Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Qupperneq 2
18
Sjónvarp Sjónvarp
Séö yfir böfnina á Þingeyri og inn Dýraf jörð.
Sjónvarp sunnudag kl. 20.50:
Undir hömrum, björg-
um og hengiflugi
— í Stiklum Ómars Ragnarssonar
Omar Ragnarsson fór snemma í
vor til Vestf jaröa ásamt fríðu föru-
neyti og stiklaði um viö Önundar-
fjörð, Dýrafjörö og Amarfjörð.
Afrakstur þeirrar feröar er 16.
þáttur af Stiklum sem hann nefnir
Undir hömrum, björgum og hengi-
flugi.
í þættinum spjallar Omar við íbúa
þessara fjarða en einangrun þeirra
er mikil því aö t.d. að bæjunum
Lokinhömrum og Hrafnabjörgum í
Auökúluhreppi við Arnarfjörð er
aðeins hægt að komast á bátum. A
Lokinhömrum býr Sigurjón Jónas-
sön en á Hrafnabjörgum býr Sigríður
Ragnarsdóttir. Yfir veturinn eru
þau ein í kotinu en á sumrin kemur
fólk til þeirra í vinnu. Þau hafa
ekkert rafmagn og í vonda veðrinu í
fyrra voru þau algjörlega einangruð
í þrjár vikur. Einnig ræöir Omar við
vegageröarmanninn Elís Kjaran en
hann hefur meðal annars lagt veg-
arspotta fyrir vestan upp á sitt ein-
dæmi.
Þaö eru margir merkir staðir við
þessa þrjá firöi sem Omar stiklar
um. Við Arnarfjörð er t.d. Hrafns-
eyri þar sem Jón Sigurðsson fæddist.
Dýrafjörður er stærstur þeirra
fjarða sem liggja innan marka
Vestur-Isafjarðarsýslu, en Gísla
saga gerist að verulegu leyti í Dýra-
firði. I Önundarfirði, sem er norðan
Dýrafjarðar, eru fjórir bæir sem
heita Kirkjuból og mun slíkt vera
einsdæmi í nokkurri einstakri byggð
á Islandi.
Omar sagði að til stæöi að gera
örfáa Stikluþætti í viðbót en vegna
anna væri erfitt að finna tíma til þess
að fara frá daglegu amstri og stikla
um sérstæða staði. Myndatöku í
þessum þætti annaðist öm Sveins-
son, en Agnar Einarsson sá um
hljóðið.
SJ
20.50 Grinmyndasafnið. 2. Hótel-
sendillinn. Skopmyndasyrpa frá
árum þöglu myndanna með
Charlie Chaplin og Larry Semon.
21.05 Heimur forsetans. Breskur
fréttaskýringaþáttur um utan-
ríkisstefnu Ronalds Reagans for-
seta og samskipti Bandaríkja-
manna við aörar þjóðir í stjórnar-
tíð hans. Þýðandi Ögmundur
Jónasson.
22.00 Sviplegur endir. (Ail Fall
Down). Bandarísk bíómynd frá
1962. Leikstjóri John Franken-
heimer. Aðalhlutverk: Warren
Beatty, Brandon de Wilde, Angela
Lansbury, Karl Malden og Eva
Marie Saint. Unglingspiltur lítur
mjög upp til eldra bróður síns sem
er spilltur af eftirlæti og mikiö
kvennagull. Eftir ástarævintýri,
sem fær hörmulegan endi, sér
pilturinn bróður sinn í öðru ljósi.
Þýðandi Guðrún Jörundsdóttir.
23.45 Fréttir í dagskrárlok.
Laugardagur
30. júní
16.30 tþróttir. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
18.30 Bömin við ána. Annar hluti —
Sexmenningamir. Breskur fram-
haldsmyndaflokkur í átta þáttum,
geröur eftir tveimur barnabókum
eftir Arthur Ransome. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
19.00 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 í blíðu og striðu. Sjöundi þátt-
ur. Bandarískur gamanmynda-
flokkur í níu þáttum. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen.
21.00 Bankaránið (The Bank Shot).
Bandarísk gamanmynd frá 1974.
Leikstjóri Michael Anderson.
Aðalhlutverk: George C. Scott,
Joanna Cassidy og Sorell Booke.
Oftast nær láta bankaræningjar
sér nægja að láta greipar sópa um
sjóði og fjárhirslur en ræningjarn-
ir í þessari mynd hafa á brott með
sér banka með öllu sem í honum
er. Þýðandi Jón O. Edwald.
22.20 Minnisblöð njósnara. (The
Quiller Memorandum). Bresk bíó-
mynd frá 1966, gerð eftir sam-
nefndri njósnasögu Ivans Fox-
wells. Leikstjóri Michael
Anderson. Handrit: Harold Pinter.
Aöalhlutverk: George Segal, Max
von Sydow, Alec Guinnes og Senta
Berger. Breskum njósnara er falið
aö grafast fyrir um nýnasista-
hreyfingu í Berlín. Þýðandi Krist-
mann Eiðsson.
00.10 Dagskrárlok.
Sunnudagur
1-júlí
18.00 Sunnudagshugvekja. Séra Þor-
bergur Kristjánsson flytur.
18.10 Geimhetjan. (Crash) Nýr
flokkur. Danskur framhalds-
myndaflokkur fyrir börn og ungl-
inga í þrettán þáttum eftir Carsten
Overskov. Aðalhlutverk: Lars
Ranthe, 14 ára. 111 öfl úti í himin-
geimnum ógna jörðinni og öllu sól-
kerfinu með gjöreyðingu. Danskur
piltur er numinn brott og fluttur
iangt út í geiminn. Þar kemst hann
á snoðir um ráöabruggiö og reynir
síöan að afstýra heimsendi. (Nord-
vision — Danska sjónvarpið).
