum” og „Frances”. -FRI. WfVfTVWVVWWV Kvikmyndir Æ Kvikmyndir JbUJUUUUULUi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.