Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1984, Síða 3
Messur
Guðsþjónustur í Reykjavíkurprófastsdæmi
sunnudaginn 24. júní 24. júní 1984.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guösþjónusta i
Safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 11.00 árd.
Organleikari Jón Mýrdal. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Guðþjónusta kl. 11.00. Sr. Ami
Bergur Sigurbjömsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 10.00
árd. Organleikari Oddný Þorsteinsdóttir. Sr.
Olafur Skúlason.
DÖMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Dómkórinn
syndur, organleikari Marteinn H.
Friðriksson. Sr. Hjalti Guðmundsson.
ELLIHEIMILEÐ GRUND: Guðþjónusta kl.
10.00 Albert Bergsteinsosn prédikar.
FELLA- OG HÖLAPRESTAKALL:
Guðsþjónusta í Menningarmiðstöðinni við
Gerðuberg kl. 11.00. Sr. Hreinn Hjartarson.
FRÖURKJAN I REYKJAVtK: Bama- og
fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Guðspjallið i
myndum. Barnasálmar og smábama-
söngvar. Afmælisbörn boðin sérstaklega
velkomin. Sunnudagspóstur handa bömum.
Framhaldssaga. Við hljóðfærið Pavel Smid.
Sr. Gunnar Bjömsson.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00
Altarisganga. Organleikari Ámi Arinbjamar-
son. Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr.
Karl Sigurbjömsson. Þriðjudagur: Fyrir-
bænaguösþjónusta kl. 10.30, beðiö fyrir
sjúkum. Miðvikudagur: Náttsöngur kl. 22.00.
LANDSPlTALINN: Guðsþjónusta kl. 10.00.
Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr.
Tómas Sveinsson.
BORGARSPlTALINN: Guðsþjónusta kl.
10.00. Sr. Sr. Tómas Sveinsson.
Kópavogskirkja: Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 11.00 árd. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Prestur sr. Pjetur Maack. Organleikari
Kristín Ogmundsdóttir. Sóknamefndin.
LAUG ARNESKIRK JA: Laugardagur:
Guðsþjónusta Hátúni 10B, 9. hæð, kl. 11.00.
Sunnudagur: Messa kl. 11.00. Altarisganga.
Fermingarmyndir afhentar eRir messu. Sr.
Ingólfur Guðmundsson kveður söfnuðinn og
lýkur þjónustu sinni um mánaðamótin. Sr.
Ami Bergur Sigurbjömsson þjónar í leyfi
sóknarprests í júlí, en sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson kemur til starfa í byrjun ágúst-
mánaðar. Þriðjudagur: Bænaguðsþjónusta
kl. 18.00. Sóknamefndin.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr.
Frank M. Halldðrsson.
SELJASÖKN: Guösþjónusta í Oldusels-
skólanum kl. 11.00 árd. Altarisganga.
Fermingarguðsþjónusta á Askirkju kl. 14.00.
Fermd verður Inga Björg Hjaltadóttir frá
Lundi, p.t. Sunnuvegi 31, Reykjavík. Fimmtu-
dagur28. júní: Fyrirbænasamvera kl. 20.30 í
Tindaseli 3. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN I IIAFNARFIRÐI:
Guðsþjónusta kl. 14.00. Siöasta guðsþjónusta
fyrir sumarleyfi. Safnaðarstjóm.
Tilkynningar
Þingvallakirkja
Kvöldvaka laugardaginn 23. júni kl. 20.30.
Lesmessa sunnudagin- 24. júni. kl. 14.00.
Altarisganga.
Sóknarprestur.
Orlof húsmœðra
fyrir húsmæður í Garðabæ verður haldið að
Laugarvatni vikuna 2.-8. júlí. Upplýsingar
gefur Kolbrún í síma 13173 á kvöldin.
Atvinnumiðlun
námsmanna,
Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut, sími
15959 og 27860. Opiökl. 9.00—17.00 virka daga.
Fréttatilkynning
Ut er komið nýtt tölublað timaritsins Ur
felum sem Samtökin ’78, félag lesbía og
homma á tslandl, gefa út. Þetta tölublaö er
fyrst og fremst helgað réttindabaráttu
homma á skemmtistöðum. Fjallað er í
greinabálki um ofsóknir þær sem hommar og
lesbiur veröa fyrir á skemmtistöðum og
ræddar leiðir til úrbóta. Þá er í ritinu kynnt
starfsemi Samtakanna ’78 og þar er að finna
sýnishom af listsköpun homma og lesbía —
smásögur og ljóð — og myndefnið er hið fjöl-
breyttasta að vanda.
Ur felum er til sölu í Bókabúð Braga,
Hlemmi, Bókabúð Máls og menningar, hjá
Eymundssyni og Bóksölu stúdenta. Einnig
selja félagsmenn Samtakanna ’78 timaritið í
miðbæ Reykjavíkur á föstudögum i sumar.
Stúdentaleikhúsið f rumsýnir:
Láttu ekki deigan síga, Guðmundur
Sunnudaginn 24. júni kl. 20.30
frumsýnir Stúdentaleikhúsiö í
Félagsstofnun stúdenta nýtt íslenskt
leikrit eftir Eddu Björgvinsd. og Hlín
Agnarsdóttur. Það heitir Láttu ekki
deigan síga, Guðmundur og f jallar á
gamansaman hátt um tímabiliö
1968—1984 séð með augum
Guðmundar Þórs sem er 37 ára
gamall. Hann rifjar upp fyrir syni
sínum, Garpi Snæ, vissa þætti og at-
vik út frá minningum sem myndir úr
hans eigin myndasafni vekja hjá
honum. Þessar myndir lifna svo við
á sviðinu og sýna þá fjölbreytni sem
Guðmundur hefur reynt, bæði í póli-
tísku og persónulegu lífi. Þetta
verður fjölmenn og fjörmikil sýning.