18.30 í skugga pálmanna. Heimilda-
mynd um líf og kjör bama á
Maldíveyjum á Indlandshafi. Þýð-
andi Jón O. Edwald. (Nordvision
— Danska sjónvarpið).
19.10 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.50 Sögur frá Suður-Afríku. 4. For-
boðin ást. Myndaflokkur i sjö þátt-
um sem gerðir eru eftir smásögum
Nadine Gordimer. Þýskur jarð-
fræðingur og blökkustúlka fella
hugi saman en samband þeirra
brýtur í bága við kynþáttalög.
Þýðandi Oskar Ingimarsson.
21.50 George Orwell — fyrri hluti.
Bresk heimildamynd um ævi
George Orwell, höfundar „1984”,
Félaga Napóleons og fleiri bóka. I
myndinni er dregið fram það
helsta, sem hafði áhrif á ritsmíöar
Orwells, og gerði hann aö einum
áhrifamesta rithöfundi Breta á
þessari öld. Síöari hluti myndar-
innar verður á dagskrá Sjónvarps-
ins mánudaginn 2. júlí. Þýðandi
Kristrún Þórðardóttir.
23.00 Dagskrárlok.
Sunnudaginn 1. júli hefur göngu sina nýr, danskur framhaldsmyndaflokk-
ur fyrir börn og unglinga sem nefnist Geimhetjan. Söguhetjan er danskur
drengur sem kallaður er Birgir og er numinn á brott út i geiminn.
DV,.FÖSTUDAGUR22..JUNI 1984..
Kvikmyndir
Kvikmyndir
KVIKMYNDIR
UM HELGINA
UMSJÓN: HILMAR KARLSSON
Robert De Niro leikur aöalhlutverkið í Einu sinni var í Ameríku. Er hann lát-
inn eldast um ein 50 ár í myndinni.
Það er enginn vafi á því að merkilegasta kvikmyndin í
kvikmyndahúsum borgarinnar þessa dagana er Einu sinni
var í Ameríku sem sýnd er í Bíóhöllinni að vísu í tvennu
lagi, sem er miður, en myndin er það löng að tekinn hefur
verið sá kosturinn að sýna hana í tvennu lagi í mörgum
löndum í Evrópu. Bandaríkjamenn eru samir við sig og
ætla aö stytta hana um klukkutíma og sýna hana í einu
lagi. Viss er ég um að þessi aftekni klukkutími eyðileggur
myndina, enda ekki gert með samþykki leikstjórans,
Sergio Leone. Það verða sjálfsagt ekki allir sammála um
gæði myndarinnar, en það skapar alltaf eftirvæntingu að
sjá kvikmynd eftir Leone og sérstaklega á það við um Einu
sinnl var í Ameríku sem var rúm tíu ár í tilbúningi og stóðu
aUan tímann miklar deilur um hana.
Gene Hackman á hér í höggi við stjórnarhermenn i Under Fire.
I dag sýnir Háskólabíó bandaríska stórmynd sem notið
hefur töluverðra vinsælda, Under Fire. Myndin er látin
gerast í Nicaragua á síðustu dögum Somoza stjórnarinnar
og fjallar um ljósmyndara og blaðamenn og viðskipti
þeirra við stjórnarhermenn og sandinista. Það eru þeir
Nick Nolte, Gene Hackman og Joanna Cassidy sem leika
aðalhlutverkin.
Nick Nolte er einnig í annarri kvikmynd, Cannery Row,
sem sýnd er í Nýja bíói. Þetta er kvikmynd gerð eftir
frægri skáldsögu eftir John Steinbeck. Þeir sem hafa lesið
bókina verða vafalaust fyrir vonbrigðum með útkomuna,
en aðrir gætu haft gaman af.
mr v
'íi’
II
Goldie Hawn og Burt Reynolds leika eiskendur í Bestu vinir.
Austurbæjarbíó sýnir gamanmyndina Bestu vinir (Best
Friends) og í aðalhlutverkum eru tveir af vinsælustu leik-
urum vestanhafs, Burt Reynolds og Goldie Hawn. Leika
þau par sem eru bestu vinir þangað til þau gifta sig.
Nokkuð einkennileg mynd er í Tónabíói, nefnist hún í fót-
spor bleika pardusins (Trail of the Pink Panther). Hún
fjallar að sjálfsögðu um hinn seinheppna Inspector
Clouseu. Það einkennilega við þessa mynd er það að hún er
gerð eftir lát Peter Sellers, en samt leikur hann aðalhlut-
verkið. Notast er við upptökur sem ekki voru notaðar í
fyrri myndum og söguþráðurinn tengdur þeim.
Laugarásbíó endursýnir tvær framhaldsmyndir þessa
dagana, Jaws 3D og Sting 2. Stutt er síðan báðar myndirn-
arvorusýndar.
I Regnboganum eru eftirtektarverðustu kvikmyndirnar
Hiti og ryk (Heat and Dust), gerðar af James Ivory sem er
þekktur bandarískur leikstjóri sem býr í Indlandi og þar
gerast allar hans myndir. Tender Mercies og Frances eru
aðrar myndir í Regnboganum sem vert er aö gefa gaum
að.
Stjörnubíó frumsýndi í vikunni Skólafrí (Spring Break),
létta gamanmynd sem auðvelt er að geta sér til um um
hvað hún fjallar. I B-sal Stjömubíós eru úrvalsmyndirnar
Educating Rita og The Big Chill. Ég vona svo að allir geti
fundið eitthvað við sitt hæfi því að úr nógu er að velja.
I ■ ■ ■ B"Kk IHIilBiiBliMBItl I B'l'
Kvikmyndir
Kvikmyndir
JE