Leikstjóri er Þórhildur Þorleifs-
dóttir. Söngtextar eru eftir Þórarin
Eldjám og Anton Helga Jónsson.
Jóhann G. Jóhannsson gerir tónlist-
ina og flytjendur tónlistar eru Hulda
Geirlaugsdóttir, píanó, og Þórður
Högnason, kontrabassa. Leikmynd
er eftir Stíg Steinþórsson og Ellen F.
Martin og Margrét Magnúsdóttir sáu
um búninga. Lýsingu annast Egill
Ámason. Alls koma um 25 manns
fram í sýningunni. Aðalhlutverkið,
Guðmund Þór, leikur Kjartan Bjarg-
Sumarsýning í Norræna húsinu:
Landið mitt, ísland
Landið mitt ,Lsland nefnist sumar-
sýning Norræna hússins að þessu
sinni. Sýningin verður opnuö á
morgun, laugardaginn 23. júni, kl. 15
og stendur hún til 22. júli nk. Hún
verður opin daglega frá kl. 14—19.
Sumarsýning Norræna hússins að
þessu sinni fjallar um Island, land og
þjóð, séð með augum íslenskra
grunnskólanemenda. Aðdragandi
sýningarinnar er sá að veturinn 1983
óskaði Norræna húsiö eftir samstarfi
við Félag islenskra myndmennta-
kennara um sumarsýningu hússins
1984. Skyldi viðfangsefni sýning-
arinnar vera hvemig íslensk böm
skynja landið sitt, náttúruna og
fólkið. Var öllum aldurshópum
grunnskólans boöin þátttaka.
Dómnefnd, skipuð fulltrúum frá
Félagi ísl. myndmenntakennara,
menntamálaráðuneytinu, Félagi
íslenskra myndlistarmanna og Nor-
ræna húsinu, skyldi velja endanleg
verk á sýninguna eftir að forval hefði
farið fram í skólunum. Dómnefndin
valdi rúm 140 verk, unnin af 4—14
ára bömum úr 16 grunnskólum, bæði
úr dreifbýli og þéttbýli.
Nú stendur yfir í bókasafni Nor-
ræna hússins sýning á hefðbundnu
islensku prjóni, að mestu leyti byggö
upp af munum úr Þjóðminjasafni
Islands. Sýningin verður opin á
venjulegum opnunartíma bóka-
safnsins, frá kl. 9—19 virka daga og
14—17 sunnudaga.
Á mánudag, 25. júní, verður opnuð
sýning í anddyri Norræna hússins á
búningateikningum úr tveimur kvik-
myndum sem teknar hafa verið hér-
lendis. Það er Ulla-Britt Söderlundj
sem sýnir þar skissur að búningum
fyrir kvikmyndimar Hauðu
skikkjuna og Paradísarheimt sem
þýska sjónvarpið lét gera. Sýningin á
búningunum stendur til 9.júlí.
Fimmtudaginn 28. júní nk. hefst
svo opið hús í Norræna húsinu en þar
verður flutt dagskrá sem einkum er
ætluð norrænum ferðamönnum. Rætt
verður um íslenska þjóðtrú í bók-
menntum og kvikmyndin Sveitin
milli sanda verður sýnd. Opna húsið
hefst kl. 20.30.
-SJ.
önnur sýning verður þriðjudaginn
26. júni kl. 20.30. Miöasala er við
innganginn og miðapantanir eru
teknarísíma 17017.
Listasaf n íslands:
SIÐASTA SÝNINGAR-
HELGIÁ VERKUM
KARELS APPEL
Nú um helgina lýkur sýningu í
Listasafni Islands á verkum hins
heimsþekkta hollenska listmálara
Karels Áppel i Listasafni Islands.
Um helgina verður opið frá kl. 13.30
til kl. 22 og þaö er eins gott að drifa
sig því það er alveg ömggt að sýning-
in verður ekki framlengd.
Á sýningunni eru alls 48 verk og
eru flest þeirra unnin í olíu en einnig
akrýlmyndir, grafík og myndir
unnar í blandað efni.
Karel Appel er fæddur í Amster-
dam 1921 og hefur verið í sviðsljósinu
allt frá því snemma á sjötta ára-
tugnum. Arið 1948 stofnaði hann,
ásamt Constant og Corneille, fram-
úrstefnuhópinn REFLEX í Amster-
dam sem síðar sama ár gekk til liös
við COBRA samtökin er þau voru
stofnuð. Haldnar hafa verið óteljandi
sérsýningar á verkum hans og þau
eru í eigu allra helstu safna heims.
Hluti leikara í Láttu ekki deigan siga, Guðmundur.
mundsson og son hans, Garp Snæ,
leikur Hilmar Jónsson. önnur stór
hlutverk leika þau Helgi Bjömsson,
Asa Svavarsdóttir, Soffía Karlsdótt-
ir, Eria Ruth Harðardóttir, Edda
Amljótsdóttir, Rósa Þórsdóttir,
Rósa M. Guðnadóttir, Amór
Benónýsson og fleiri.